Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 19 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvœmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Svelnsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aðstoöarritstjórí: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, síml: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 Oræn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafrsn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vfsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setnlng og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf. Filmu- og plötugerð: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverö 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viömælendum fýrir viðtöl viö þá eöa fýrir myndbirtingar af þeim. Handafl og tilskipanir Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra hefur farið sér hægt í einkavæðingu ríkisviðskiptabankanna. Hægagangur ráðherrans hefur haft slæm efnahagsleg áhrif, enda hefði umfangsmikil einkavæðing bankanna slegið verulega á þensluna þegar þess var þörf og hrint af stað uppstokkun á islenskum íjármálamarkaði sem öll rök benda til að sé nauðsynleg. Heimili og fyrirtæki hafa þurft að sætta sig við hærri vexti en þekkist í helstu viðskiptalöndum íslands vegna framtaksleysis ráðherrans og ríkisstjórnarinnar. í stað þess að láta verkin tala hefur ráðherrann setið með hendur í skauti og gælt við hugmyndir um að sameina Búnaðarbanka og Landsbanka í einn banka. Furðu sætir hve mikið langlundargeð talsmenn einkavæðingar innan ríkis- stjórnarinnar hafa sýnt ráðherra viðskipta- og banka- mála. DV og fleiri fjölmiðlar hafa undanfarna daga greint frá því að búist sé við að innan fárra daga dragi loks til tíðinda. Flestir á íslenskum íjármálamarkaði virðast búast við að ríkisstjórnin samþykki tillögu Valgerðar Sverrisdóttur um að sameina ríkisviðskiptabankana áður en hafist verður handa við klára einkavæðingu þeirra. Með því verður hins vegar farið úr öskunni í eld- inn. Fáir bera á móti því að endurskipulagning og hag- ræðing sé nauðsynleg á íslenskum íjármálamarkaði en það óskynsamlegasta sem ríkisstjórnin getur gert í þeim efnum er að beita handafli. Viðskiptaráðherra getur og má ekki hafa frumkvæði að því að sameina banka eða aðrar fj ármálastofnanir. Til þess skortir hann alla yfir- sýn og skilning sem aðeins fæst á markaði samkeppn- innar. Stjórnmálamenn hafa ekki verið þekktir fyrir að taka skynsamlegar ákvarðanir varðandi viðskipti - til þess eru aðrir betur fallnir. Það eina sem stjórnmála- menn geta gert er að skapa þeim sem betur eru færir en þeir tækifæri til að hefjast handa. Viðskiptaráðherra á ekki að hafa áhyggjur af því hvaða leiðir íslenskir bankar kjósa að fara í endalausri leit þeirra að hagkvæmari rekstri. Þegar ráðherra hef- ur selt hlutabréf rikisins í ríkisviðskiptabönkunum á að láta nýja eigendur hafa áhyggjur af rekstrinum og fram- tíðinni. Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra getur ekki skýlt sér á bak við einhver reiknilíkön fjármálamanna sem sýna fram á mikinn sparnað og hagkvæmari rekst- ur ríkisviðskiptabankanna verði þeir sameinaðir. Reiknilíkön gefa ekki aðrar niðurstöður en þeim er ætl- að og forsendur gefa tilefni til. Þróunin á íslenskum fjármálamarkaði verður að gerast á markaðslegum for- sendum en ekki með stefnuyfirlýsingu frá opinberum aðilum. Verkefni ríkisstjómarinnar og Valgerðar Sverrisdótt- ur viðskiptaráðherra