Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000
4-
- gömlu brýnin í Utah Jazz hafa unnið fyrstu þrjá leiki sína
Upprúllun
- Grindvíkinga á Þórsurum
Frestaður leikur Grindvíkinga
og Þórs, sem var háður á fostu-
daginn í Grindavík, kemst senni-
lega ekki á spjöld körfuknatt-
leikssögunnar fyrir gæði. Bjóst
tíðindaritari við meira af leikn-
um því Þórsarar hafa verið á
góðri siglingu undir góðri leið-
sögn Ágústs Guðmundssonar
þjálfara en það verður að segjast
eins og er að þeir voru eins og
vax í höndum Grindvíkinga.
„Við höfum verið að spila und-
ir getu og lögðum það upp að
spila sem lið í leiknum og mér
fannst allir skila sínu. Við lögð-
um áherslu á góða vöm og spUa
síðan inn í teiginn i sókninni. Ég
man varla eftir svona leik þar
sem við skorum skora svona lit-
ið fyrir utan og þetta var góður
sigur fyrir liðið og gott veganesti
í framhaldið," sagði Pétur Guð-
mundsson, fyrirliði Grindvík-
inga, í leikslok.
Kim Lewis og Páll Axel áttu
báðir ágætan leik fyrir heima-
menn en hjá Þór voru það nán-
ast tveir leikmenn, Clifton Bush
og Óðinn Ásgeirsson, sem léku
af eðlilegri getu. -FÓ
Keppnistímabilið í NBA-deildinni
er nú hafið af fullum krafti og hafa
margir skemmtilegir leikir litið dags-
ins ljós strax í byrjun. Fjögur lið,
Philadelphia 76ers, Cleveland Cavali-
ers, Utah Jazz og San Antonio Spurs
hafa ekki enn tapað leik en Chicago
Bulls og Atlanta Hawks eru búin að
tapa öllum sinum leikjum.
Gamalt en gott
Seigla leikmanna Utah Jazz er með
ólíkindum. Þeir hafa, þrátt fyrir há-
an aldur byrjað timabilið frábærlega,
og unnið fyrstu þrjá leiki sína. Eng-
inn hefur spilað betur en „gömlu
mennirnir" Karl Malone ogJohn
Stockton. Malone, sem er orðinn 37
ára gamall, hefur skorað 31,7 stig og
tekið 9 fráköst að meðaltali í leikjun-
um þremur. Stockton, sem er árinu
eldri en Malone, hefur skorað 15,3
stig, gefið 12,3 stoðsendingar og stolið
þremur boltum að meðaltali í upp-
hafi tímabilsins. Á hverju ári er tal-
að um að þetta sé síðasti möguleiki
liðsins til að vinna titla, að liðið sé að
falla á tima. Þeir hafa nú þegar unn-
ið meistara siðasta árs Los Angeles
Lakers og eiga væntanlega eftir að
vera í baráttunni um meistaratitilinn
langþráða.
Ekki búist viö miklu
Það lið sem hefur komið hvað mest
á óvart í byrjun er lið Cleveland
Cavaliers. Liðið skipti sínum stjörnu-
leikmanni, Shawn Kemp, til Portland
fyrir tímabOið en fékk í staðinn
trausta og góða leikmenn eins og La-
mond Murray, Clarence Weather-
spoon og Chris Gatling. Cleveland
hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína og
má þakka það góðri liðsheild. Sex
leikmanna liðsins hafa skorað yfir 10
stig að meðaltali í leik og sýnir það
vel breiddina í leikmannahópnum.
Cleveland hefur einnig verið að spUa
frábæra vörn en andstæðingar liðs-
ins hafa aðeins hitt úr 36,3% skota
sinna í leikjunum gegn Cleveland
sem er besti árangur deUdarinnar.
O’Neal samur viö sig
Miðherji Los Angeles Lakers,
ShaquUle O’Neal, er samur við sig.
Hann er stigahæsti leikmaður deUd-
arinnar með 32,3 stig að meðaltali,
hefur tekið 13,7 fráköst en vítanýting-
in er eins og fyrr, algjör brandari, að-
eins 35,4% sem er ótrúlega lélegt jafn-
vel á mælikvarða ShaquUle O’Neal.
-ósk
Grindavík-Þór Ak. 95-75
2-0, 11-4, 19-9, 26-17, (32-21), 37-23,
37-28, 42-32, 44-36, (52-40), 5^46,
60-50, 75-50, (78-54), 86-58, 91-66,
95-75.
Stig Grindavik: Kim Lewis 25, Páll
Axel Vilbergsson 23, Guðlaugur Eyj-
ólfsson 8,_ Davíð Þór Jónsson 8, Guð-
mundur Ásgeirsson 8, Elentínus Mar-
geirsson 8, Dagur Þórisson 6, Pétur
Guðmundsson 5, Bergur Hinriksson
2, Kristján Guðlaugsson 2.
Stig Þór Ak.: Clifton Bush 24, Óðinn
Ásgeirsson 21, Einar Hólm Davíðsson
10, Hafsteinn Lúövíksson 7, Guð-
mundur Oddsson 4, Hermann Her-
mannsson 4, Magnús Helgason 2,
Guömundur Aðalsteinsson 2, Jón
Ingi Baldvinsson 1.
