Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2000
19
Knattspyma:
Páll í viöræðum
við Dalvíkinga
Allar líkur benda til þess að Páll
Guðmundsson verði næsti þjálfari 1.
deildarliðs Dalvíkinga í knatt-
spymu. Dalvíkingar hafa átt í við-
ræðum við Pál síðustu daga og stóðu
vonir til þess að hægt yrði að ganga
frá ráðningunni strax eftir helgi.
Páll lék með Eyjamönnum 1 sumar
og Leiftri í fyrra.
-JKS
McLeish ánægður
með Harald
Alex Mcleish, knattspyrnu-
stjóri skoska úrvalsdeildarliðsins
Hibernian, er ánægður með það
sem hann hefur séð til Keflvík-
ingsins Haralds Guðmundssonar.
Haraldur æfði alla síðustu viku
með skoska liðinu, sem er í næst-
efsta sætinu í úrvalsdeildinni, og
eftir þá veru stóð upphaflega til
að hann kæmi þá heim. McLeish
vill hafa hann lengur og til stend-
ur að hann leiki með 21-árs lið-
inu gegn Rangers í kvöld.
-JKS
Borðtennis:
Ósigur gegn
Lúxemborg
íslenska karlalandsliðið i borð-
tennis tapaði fyrir Lúxemborg í 2.
deild Evrópukeppni landsliða 1
TBR-húsinu um helgina.
Guðmundur Stephensen tapaði
fyrir Trajan Ciociu, 1-2, Sigurður
Jónsson tapaði fyrir Jerome Rai-
son, 0-2, og Adam Harðarson lá
fyrir Sandro Caenaro, 1-2.
-JKS
Gunnleifur og
Guðmundur utan
Guðmundur Steinarsson hélt
utan til Englands í gærmorgun en
hann mun leika næstu tvær vik-
urnar hjá 2. deildarliðinu Stock-
port. Liðið vantar tilfinnanlega
markaskorara og kemur í ljós eft-
ir veruna ytra hvort Stockport
semur við Keflvíkinginn.
Gunnleifur Gunnleifsson, mark-
vörður Keflavíkur, fór í morgun
til Englands en hann verður til
reynslu hjá 1. deildarliðinu Shef-
field í eina viku. Þangað fer hann
á vegum breskrar umboðsskrif-
stofu.
-JKS
Karl besti
maður aldarinnar
Knattspymumenn á Akranesi
héldu uppskeruhátið sína um
helgina. í meistaraflokki karla
var Grétar Örn Steinsson valinn
efnilegastur og Gunnlaugur
Jónsson bestur. Búnaðarbanka-
leikmaður ársins 2000 í meist-
araflokki karla var valinn Ólaf-
ur Þór Gunnarsson og Ingibjörg
Ólafsdóttir í meistaraflokki
kvenna. í sama flokki var Elín
Anna Steinarsdóttir, sem gengin
er í raðir Valsmanna, valin efni-
legust og best var valin Margrét
Ákadóttir þjálfari.
Viðurkenningar fyrir 100 leiki
fékk Reynir Leósson, fyrir 200
leiki Haraldur Hinriksson og
Kári Steinn Reynisson, fyrir 250
leiki Pálmi og Sturlaugur Har-
aldssynir og Alexander Högna-
son fyrir 450 leiki. Þá var Karl
Þórðarson valinn leikmaður ald-
arinnar.
Efnilegasti leikmaðurinn í 2.
flokki karla var Garðar B.
Gunnlaugsson og Grétar Örn
Steinsson bestur. í tilefni af sigri
Akurnesinga í COCA-COLA-bik-
arnum ákvaö Akraneskaupstað-
ur að veita Knattspyrnufélaginu
400.000 kr. fyrir þennan góða ár-
angur. -DVÓ
Sport
I laJldór ingólfssön var markahæstur Haukamanna
i leiknum við Braca i gaer og skóráði fímm mörk.
línclir lokin var Halldór keyrður i gólfið, hann stokk-
bóignaði i andiiti og i fyrstu var óttast aö hann hefði
neíbrotnað en svo reýndist ekki vera. Brotið var
íóiskuJeg) en harka hljóp í leikinn undir lokin.
TTiniilBHn
Forkeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik:
Möguleikarnir
teljast göðir
- þrátt fyrir tap í fyrri leiknum gegn Braga, 25-22
Haukar töpuðu með þriggja
marka mun fyrir portúgalska liðinu
Braga, 25-22, í forkeppni Meistara-
deildar Evrópu í handknattleik I
Portúgal í gær. Leikurinn var
lengst af í jámum og lengstum var
Braga með 1-2 marka forystu.
Heimavöllur Braga þykir mjög
erfiður heim að sækja og hafa mörg
sterk lið í Evrópu fengið að kenna á
honum á sl. árum. Þessi úrslit gera
það að verkum aö Haukarnir eiga
góða möguleika á að komast áfram í
aðalkeppni mótsins en síðari viður-
eign liðanna verður í Hafnarflrði
um næstu helgi.
