Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Blaðsíða 2
18 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2000 Vikingsstuikur geröu goöa ferö i Safamýr- ina og unnu Fram i miklum spennuleik. Guörún Drifa Hólmgeirsdóttir, Víkingi. fer her inn ur horninu en Hugrún Þorsteins- dóttir er til varnar i markinu. DV-mynd E.ÓI Sport Stjarnan taplaus Stjörnustúlkur unnu sinn 4. sigur í vetur þegar þær sigruðu Gróttu/KR, 20-18, á Seltjamamesinu á laugardag- inn. Bæði lið virtust vera óöragg til að byrja með í leiknum, mikið var um klaufaleg mistök í sókn og vöm og sem dæmi vora dæmd 7 víti á fyrstu 10 mínútum leiksins. Þegar stúlkurnar höfðu hrist mesta skjálft- ann úr sér tók Stjarnan að síga fram úr en þá kom Ágústa Edda Bjöms- dóttir inn á og tókst þá Gróttu/KR að skora þrjú mörk í röð og halda marki sínu hreinu i 10 mínútur. Fyrstu mínútur seinni hálfleiks voru líkar byrjun leiksins, liðin skipt- ust á að henda knettinum í hendur andstæðinganna eða fengu dæmda á sig leiktöf. Stjaman náði svo góðri forystu en þá meiddist Nína K. Björnsdóttir og við það riðlaðist sókn- arleikur liðsins og Gróttu/KR tókst að minnka muninn í eitt mark þegar þrjár minútur vora eftir. Þá tók Siggeir Magnússon, þjálfari Stjömunnar, leikhlé og strax að því loknu skoraði Jóna Margrét Ragnars- dóttir mikilvægt mark og hinum meg- in varði Lijana Sadzon í næstu sókn og þar með var björninn unninn. Grótta/KR reyndi að taka tvo leik- menn úr umferð í lokin en við það opnaðist vömin aftan við og Stjörnu- stúlkur löbbuðu í gegn. Nina lék mjög vel fyr Stjörnuna i þessum leik og stjómaði sókn liðs síns mjög vel. Hún var fyrst fram í hraðaupphlaupum og braust nokkram sinnum vel í gegn, það kom líka í ljós þegar hún meiddist hvað hún var liðinu mikilvæg. Einnig lék Jóna Margrét prýðilega og sömuleiðis léku flestar stúlkur liðsins ágætlega. Hjá Gróttu/KR lék Ágústa Edda mjög vel, hún hóf ekki leikinn en náði að rífa félaga sína áfram þegar hún kom inn á. Ragna Karen Sigurð- ardóttir lék einnig ágætlega en liðið virtist óöraggt í hinum mikla hávaða sem myndaðist við trommuslátt áhorfenda. Siggeir var að vonum ánægður með sigurinn. Hann sagði þegar hann var spurður hvernig hann hefði lagt á ráðin í leikhléinu í lokin, þegar Stjaman var einu marki yflr, að hann hefði bara verið að leyfa leikmönnum að pústa og ná áttum fyrir síðustu mínútumar. Segja þeim að leika af skynsemi og ekki taka neina áhættu. Aðspurður sagði hann að vissulega hefði komið bakslag hjá þeim þegar Nína meiddist, en þetta hefði hafst og það sýndi karakter liðsins og ákveðna breidd. Þjálfari Gróttu/KR, Guðmundur Árni Sigfússon, var hins vegar niður- lútur þegar hann gekk af velli að leik loknum. Hann sagði sínar stúlkur ekki hafa nýtt sóknarfæri sín nógu vel, klikkað á mörgum vítum og aldrei náð að brúa bilið sem myndað- ist í fyrri hálfleik. -RG Það voru Víkingsstúlkur sem fóru með sigur af hólmi í viðureign þeirra gegn Framstúlkum í Safa- mýrinni