Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000 23 DV Sport Magnús Teitsson, þjálfari FH, ráðleggur hér leikmönnunum Björk Ægisdóttur og Hafdís Hinriksdóttir. FH tápaði fyrir Haukurn á föstudag. DV-mynd Hilmar Þór FH-Haukar 20-23 0-3, 3-3, 3-5, 6-6, 6-9, 7-11, 9-11, (10-12), 10-16, 12-17, 14-20, 16-20, 16-22, 18-23, 20-23. FH: Mörk/viti (skot/viti): Judit Esztergal 7 (9), Dagný Skúladóttir 4 (8), Björk Ægis- dóttir 3 (9), Gunnur Sveinsdóttir 2 (6), Hafdís Hinriksdóttir 2/2 (8/3), Harpa Vífilsdóttir 1 (5), Hildur Erlingsdóttir 1 (3). Mörk úr hraðaupphlaupum: 3 (Dagný 2, Judit 1). Vitanýting: Skorað úr 2 af 3. Varin skot/viti (skot á sig): Jolanta Slapikiene 15 (38/3, 39%) Brottvisanir: 2mínútur. Haukar: Mörk/víti (skot/víti): Harpa Melsteð 8/3 (13/3), Telma Björk Ámadóttir 6 (9), Sandra Anulyte 3 (5), Hanna Stefánsdótt- ir 2 (6), Björg Hauksdóttir 1 (1), Auður Hermannsdóttir 1 (2), Inga Fríða Tryggvadóttir 1 (2), Tinna Halldórsdóttir 1 (6), Sonja Jónsdóttir (2), Brynja Stein- sen (1), Eva H. Loftsdóttir (1), Hjördís Guðmundsdóttir (1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 10 (Telma 3, Harpa 3, Sandra 2, Björg 1, Hanna 1). Vitanýting: Skorað úr 3 af 3. Varin skot/viti (skot á sig): Jenný Ás- mundsdóttir 18 (35/1, 51%), Guðný Agla Jónsdóttir 0 (3/2, 0% eitt víti ógilt). Brottvisanir: 6 mínútur. Dómarar (1-10): Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson, (6). fíœði leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 250. Maður leiks- ins: Jenný Ás- mundsdóttir, Haukum. tryggðu Haukum sigur á FH í grannaslagnum í Kaplakrika Staðan hjá stelpunum Haukar 7 7 0 182-132 14 Stjarnan 8 7 1 176-149 14 Fram 8 5 3 202-159 10 Grótta/KR 8 5 3 193-159 10 FH 8 4 4 191-175 8 Víkingur 8 4 4 167-151 8 ÍBV 6 3 3 114-130 6 KA/Þór 7 1 6 134-174 2 Valur 7 1 6 104-149 2 ÍR 7 0 7 95-180 0 Haukar unnu öruggan sigur, 20-23, á grönnum sínum úr FH í Kaplakrikanum á föstudagskvöld. Ef undan er skilinn stuttur kafli í fyrri hálfleik voru Haukamir með leikinn í hendi sér allan tímann. Stóri munurinn fólst hins vegar i hraðaupphlaupunum en Haukar skoruðu hátt í helming marka sinna á þann hátt. Hauka-stúlkur sýndu snemma hvemig þær ætluðu sér að vinna leikinn. Þær gerðu þrjú fyrstu mörk leiksins og komu þau öll úr hraðupphlaupum. Til að byrja með neituðu FH-ingar að gefast upp og náðu að jafna en í stöðunni 6-0 skildu leiðir. Jenný varði mikilvægt skort frá Dagnýju Skúladóttur í þessari stöðu og í kjölfarið komu þrjú mörk í röð. Keyrðu hraöaupphlaupin Munurinn var tvö mörk i leikhléi en íjögur fyrstu mörkin í seinni hálfleik komu frá Haukunum og liðið er hreinlega of gott til að tapa slíku forskoti niður. Enn var óspart keyrt á hraðaupphlaupum og þó að Jolanta næði að stöðva nokkur voru það þessi ódýru mörk sem höfðu algjör úrslitaáhrif í þessum leik. „Við gerðum þetta óþarflega spennandi í fyrri hálfleik þegar við fengum nokkur tækifæri til að stinga þær af. Við þurfum að láta kné fylgja kviði betur. Við spiluðum leikinn of mikið á hraða FH-inga í fyrri hálfleik en þetta var