er ekki að knýja fram sameiningu Búnaðarbanka og Landsbanka heldur fyrst og fremst að klára verkefni sem þegar hefur verið hafið: að draga rikið fyrir fullt og allt út úr rekstri á fjármálamarkaði en um leið að tryggja að eðlileg samkeppni fái að njóta sín. Það væri furðuleg niðurstaða ef viðskiptaráðherra, yfirmaður samkeppnismála, teldi það í samræmi við anda og tilgang samkeppnislaga að fækka leikendum á markaði með handafli og tilskipunum. Óli Björn Kárason DV Skoðun Viðskiptabönn og viðskiptafrelsi „Viðskipti tryggja efnahagslegt sjálfstæði sem er for- senda þess að almenningur í írak sé tilbúinn að berjast gegn ofríki Saddams Husseins. “ - Hussein á opinberri hátíð múslíma í Bagdad. öflugan hljómgrunn hjá vinstri mönn- Ég er á móti viðskipta- bönnum af einfaldri ástæðu; ég tel þau í fæstum tilvikum þjóna tilgangi sínum. Þetta á einnig við um viðskiptabann SÞ gagnvart írak í þeim til- gangi að steypa ógnvaldinum Saddam Hussein af stóli. Nið- urstaðan er sú að bannið bitnar á þriðja aðilanum, al- menningi í írak, sem er kúg- aður til stuðnings við ein- ræðisherrann. Þrátt fyrir að SÞ hafi boð- ið Saddam að slakað yrði á banninu gegn því að eftirlitsnefnd fái að koma inn í landið til að taka út eign íraka á gjöreyðingarvopnum hef- ur því verið hafnað. Saddam Hussein hefur því valið vopnin fyrir sig í stað lyfja og matar fyrir þjóð sína. Það er þvi ljóst að það eymdarástand sem skapast hefur í kjölfar viðskipta- bannsins er sök Saddams Husseins. Afnemum viðskiptabannið Saddam Hussein ógnar öryggi Vest- urlanda. Hann ræður yfir gjöreyðing- arvopnum og hefur hvað eftir annað ítrekað andstyggð sína á vestrænum ríkjum. Þeir sem eru að reyna að tryggja öryggi okkar segja valið standa á milli þess að beita hervaldi eða viðskipta- banni. Af þessum tveimur kostum telur öryggisráð SÞ viðskiptabannið skárri kost. En bannið hefur sorg- legar afleiðingar í fór með sér fyrir ahnenning í írak sem hefur styrkst í stuðn- ingi sínum við kúgara sinn. Því hef ég talað gegn við- skiptabanninu enda stuðn- ingsmaður frjálsra við- skipta og tel að með þeim sé lagður grunnur að þeim gildum sem við viljum halda á lofti, eins og lýðræði og frelsi. Að efla viðskipti við kúgaðar þjóð- ir er ein leið til að upplýsa almenning í viðkomandi löndum um hvað frjálst markaðshagkerfi felur í sér og hvern- ig það vinnur að velferð einstaklinga og þjóða. Með auknum viðskiptum þarf að koma aukið frjálsræði og sam- skipti milli þjóða sem aftur eykur vel- megun borgaranna. Þegar borgarar sjá að velferð þeirra byggist fyrst og fremst á frelsi en ekki tilskipunum stjórnmálamanna og einræðisherra vex andstaða gegn harðstjórunum. Viðskipti tryggja efnahagslegt sjálf- stæði sem er forsenda þess að al- menningur í írak sé tilbúinn að berj- ast gegn ofríki Saddams Husseins. Með því að efla þessa vitund al- mennings, gera fólkinu grein fyrir í hverju kúgun þess er fólgin, er kom- inn sá grundvöllur sem nauðsynlegur er til að fólkið rísi upp og krefjist frelsis undan harðstjórum og lýðræð- is fólkinu til handa. Þetta var horn- steinninn í baráttu almennings í Austur-Evrópu gegn valdhöfum sín- um; þeim var ljóst að dýrö sósíalism- ans var blekking þegar samskipti við Vesturlönd jukust. Þaðan spratt and- staðan við valdhafana sem leiddi til falls járntjaldsins. Enginn tvískinnungur Það er hreint með ólíkindum að þurfa að hlusta á það frá vinstri mönnum að félög, sem ekki tóku þátt í mótmælum gegn Madeleine