Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 I>V Fréttir Slagurinn um Seljavallalaugina heldur áfram: Tóm leiðindi og ami - segja vegagerðarmenn undir Eyjafjöllum „Þetta eru tóm leiðindi og ég hef ekki haft annað en ama af því sem átti að vera til bóta,“ sagði Svanur Bjarnason hjá Vegagerðinni í Vík í Mýrdal um innansveitardeilur um gömlu Seljavallalaugina undir Eyja- fjöllum. Eins og fram hefur komið þá hafa Grétar Óskarsson, bóndi á Selja- völlum, og forsvarsmenn ungmenna- félagsins Eyfellings, tekist á um sund- laugina sem ung- mennafé- lagið telur sig eiga en er í landi bóndans. Bóndinn hef- ur reynt að hindra að- gengi að Selja- vallalauginni með jarðraski, bannað kvik- myndagerðar- mönnum að taka þar myndir og afmáð merkta leið að lauginni af vegskilti á þjóðvegi eitt og til þess vís- ar Svanur hjá Vegagerðinni þegar hann segist einungis hafa haft ama af þessu máli öllu. „Gamla Seljavallalaugin er lokuð vegna þess að hún uppfyllir ekki al- menn skilyrði sem gilda um sund- staði,“ sagði Andri Ámason, lögmað- ur bóndans á Seljavöllum, en bóndinn rekur sjálfur sundlaug í túnfætinum heima. „Þarna er ekkert eftirlit og bóndinn hefur þurft að þola alls kyns vandræði vegna um- ferðar fólks um landar- eign sína. Unglingar hafa ver- ið dauða- drukkn- ir í hóp- um í laug- inni og er- lendir ferðamenn verið að stinga sér þar til sunds, ósyndir. Þeg- ar vandræðin blossa upp bitnar það ekki á neinum nema bóndanum sjálf- um. Hvers á hann að gjalda?" spyr Andri lögmaður og bætir því við að ungmennafélagið Eyfellingur eigi ekkert með að reka atvinnustarfsemi Seljavellir Setkot Raufarfeltll 5 Raufarfetla ■ RauBafcll II ^^"■Rauðafell IV ■ Rauíafell III RauðafeU^^V. Lambafell Reykjavík Vegskiltiö viö Seljavelli Leidin aö gömlu lauginni hefur veriö afmáö. í landareign skjólstæðings síns. Gamla Seljavallalaugin var byggð fyrir hartnær 80 árum eftir að 26 karlmenn úr sveitinni fórust á leið til Vestmannaeyja með rekavið. Einn komst lífs af úr því slysi; sá eini sem var syndur. Því tóku menn sig til og byggöu sundlaugina og hófu almenna sundkennslu i sveit- inni ef það mætti varna frekari slys- um á sjó. Undir EyjaíjöUum eru raddir uppi um að koma gömlu SeljavaUalauginni á Náttúruverndarskrá og varðveita hana í þeirri mynd sem hún er nú. Bóndinn á Seljavöllum og lögmaður hans vUja hins vegar tæma hana af vatni. -EIR mnE Páll til Kára PáU Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, hefur ráðið sig tU starfa sem fram- kvæmdastjórí sam- skipta- og upplýsinga- sviðs íslenskrar erfðagreinirigar. Óvist er hver tekur við starfi hans á Stöð 2. Kaupás kaupir Kaupás hf. hefur fest kaup á Hús- gagnahöllinni á BUdshöfða í Reykjavik sem er eitt stærsta verlsunarhús lands- ins, aUs um 15 þúsund fermetrar. Kaupás rekur fyrir Nóatún, 11-11, KÁ- verslanirnr og Kostakaup. Þríburar á Brjánsiæk Bóndinn á Brjánslæk á Barðaströnd og eiginkona hans eignuðust þríbura á dögimum, tvo drengi og eina stúlku. Mbl. greindi frá. Vilja stækka Forsvarsmenn Norðuráls vilja stækka álverið á Grundartanga um 150 þúsund tonn. það myndi þýða fimm- fóldun á núverandi framleiðslugetu. Agora, fagsýning þekkingariðnað- arins, opnuð I gær, miövikudag, var Agora, fagsýning þekkingariðnaðarins, opnuð. Við það tækifæri hélt Sæ- mundur Noröfjörð, einn eigenda og starfsmanna Agora ehf., sem stend- ur á bak við sýninguna, tölu og af- henti einnig verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í ritgerðarsamkeppni 11 ára grunnskólanema þar sem inn- takið var framtíðarsýn þessara ungu einstaklinga. Sigurvegari var Kristján Eldjárn Hjörleifsson og hlaut hann í vinning Flórídaferð þar sem hann getur fylgst með flug- taki geimferjunnar Endeavour frá Kennedy Space Center. Þar næst opnaði herra Ólafur Ragnar Grfms- son, forseti íslands, sýninguna formlega. Yfir 130 fyrirtæki í þekkingariðn- aðinum taka þátt í sýningunni og að sögn aðstandenda komust færri að en vildu. Ætlunin er að halda þessa sýningu annað hvert ár. -HT Forseti Islands, herra Olafur Ragnar Grímsson, setur sýninguna