Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Qupperneq 16
KR-ingar fá liðstyrk:
Vassell kemur
- en Eaton látinn fara vegna ágreinings
Haukum í gærkvöld.
Vassell kemur
íslandsmeistarar KR vildu ekki
framlengja samning sinn bandaríska
leikmanninn Jeremy Eaton. Eaton
var á vikulöngum reynslusamningi
en í gær ákvað körfuknattleiksdeild
KR að senda Eaton heim. Eaton spil-
aöi tvo leiki fyrir KR, gegn Skalla-
grími og KFl, og unnust þeir báðir.
Hann skoraði 11,5 stig og tók 8,5 að
meðaltali í leikjunum tveimur en
samkvæmt Inga Þór Steinþórssyni,
þjáifara KR, voru KR-ingar ekki ósátt-
ir við hann sem leikmann heldur kom
upp persónulegur ágreiningur milli
hans og Inga Þórs sem leiddi til þess
að KR spilaði án útlendings gegn
KR-ingar þurfa þó ekki að örvænta
því á þriðjudagsmorgun kemur
Kanadamaðurinn Keith Vassell til
landsins og mun hann leika með KR i
vetur. Vassell er körfuknattieiks-
áhugamönnum að góðu kunnur fyrir
framlag sitt til íslandsmeistaratitils
KR síðastliðið vor. Ingi Þór sagði að
Vassell væri í þokkalegu formi.
„Hann er búinn að æfa í tvær vikur
og er þvi ekki á byrjunarreit eins og
þegar hann kom í fyrra,“ sagði Ingi í
samtali við DV-sport. -ósk
Spænska knattspyrnan:
Rjúkandi rúst
- Numancia tók Evrópumeistara Real Madrid í nefið
Smáliðið Numancia tók Real Ma-
drid heldur betur í kennslustund á
heimavelli sínum á laugardaginn.
Leiknum lauk með 3-1 sigri Nu-
mancia og sáu Evrópumeistarnir
aldrei til sólar. Rúmenski landsliðs-
maðurinn Laurentiu Rosu var í
feiknaformi í liði Numancia, stríddi
varnarmönnum Real Madrid allan
leikinn og þegar upp var staðiö
haföi þessi snjalli leikmaður gert
þrjú mörk.
Rivaldo geröi gæfumuninn
Brasilíski snillingurinn Rivaldo
gerði gæfumuninn í leik Las Palmas
og Barcelona á heimavelli þeirra
fyrrnefndu. Rivaldo skoraði sigur-
markið í annars jöfnum leik á 47.
mínútu þegar hann lék á markvörð
Las Palmas og renndi knettinum í
autt markið eftir sendingu frá Xavi.
Þórður Guðjónsson kom inn á í lið
Las Palmas þegar hálftími var eftir
af leiknum og undir lokin þurfti
markvörður Barcelona, Francesco
Arnau, þrívegis að taka á honum
stóra sínum eftir tilraunir leik-
manna Las Palmas sem sóttu stift
eftir jöfnunarmarki. Þeim tókst
ekki ætlunarverk sitt og Barcelona
komst með sigrinum í þriðja sæti
deildarinnar.
Tap hjá Valencia
Espanyol bar sigurorð af efsta liði
deildarinnar Valencia, 1-0, og var
sigurinn sanngjam. Leikmenn
Valencia náðu sér ekki á strik og
virtust aldrei liklegir til þess að
koma í veg fyrir fyrsta tap liðsins
síðan í fyrsta leik. Valencia heldur
þó efsta sætinu þrátt fyrir tapið þar
sem Deportivo La Coruna tapaði
einnig. Deportivo tapaði fyrir
nýliðum Villareal, 3-2, og var
framherjinn Victor hetja Villareal í
leiknum. Hann skoraði tvö marka
liðsins og lagði síðan upp
sigurmarkið sem Moiese Garcia
skoraði á síðustu mínútu leiksins.
Sigling á Alaves
Gott gengi Alaves heldur áfram.
Um helgina vann liðið sinn stærsta
sigur í fyrstu deild í meira en 40 ár
þegar það lagði Reai Oviedo, 4-0.
Meö sigrinum komst Alaves upp í
annað sæti deildarinnar og er nú
tveimur stigum á eftir Valencia.
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000
Luis Figo og félagar hans í Real Madrid áttu aldrei möguleika gegn Numancia á laugardaginn.
Reuters
SPANN
Numancia-R. Madrid..........3-1
1-0 Laurentiu Rosa (8.), 1-1 Raul
Gonzalez (15.), 2-1 Laurentiu Rosa
(16.), 3-1 Laurentiu Rosa (64.).
Villareal-Deportivo.........3-2
0-1 Djalminha (10.), 1-1 Victor (41.),
1-2 Walter Pandiani (68.), 2-2 Victor
(83.), 3-2 Moises Garcia (90.).
Espanyol-Valencia............1-0
1-0 Manuel Serrano (78.).
Celta-Malaga.................1-0
1-0 Alexander Mostovoi (56.).
Osasuna-A. Bilbao............1-1
0-1 Aitor Larrazabal (18.), 1-1
Mariano Armentano (71.).
