Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2000, Síða 6
22
MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2000
MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2000
43
Sport___________________________________________________________________________________________pv pv_____________________________________________________________________________________________________Sport
Enn tapa KR-ingar
- lágu fyrir Þórsurum á heimavelli í gærkvöld
Það er óhætt að segja að ævintýri
gerist enn og það sannaðist þegar Þór
frá Akureyri sigraði KR, 78-79, í KR-
heimilinu í gærkvöld. KR-ingar réðu
lögum og lofum á vellinum allan tím-
ann þar til rúmar 6. mínútur voru eftir
og ótrúleg 3ja stiga karfa frá Óðni Ás-
geirssyni á síðasta sekúndubrotinu
tryggði Þórsurum sætan sigurinn.
KR-ingar byijuðu leikinn vel og höfðu
tögl og hagldir í upphafi. Munurinn
var strax kominn í 13 stig, KR í vil, eft-
ir fyrsta leikhluta og Þórsarar virtust
ekki tiibúnir í slaginn. í fjórða leik-
hluta fór ævintýrið af stað hjá Þórsur-
um. Þegar rúmar sex mínútur voru
eftir höfðu KR-ingar 13 stiga forskot,
74-61, og virtust hafa leikinn í hendi
sér. Þá fór Einar Öm Aðalsteinsson í
gang hjá gestunum og eftir íylgdu körf-
ur frá Óðni og Sigurði Sigurðssyni og
munurinn aðeins 2 stig, 74-72.
Sóknarleikur KR-inga fraus þessar
mínútur og menn hættu að hreyfa sig í
sókninni og framkvæmd kerfanna varð
léleg. Einar Öm jafnaði síðan leikinn,
76-76, þegar tæp mínúta var eftir. Jón
Amór Stefánsson skoraði góða körfu
þegar háif mínúta var eftir og KR kom-
ið yfir, 78-76. Þórsarar reyndu að jafna
metin í lokin en skot þeirra geigaði og
KR-ingar náðu frákastinu og fólk byij-
að að fagna sigri. En leikmenn KR
köstuðu boltanum frá sér ög allt í einu
stóð Óðinn með boltann í höndunum
rétt fyrir utan 3ja stiga línuna og náði
að kasta boltanum, í þann mund sem
flautan gall, og beint ofan í. Þórsarar
ærðust af fógnuöi á meðan KR-ingar
trúðu vart sínum eigin augum.
Þrátt fyrir tapið var KR-liðið að
spila mun betur en í fyrri leikjum.
Jón Amór var þeirra jafnbesti maður
ásamt Ólafi Ormssyni. Magni Haf-
steinsson var góður framan af og Ólaf-
ur Ægisson og Amar Kárason áttu
sína spretti. Þórsarar sýndu mikinn
karekter að komast aftur inn i leikinn
og fara með sigur af hólmi sem virtist
nánast vonlaust. Óðinn Ásgeirsson
átti mjög góðan leik og Einar Öm var
frábær í seinni hálfleik. „ Við komum
ákveðnir til leiks og ætluðum okkur
ekkert annað en sigur. Við spiluðum
ekki neitt sérstaklega vel framan af, þá
einkum í vöminni. Ég taldi þá ekkert
sterka inni í teig og lagði upp að nýta
þann veikleika hjá þeim. Við vorum
sterkari þegar á reyndi þar sem við
vorum ákveðnari í okkar aðgerðum,"
sagði sigurreifur þjálfari Þórs, Ágúst
Guðmundsson, að leik loknum.
-BG
8-1, 22-9, 26-13, 28-20, 36-23, 43-31,
(51-38), 58-51, 67-57, 71-59, 74-61,
74-72, 75-72, 76-76, 78-76, 78-79.
Stig KR:
Ólafur Ormsson 18, Jón Amór Stef-
ánsson 17, Magni Hafsteinsson 14,
Ólafur Ægisson 11, Amar Kárason
9, Jónatan Bow 5, Hjalti Kristinsson
4.
Stig Þór Ak.:
Óðinn Ásgeirsson 23, Clifton Bush
18, Einar Öm Aðalsteinsson 15, Sig-
urður Sigurðsson 11, Hermann Her-
mannsson 7, Magnús Helgason 5.