Al- bright, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, hafi sýnt tvískinnung í mann- réttindamálum því áður hefðu þau mótmælt komu Li Pengs hingað til lands. Ekkert er eins fjarri lagi þrátt fyrir að við höfum ekki viljað taka okkur stöðu gegn Albright við þetta tilefni við hlið t.d. herstöðvaandstæð- inga. Heimdallur hefur allt frá stofnun félagsins, árið 1927, barist með oddi og egg fyrir mannréttindum einstak- linga sem við teljum best tryggð með frelsi þeirra gegn ofríki ríkisvalds. í þeirri baráttu höfum við verið tals- menn frjálsra viðskipta, enda er markaðurinn frelsinu skjöldur og er ánægjulegt að við loksins fáum svo um í dag. Það er ekki langt síðan þessir sömu aðilar börðust gegn hvers kyns viðskiptum og þá má kannski spyrja- að því hvaðan tví- skinningurinn kemur. Ekki frá Heimdalli, það er ljóst. Björgvin Guömundsson Björgvin Guömundsson, form. Heimdallar og rit- stj. Frelsi.is Vitlaust gefið Mörg athyglisverð mál eru nú í brennidepli; sum gefa alveg nýja inn- sýn. í miðju góðærinu er ekki allt sem sýnist en fólk á að viðurkenna með kurt og pí að allt sé í himnalagi. Mjög litrík og fróðleg orðaskipti hafa orðið milli tveggja forseta, lýðveldis- ins (1) annars vegar og þingsins (2) hins vegar. Þingið hefur fjarlægst fólkið, segir forseti 1. Þessu hlaut forseti 2 augljóslega að mótmæla því það er vitaskuld rangt þar sem það er fólkið sem hefur fjarlægst þingið en ekki öfugt; þingið hefur einfald- lega setið eftir í ásköpuðum stelling- um. Þjóðin getur sjálfri sér um kennt með æðibunuganginum og sókn eftir lífsgæðum og viðurværi með leiðum sem ekki liggja um skömmtunar- krana við Austurvöll. „Ef fjallið kemur ekki til Múhameðs kemur Múhameð til fjallsins". Þjóðin hefði átt aö samsama sig félagi fordildar- manna við Austurvöll. Forseti 1 hefur rétt fyrir sér hvað varðar þróun atburðarásar í nýja efnahagskerfinu svokallaða; sam- skiptabyltingin leiðir strauma þjóð- „Forseti 1 hefur rétt fyrir sér hvað varðar þróun at- burðarásar í nýja efnahagskerfinu svokallaða; sam- skiptabyltingin leiðir strauma þjóðlífsins fram hjá Austurvelli, en hann skilur ekki að þessi þróun er ólýð- rœðisleg og jafngildir þvi að greiða atkvœði með fótun- um eða sýna borgaralega óhlýðni. - Forseta 2 getur þó verið huggun í harmi að hið sama gerist nú um allt.“ lífsins fram hjá Austurvelli, en hann skilur ekki að þessi þróun er ólýðræðisleg og jafngildir þvi að greiða at- kvæði með fótunum eða sýna borgaralega óhlýðni. - Forseta 2 getur þó verið huggun i harmi að hið sama gerist nú um allt. Vagga lýðræðisins Já, lýðveldið er það elsta í heimi og vagga lýðræðis- ins þar sem atkvæði borgaranna eru vigtuð misjafnlega allt eftir því í hvaða deild þau eru. Það er líka tímasóun að láta fólk i úrvalsdeild kljást við fólk i neðstu deild. Að vísu er unnt að koma á pókalkeppni þar sem allir taka þátt; skoðanakannanir eru því ígildi pókalleikja. Þótt niður- stöður liggi fyrir varðandi helstu álita- og ágreiningsmál eru verðlaun- in bara farandsbikar sem fær að skreyta húsakynni um sinn. Þing- menn úrvalsdeildar láta ekki breyta leikreglum í miðjum leik. Óðs manns æði Ef fólk veltir fyrir sér þeim ásetn- ingi aö gera réttinn til fiskveiða að eignarétti fárra.falla flestum hendur í skaut; þaö getur bara ekki verið rétt og þeir sem halda því fram hljóta að vera rangt upplýstir eða það sem verra er, öfundsjúkir. Einstaklingar fara einfaldlega bet- ur með sínar eigur en stjórnmála- menn og það