Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2000, Page 22
34
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000
DV
Ættfræði
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
80 ára_________________________________
Þóra Magnúsdóttir,
Engjavegi 75, Selfossi.
75 ára ________________________________
Gíslína Guðlaug Árnadóttir,
Neshömrum 12, Reykjavík.
Hallfriöur Sigurðardóttir,
Uppsölum 1, Dalvík.
Helga Sigríöur Helgadóttir,
Breiöuvík 53, Reykjavík.
Svan Ingólfsson,
Grænugötu 2, Akureyri.
70 ára_________________________________
Aöalsteinn Hjálmarsson,
Laugarásvegi 7, Reykjavík.
Ólöf Siguröardóttir,
Sámsstööum 3, Laxárdalshr. Dalasýslu.
Sólveig Jónsdóttir,
Hegranesi 32, Garöabæ.
60 ára_________________________________
Erla Jósepsdóttir,
Vesturgötu 2, Keflavík.
Óttarr Halldórsson,
Hraunbraut 24, Kópavogi.
Sigríöur Júlía Jónsdóttir,
Eystri-Skógum, Hvolsvelli.
50 ára_________________________________
Guömundur Gunnarsson,
Dalhúsum 77, Reykjavík.
Gunnlaugur Sigurðsson,
Hafnarbraut 12, Kópavogi.
Hildur Björnsdóttir,
Meðalholti 9, Reykjavlk.
Óli Austfjörö,
Heiöargeröi 9, Húsavík.
40 ára_________________________________
Brynjólfur Friöriksson,
Austurhlíö, Blönduósi.
Guöbjörg Elsa Guðmundsdóttir,
Kolbeinsmýri 12, Seltjarnarnesi.
Jóna Gréta Jónsdóttir,
Suðurhólum 16, Reykjavík.
Kristín Höskuldsdóttir,
Dalalandi 2, Reykjavík.
Kristrún Birna Viggósdóttir,
Hringbraut 35, Hafnarfiröi.
Pétur Þormar,
Granaskjóli 74, Reykjavík.
Sesselja Signý Sveinsdóttir,
Vallargerði 37, Kópavogi.
Sigurjón Þorgrímsson,
Grundargarði 1, Húsavík.
Sigþór Haraldsson,
Móasíðu 4e, Akureyri.
Sólrún Jónsdóttir,
Skólavöröustíg 16, Reykjavík.
Steinþór Vigfússon,
Brekkum 1, Vlk.
Sveinbjörn Símon Aifreösson,
Ásvöllum 5, Grindavík.
s
jjrval
góður ferðafélagi
- til fróðleiks og
skemmtunar á ferðalagi
eða bara heima í sófa
Elín J. Christensen, Móaflöt 8,
Garðabæ, lést á Landspítala
Vífilsstööum þriöjud. 24.10. Útförin
hefur farið fram I kyrrþey aö ósk hinnar
látnu.
Ingunn Einarsdóttir frá Drangsnesi lést
á heimili sínu, Fellsási 7, Mosfellsbæ,
föstud. 3.11. sl.
Stefanía K. Bjarnadóttir, Kópavogsbraut
la, áöur til heimilis aö Skólageröi 65,
Kópavogi, andaöist á Landspltalanum
Fossvogi föstud. 3.11.
Fímmtugur
Jón Magnússon
markaðsfulltrúi Tæknivals á Akureyri
Jón Magnússon, til heimilis að
Vættagili 19, Akureyri, er fimmtug-
ur í dag.
Starfsferill
Jón fæddist að Miðtúni í fyrrum
Presthólahreppi á Melrakkasléttu.
Hann ólst upp á Raufarhöfn á há-
punkti shdaráranna, lauk skyldu-
námi á Raufarhöfn, miðskólaprófi
frá Lundi i Öxarflrði og útskrifaðist
úr Kennaraskóla íslands 1973. Hann
lauk einnig réttindanámi til skip-
stjórnarkennslu (30 tonn) frá Stýri-
mannaskóla íslands.
Jón kenndi við Grunnskólann á
Raufarhöfn 1973-86 og var þar af
skólastjóri 1978-86. Þá stundaði
hann sjóróðra flest sumur með
kennslunni og á námsárum sínum,
mest á eigin bátum. Einnig stundaði
hann afleysingarstörf á flugvöllun-
um á Raufarhöfn og Kópaskeri um
árabil.