Fráköst: KR 27, Þór 33.
3ja stiga skot: KR 7/22, Þór 8/16.
Dómarar (1-10); Leifur Garðars-
son og Kristinn Óskarsson, (9).
Gæði leiks (1-10): 8.
Vítanýting: KR 7/10, Þór 5/12
Áhorfendur: 200.
Maður leiksins: Óðinn Ásgeirsson,
Þór Ak.
Haukar (46) 95
SkalSagrímur (47) 75
Frábær lokakafli
- tryggði Haukum sigur 95-75, á Skallagrími
3-0, 6-9, 11-20, 15-22, 23-24, 28-32,
36-36, 41-38, (46-47). 46-51, 65-55,
72-62, 85-68, 90-75, 95-75.
Stig Hauka: Rick Mickens 39, Marel
Guðlaugsson 11, Davíð Ásgrímsson
11, Jón Amar Ingvarsson 10, Bragi
Magnússon 8, Lýður Vignisson 8,
Leifur Leifsson 3, Róbert Leifsson 2,
Þröstur Kristinsson 2, Eyjólfur Jóns-
son 1.
Stig Skallagríms: Ari Gunnarsson
20, Warren Peebles 17, Yvgeni
Tomilonckij 10, Páimi Þór Sævarsson
9, Sigmar Egilsson 8, Alexander
Ermolionski 6, Andrei Krion 5.
Fráköst: Haukar 45, Skallagrímur 36.
28.
3ja stiga skot: Haukar 8/28, Skalla-
grímur 8/30.
Dómarar (1-10): Eggert Þór Aðal-
steinsson og Eriingur Snær Erlings-
son (7).
Gæði leiks (1-10): 6.
Vítanýting: Haukar 25/32, Skalla-
grímur 13/19.
Áhorfendur: 70.
Maður leiksins: Rick Mickens,
Haukum.
Haukar unnu tuttugu stiga
sigur, 95-75 á Ásvöllum í
gærkvöldi. Þessar tölur gefa þó
ekki alveg rétta mynd af leikum
því hann var lengst af í jámum en
frábær fjórði leikhduti hjá
Haukum færði þeim sigur.
Eins og fyrr segir var leikurinn
í járnum. Borgnesingar voru
heldur með frumkvæðið framan
af, einkum fyrir slaka vöm Hauka
sem leyfðu skyttum Borgnesinga
að athafna sig nánast að vild við
körfu sína. Þá voru
Skallagrímsmenn mun grimmari í
fráköstunum en þetta átti eftir að
snúast við. Þegar Haukum tókst
að þétta vörnina jafnaðist
leikurinn aftur og Haukamir voru
jafnvel heldur oftar með
frumkvæðið í öðrum og þriðja
leikhluta.
En það var í fjórða
leikhlutanum sem úrslit réðust en
þá léku Haukar á als oddi og
gerðu þá 30 stig gegn 15 stigum
Borgnesinga. Borgnesingar gáfust
hreinlega upp á þessum leikhluta
og það var sama þó að varamenn
Hauka spreyttu sig undir lokin,
munurinn jókst enn frekar og
endaði í 20 stigum eins og áður
sagði.
Það var Rick Mickens sem átti
fyrst og fremst þátt í þessum sigri
með stórgóðum leik þó að hann
hafi oft verið full skotglaður.
Bragi var sterkur i vöminni og
Marel og Davíð áttu ágæta spretti.
Hjá Borgnesingum var Ari
Gunnarsson góður en hefði þó
mátt eyða minni tíma í að tuða í
dómurunum þar sem hann fékk
eingöngu tæknivíti upp úr því.
Waren Peebles lék þokkalega en á
þó að geta mun betur en hann
sýndi í gær.
-HI
Mikilvægur sigur
- Borgnesinga á ísfirðingum
Skailagrimur (56) 102
KFÍ (38) 95
9-2, 18-11, 27-22, (28-22), 33-24,
45-31, (56-38) 60-45, 65-56, (75-67),
80-72, 92-85, 93-91, 102-95.
Stig Skallagríms:
Warren Peebles 41, Sigmar Egilsson
16, Ari Gunnarsson 13, Evgenij
Tomilovski 12, Hafþór I. Gunnars-
son 13, Pálmi Þ. Sævarsson 4, Alex-
ander Ermolinskij 3.