er algilt lögmál, einnig þótt stærsta auðlind þjóðarinnar eigi í hlut; hinn svipuli sjávarauður fell- ur vel að hagfræðilíkönum séreign- armanna. Loftið sem við öndum aö okkur hefur verið mengað of mikið; þvi ber að koma því í einkaeign. ís- Jónas Bjarnason efnaverkfræöingur lendingar eru mjög snjallir í stjómun á nýtingu nátt- úruauðlinda til einkaþarfa; enda fer kynning fram í út- löndum. Annars er þjóð- arsálin íslenska sauðþrá og lætur ekki teyma sig út i hvað sem er. Öfug Pótemkintjöld Löggjöfin um fiskveiði- stjómun, ragbætt og stög- uð, rammskekkt og bjöguð, ásamt lögum um heimildir til frest- unar sköttunar hagnaðar af kvóta- sölu hefur leitt til þess að nú er hægt að selja þjóðareign og siðan flytja hagnaðinn milli fyrirtækja eða til út- landa og sleppa alveg við skatta. For- seti 2 ritaði í ársbyrjun tvær greinar tii varnar kvótakerfmu og tíndi allt til, já allt of margt, enda glöggur. Hann veit meira að segja að menn fari nú betur með flskinn; hann til- tók þó ekki gæðaástand þess fisks sem fer fyrir borð. Það er hægt að græða án þess að aðrir tapi, segja réttir kennimenn; enda velti Ingibjörg Sólrún millj- arðaskuldum af borginni yfir á Veitustofnun án þess að hún hækki verð á orku. Eilifðarvélin er í sjón- máli. Skuldir sjávarútvegsfyrirtækja eru næstum fimmtungur þúsunds milljarða og hafa aukist hratt en lík- legt er að þær séu að verulegum hluta til komnar vegna kvótakaupa. Pótemkintjöldin sýna larfa að fram- an en unnt er að læðast út um bak- dyr með kvótahagnað. Með lævísri leikfléttu er búið að innleysa rentu af fiskveiðum til margra ára. En fólk skyldi ekki æðrast því það var nefni- lega vitlaust gefið í upphafi. Jónas Bjarnason Með og á móti • • Oruggt kynlíf 4 /stakmark á smokkakaupum unglinga? Hvatning til hórdóms ,,Ég er fylgjandi því að þessir krakkar noti smokka, einfald- lega af því að þau eru byrjuð að stunda kynlíf og það er ekki hægt annað en að leyfa þeim að komast í vamir. Hitt leiðir bara af sér bameignir, fóstureyðingar og sjúkdóma, og það er það sem við erum að reyna að koma í veg fyrir. Hvort 15 ára unglingur kemst í smokka eða ekki breytir ekki ákvörðun hans um að stunda kynlíf, þau stunda það hvort sem er. Við erum bara að „Siðferðisbrest- 1 ur stjórnvalda er •Bpr* alvarlegt umhugs- f2) 1 . w hjálpa þeim að stunda öruggt unarefni. Hvað eft- 9, kynlíf. ir annað er að Sóley Bender gerði rann- sóknir á þessu hér á landi fyrir nokkrum árum, og hennar rannsóknir sýna að mínu áliti hvatt til að ungling- arnir stundi kynlif. Allt virðist gert til að æsa upp hvatir fólks í fjölmiðlum og ekki síst í rik- Einarsson, læknanemi á þriöja ári 25 prósent 14 ára unglinga hafa haft fyrstu kynmök og að meðalaldur við fyrstu kyn- mök er 15,4 ár. Þetta er undir því aldurstakmarki sem sum apótek hafa sett fyrir smokkakaup." sama og að lýsa yfir samþykki fyrir því að óþroska unglingar stundi kynlíf. Kynhvötin er guðs gjöf. Hún er stórkostleg til viðhalds mannkyninu og er uppfylling í samlífi karls og konu i hjóna- bandi. En fegurðin er ekki lengur til. Að hvetja unglinga til kynlifs er að hvetja til hór- dóms. Það er talið nútímafrelsi af sumum alþingismönnum að leyfa fóstureyðingar. Enginn virðist boða þroskandi, hreint henda unglingum ókeypis verjur er og fagurt lífemi." -SMK isfjölmiðlunum, þar sem sið- ferðisbrostnar alþingiskonur era að hvetja viðkvæma ung- lingana til þess að hafa smokka við hendina. Að af- Guðjónsson, talsmaöur Kristilega