Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2000 47 Sport Aö neöan: Siguröur Þór Jonsson hafnaöi i 4. sæti keppninnar aö þessu sinní. Hann missti 3. sætiö i opna flokknum fil Ragnars ' nmr ýy Róbertssonar en Siguröur hefur nánast veriö áskrifandi aö því i sumar. DV-myndír JAK - Það má með sanni segja að Ragn- ar Róbertsson hafi endað keppnina á toppnum. Hann innsiglaði sigur sinn með glæsilegum akstri i síð- ustu brautinni þar sem hann náði bestum tíma alira keppendanna og velti Pizza 67 Willysnum í gegnum endahliðið svo að hann lá þar á toppnum. Með þessum glæsilega sigri sinum er Ragnar nánast búinn að tryggja sér heimsbikartitilinn en honum nægir 5. sætið í síðustu keppninni til þess þar sem hann hefur 13 stiga forystu á Gunnar Staðan 1. Ragnar Róbertsson....98 1. Gunnar Gunnarsson ...85 3. Ásgeir Jamil Allansson .57 4. Rafn A. Guöjónsson......49 5. Daníel G. Ingimundarson.48 6. Hrólfur Ámi Borgarsson..20 7. Árni Kópsson.........15 8. Hans Maki, Noregi....12 Gunnarsson á Trúðnum. „Þetta var drepskemmtileg keppni, sérstaklega að ná þriðja sætinu í heildina," sagði Ragnar eftir að hafa tekið við verðlaunum sinum. „Þetta var það sem mig langaði í, og auðvitað sigurinn í götubílaflokknum. Það skemmir ekkert að Gunni var langt fyrir neð- an i götubílaflokknum svo að ég á mjög mikla möguleika á að vinna mótið. Ég varð ekkert stressaður þegar líða tók að lokum keppninnar. Ég var bara ánægður þegar ég frétti að það væru 100 stig á milli okkar Gunna fyrir tímabrautimar, sem mér fannst langskemmtilegustu brautimar. Þá ákvað ég bara að gera mitt besta til að hann myndi ekki saxa of mikið á mig. Það virk- aði enda lenti hann í bilunum í tímabrautunum og ég náði ótrúlega góðum tíma,“ bætti Ragnar við. „Nú þarf ég að laga Pizza 67 Willysinn, hann er eitthvað laskað- ur eftir veltumar. Ég tók reyndar nítrókútinn úr bílnum í gær og skildi hann eftir heima, létti bílinn. Nítrókúturinn verður kannski tek- inn með næsta sumar, i fyrsta lagi. Ég hef tapað miklu meira á nítró- inu þegar það hefur svikið mig heldur en ég hef grætt á því. í fyrstu keppninni í Stapafellinu í vor tapaði ég í einu brautinni sem ég notaði nítróið, þá kokaði bíllinn og dó. Þá vantaði mig 80 stig til að vinna götubílaflokkinn, stig sem ég hefði sennilega náð ef ég hefði ekki verið með nitróið á. Ég vil bara fá fleiri hestöfl í vélina og helst sleppa nítróinu alveg,“ sagði Ragnar. „Ég vil bara þakka aðstoðar- mönnum mínum og kostendunum fyrir þennan sigur og einnig benda öllum á að hægt verður að skoða myndir af Pizza 67 Willysnum strax um helgina á vefnum mínum en slóðin að honum er www.4x4.is,“ sagði Ragnar að lokum. -JAK Rjúpnaveiðin byrjaði í gærmorgun: Fáir á Lyngdalsheiðinni - en margir að skjóta víða um land „Við erum búnir að fá fjórar rjúpur hérna á Lyngdalsheiöinni, en við höfum ekki séð neitt af skotveiðimönnum ennþá og það kom okkur á óvart,“ sögðu þeir fé- lagamir Hilmar Hjartarson og Hjörtur Elvar Hilmarsson er DV- Sport hitti þá á Lyngdalsheiðinni í gærmorgun, skömmu eftir að fyrstu rjúpnaveiðimennirnir fóru til rjúpna á þessari vertíð sem hófst þá í morgunsárið. „Við erum að veiða okkur i jólamatinn, fórum nokkrar helgar og við þurfum svona 10-15 fugla. Það er góð útivist í þessum göngutúrum," sögðu þeir feðgar í rigningunni á heiöinni. Nokkru ofar en þeir feðgar voru skotveiöimenn á gangi en þeir voru ekki með neitt nema baka- poka og byssur. Skotveiðimenn fjölmenntu til rjúpna í gær en veiðin var mis- jöfh. Mikið var um skotveiðimenn í Borgarfirði og í Dölunum enda hafði sést þar þónokkuð af fugli. „Skotveiðimenn fóru hérna eitt- hvað frá Höfn í morgun en maður fréttir ekkert fyrr en á morgun," sagði Sverir Sch. Thorsteinsson á Homafirði í gærdag er við spurð- um um stöðuna. „Maður bíður með að fara þang- að til seinna, þegar snjórinn kem- ur,“ sagði Sverrir enn fremur. Á Holtavörðuheiðinni vom margir og aðeins norðar eins og á Auðkúluheiðinni vora líka skot- veiðimenn. Þeir fengu ágæta veiði þar en ekki er von á veiðimönn- um til byggða fyrr en seint í kvöld og þess vegna liggja tölur ekki fyrir. Á Austfjörðum var mikið um sunnanmenn við skotveiðar og lika heimamenn í bland. Veiði- skapurinn gekk ágætlega þar, enda margir að skjóta. -G.Bender Veiðivon Feðgarnir Hilmar Hjartarson og Hjörtur Elvar Hilmarsson með fjórar rjúpur á Lyngdalsheiðinni i gær. DV-mynd G. Bender Blanda: Lax-á leigir ána til þriggja ára - Búð leigir Svartá „Þetta er meiri háttar að fá Blöndu á leigu, það er ýmislegt hægt að gera með hana, enda veiðin oft verið mjög góð í henni,“ sagði Árni Baldursson hjá Veiðifélaginu Lax-á, en hann leigði Blöndu um helgina til þriggja ára. Alls komu 22 til- boð i ána en Stangaveiðifélag Reykjavíkur var með næsta til- boð fyrir neðan Lax-á. Lax-á leig- ir ána til þriggja ára og borgar 11 milljónir í leigu á ári. Svartá var líka leigð út um helgina og var hún leigð á 6,3 milljónir. Það er Búð sem leigir ána og er Páll Magnússon for- svarsmaður. Stangaveiðifélgið Flugan á Ak- ureyri hafði Blöndu á leigu en Jón Steinar Gunnlaugsson og fleiri voru með Svartá. Blanda gaf 713 laxa í sumar og Svartá 169 laxa. Ekki hefur heyrst um neina veiðiá á lausu þessa dagana. -G.Bender | C,- \ V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.