Agora, fagsýningu þekkingariönaöarins, formlega í gær. Björk æðir upp vinsældalistana Plata Bjarkar Guðmundsdóttur, Selmasongs, með lögum úr kvikmynd- inni Dancer in the Dark, stormar þessa dagana upp vinsældalistana í Evrópu. Platan er í fjórða sæti í Danmörku, heimalandi leikstjóra myndarinnar, Lars Von Trier. Hún er einnig í fjórða sæti í Frakklandi og frændur vorir, Norðmenn, eru einnig hrifnir af plöt- unni því þar er hún í fimmta sæti. í stórri plötuverslun á írlandi liggur frammi listi yfir vinsælustu plötumar. Það kemur engum á óvart að á þeim lista skuli vera íslensk hljómsveit, Sig- urrós, með plötuna Ágætis byrjun, sem er sannarlega ágætis byrjun. -DVÓ DV-MYND PJETUR Vekur aödáun Þóra Þórisdóttir myndlistarmaöur meö mynd sem vakiö hefur athygli og aödáun flestra, utan einnar konu sem sendi kvörtunarbréf til jafnréttisnefndar í Hafnarfiröi. Kvartað yfir nekt á bensíndælu: Sjálfsmynd listamanns og táknmynd úr biblíunni - segir Þóra Þórisdóttir myndlistarmaður „Og ég sem hélt ég væri femínisti," sagði Þóra Þórisdóttir myndlistarmaður, eigandi gall- erí@hlemmur við Hlemmtorg, vægast sagt undrandi þegar DV sagði henni að kvartað hefði verið til jafnréttisnefndar Hafnarfiarðar yfir myndverki hennar. „Konan á myndinni er ég sjálf. Þetta er táknmynd úr biblíunni, þetta snýst um valið, maður velur sjálfur og afgreiðir oft sjálfur, allir þurfa að borga, bensínið líka,“ sagði Þóra, en viðfangsefni hennar eru oft og einatt tengd hinni helgu bók. Myndin sem agnúast er út í er tilbrigði við söguna um Evu i paradís og á ekkert skylt viö klám. Olís hefur myndskreytt eldsneytisdælur víða um höfuðborgarsvæðið í sumar. Thomas Möller, framkvæmdastjóri markaðssviðs, segir að fyrirtækið vilji styðja við myndlist unga fólksins og í því skyni var sett upp sýningin Dælan gengur í nýjum höfuðstöðvum við Sundagarða. Þar sýna 13 ungir listamenn. „Við viljum nú ekki taka þetta niður og teljum ekki ástæðu til þess. Þessi verk hafa vakið athygli á sýningunni okkar sem enn stendur og er framlag okkar til menningarborgar Evrópu. - Við sýnum líka á bensíndælum á ellefu stööum á höfuðborgarsvæðinu. Einn steufsmaður okkar fékk þessa hugmynd eftir að hann sá að British Airways er með listaverk máluð á stél þotna sinna,“ sagði Thomas í gær. „Það er upplagt að dæla orku á bílinn og móttaka orku listamannanna í leiðinni, þetta hefur mælst vel fyrir, engar kvartanir hafa borist þar til allt í einu núna,“ sagði Thomas. „Leonardo da Vinci er með fiörutíu allsberar manneskjur á stærsta listaverki heims í Sixtínsku kapellunni. Það á ekki að trufla fólk þó að mannslíkaminn komi fram. Og bensíndælur eru góður miöill fyrir list,“ sagði Thomas. -JBP Kári lækkar Hlutabréf í deCode Genetics, móðurfyrir- tæki Islenskrar erfða- greiningar, lækkuðu um 17 prósent á Nas- dac-hlutabréfamark- aðnum í gær. Sekt fyrir seint Ólafsfiarðarbær hefur tekið upp þá nýbreytni að sekta foreldra bama sem mæta of seint í skólann. Nemur sektin 400 krónum fyrir hvert tilvik. Mbl. greindi frá. Lífeyrir bóignar Eignir lífeyrissjóða jukust um 20 prósent á síðasta ári og námu 517 millj-, örðum í árslok. Kirkjan kvödd 775 manns skráðu sig úr þjóðkirkj- unni á fyrstu níu mánuðum ársins en aðeins 143 nýir bættust við. Uppboö á Rússa Hafnasamlag Noröurlands hefur krafist uppboð á rússneska togaranum Omnya sem legið hefúr bundinn við bryggju á Akureyri frá því i ágúst 1997. 350 kvartanir Árlega berast Landlæknisembættinu 350 kvartanir af ýmsum toga. Nú hefur Sverrir Ólafsson myndhöggvari kvart- að yflr Þórami Tyrfingssyni, yfirlækni á Vogi. Dagur greindi frá. Vilja 180 þúsund Grannskólakennarar krefiast þess að byijunarlaun hækki úr 110 þúsund krónum á mánuði í 180 þúsund krónur. Samningaviðræður kennara og sveitar- félaga eru hafnar. Björn Bjamason menntamálaráðherra hefur á Alþingi lýst þeirri skoðun sinni að farsælast sé að breyta Ríkisútvarp- inu í hlutafélag í eigu ríksins. Samninga- viðræður stjómar- flokkana um það mál munu vera vel á veg komnar. -EIR RUV hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.