Stig ÍR:
Dwayne Fontana 48, Sveinn Blön-
dal 27, Baldur Jónasson 7, Ingi Vil-
hjálmsson 5, Gestur M. Sævarsson,
Hrafn Kristjánsson 4.
Fráköst: Skallgrímur 34, KFÍ 35.
3ja stiga skot: Skallagrímur 7/21,
KFÍ 3/16.
Dómarar (1-10): Einar Einarsson
og Björgvin Rúnarsson (8).
Gæöi leiks (1-10): 7.
Vítanýting: Skallagrímur 23/26,
KFÍ 16/28.
Áhorfendur: 300.
Maður leiksins: Warren Peebles,
Skallagrimi.
Heimamenn hófu leikinn með
miklum látum, náðu strax vænu for-
skoti og leiddu fyrri hálfleikinn ör-
ugglega og höfðu 18 stiga forskot í
leikhléi og allt benti til stórsigurs
heimamanna sem fóru á kostum. En
gestimir komu mun ákveðnari til
leiks í síðari hálfleik á meðan heima-
menn virtust frekar værukærir með
sitt góða forskot og eftir þriðja leik-
hlutann voru ísflrðingar búnir að
minnka muninn niður í átta stig og
búnir að peppa vel upp sitt sjálfs-
traust.
Þegar 27 sekúndur voru eftir voru
Isfirðingar búnir að minnka muninn
niður í tvö stig, 93-91, en í næstu
sókn á eftir slökkti Warren Peebles
vonarneista ísfirðinga með þriggja
stiga körfu og næstu sekúndur brutu
ísfirðingar á heimamönnum og
sendu þá á vítalínuna og því sigur
heimamanna staðreynd, 102-95.
Warren Peehles átti stórleik fyrir
Skallagrím, eins og allir leikmenn
liðsins, og sigurinn því sigur liðs-
heildarinnar, en hjá gestunum voru
Dwayne Fontana og Sveinn Blöndal
allt í öllu enda gerðu þeir samanlagt
75 stig eða 80% stiga ísfirðinga.
„Við spiluðum mjög vel í fyrri
háiíleik en í síðari hálfleik slökuðum
við of mikið á, kannski var það visst
vanmat eftir góðan fyrri hálfleik en
ég er samt mjög ánægður með liðið
og þá sérstaklega ungu strákana í lið-
inu, Hafþór og Pálma, og einnig féll
nýi Rússinn, sem er nýkominn til
okkar, vel inn í liðið,“ sagði Ari
Gunnarsson, fyrirliði Skallagríms,
sem gerði 13 stig og stal 9 boltum.
„Við erum í mjög slæmum málum
því við erum alltaf 13-18 stigum und-
ir í fyrri hálfleik en spilum seinni
hálfieikinn ávallt mun betur og þetta
er það verkefni sem ég þarf að
leysa,“ sagði Karl Jónsson, þjálfari
ísfirðinga. -EP
Góð tilþrif
Það var hraður og skemmtilegur
körfubolti sem Tindastóll og ÍR buðu
upp áþegar liðin mættust á Króknum
í gærkvöldi og oft sáust mjög
skemmtileg tilþrif. Tindastólsliðið
sýndi það í þessum leik að þeir eru
líklegir til að verða mjög sterkir í vet-
ur. Til að mynda gefur Rússinn góðar
vonir.virðist batna með hverjum leik,
og svo er að sjá sem liðið frá Sauðár-
króki sé mjög vel blandað nú í vetur,
hæðin er góð og skyttumar vantar
ekki.
Það voru hinsvegar gestimir sem
mættu grimmir til leiks og ÍR-ingam-
ir em með mjög skemmtilegt lið, þótt
þeir hafi ekki haft erindi sem erfiði að
þessu sinni. Það var fyrir lok fyrsta
leikhluta sem Tindastólsmenn fóra í
gang og ÍR-ingar reyndu hápressu til
að drepa niður þeirra leik en það gekk
ekki eftir. Tindastólsmenn höfðu tögl-
in og hagldimar allan leikinn og vom
lengst af með tíu stiga forskot á gest-
ina.