R. Zaragoza-Santander .......2-0
1-0 Montenegro (39.), 2-0 Paulo
Roberto Jamelli (57.).
Las Palmas-Barcelona........0-1
0-1 Rivaldo (47.).
R. Sociedad-R. Matlorca .... 0-1
0-1 Miguel Angel Nadal (90.).
Alaves-Oviedo................4-0
1-0 Javier Moreno (24.), 2-0 Delfi Geli
(36.), 3-0 Milan Martinovic, sjálfsm.
(85.), 4-0 Jordi Cruyff (90.).
Rayo Vallecano-Valladolid . . 2-1
1-0 Josep Setvalls (44.), 1-1 Gabriel
Ivan Heinze (66.), 2-1 Elvir Bolic (84.)
Staða efstu liða:
Valencia 9 6 1 2 18-6 19
Alaves 9 5 2 2 14-5 17
Deportivo 9 5 2 2 17-9 17
Barcelona 9 5 1 3 16-10 16
Celta Vigo 9 5 1 3 12-10 16
R. Vallecano 9 4 3 2 17-10 15
R. Madrid 9 4 2 3 17-13 14
R. Mallorca 9 4 2 3 10-10 14
Villareal 9 3 3 3 9-13 12
Espanyol 9 3 2 4 8-8 11
Malaga 9 3 2 4 13-14 11
R. Oviedo 9 3 2 4 11-13 11
Numancia 9 3 2 4 11-14 11
Las Palmas 9 3 2 4 11-18 11
R. Zaragoza 9 2 4 3 9-9 10
KjrV
#1 PÝSXALAND
------------
B. Leverkusen-E. Frankfurt . .1-0
1-0 Michael Ballack (79.).
B. Miinchen-B. Dortmund . . . 6-2
0-1 Heiko Herrlich (2.), 1-1 Hasan
Salihamidzic (7.), 2-1 Giovanni Elber
(10.), 3-1 Mehmet Scholl (39.), 4-1
Mehmet Scholl (59.), Paulo Sergio
(63.), 5-2 Otto Addo (71.), 6-2 Hasan
Salihamidzic (83.).
Unterhaching-Köln ...........0-0
Wolfsburg-E. Cottbus ........1-1
0-1 Rudi Vata (38.), 1-1 Dietmar
Kuehbauer (60.).
Kaiserslautern-Schalke......3-2
0-1 Ecce Sand (37.), 0-2 Thomasz
Waldoch (56.), 1-2 Harry Koch, víti
(67.), 2-2 Miroslav Klose (71.), 3-2 Olaf
Marschall (87.).
Stuttgart-H. Rostock ........1-0
1-0 Sean Dundee (34.).
H. Berlin-Werder Bremen . .. 4-1
1-0 Alex Alves (12.), 2-0 Michael
Preetz (45.), 3-0 Michael Preetz (49.),
3-1 Claudio Pizarro, víti (71.), 4-1
Stefan Beinlich (79.).
Hamburger SV-Freiburg .... 5-0
1-0 Mehdi Mahdavikia (12.), 2-0 Roy
Praeger (21.), 3-0 Nico-Jan Hoogma
(35.), 4-0 Marinus Bester (45.), 5-0 Stig
Tofting (76.).
Bochum-1860 Miinchen........1-1
0-1 Paul Agostino (53.), 1-1 Zdravko
Drincic (62.).
Staða efstu liða:
H. Berlin 11 8 0 3 28-15 24
B. Múnchen 11 7 1 3 26-12 22
Kaiserslaut. 11 6 2 3 16-11 20
B. Leverk. 11 5 4 2 14-11 19
Schalke 11 5 3 3 22-11 18
HSV 11 5 3 3 27-19 18
Wolfsburg 11 4 4 3 25-16 16
B. Dortm. 11 5 1 5 17-22 16
E. Frankf. 11 4 2 5 14-15 14
H. Rostock 11 4 2 5 7-15 14
Þýska knattspyrnan:
Yfirburðir
- hjá meisturunum
Leikmenn Bayem Múnchen komu ákveðnir til
leiks gegn Borussia Dortmund á heimavelli um
helgina eftir tapið gegn 4. deildar liðinu Magde-
burg í bikamum í vikunni. Dortmund komst yfir strax á annarri mín-
útu en siðan ekki söguna meir. Bæjarar tóku öll völd á vellinum og
höfðu þegar yfir lauk skorað sex mörk. „Þetta var besti heimaleikur
okkar á þessu tímabili. Við vorum traustir vamarlega og sóttum hratt
og skipulega," sagði þjálfari Bayem Múnchen, Ottmar Hitzfeld, eftir
leikinn.
Hertha Berlin gefur ekkert eftir
Hertha Berlin, sem komst i síðustu viku í toppsæti þýsku 1. deild-
arinnar í fyrsta sinn í 30 ár, lætur ekki deigan síga. Um helgina völt-
uðu þeir yfir Werder Bremen, 4-1, og eru á toppi deildarinnar, tveim-
ur stigum á undan Bayem Múnchen. -ósk
Ottmar Hitzfeld