Fráköst: Grindavík, 30 (12 í sókn, 18
í vörn; Lewis, 13), Þór Ak., 37 (13 í
sókn, 24 í vöm; Bush, 13).
Stoösendingar: Grindavík, 22
(Daviö, Páll, 5), Þór Ak., 18 (Bush, 6).
Stolnir boltar: Grindavík, 26 (Pétur,
5), Þór Ak., 16 (Bush, 6).
Tapaöir boltar: Grindavík, 14, Þór
Ak., 28.
Varin skot: Grindavík, 1 (Pétur), Þór
Ak., 2 (Óðinn, 2).
3ja stiga: Grindavík, 22/8, Þór Ak.,
12/1.
Víti: Grindavík, 13/9, Þór Ak., 23/15.
Dómarar (1-10); Helgi Bragason og
Eggert Þór Aðalsteinsson (8).
Gœði leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 150.
Maöur leiksins: Kim Lewis,
Grindavík.
KR-KFÍ 99-88
4-0, fr4, 9-4, 16-8, 16-12, 21-12, 22-16,
(27-16), 27-18, 35-24 , 35-30, 41-31,
43-36, (45-36), 51-36, 53-38, 60-42,
60-46, 66-49, 71-51, (75-57), 79-59,
93-66. 91-77, 96-81, 96-88, 99-88.
Stig KR: Amar Kárason, 26, Magni
Hafsteinsson, 17, Jeremy Eaton, 14,
Jón Arnór Stefánsson, 12, Ólafur Jón
Ormsson, 9, Hjalti Kristinsson, 6,
Ólafur Már Ægisson, 6, Steinar
Kaldal, 6, Tómas Hermannsson, 3.
Stig KFÍ: Dwayne Fontana, 33,
Sveinn Blöndal, 20, Baldur Ingi Jón-
asson, 12, Branislav Dragojlovic, 9,
Hrafn Kristjánsson, 7, Ingi Freyr Vil-
hjálmsson, 5, Gestur Sævarsson, 2.
Fráköst: KR, 30 (12 í sókn, 18 í vörn;
Eaton, 7), KFÍ, 40 (12 í sókn, 28 í vörn;
Sveinn, 17).
Stoðsendingar: KR, 26 (Amar, 6),
KFÍ, 18 (Ingi Freyr, 7).
Stolnir boltar: KR, 14 (Ólafur Jón,
3), KFÍ, 4 (Dragojlovic, 3).
Tapaóir boltar: KR, 9, KFÍ, 23.
Varin skot: KR, 9 (Magni, 4), KFÍ, 5
(Sveinn, 4).
3ja stiga: KR, 14/5, KFÍ, 17/8.
Víti: KR, 21/12, KFl, 24/16.
Dómarar (1-10): Jón Bender og
Björgvin Rúnarsson (7).
Gœði leiks (1-10): 3.
Áhorfendur: 50.
Maöur leiksins: Arnar Snær
Kárason, KR.
Lett(ir)
- hjá KR sem komst úr fallsæti með sigri á KFÍ
KR-ingum létti mikið við
léttan sigur á KFÍ, 99-88, á
fosmdagskvöldið.
íslandsmeistaramir
komust þar með úr fallsæti í
fyrsta sinn í vetur og á sigur-
göngu sem spannar orðið tvo
leiki. KFÍ þurfti aftur á mótil
að sætta sig við sjötta tapið í
röð og fátt virðist geta bjarg-l
að liðinu frá falli.
KR hafði fmmkvæðið all-
an tímann og það var að-
eins kæmleysi Vesturbæ-
inga í lokin sem orsakaði
að munurinn var 11 í stað
20 stiga.
Amar Kárason, skoraöi
26 stig fyrir KR, gaf 6
stoösendingar og hitti
úr 11 af 17 skotum
sínum.
Hjá KR átti Amar Kárason prýðis-
leik, skoraði 26 stig og hitti úr 11 af 17
skotum sínum auk þess sem hann
stjómaði leik KR-liðsins og gaf meðal
annars sex stoðsendingar. Auk Amars
var Magni Hafsteinsson mjög sterkur í
byrjun, skoraði 11 stig og varði tvö
skot í fyrsta fjórðung en var rólegur
eftir það.
Þetta var síðasti leikur
Jeremy Eaton fyrir KR-liðið
log kemur það ekki mikið á
lóvart. Eaton vantaði tilfmn-
anlega allan styrk og hraða
og var ekki nálægt að hafa
þó kosti sem eftirmaður
Keith Vassell ætti að bera.
Jónatan Bow lék ekki
með KR í þessum leik
vegna meiðsla.
