Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Blaðsíða 10
46 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2000 DV Sport ar Haraldur Pétursson á Musso sigraöi í opnum flokki keppn- innar og nú munar einungis einu stigi á honum og Gísla G. Jónssyni. DV-myndir JAK D V-Sport-heimsbikarmótið: Mögnuð spenna Jöfn og hörkuspennandi keppni einkenndi sjöttu og næstsíðustu um- ferð DV-Sport heimsbikarmótsins í torfæruakstri sem fram fór á laugar- daginn í gryfjunum við Litlu kaffistof- una. Hart var barist um hvert stig og stóð aðalbaráttan á milli Gísla Gunn- ars Jónssonar á Arctic Trucks Toyot- unni og Haralds Péturssonar á Musso. Fyrir keppnina hafði Gísli 6 stiga forskot á Harald en ljóst var að að- albaráttan myndi standa á milli þeirra tveggja. Það var svo Haraldur sem sigraði í keppninni - í þriðja sinn sem hann sigrar í þessum gryfjum - en Gísli varð að láta sér lynda 2. sæt- ið. Eftir þessa keppni skilur einungis eitt stig þá félaga og er ljóst að barátt- an milli þeirra verður hörð í lokaum- ferðinni um næstu helgi en það er enginn annar sem á möguleika á titl- ' Sendlar óskast Sendlar óskast á blaðadreifingu DV eftir hádegi. Æskilegur aldur 13-15 ára. Upplýsingar í síma 550 5746. inum. „Það hittist einhvern veginn svona á að ég sigra í þessum gryfjum," sagði Haraldur Pétursson eftir keppn- ina. „Ég hef voða litla trú á því að það hafi eitthvað með svæðið að gera en ef til vill hentar sandur Mussonum vel. Ég er í rauninni hissa á þvi að mér skuli ganga svona vel 1 þessum gryfj- um þar sem brautirnar hérna eru mjög þröngar og henta Mussonum ekki vel þar sem beygjuradíusinn á bílnum er svo stór. Bíllinn er ekki nógu góður hvað þetta varðar og er þetta eitt af þeim atriðum sem við ætl- um að laga í vetur. Þetta virðist samt ganga upp hérna. Gísli braut reyndar drifskaft í 7. brautinni en ég var þá kominn með það gott forskot á hann að það skipti ekki öllu máli. Ég var meira en 100 stigum á und- an honum fyrir 7. brautina og slakaði á í tveimur síðust brautunum. Maður er ekkert að gera meira en þarf,“ sagði Haraldur. „Mér fannst þetta fin keppni og þrautirnar skemmtilegar. Fyrsta brautin var flóknust og erfiðust, held ég. Sólin truflaði mann dálítið þar, maður sá ekkert þegar komið var yfir hólinn. Mussoinn bilaði ekkert hjá okkur í dag enda vorum við búnir að taka hann í gegn frá A til Ö þar sem til stóð að fara til Noregs. Það var far- ið yfir allt; ekkert átti að geta bilað. Við yfirfórum bílinn alltaf fyrir hverja keppni en það var gert sérstak- lega vel núna. Við erum aðeins búnir að bæta við kraftinn í bílnum, breyttum stilling- um á vélinni og jukum nítróskammt- inn. Mussoinn er svolítið frískari núna. Við ætlum að bæta við hann smátt og smátt. í vetur ætlum við síð- an að breyta fjöðruninni og fleiru. Við eigum helling eftir fyrir næsta ár og vitum um mörg atriði sem við ætlum að laga í vetur. Maður getur ekki ann- að en verið ánægður með Mussoinn þar sem við erum enn þá á frumstigi með hann,“ sagði Haraldur að lokum en hann vill ekki síst þakka aðstoðar- mönnum sínum og styrktaraðilum ár- angur sinn í sumar. -JAK Kvikmynclatökumaöur Stöövar 2 átti fotum fjör aö launa þegar Daniel G. Ingirnundar- son missti Grænu þrumuna út úr 1. brautinni. Bensín- dropar Toshiba-trölliö y/ljá Sigurði Þór Jónssyni var .