Jón hefur tekið þátt i fuglarann-
sóknum frá sumrinu 1986 ásamt
því að vera drjúgur við fuglamerk-
ingar á liðnum árum. Hann flutti til
Akureyrar með fjölskyldu sína og
hóf störf hjá Tölvutækjum-Bókvali
hf. sem sölumaður og síðar verslun-
arstjóri. í dag er hann markaðsfull-
trúi Tæknivals á Akureyri.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Katrín Her-
mannsdóttir f. 21.12 1951, frá Ási í
Kelduhverfi, starfsmaður Lands-
banka íslands á Akureyri. Móðir
Katrínar er Hanna Sæfríður Ingólfs-
dóttir, húsmóðir, Akureyri og faðir
Katrínar er Hermann Sigurðsson í
Keflavík.
Jón og Katrín hófu sambúð 1968
og giftu sig í september 1972.
Dætur Jóns og Katrínar eru
Hulda Sæfríður f. 5.2. 1969, búsett í
Danmörku; Hugrún f. 30.6. 1978, bú-
sett í Reykjavík.
Systkini Jóns eru Margrét Guð-
ný Magnúsdóttir, f. 24.4.1952, búsett
á Akureyri og starfar við öldrunar-
þjónustu en maður hennar er
Hreinn Grétarsson frá Kálfagerði í
Eyjafirði og eiga þau tvær dætur,
Björgu og írisi; Magnús Örn Magn-
ússon, f. 28.8. 1957 starfsmaður
Dagsverks á Egilsstöðum en sam-
býliskona Magnúsar Amar er Ragn-
heiður Sigursteinsdóttir og eiga þau
saman Bríeti og Rúnar; Valur
Magnússon. f. 22.5. 1959, rannsókn-
arlögreglumaður á Egilsstöðum, en
dætur Vals og Birnu Sigurðardóttur
frá Þórshöfn eru Sandra og Sunna.
Foreldrar Jóns: Magnús Anton
Jónsson f. 29.11. 1923, frá Skálum á
Langanesi, nú búsettur að Hvammi
á Húsavík, og Hulda Jónsdóttir, f.
24. júlí 1933, d. í janúar 1995, frá
Reykjavík. Þau bjuggu lengst af á
Raufarhöfn.
Ætt
Magnús er sonur Jóns Magnús-
sonar frá Borgarflrði eystra, og hétu
langfeðgar þessum tveimur nöfnum
í sjö ættliði þar eystra allt til séra
Jóns Brynjólfssonar sem fæddur
var 1735. í Borgarfirði eystra og á
Austurlandi er margt skyldmenna
afmælisbarnsins og má þar nefna
Húsavíkurættina.
Hulda var dóttir Jóns Einars
Jónssonar, bróður Hjalta, föður
Jóns og Hauks Hjaltasona, athafna-
manna og KR-inga í Reykjavík.
Systir Jóns Einars var Ásta, amma
Þorsteins Pálssonar, fyrrv. ráð-
herra. Jón Einar var sonur Jóns,
sjómanns á Eiðsstöðum Guðmunds-
sonar, b. í Ánanaustum Gíslasonar,
b. í Ánanaustum Guðmundssonar,
b. í Ánanaustum Gislasonar, í
Breiðholti við Öskjuhlíð. Móðir
Gísla í Ánanaustum var Hólmfríður
Eyleifsdóttir, b. í Skildinganeskoti.
Móðir Jóns sjómanns var Margrét
Ásmundsdóttir, b. á Bjargi á Kjalar-
nesi Gissurarsonar. Móðir Margrét-
ar var Guðrún Þórðardóttir, systir
Runólfs, afa Björn Þórðarsonar for-
sætisráðherra. Móðir Guðrúnar var
Sigríður Þórólfsdóttir, b. í Engey
Þorbjamarsonar, bróður Guðlaug-
ar, langömmu Guðrúnar, langömmu
Bjama Benediktssonar forsætisráð-
herra, foður Björns menntamálaráð-
herra. Móðir Jóns Einars var Þór-
unn, systir Guðmundar, kirkju-
garðsvarðar í Skólabæ, afa Ágústs
Einarssonar, fyrrv. forstjóra Stál-
smiðjunnar. Þórunn var Einarsdótt-
ir, frá Skólabæ á Hólavöllum i
Reykjavík.
Móðir Huldu var Ásta Pálsdóttir
frá ísafirði.