Shawn Mayers átti stórleik og hef-
ur sjaldan leikið betur. Holmes komst-
hvorki lönd né strönd gegn honum og
í sókinni var Maeyrs að gera ótrúlega
hluti. Antropov var mjög sterkur og
þeir Svavar, Láms,Kristinn og Ómar
léku einnig mjög vel.
Hjá ÍR var Eiríkur Önundarson at-
kvæðamestur og fór á undan sínum
félögum með góðu fordæmi. Magnús
Hreggviðsson er mjög efnilegur leik-
maður með mikið frumkvæði og Sig-
urður Þorvaldsson og Halldór Krist-
mannsson áttu góða spretti, en
Holmes átti ekki góðan dag. -ÞÁ
Tindastóii (41) 81
ÍR (29) 73
2-6, 8-10, 16-11, (22-17), 26-20, 33-22,
(41-29). 48-38, 57-44, (63-54), 68-56,
75-62, 81-73.
Stig Tindastóil:
Shawn Mayers 31, Mikhail Antropov
13, Lárus Dagur Pálsson 11, Kristinn
Friðriksson 9, Svavar Birgisson 9,
Tony Pomones 6 og Ómar Sigmarsson
2.
Stig ÍR:
Eiríkur Önundarson 24, Hreggviður
Ágústsson 19, Halldór Kristmannsson
8, Sigurður Þorvaldsson 7, Senrick
Holmes 6, Steinar Arason 5, Ásgeir
Backman 2 og Rúnar Sævarsson 2.
Fráköst: Tindastóll 43, ÍR 38.
3ja stiga skot: Tindastóll 6/29, fR
5/21.
Dómarar (1-10): Rögnvaldur
Hreiðarsson og Jón Bender (6).
Gæði leiks (1-10): 7.
Vitanýting: Tindastóll 14/21, ÍR
26/32.
Áhorfendur: 250.
Maður leiksins: Shawn Myers,
Tindastóli.
Keflavik
Grindavík
Haukar
Þór A.
Tindatóll
Njarðvík
SkaHagr
Hamar
0 377-303
1 339-317
1 360-323
1 344-310
1 338-320
2 299-347
2 299-347
2 312-334
3 348-357
3 301-318
4 296-339
4 322-379
Valur
KR
KFÍ
Kjmfan Q. SiyufÖsson, V.-il f jolliÍ,l
S:tiKir ;iö korfu Kt í oy n.-tlcUu .Jón-
asson, KFÍ. kemur engum vómum
viö. nv mynd É. Ói.
Valur/Fjölnir-KFÍ:
Fýrsti sigurinn
- hjá Val/Fjölni þegar ísfirðingar komu í heimsókn
Valsmenn unnu sinn fyrsta sigur í
Epson deildinni í ár þegar
ísfirðingar komu í heimsókn í
Grafarvoginn í gærdag. Þrátt fyrir
góða baráttu ieikmanna KFÍ þá voru
Valsmenn einfaldlega sterkari og
unnu sanngjarnan sigur, 91-82.
Heimamenn byrjuðu leikinn af
miklum krafti og virtust vera á
leiðinni að valta yfir gestina. Eftir
fyrsta leikhluta voru þeir komnir 13
stigum yfir og var vömin öflug og
Dwayne Fontana var eini leikmaður
gestanna sem virtist hafa eitthvað í
vömina að gera.
Karl Jónsson, þjálfari KFÍ, náði að
berja krafti í sína menn og fóru
fleiri leikmenn liðsins að láta til
sína taka í sókninni. Sveinn
Blöndal átti frábæran kafla í öðrum
leikhluta og skoraði 11 stig á
skömmum tíma og Baldur Jónasson
skoraði tvær þriggja stiga.
Þrátt fyrir góða sóknartilburði þá
náðu gestimir ekki að minnka
muninn af neinu ráði fyrir hálfleik
þar sem varnarleikurinn var ekki
sannfærandi. Valsmenn leiddu í
hálfleik, 49-39.