á laugardag. Leikurinn einkenndist af gífurlegri baráttu, töluverðum hraða og of mörgum mistökum í sóknarleik beggja liða. Leikurinn var æsispennandi allan timann og réðust úrslit hans ekki fyrr en á síðustu sekúndunum. Það voru Vikingsstúlkur sem hófu leikinn betur og náðu foryst- unni. Um miðjan hálfleikinn sigu Framstúlkur síöan fram úr og höfðu tveggja marka forystu í hálf- leik. 1 upphafi síðari hálfleiks skor- uðu Víkingsstúlkur fjögur mörk og lentu eftir það aldrei undir í leikn- um. Framstúlkur náðu í þrígang að jafna í hálfleiknum en komust aldrei lengra en það. Varnarleikurinn var sterkur og markmenn liðanna voru góðir þar fyrir aftan. En þar lá samt munur- inn á liðunum því Helga Torfadótt- ir átti mjög góðan leik fyrir Víking og varði tuttugu skot, þar af fjögur víti. Hjá Vikingum voru það Guð- björg Guðmannsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir og Gerður Beta Jóhannesdóttir sem voru mest áberandi i markaskorun. Allt liðið á svo heiður skilinn fyrir varnar- leikinn. Hjá Fram var Marina Zoueva langmarkahæst þrátt fyrir að vera tekin úr umferð allan leikinn. Hug- rún Þorsteinsdóttir var góð í mark- inu. Eftir leikinn í dag eru bæði liðin búin að vinna tvo leiki og tapa tveimur. Það er þvi útlit fyrir skemmtilegan og spennandi kvennahandboltavetur. -MOS Æsispennandi - Víkingsstúlkur unnu heimamenn í Safamýrinni Yfirburðir - þegar FH vann Val, 27-15, í Krikanum FH-stúlkur fóru nokkuð létt með að sigra Valsstúlkur á heimavelli sínum í Kaplakrika á fóstudags- kvöldið. Lokatölurnar urðu tólf marka sigur, 27-15, eftir að Vals- stúlkur höfðu haldið nokkuð vel í við FH-inga í fyrri hálfleik. Til að byrja með var leikurinn þó nokkuð jafti. FH-ingar komust reyndar í 4-1 en Valur nartaði þó sífellt í hælana á þeim og hleypti þeim aldrei of langt frá sér. En það breyttist á síðustu tíu mínútum fyrri hálfleiks en þá náðu FH-stúlk- ur fjögurra marka forskoti þegar sókn Valsmanna fór að bila. Enn syrti i álinn fyrir Valsstúlk- ur í seinni hálfleik þegar FH-ingar gerðu fjögur fyrstu mörkin í síðari hálfleik. Þetta var allt of mikið fyr- ir hið unga Valslið og FH-ingar juku smám saman muninn. í raun sýndi þessi leikur vel styrkleikamuninn á liðunum. Vals- stúlkur striddu reyndar FH-ingum vel í fyrri hálfleik en þegar þær síð- amefndu náðu sér á strik var fátt til varnar. Hjá FH-ingum bar mest á Hörpu Vífilsdóttur sem nýtti færi sín vel í hominu auk þess sem hún gerði einnig glæsileg mörk utan af velli. Einnig átti Kristín ágæta innkomu í markið. Hjá Valsmönnum varði Berglind oft ágætlega og Marín og Ámý komust ágætlega frá sínu. -HI Fram - Víkingur 16-18 I- 0, 2-2, 2-4, 4-4, 6-5, 8-6, (9-7), 9-11, II- 11,18-13, 15-15,15-17,16-17,16-18. Fram Mörk/víti (skot/víti): Marina Zoueva 9/6 (17/10), Díana Guöjónsdöttir 3 (6/1) Kristín Brynja Gústafsdóttir 2 (6), Guðrún Þóra Hálfdánardóttir 1 (1), Björg Tómasdóttir 1 (6) Svanhildur Þengilsdóttir (1), Katrín Tómasdóttir (1), Olga Prokhorova (1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 2 (Díana og Guðrún). Vitanýting: Skorað úr 6 af 11. Varin skot/viti (skot á sig): Hugrún Þorsteinsdóttir 11/1 (29/5, 34%) Brottvísanir: 4 mínútur. Vikineur Mörk/viti (skot/viti): Guðbjörg Guðmannsdóttir 6 (7), Gerður Beta Jóhannesdóttir 5/3 (10/5), Kristín Guðmundsdóttir 4 (7), Heiðrún Guð- mundsdóttir 2 (2) Guðrún Hólm- geirsdóttir 1 (2), Steinunn Bjarnadóttir (3), Margrét Elín Egilsdóttir (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 4 (Guðbjörg 4). Vitanýting: Skorað úr 3 af 5. Varin skot/viti (skot á sig): Helga Torfadóttir 20/4 (36/11, 51%) Brottvísanir: 10 mínútur. Dómarar (1-10): Einar Sveinsson og Þorlákur Kjartansson (7) Gteöi leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 100. Maður leiksins: Helga Torfadóttir, Víkingum. Grótta/KR - Stjarnan 18-20 1-0, 2-1, 2-4, 4-5, 5-8, 8-8, 8-10, 9-10, 10-11, 10-14, 11-15, 14-16,16-17, 17-18, 17-20, 18-20 Grótta/KR Mörk/viti (skot/viti): Ágústa Edda Björnsdóttir 6 (15/1), Alla Gokorian 4?2 (11/4), Ragna Karen Sigurðardótt- ir 4 (6), Jóna Björg Pálmadóttir 2/1 (4/1), Edda Hrönn Kristinsdóttir 1 (4), Eva Þórðardóttir 1 (4), Eva Björk Hlöðversdóttir (1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 4 (Ragna 3, Ágústa 1) Vitanýting: Skoraö úr 3 af 6. Varin skot/víti (skot á sig): Þóra Hlíf Jónsdóttir 9 (29/4, 31%) Brottvisanir: 4 mínútur. Stiarnan Mörk/viti (skot/víti): Nína Kristín Björnsdóttir 7/4 (7/4), Jóna Margrét Ragnarsdóttir 4 (7), Guðný Gunn- steinsdóttir 4 (5), Margrét Vilhjálms- dóttir 2 (5), Hrund Grétarsdóttir 2 (4), Halla María Helgadóttir 1 (6), Hind Hannesdóttir (1) Mörk úr hraðaupphlaupum: 3 (Nína 2, Hrund 1). Vitanýting: Skorað úr 4 af 4. Varin skot/víti (skot á sig): Lijana Sadzon 13/2 (31/6) Brottvisanir: 4 mínútur. Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og Valgeir Ómarsson (7). Gœði leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 108. Maður leiksins: Nína K. Björnsdóttir, Stjörnunni. KA/Þór - ÍBV 20-21 1-1, 5-5, 6-9, 8-10, 9-14, (11-14), 13-14, 14-15, 15-17, 17-18, 19-19, 19-21, 20-21. KA/Þór Mörk/víti (skot/viti): Eyrún Gígja Karlsdóttir 6 (9), Ásdís Sigurðardóttir 5/2 (8/2), Elsa Birgisdóttir 4 (4), Klara Fanney Stefánsdóttir 2 (2), Inga Dís Sigurðardóttir 1 (6/1), Martha Her- mannsdóttir 1 (5), Ása Maren Gunn- arsdóttir 1 (3). Mörk úr hraðaupphlaupum: 1 (Ás- dís). Vitanýting: Skorað úr 4 af 5. Varin skot/viti (skot á sig): Sigurbjörg Hjartardóttir 15/2 (36/4, 42,%). Brottvisanir: 6 mínútur. ÍBV Mörk/viti (skot/viti): Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir 6/1 (9/3), Gunnleif Pálsdóttir 4 (6), Amela Hegic 3 (7/1), Eyrún Sigurjónsdóttir 3 (7), Edda B. Eggertsdóttir 3 (3), Bjarný Þor- varðardóttir 1 (3), Iris Sigurðardóttir 1 (3). Mörk úr hraðaupphlaupum: 4 (Edda, Amela, tris og Eyrún) Vitanýting: Skorað úr 1 af 4. Varin skot/viti (skot á sig): Vigdís Sigurðardóttir 11 (26/3, 42,3%), Lukrecija Bokan 