lýöræöisflokksins Dæmi eru um að foreldrahópar hafi þrýst á apótek að banna smokkasölu til unglinga undir 16 ára aldri. Islenskir læknanemar hvetja til auðveldari að- gangs unglinga til getnaðarvarna og gefa sumir þeirra þeim unglingum, sem þeir hitta í gegnum vinnu sína, smokka. Lífseigur merkimiði „Aldraðir og öryrkjar" er lífseigur merkimiði í stjómmálaumræðunni sem ætti að taka úr um- ferð... Mjög margir aldr- aðir íslendingar eru efn- að fólk. Flestir era í sæmilegum álnum. Lítill hluti aldraðra á undir högg að sækja í efnalegu tilliti. Þessu er öfugt farið með öryrkja... Kraf- an um almenna hækkun öllum til handa sem til aldraðra og öryrkja telj- ast mun gagnast þeim síst sem erfiðast eiga. Og þjóna mörgum sem ekkert hafa með auknar bætur að gera.“ Stefán Jón Hafstein í Degi 11. október. Snurða á sameiningar- þræði Íslandsbanka-FBA „Sameining íslandsbanka og FBA gengur ekki alveg eins snurðulaust og mjúklega fyrir sig og yfirstjórnendur bankans vilja vera láta... Nýkynntar skipulagsbreytingar gera því miður lít- ið til þess að leysa vandamálin og það er þvi aðeins spuming um tíma þar tO frekari hrókeringar verða tilkynntar. í sjálfu sér kemur ekki á óvart að slflí vandamál skuli hafa skotið upp kollin- um, við því var einmitt búist.“ Úr pistli Óöins í Vióskiptablaöinu 11. október. Níska góðæriskynslóðar „Vel mega Pétur Blöndal og vel menntað- ar góðæriskynslóðir hans leiða hugann að því, á hvaða grunni þeir byggja auð sinn og góðu kjör... Þær kynslóðir sem núna eyða og spenna og heimta menntun og hagkvæmt fjármálaum- hverfi og bjarta framtíð fyrir sig og sina eru svo ekkert nema samhalds- semin og nískan þegar kemur aö því að skammta öldraðum og öryrkjum lífskjörin og telja þá hvern pening eins og maurapúkar. Verði þeim að góðu.“ Oddur Ólafsson blaöamaöur, í Degi 11. október. Ónýt skýrsla, feitir þjónar „Skýrsla auðlinda- nefndar ber íslenskri þjóðmálaumræðu dapur- legt vitni. Hér komast menn upp með rökleysu, m.a. vegna þess að flest- ir þingmenn, blaðamenn og aðrir sem ættu að vera á við- horfsvaktinni eru óvirkir í umræð- unni vegna kjarkleysis... Það er skilj- anlegt að kvótagreifar vilji hafa feita þjóna í þjónustu sinni. Við hin skulum hins vegar hætta að kjósa þjónana þeirra til að fara með völdin í okkar umboði." Valdimar Jóhannsson framkvstj. i Mbl. 11. október. t Lífgaðu upp á lífið - heilsubót meö grænmeti og ávöxtum Þessa viku sameinast Evrópa gegn krabbameini undir yfirskriftinni Lífgaðu upp á lífið - heflsubót með grænmeti og ávöxtum. Ár- vissum boðskap Evrópu- samtaka krabbameinsfé- laga er í þetta skiptið beint til ungra bama og foreldra þeirra og þau hvött tfl að hressa upp á grænmetis- og ávaxtaneysluna. Grunnur- inn að lífsvenjum hvers og eins mótast snemma á lífs- leiðinni og er því ástæða til að mæla meö aukinni neyslu græn- metis og ávaxta strax í bamæsku. Þau börn sem fá reglulega grænmeti og ávexti eru líklegri til að halda áfram að borða þetta hollustufæði á unglings- og fullorðinsárum. En það er ekki aðeins grannurinn að smekk manna sem lagður er á bamsárun- um því fæðuvenjur í æsku hafa áhrif á heilsufar fullorðinsára. Forvarnir þarf að hefja snemma Fjöldi rannsókna síðustu ára sýn- ir aö mataræði ríkt af grænmeti og ávöxtum dregur úr líkunum á mörg- um tegimdum krabbameina, hjarta- og æðasjúkdómum og minnkar líkur á offitu. Grænmeti og ávextir eru hitaeiningasnautt fæði sneisafullt af trefjum, vítamínum, steinefnum og fleiri lífvirkum efnum