Mikil harka var í leiknum undir
lokin og var Halldór Ingólfsson
keyrður í gólfið og þurfti að stöðva
leikinn í fimm mínútur af þeim sök-
um. Haukamenn voru utan vallar í
18 mínútur eða þriðjung leiksins.
Þegar leiktíminn var úti áttu
Haukarnir möguleika á að minnka
forskot Braga í tvö mörk en vítakast
þeirra fór forgörðum.
-JKS
Þýski handboltinn:
Magdeburg
lagði Essen
Lærisveinar Aifreðs Gíslasonar i
Magdeburg unnu góðan útisigur,
18-19, á Essen í þýsku úrvals-
deildinni í handknattleik í gær.
Patrekur Jóhannesson skoraði tvö
mörk fyrir Essen og Ólafur
Stefánsson tvö mörk fyrir Magde-
burg.
Róbert Sighvatsson skoraði eitt
mark fyrir Bayer Dormagen sem
tapaði fyrir Willstatt, 23-18.
Wuppertal tapaði á heimavelli fyrir
Solingen, 20-21, og það var Dimitri
Torgowanov sem skoraði sigurmark
Solingen i leiknum. Dimitri
Filippov skoraði 7 mörk fyrir
Wuppertal og Heiðmar Felixson eitt.
Kiel vann Wetzlar, 31-26, og
skoraði Nokalj Jakobsen 13 mörk
fyrir Kiel. Sigurður Bjarnason
skoraði eitt mark fyrir Wetzlar.
Róbert Duranona skoraði þrjú
mörk fyrir Nettelstedt sem tapaði
fyrir Gummersbach á útivelli, 22-18.
Wallau Massenheim heldur sínu
striki og sigraöi Hameln, 25-23,
Felnsburg sigraði Grosswaldstadt,
29-21, og Eisencah vann Hildes-
heim, 26-16.
Massenheim er efst með 12 stig
eftir sjö leiki en Magdeburg er i
öðru sæti með 11 stig eftir sex leiki
og er taplaust til þessa. Kiel er í
þriðja sæti með 10 stig eins og
Flensburg og Grosswaldstadt.
Bayer Dormagen er í 18. sæti með
eitt stig úr fimm leikjum en neðst
og stigalaus eftir fimm leiki eru
Hildesheim og Wuppertal.
-JKS
Ólafur Stefánsson og samherjar í
Magdeburg standa vel að vígi (
þýska handboltanum.
Viggó Sigurösson, þjálfari Hauka:
Toppleikur
hjá liðinu
„Við eigum möguleika en Portú-
galarnir eru sýnd veiði en ekki gef-
in. Þetta var mjög erfiður leikur en
svissnesku dómararnir voru okkur
mjög erfiðir og höfðu lítil tök á
leiknum. Það verður að segjast eins
og er að það hallaði verulega á okk-
ur i dómgæslunni. Við lékum ann-
ars mjög vel, bæði í vörn og sókn,
og enn fremur var markvarslan
meö ágætum. Þetta var toppleikur
og miðað við allar aðstæður er gott
að fara héðan með þriggja marka
ósigur. Við vorum klaufar undir
lokin, misstum boltann og vítakast
fór forgörðum. Nú er bara að undir-
búa sig vel í vikunni fyrir síðari
leikinn 1 Hafnarflrði," sagði Viggó
Sigurðsson, þjálfari Hauka, í sam-
tali við DV eftir leikinn.
„Það er vinnandi vegur að leggja
Braga i heimaleiknum en liðið lék
fantavel I þessum leik. Þetta var tví-
mælalaust einn besti leikur liðsins í
langan tíma og með sömu baráttu
getur maður ekki annað en verið
bjartsýnn fyrir síðari leikinn,"
sagði Þorgeir Haraldsson, formaður
handknattleiksdeildar Hauka, eftir
leikinn.
Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson
5, Petr Baumruk 4, Einar Örn Jóns-
son 4, Alexsandr Shamkuts 3, Óskar
Ármannsson 2, Jón Karl Björnsson
2, Rúnar Sigtryggsson 1, Þorvarður
Tjörvi Ólafsson 1.
Magnús Sigmundsson varði 11
skot í markinu og Bjami Frostason
varði 11 skot. Haukar voru utan
vallar 1 18 mínútur og Braga i 12
mínútur. -JKS
Blaðberar óskast
í eftirtalin hverfi:
Njálsgötu Nesveg
Grettisgötu Sörlaskjól
Frostaskjól
Granaskjól
Seiðakvísl
Silungakvísl
Urriðakvísl
Bakkastaðir
Barðastaðir
Brúnastaðir
Seltjarnarnes
Selbraut
Sólbraut
Sæbraut
Bankastræti
Laugaveg 1-45
Kringluna
Neðstaleiti
Austurstræti
Pósthússtræti
Hafnarstræti