4/1 (9/2, 44,4%) Brottvisanir: 4 mínútur. Dómarar (1-10): Ingi Már Gunnars- son og Tómas Úlfar Sigurdórsson (3). Gœði leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 75. Maður leiksins: Eyrún Gígja Káradóttir, KA/Þór. FH-Valur 27-15 0-1, 4-1, 4-3, 6A, 7-6, 8-7, 11-7, 12-9, (14-10), 18-10, 19-12, 23-13, 26-14, 27-15. FH Mörk/viti (skot/viti): Hafdís Hinriks- dóttir 6/4 (9/5), Harpa Vífilsdóttir 5 (7), Sigrún Gilsdóttir 4 (4), Björk Ægisdóttir 3(5), Gunnur Sveinsdóttir 3 (7), Judith Rán Esztergal 2 (5), Ragnhildur Guð- mundsdóttir 1 (1), Hildur Erlingsdótir 1 (1) , Hildur Pálsdóttir 1 (2), Eva Albrecht- sen 1 (2), Dagný Skúladóttir (3), Dröfn Sæmundsdóttir (2). Mörk úr hraðaupphlaupum: 4 (Sigrún 1, Hafdís 1, Björk 1, Harpa 1). Vítanýting: Skoruöu úr 4 af 5. Varin skot/viti (skot á sig): Jolanta Slapikiene 4 (13/2, 31%), Kristín Guð- jónsdóttir 7 (13/1, 54%). Brottvisanir: Engar. Valur Mörk/viti (skot/víti): Marín Sörens Madsen 4/1 (9/1), Ámý Björg ísberg 3(5), Anna M. Guðmundsdóttir 2 (4), Eivor Pála Blöndal 2/2 (2/2), Arna Grímsdóttir 2 (6), Hafrún Kristjánsdótt- ir 1 (2), Elva Björk Hreggviðsdóttir 1 (4), Eygló Jónsdóttir (3), Kolbrún Franklín (2) , Elfsa Sigurðardóttir (2), Svanhildur Þorbjömsdóttir (1). Mörk úr hraðaupphlaupunu 3 (Arna 1, Elva 1, Anna 1). Vitanýting: Skoruðu úr 3 af 3. Varin skot/viti (skot á sig): Berglind Hansdóttir 11/1 (36/5, 31%), María Magnúsdóttir 0 (2, 0%) Brottvisanir: 10 mínútur. Dómarar (1-10): Árni Sverrisson og Guðmundur Stefánsson (6). Gceði leiks (1-10): 4. Áhorfendur: 100. Maður leiksins: Harpa Vífilsdóttir, FH. Óvænt spenna Það var mikil spenna í leik KA/Þórs á móti ÍBV á iaugardaginn. Fyrir fram höfðu menn búist við auð- veldum sigri Eyjastúlkna en þær þurftu heldur betur að vinna fyrir honum. íslandsmeistararnir lentu oft í basli og náðu sér aldrei á strik í leiknum. KA/Þór spilaði öfluga vöm og sást mikill munur á leik þeirra frá því í fyrsta leik. ÍBV var þremur mörkum yfir í hálfleik - KA/Þór náði að minnka muninn niður í eitt mark en ÍBV skoraði sitt fyrsta mark í seinni hálfleik þegar átta og hálf mínúta var liðin. ÍBV var með forystu nánast allan leikinn en þegar um 7 mínútur vora eftir af leiktímanum jafnaði Eyrún Gígja Káradóttir fyrir KA/Þór, 19-19. Það var svo reynslan sem skilaði tveimur stigum fyrir ÍBV. Ljóst er á leik KA/Þórs að stelpumar eru sterk- ar en þær era allar ungar að árum. Sú elsta í KA/Þór er 22 ára en þær era allflestar 17-18 ára gamlar. „Þetta er að nálgast. Við erum að safna í sarpinn. Þetta fer stigvaxandi með hverjum leik og hefðum við getað unnið leikinn með smáheppni," sagði Hlynur Jóhannsson, þjálfari KA/Þórs, eftir leikinn. KA/Þór er að styrkjast í vikunni en tvær rússneskar stelpur era að koma til liðsins. Erfiðlega hef- ur gengið að koma þeim til landsins en þeim var í fyrstu neitað um at- vinnuleyfi en nú era þær væntanlegar með flugi á miðvikudag. -JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.