Fantagóður Fontana
Dwayne Fontana var ekki á þeim
buxunum að játa sig sigraðan þrátt
fyrir að vera vel undir og skoraði
hann hverja körfuna á fætur
annarri og komu heimamenn litlum
vömum við. Hann gerði 15 stig í
þriðja leikhluta af þeim 17 sem liðið
gerði og náði KFÍ að minnka
muninn í 5 stig, 60-55, en þá tóku
Valsmenn við sér aftur. Eftir það
var munurinn ávallt sjö til tólf stig
og fyrsti sigur Valsmanna í
deildinni því staðreynd.
Lýsum eftir sóknarframlögum
Hjá Valsmönnum vom Brynjar
Karl, Delawn Grandison og Herbert
Amarson bestir. Einnig átti Orri
Sigurðsson flnan leik. Hjá KFÍ var
Dwayne Fontana yfirburðamaður.
Þar er á ferð leikmaður sem er
gríðarlega duglegur og þrátt fyrir að
vera orðinn mjög þreyttur í seinni
hálfleik þá hélt hann áfram á
innsoginu og gerði allt sem hann gat
til að hjáipa liðinu. Sveinn Blöndal
átti góða kafla og þessir tveir
skoruðu bróðurpart stiga liðsins.
Ljóst er að liðið þarf að fá framlög í
sókninni frá fleiri leikmönnum ef
liðið ætlóir sér einhverja hluti í
deildinni í vetur.
-BG
Sterkur varnarleikur
- skóp sigur Njarövíkinga á Hamarsmönnum
*
Það var frábær vamarleikur
Njarðvíkinga sem færði þeim góðan
sigur á Hamarsmönnum í gærkvöldi
í Ljónagryfjunni. Lokatölur urðu
96-71. Það sannaðist heldur betur að
það er ekki besti tími að mæta
Njarðvíkingum eftir tapleik gegn
Keflvíkingum og sú varð raunin að
þessu sinni.
Njarðvíkingar breyttu byrjunar-
liði sínu írá síðustu leikjum, Friðrik
Ragnarsson kom inn í leikstjóm-
andahlutverkið og gerði mjög vel í
að keyra hraðann upp hjá Njarðvík-
ingimi. Það má segja að mistök Ham-
arsmanna hafi verið að leika á sama
hraða og Njarðvíkingar og fengu
þeir grænklæddu oft auðveldar körf-
ur úr pressuvöm og hraðupphlaup-
um.
Hamarsmenn settu þó kraft í
vamarleikinn um miðjan annan
leikhluta og minnkuðu muninn og
staðan í hálfleik 42-33. Það var svo
í þriðja leikhluta sem Njarðvíkingar
gerðu út um leikinn, þar sem frábær
vöm og mikil hittni setti þá úr sex
stiga forskoti í 21 stig. Þar fór
fremstur í flokki Logi Gunnarsson
sem skoraði 15 stig í leikhlutanum,
auk þess sem hann fann samheija
sina vel, enda gerðu Njarðvíkingar
niu þriggja stiga körfur á sjö mín-
útna kafla.
Njarðvíkingar gátu svo leyft sér
að hvíla lykilmenn eins og Loga og
Brenton, sem meiddist reyndar iítil-
lega, og það var sama hver kom inn
hjá þeim, allir léku vel.
Logi Gunnarsson var atkvæða-
mestur Njarðvíkinga eins og áður
sagði, en Jes Hansen lék einnig mjög
vel sem og Friðrik Ragnarsson. Þá
léku Halldór Karlsson og Sævar
Garðarsson einnig vel. Hjá Hamars-
mönnum vom þeir Ægir Hrafn Jóns-
son og Svavar Pálsson að leika best.
„Við ákváðum að bæta vömina
eftir Keflavíkurleikinn og héldum
þeim í 71 stigi og það var fýrst og
fremst vörnin sem færði okkur
þennan sigur. Það vora allir að spila
vel, menn voru að hjálpast að og við
hittum vel, og þá sérstaklega í seinni
hálíleik. Ég var að fá góð skot í 3
leikhluta og það fór allt ofan í,
reyndar átti það við um allt liðið
okkar í leikhlutanum," sagði Logi
Gunnarsson besti maður Njarðvík-
inga að leik loknum. -EÁJ
Njjardvlk (42) 96
Haitaar (33) 71
8-2, 11-9, 24-9, (24-12), 36-16, 32-23,
36-29, (42-33), 47-38, 52-46, 65-46,
(73-52), 80-54, 83-61, 87-67, 96-71.