Hjá KFÍ báru tveir
menn af, Dwayne Fontana
og Sveinn Blöndal og skor-
aði Fontana meðal annars
19 stig auk 7 frákasta í
fyrri hálfleik. Sveinn Blön-
dal komst vel frá sínum leik þrátt fyr-
ir að vera spila á móti sínum gömlu fé-
lögum. Sveinn skoraði 20 stig, tók 17
fráköst og varði 4 skot fyrrum félaga
sinna. Sveinn hefur tekið miklum
framfóram fyrir „vestan“ og það er
ekki frítt við að íslandsmeistararnir
gætu nýtt sér krafta hans þessa dag-
ana. -ÓÓJ
_____29
Sport
HBÁ-DEfLDiM
Föstudagur:
Washtngton-New York .... 76-80
Richmond 18, Howard 15 (12 frák.),
Strickland 12 - Camby 20, Houston 18,
Sprewell 15.
Boston-Toronto ...........93-91
Pierce 30, A. Walker 20, K. Anderson
11 - Carter 33, A. Davis 11 (10 frák.),
Peterson 10.
Charlotte-Miami ..........83-79
Mashburn 30, B. Davis 21, Campbell
17 (10 frák.) - B. Grant 33 (16 frák.),
Hardaway 15, E. Jones 11.
Orlando-Philadelphia.....80-87
HiU 18, Armstrong 17, McGrady 16 -
Iverson 29, Ratliff 14 (17 frák.), McKie
14.
Detroit-Sacramento .....93-100
Stackhouse 22, Atkins 18, B. Wallace
14 (10 frák.) - Webber 31 (12 frák.), B.
Jackson 16, Pollard 15 (14 frák.).
Chicago-New Jersey......82-92
Brand 20 (11 frák.), Mercer 10, Drew
10 - Marbury 33, Gill 18, Douglas 11.
Laugardagur:
Vancouver-LA Lakers .... 89-98
Abdur-Rahim 24, Bibby 23,
Harrington 10 - O’Neal 27 (15 frák.),
Bryant 22, Grant 19 (11 frák.).
Indiana-Chicago..........94-81
Best 25, Miller 20, Croshere 14 -
Brand 19 (11 frák.), Mercer 15, Miller
13.
Toronto-Washington.......103-96
Carter 34, Williams 22, Davis 14 -
Richmond 22, Howard 21, Strickland
16 (12 stoðs.).
Atlanta-Orlando..........104-107
McLeod 24, Crawford 22, Henderson
19 (15 frák.) - Armstrong 21, Garrity
19, Miller 19.
Cleveland-Boston...........91-89
Gatling 16, Miller 15, Harpring 14 -
Walker 25, Potapenko 12, Anderson
-7
11.
Miami-Philadelphia......82-84
Jones 26, Hardaway 23 (11 stoðs.), '
Mason 10 (12 frák.) - Iverson 23, Hill
16, Snow 13.
Dallas-Utah............106-112
Nash 24, Finley 20, Nowitzki 20 -
Malone 35 (10 frák.), Stockton 14,
Starks 14.
Minnesota-Sacramento .... 99-89
Gamett 28 (12 frák.), Brandon 16,
Szczerbiak 16 - Stojakovic 22, Divac
20 (12 frák.), Webber 15.
New Jersey-Charlotte......87-98
Marbury 33, Gill 16, Newman 11 -
Wesley 30, Davis 20, Mashburn 12.
Milwaukee-Detroit..........97-88
Cassell 20, Hunter 15, Thomas 14 -
Cleaves 19, Stackhouse 17, Atkins 11.
Denver-Phoenix............99-102
LaFrentz 14, Van Exel 14, Lenard 13 -
Kidd 22 (10 stoðs.), Marion 21, Delk
17.
Seattle-Portland...........90-97
Payton 25 (11 stoðs.), Baker 19, Ewing
17 - Stoudamire 21, Kemp 18 (14
frák.), Smith 16.
Golden State-San Antonio 105-117
Jamison 32, Hughes 13, Cummings 13
- Rose 26 (11 frák.), Elliott 18, Duncan
16 (13 frák.).
LA CIippers-Houston.......74-77
Odom 13, Mclnnes 12, Richardson 11
- Francis 21, Anderson 19, Mobley 9.
Danny Fortson, sem leikur meö
Golden State Warriors, hefur tekið
flest fráköst allra leikmanna NBA-
deildarinnar til þessa, 15,3 að meðal-
tali.
John Stockton, sem leikur með
Utah Jazz, hefur gefið flestar
stoðsendingar það sem af er tímabil-
inu, 12,3 að meðaltali i leik.
Jason Kidd, sem leikur með
Phoenix Suns, hefur stolið flestum
boltum af andstæðingum sínum til
þessa. Kidd hefur stolið 3,7 boltum að
meðaltali í leik.
Shawn Bradley, sem leikur með
Dallas Mavericks, og Theo Ratliff,
sem leikur með Philadelphia 76ers,
hafa varið flest skot allra leikmanna
til þessa. Þeir hafa hvor um sig varið
fjögur skot að meðaltali I leikjunum
sem búnir eru.
*
Bakverðirnir Jason Kidd og
Gary Payton, sem leikur með
Seattle Supersonics, eru einu leik-
mennimir sem hafa náð þrefaldri
tvennu til þessa.
Darius Miles, sem leikur með Los
Angeles Clippers, er stigahæstur
allra nýliða í deildinni með 10 stig að
meðaltali í leik.