mjög öruggt í seinni hálfleik," sagði Ragnar Hermannsson, þjálfari Hauka, eftir leikinn. Jenný Ásmundsdóttir markvörður var þeirra best og varði vel á þýðingarmiklum augnablikum. Harpa og Telma voru einnig öflugar. Skutum úr vondum færum „Við skutum of mikið úr vondum færum sem markvörður þeirra tók og þær fengu hraðaupphlaup sem við náðum ekki að stoppa," sagði Björk Ægisdóttir, fyrirliði FH, en hún átti ágætan leik ásamt Judit og Jolöntu auk þess sem Dagný tók vel við sér undir lok leiksins. -HI Þýska knattspyrnan: Tvö hjá Helga - fyrir Ulm um helgina Islenski landsliðs- maðurinn Helgi Kol- viðsson var heldur betur á skotskónum þegar lið hans SSV Ulm mætti Alem- annia Aachen i þýsku 1. deildinni í gær. Þetta var fyrsti leikur SSV Ulm undir stjórn nýs þjálfara, Hermann Gerland, og er ekki hægt að segja að sá hafi byrjað illa. SSV Ulm vann leik- inn, 3-1, og var Helgi Kolviðsson hetja liðs- ins. Helgi skoraði tvö mörk, á 62. og 66. mín- útu og átti frábæran leik. SSVUlm komst með sigrinum upp í 12. sæti deildarinnar og var stemningin meðal hinna átta þúsund áhorfenda gríðarlega góð. 18 marka tap - hjá ÍBV - Getum borið höfuðið hátt, segir Sigurbjörn þjálfari Islandsmeistarar ÍBV spOuðu fyrri leik sinn í annarri umferð Evr- ópukeppni félagsliða þegar liðið mætti þýska liðinu Buxtehude i Þýskalandi. Þýska liðið hefur ekki enn tapað leik í þýsku deildinni og var vitað fyrir fram að róðurinn yrði ÍBV afar erfiður enda liðið enn í mótun. Leikurinn endaði með átján marka sigri heimastúlkna, 38-20, og ljóst að ÍBV er á leið út úr Evrópu- keppninni í ár. Sigurbjöm Óskarsson sagði eftir leikinn í samtali við DV að þrátt fyr- ir þetta stóra tap hjá liðinu þá væri hann nokkuð sáttur við leikinn. Gríðarlega sterkt lið „Þetta er náttúrlega gríðarlega sterkt lið sem við erum að keppa við og var alveg ljóst frá byrjun að við ættum ekki mikla möguleika gegn þessu liði. Þær spila mjög góða vöm og em með sterkan markmann bak við varnarmúrinn, og svo keyra þær stíft á hraðaupphlaupum enda má eiginlega segja það að þær hafi unn- ið leikinn á hraðaupphlaupum. Átján mörk er kannski aðeins of mikið en engu að síður stóðu stelpurn- ar sig frábær- lega. Það var rosaleg stemn- ing í höllinni hjá þeim, rúmlega sautján hundmð manns og allir vel með á nótunum. Maður hefur bara aldrei upplifað annað eins á ferlinum og mér finnst að við getum borið höfuðið hátt eftir þennan leik. Við vorum með nýjan leikmann, Tamara Mandizch, sem var að spila sinn fyrsta leik fyrir okkur og hún kom mjög vel út sem leikstjórnandi í þessum leik, hún er stór og sterk og á eftir að nýtast okk- ur vel í vetur.“ Hlakkar til „Við hlökkum að sjálfsögðu til að mæta þessu sterka liði heima í Eyj- um og við sýnum að sjálfsögðu hvers liðið er megnugt," sagði Sigur- björn að lokum. Mörk ÍBV: Tamara Mandizch 5, Anita Andreassen 4, Amela Hegic 4, Gunnley Berg 4, Ingibjörg Ýr Jó- hannsdóttir 2, Edda Garðarsdóttir 1. Vigdís Sigurðardóttir og Luk- recija Bokan vörðu mark ÍBV ágæt- lega. -jgi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.