-iUa útleikið eftir síð- ustu keppni'sem haldin var í Mos- feilsbæ. (jirkassinn vár ðnýtur, milli- kassinp'bilaður og öxlar Érotnir. Sig- urðun' og aðstoðarmenn háns voru búnjf að setja nýja skiptingu Ihílinn fyrif keppnina í Jósepsdal og ei\ það þrjöja skipingin sem fer í bílinn í sumar. Einnig var sett allt nýtt i ýél- a, millikassann og hásingarnar. Siguróur Þór og hans menn smlð- uðu, nýjan bíl sl. vor sem þeir mspttu með'í fyrstu keppnina við Stapáfell. Síðan pá eru þeir búnir að skipta um svo aö ségajiyert einasta^stykki i bílnum en TosKlBatrölIið er einn létt- asti bíllinn í torfærunni - vegur ein- ungis um 1310 kg. t Fyrsta brautin íjkeppmnni reyndist mörgum keppandanum érfið. Nokkrir þeirra veltu háum sínumxog meðal þeirra voru Hrólfur Árni Bargars- son, Danieí G. Ingimundarsoti og Ragnar Róbcrtsson. Engufn keppendanna tókst aö aka ' brautina á enda en í henni vor margir hólar sem reyndust möimu og jeppum erfiðir, eins og t.d. Pálj Antonssyni sem festi sig á ööru hólnum. Gisli G. Jónsson sýndi frábær tilþrif i 1. brautiniii þegar hann bjargáði sér frá veltu með-þsd_að-srfua Arctic Trucks Toyotunni 180 gráður, lóð- réttri, á vinstra afturhjólinu og skella henni aftur niðup^ hjólin. Rallkappinuog Rallícross-ökumaó- urinn Henning Ólctfjsson var að keppa Lsinni fyrstu torfærukeppni og vonandi sannast orðtakið 'Tajl er far- arheill" á honum því hann feáti jepp- anti sinn í fyrsta hólnum í fyrstu byautinni. laraldur Pétursson átti oft erfítt áð halda sigginn í brautunum vegrja iþess hversu þröngar þær voru cn ^týrisradíus Mussosins er frekar stor. tjjörn Ingi Jóhannsson varð að háitta keppni eftir 2. brautina'vegna bilanaj rafkerfi Fríðu Gra GunnarÁsgeirsson átti í erfiðleikum með Örnin í flestumfirautum þar sem miklar gangtruflaníllvoru í vélinni og gekk Gunnari/ög'áostoðarmönnum hans lítið aðjía góðuiikgangi í vélina. Gísli G.Jónsson hreppti\tilþrifaverð- laun képpninnar fýrir að áka Arctic Trucks Toyotunni iangar lelðir á aft- urhjólunum í miklum hliðarhalla í 6. braat. Sipurður Þór braut stýrisdæluna í Thoshiba tröllinu í 7. brautinniiog tqkst ekki að ljúka henni þegar bjí] itin hætti að láta að stjórn. Gisli G. Jónsson braut afturcfrif- skaftið í Arctic Trucks Toyotupni í sjöuiniu þrautinni og tókst ekki að ljúka henni. Endastúturinn á skifting- unni brolhaþieinnig og tókst Gísla að komast 8. braútma-á-ertda með þvi að aka ofurvarlega. Ragnar Róbertsson náði lang besta tímanum í 7. braútkmi á Pizza 67 Willysnum þrátlf fyhir að vera á aflminnsta bilnum. -JAK Úrslitin 1. Haraldur Pétursson .......1715 2. Gísli G. Jónsson........1505 3. Ragnar Róbertsson.......1410 4. Sigurður Þór Jónsson.......1390 5. Rafn A. Guðjónsson ............1140 6. Hrólfur Árni Borgarsson ... 1120 7. Gunnar Gunnarsson..........1080 8. Daníel G. Ingimundarson . . . 1060 9. Páll Antonsson..........1014 10. Gunnar Ásgeirsson........810 Staðan 1. Gísli G. Jónsson............93 2. Haraldur Pétursson..........92 3. Sigurður Þór Jónsson .......58 4. Ragnar Róbertsson...........39 5. Páll Antonsson..............38 6. Gunnar Ásgeirsson ..........33 7. Gunnar Gunnarsson ..........24 8. -9. Gunnar EgUsson .........21 8.-9. Guðmundur Pálsson .......21 10.-11. Bjöm Ingi Jónsson......18 10.-11. Ásgeir JamU Allansson ... 18

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.