Stig Njarðvík:
Logi Gunnarsson 23, Jes V. Hansen
20, Friðrik Ragnarsson 15, Halldór
Karlsson 13, Brenton Birmingham 12,
Sævar Garðarsson 6, Ragnar Ragn-
arsson 4, Teitur Örlygsson 3.
Stig Hamar:
Ægir Hrafn Jónsson 15, Svavar Páls-
son 15, Chris Dade 14, Skarphéðinn
Ingason 8, Hjalti Jón Pálsson 8, Pétur
Ingvarsson 7, Lárus
Jónsson 4.
Fráköst: Njarðvík 35, Hamar 35.
3ja stiga skot: Njarðvík 14/32, Ham-
ar 2/13.
Dómarar (1-10): Björgvin Rúnars-
son og Rúnar Gíslason (8).
Gæði leiks (1-10): 7.
Vítanýting: Njarðvík 6/12, Hamar
15/18
Áhorfendur: 250.
Maður leiksins: Logi Gunnarsson,
Njarðvík.
Léku eins og
fyrir þá var lagt
DV, Grindavík:
Keflvíkingar unnu góðan sigur á
nágrönnum sínum í Grindavík á
útivelli í gærkvöldi. Heimamenn
byrjuðu leikinn vel og vom sterk-
ari framan og fóru þá þeir Kim
Lewis, Bergur Hinriksson og Páll
Axel Vilbergsson fyrir sinum
mönnum.
Eftir sem á fyrri hálfleikinn leið
jafnaðist leikurinn. Hann var hrað-
ur, jafn og skemmtilegur á að
horfa. Calvin Davis hjá Keflvíking-
um lenti í villuvandræðum og var
hvíldur um tíma en hann átti síð-
an eftir að láta að sér kveða.
í fyrri hluta síðari hálfleiks
náðu Keflvíkingar fljótlega ellefu
stiga forystu. Falur Harðarson,
sem átti afmæli í gær, skoraði
þrjár þriggja stiga körfur í röð og
Guðjón Skúlason bætti þeirri
flórða við. Segja má að þessi kafli
Valur (49) 91
KFÍ (39) 82
4-2, 11-2, 19-7, 24-21, 32-18, 42-30,
(49-39), 54-45, 60-55, 67-56, 73-61,
81-71, 91-82.
Stig Haukar:
Delawn Grandison 20, Brynjar
Karl Sigurðsson 19, Herbert
Arnarson 16, Kjartan Orri
Sigurðsson 11, Bjarki Gústafsson
10, Guðmundur Björnsson 6,
Sigurbjörn Bjömsson 6, Drazen
Jozic 1.
Stig Skallagrímur:
Dwayne Fontana 38, Sveinn
Blöndal 20, Baldur Jónasson 9,
Ingi Vilhjálmsson 5, Gestur
Sævarsson 4, Guðni Guðnason 2.
Fráköst: Valur 34 , KFÍ 31.
3ja stiga skot: Valur 6 , KFl 5.
Dómarar (1—10): Helgi
Bragason og Einar Einarsson (7).
Gæði leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 100.
Maður leiksins: Dwayne
Fontana, KFÍ.
hafi gert út um leikinn og áttu
Grindvikingar sér ekki viðreisnar
von. Calvin Davis átti góðan leik í
síðari hálfleik og skoraði 20 stig.
„Það er alltaf erfltt að koma
hingað til Grindavikur og sækja
sigur. Leikkaflinn í síðari hálfleik
skipti sköpum. Ég var ánægður
með strákana því þeir léku eins og
fyrir þá var lagt,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Keflvík-
inga, við DV eftir leikinn.
„Við glopruðum leiknum í síðari
hálfleik. Skyttumar hjá þeim
fengu að leika lausum hala en við
náðum að halda þeim niðri í fyrri
hálfleik. Við getum gert miklu bet-
ur en þetta,“ sagði Einar Einars-
son, þjálfari Grindavíkinga, eftir
leikinn.
-EH
íslandsmeistarar Keflavíkur í
kvennakörfunni byrja vel og unnu
opnunarleik l.deildar kvenna í
körfu með 50 stigum um helgina.