s.s. andoxun- arefnum og plöntuestrogenum. Þessi efni eru meðal annars talin ástæða þeirra góðu áhrifa sem grænmeti og ávextir hafa á heilsufarið. Þaö er ekki víst i hverju þessara efna hollustan er helst fólgin og ekki ólíklegt að það sé samsetningu þeirra í grænmeti og ávöxtum að þakka. Sömu áhrifa virðist t.d. ekki gæta ef stök vítamín, steinefni eða önnur lífvirk efni eru tekin inn i töfluformi. Aðalatriðið er því að borða nógu mikið af grænmeti og ávöxtum! „Fimm á dag“ Manneldisráð telur mikilvægt að hvetja tfl aukinnar neyslu á græn- meti og ávöxtum og er það eitt af meginmarkmiðum ráðsins. Mann- eldisráð hefur ásamt Krabbameinsfé- laginu og Hjartavemd hvatt tfl auk- innar neyslu, „Fimm á dag“. Með því er átt við að æskilegt sé að borða a.m.k. fimm skammta af grænmeti, ávöxtum og kartöflum daglega. Einn skammtur getur verið hvort heldur sem er einn meðalstór ávöxtur, 75-100 g af grænmeti (þ.e. 1 dl af soðnu grænmeti eða 2 dl af salati), 1-2 kartöflur eða glas af hreinum ávaxtasafa. Hér er um að ræða mikla aukn- ingu frá því sem neytt er í dag eða úr u.þ.b. 275 g hjá fullorðnum og 200 g hjá bömum í 400-600 g á dag. Grænmetis- og ávaxta- neysla íslenskra skólabarna á aldrinum 10-15 ára var könnuð 1992-1993. Hún reyndist vera langt undir því magni sem æskilegt get- ur talist. Grænmeti var 37 g á dag að meðaltali sem sam- svarar tæplega hálfum tómat eða einum þriðja hluta úr gulrót en ávextir voru 75 g á dag eða sem sam- svarar hálfum ávexti. Það er því aug- ljóst að hvatningar er þörf. Fæðu- venjur dagsins í dag móta heilsufar þjóðarinnar í framtíðinni og framtíð- in er í höndum bamanna. Hugmyndaflugiö og börnin Manneldisráð leggur til að ávöxt- um, t.d. eplum, perum, banönum, mandarínum og jafnvel hráu græn- meti eins og gulrótum, verði dreift í skólum á svipaðan hátt og nú tíðkast með mjólk og aðrar drykkjarvörur. Böm ættu að geta keypt grænmeti eða ávexti gegn miða eða áskrift í nestistímum. Grænmeti og ávextir sem liggja hálfan daginn í skólatösk- um fara gjaman illa og verða ólystugir en aftur á móti væru ferskar vörur boðnar fram í skólun- um gimilegri og lystugri og gætu þannig verið hvatning til aukinnar neyslu. Börn læra líka hvert af öðru og borða gjarnan það sem vinsælt er á meðal skólafélaganna. Það gerir skólana að ágætum vettvangi átaks sem þessa. Sumum bömum finnst einstaka tegundir af grænmeti ekki góðar en flest borða þau ávexti vegna sæta bragðsins. Það er hins vegar um að gera að kynna sem flestar tegundir fyrir bömunum og leyfa þeim að venjast nýju bragði. í raun ætti græn- meti og ávextir einmitt að höfða til bama vegna fjölbreytileika í lit og lögun ekki síður en bragði. Það er hægt að gera ótalmargt úr náttúrann- ar heilsufæði og lífga með því upp á einfóldustu máltíðir. Auðvelt er að setja gúrku-, tómata-, epla- eða ban- anasneiðar á brauðið, niðurskorna ávexti út í súrmjólk og annan mjólk- urmat eða broskarl úr salati með kvöldmatnum, svo einhver dæmi séu nefnd. Best er að gefa hugmyndaflug- inu lausan tauminn og leyfa börnun- um að vera með í að lífga upp á lífið með grænmeti og ávöxtum! Anna Sigríður Ólafsdóttir „Böm lœra líka hvert af öðru og borða gjaman það sem vinsœlt er á meðal skólafélaganna. Það gerir skólana að ágœtum vettvangi átaks sem þessa. “ - í Lindaskóla, heil- brigðisráðherra hvetur til neyslu hollustufœðis. Anna Sigríður Ólafsdóttir matvæla- og næringar- fræöingur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.