Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Blaðsíða 9
9 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 Útlönd A1 Gore og George W. Bush tókust aftur á í gærkvöld: Bush DV, BOSTON:_______________________ Forsetaframbjóðendumir George W. Bush og Albert Gore tókust aftur á í kappræðum í gærkvöldi. í þetta skiptið fóru kappræðumar fram í Wake Forest-háskólanum í Winston- Salem í Norður-Karólínuríkii. Eitt helsta málefni kappræðn- anna voru utanrikismál og reyndi spyrillinn, Jim Lehrer frá PBS-sjón- varpsstöðinni, að fá frambjóðend- uma til þess að skýra mismuninn í afstöðu sinni á þann veg að óá- kveðnir kjósendur gætu gert upp hug sinn byggðan á skýringunum. Bush tók það skýrt fram að hann vildi ekki að Bandaríkjaher gegndi hlutverki afls sem byggði upp þjóð- ir - herinn væri til þess að berjast í og sigra í stríði. Ekki allt í öllu „Við getum ekki verið allt í öllu fyrir alia,“ sagði Bush við um 80 milljónir áhorfenda. „Og ég tel að það sé einmitt þarna sem ég og varafor- setinn [Ai Gorej emm ósammála." Gore var þessu að sjálfsögðu ósammála og benti á hversu nauð- synleg Marshail-aðstoðin og viðvera bandarískra hersveita reyndist Evr- ópuþjóðum í uppbyggingunni í kjöl- far seinni heimsstyrjaldarinnar. stóð sig betur I kjölfarið á umræð- unni um seinni heims- styrjöldina beindist talið að Mið-Austurlönd- um, en undanfarna daga hafa um 100 manns - mest Palestínumenn - látist í átökum á milli ísraelska hersins og Palestínumanna. Fram- bjóðendumir voru svo gott sem sammála um hvemig bæri að leysa deilunu í Mið-Austur- löndum. „Núverandi ríkis- stjórn hefur unnið hörð- um höndum að því að halda samningsaðilum við samningarborðið. Ég mun gera það sama nái ég kjöri,“ sagði Bush. „Það verður þó ekki eftir tímaáætlun sem ég legg fram, heldur tímaáætlun sem komin er frá deiluaðilunum sjálfum." Þau ummæli sem komu bæði áhorfendum og fréttaskýrendum hvað mest óvart var þegar barst að innanríkismálum. Fingurkoss frá Bush George W. Bush, ríkisstjóri í Texas og forsetaefni repúbtikana í Bandarikjunum, var ánægður með sig eftir kappræöurnar við Al Gore varaforseta í nótt og sendi einhverjum í áhorfendahópnum fingurkoss. talið ásakaði Bush um að hafa ekki beitt Gore sér nægjanlega fyrir löggjöf gegn hatursglæpum í Texas, en þar er Bush ríkisstjóri. Bush sneri vörn í sókn með þvi að benda á það að ný- verið féll dómur í máli þar sem þrír hvítir menn voru sakfelldir fyrir að myrða svartan mann hrottalega. „Gettu hvað mun verða um þessa þrjá menn? Þeir munu verða líflátn- ir. Kviðdómur í Texas hefur fundið þessa menn seka og það mun verða erfltt að refsa þeim frekar eftir að þeir hafa verið líflátnir.“ Gore var skýrmæltari Frambjóðendumir eru báðir tald- ir hafa staðið sig betur í þessum kappræðum heldur en í þeim sem fram fóru í Boston á þriðjudags- kvöldið í síðustu viku. Flestir stjómmálaskýrendur og áhorfendur voru sammála því að Gore hefði verið skýrmæltari en Bush. Þrátt fyrir það bentu skoðanakannanir helstu sjónvarpsstöðvanna, sem framkvæmdar voru strax eftir kapp- ræðurnar, til sigurs Bush. Sam- kvæmt þeim þótti 75 prósentum áhorfenda Bush standa sig betur. Enn eru einar kappræður eftir og munu þær fara fram í Washington- háskólanum í St. Louis í Missouri- þann 17. október. -ÓRV Li Peng vekur litla hrifningu Mæður fórnarlamba kínverskra ráöa- manna eru ekki hrifnar af Li Peng. Mæður vilja að Li Peng verði refsað Mæður námsmanna sem voru drepnir í fjöldamorðunum á Torgi hins himneska friðar í Peking árið 1989 hafa krafist þess að Li Peng, þá- verandi forsætisráðherra, verði refsað fyrir morðin. Námsmenn voru að krefjast lýðræðisumbóta þegar á þá var ráðist. Að sögn mannréttindasamtaka komu mæðurnar kröfu sinni á framfæri við upphaf málaferla kín- verskra andófsmanna gegn Li Peng fyrir dómstóli í New York. Erföabreytt maískorn í matnum Mexíkóskir félagar í Greenpeace töldu víst vissara að klæðast einangrandi búningum þegar þeir vöktu athygli viöskiptavina stórmarkaða á því að erfðabreyttan maís er að finna i grundvallarmat Mexíkóa, tortillakökunum. Silfurbrúðkaup Bandarísku forsetahjónin ætluðu ekki að halda veislu í tilefni tímamótanna. Rólegt silfur- brúðkaup hjá Hillary og Bill Clinton Bandarísku forsetahjónin héldu upp á silfurbrauðkaup sitt í New York í gær. Að sögn talskonu Hill- ary stóð hvorki til að bjóða vinum heim í tilefni tímamótanna né fara út á lífið. ígær var heldur ekki ljóst hvort Chelsea dóttir þeirra kæmi til að fagna með þeim. „Þetta verður rómantískt kvöld sem hefst seint,“ sagði talskonan. Forseta- hjónin voru bæði önnum kafin við störf og kosningabaráttu langt fram á kvöld. Meira var um að vera á 20 ára brúðkaupsafmæli forsetahjónanna. Haldin var veisla í Hvíta húsinu og strengjakvartett lék fyrir gesti. Helstu vinum forsetahjónanna var boðið til veislunnar, þar á meðal prestinum sem gaf þau saman. Fangaverðir smygluðu sæði Tveir fangaverðir í Allenwood- fangelsinu norðan við Harrisburg í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum voru í gær ákærðir fyrir að hafa smyglað frosnu sæði fanga til eigin- kvenna þeirra og vinkvenna gegn þúsunda dollara greiðslum. Fanga- verðirnir útveguðu fóngunum sæðistökubúnað og smygluðu siðan sæðinu út úr fangelsinu. Samkvæmt frásögn dagblaðs i Pennsylvaniu vöknuðu grunsemdir þegar fangi, sem hafði setið inni í áratug, sagði smástrák sem kom i heimsókn vera son sinn. Fangaverð- imir geta átt von á allt að 20 ára fangelsi og hálfrar milljóna dollara sekt verði þeir dæmdir. Hlutafjárútboð Kaupþings hf. Skráning fer fram á www.kaupthing.is og lýkur í kvöld kl. 20. Útboðs- og skráningarlýsingu má nálgast í afgreiðslu Kaupþings eða á www.kaupthing.is. 10.-12. OKTÓBER m KAUPÞING Ármúli 13A | 108 Reykjavík | sími 515 1500 | fax 515 1509

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.