Keflavíkurstúlkur sóttu nágranna
sína í Grindavík heim og unnu ör-
ugglega, 34-84, en næsti leikur fer
fram i kyöld í Kennaraháskólanum
þar sem ÍS og KR mætast kl. 20:15.
Hið unga lið Grindavikur stóð I
meisturum í fyrsta flórðungi og
fram í miðjan annan flórðung en þá
skildu leiðir og Keflavík jók muninn
út leikinn. Keflavík vann meðal
annars þriðja fjórðunginn, 19-2.
Hjá Grindavík léku Ema Rún
Magnúsdóttir og Sigríður Anna
Ólafsdóttir best en auk þeirra áttu
þær Jovana Stefánsdóttir (dóttir
Milan Stefáns Jankovic) og Ólöf
Helga Pálsdóttir (dóttir Páls Björns-
sonar knattspyrnumanns) góða inn-
komu. Þrátt fyrir mikinn manna-
missi er dugur og þor í þessum ungu
stelpum í Grindavík sem undir
sflóm Péturs Guðmundssonar em
líklegar til að læra og bæta sig í vet-
ur og þær gætu reynst liðum erfíðar
þegar þær hafa aðlagast alvörunni í
GHndavík (44) 83
Keflavík (40) 92
8-2, 4-4, 8-6, 10-8, 16-10, 20-14, 22-16,
24-20, 24-22, 29-25, 29-30, 32-35, 35-35,
(44-40). 47-44, 49-44, 4846, 49-51,
53-52, 57-68, 60-68, 62-73, 66-82, 76-86,
79-90, 83-92.
Stig Grindavík:
Páll Axel Vilbergsson 22, Dagur
Þórisson 14, Kim Lewis 13, Kristján
Guðlaugsson 11, Bergur Hinriksson 6,
Pétur Guðmundsson 4, Davíð Þór
Jónsson 4, Guölaugur Eyjólfsson 3.
Stig Keflavík:
Calvin Davis 30, Guöjón Skúlason 13,
Hjörtur Hjartarson 13, Jón Norðdal
Hafsteinsson 12, Falur Harðarson 9,
Birgir Örn Birgisson 8, Gunnar
Einarsson 7.
Fráköst: Grindavík 32, Keflavík 31.
3ja stiga skot: Grindavík 9/29,
Keflavík 9/26.
Dómarar (1-10); Kristinn Albertsson
og Sigmundur Herbertsson (7).
Gæði leiks (1-10): 7.
Vítanýting: Grindavík 10/13,
Keflavík 9/13.
Áhorfendur: 300.
Maður leiksins: Calvin Davis,
Keflavik.
meistarflokki.
Hjá Keflavík léku þær Marín Rós
Karlsdóttir og Guðrún Karlsdóttir
best en þær hafa tekið við stóram
hlutverkum af þeim Önnu Maríu
Sveinsdóttur og Öldu Leif Jónsdótt-
ur og skiluðu þeim með sóma. Ann-
ars fengu allar að spila og sýndu að
það er góð breidd í Keflavíkurliðinu
í vetur.
Stig Grindavikur: Sigríður
Anna Ólafsdóttir, 12, Erna Rún
Magnúsdóttir, 10 (hitti úr 5 af 7 skot-
um), Ólöf Helga Páldsdóttir, 6 (5 frá-
köst, 4 stoðsendingar), Jovana Lilja
Stefánsdóttir, 2, Rut Ragnarsdóttir,
2, Sandra Guðlaugsdóttir, 2
Stig Keflavíkur: Marín Rós
Karlsdóttir, 16, Theódóra Káradótt-
ir, 16, Bima Valgarðsdóttir, 14, Erla
Þorsteinsdóttir, 12 (10 fráköst), p
Bonnie Lúðvíksdóttir, 8 (8 fráköst),
Guðrún Karlsdóttir, 7 (10 fráköst, 4
stoðsendingar, 3 varin skot), Svava
Stefánsdóttir, 5 (4 stoðsendingar, 4
stolnir), Sigríður Guðjónsdóttir, 4 (9
fráköst, 5 í sókn), Kristín Blöndal, 2
(6 stoðsendingar). -ÓÓJ
50 stiga sigur
- í opnunarleik kvennakörfunnar
*
't