Sjötug
Ásdís Ásgeirsdóttir
húsmóðir á ísafirði
Ásdís Ásgeirsdóttir húsmóðir,
Pollgötu 4, Isafirði, varð sjötug í
gær.
Starfsferill
Ásdís fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Grunnavík í Jökulfjörðum hjá
Sólveigu Magnúsdótur á Nesi þar
sem hún var búsett til 1947. Þá var
hún á Sútarabúðum um skeið. Hún
fór til ísafjarðar ung kona, starfaði
einn vetur við Farsóttarhúsið í
Reykjavík en hefur síðan búsett á
ísaflrði frá 1954.
Auk heimilisstarfa hefur Ásdís
unnið við fiskverkun á ísaflrði.
Fjölskylda
Eiginmaður Ásdísar var Jóhann
S.H. Guðmundsson, f. 1.10. 1905, d.
15.3. 1984, sjómaður og verslunar-
maður á ísafirði. Hann var sonur
Guðmundar H. Halldórssonar úr
Arnardal, og Guðrúnar Friðriks-
dóttur frá Hrafnseyrarhúsum í Am-
arfirði.
Börn Ásdísar og Jóhanns: Jón
Friðrik Jóhannsson, f. 11.12. 1952,
sjómaður á ísafirði en kona hans er
Sigurrós Sigurðardóttir, f. 3.11.1955,
og eiga þau sjö börn og fimm barna-
böm; Sigríður Jóhannsdóttir, f. 15.7.
1954, matráðskona við Grunnskól-
ann á Isafirði en maður hennar er
Hannes Kristjánsson, f. 14.10. 1948
og eiga þau sex börn og níu barna-
börn; Viggó Jóhannsson, f. 12.8.
1955, kaupmaður í Reykjavík en
kona hans er Eydís Ósk Hjartardótt-
ir, f. 9.12. 1953 og eiga þau tvö böm
og tvö bama-
börn; Daníel
Stefán Jóhanns-
son, f. 12.8. 1955,
d. 25.2. 1980, var
sjómaður á ísa-
firði en kona
hans var Lára
Lámsdóttir, f.
21.3. 1958 og
eignuðust þau
tvö böm og eitt
barnabam;
Guðmundur Jó-
hannsson, f.
30.11. 1958, búsettur á Isafirði; Hall-
dór Jóhannsson, f. 20.12. 1960, d.
21.7. 1995, var verkamaður í Dan-
mörku og eignaðist hann eitt barn;
Kristinn Jóhannsson, f. 28.8. 1962,
búsettur á ísafirði.
Sytkini Ásdísar:
Dagný Hansen, bú-
sett i Reykjavík;
Soffia Hansen, bú-
sett í Dalasýslu; Sig-
ríður Tómasdóttir,
búsett á ísafirði;
Óskar Gíslason, bú-
settim í Kópavogi;
Ásgeir Ásgeirsson,
búsettur í Reykja-
vík; Elín Jónsdóttir,
búsett í Reykjavík.
Foreldrar Ásdísar:
Ásgeir Einarsson frá
Eiði í Hestfirði í Jökulfjörðum, f.
21.6. 1889, d. 1932, vélamaður, og
Bjargey Hólmfriður Eyjólfsdóttir frá
Smiðjuvík, f. 11.6. 1891, d. 5.5. 1990,
húsmóðir í Reykjavík.
Merkir íslendingar
Pétur J. Thorsteinsson sendiherra fædd-
ist i Viðey 7. nóvember 1917. Hann var
sonur Eggerts Briem, búfræðings og óð-
alsbónda í Viðey, og k.h., Katrínar, syst-
ur Muggs myndlistarmanns. Katrín var
dóttir Péturs Thorsteinssonar, stórút-
gerðarmanns á Bíldudal og í Kaup-
mannahöfn.
Pétur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum i Reykjavik 1937,
prófi í viðskiptafræðum frá HÍ1941 og
embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1944.
Pétur var starfsmaður utanríkisþjón-
ustu íslands frá 1944. Hann var sendiherra
íslands í fjölda ríkja og oft í mörgum ríkj-
um samtímis, lengst af með aðsetur í Moskvu,
Pétur J. Thorsteinsson
París og loks Washington. Auk þess var
hann fastafulltrúi íslands hjá Nato, OECD
og EBE. Þá var hann ráðuneytisstjóri í
utanríkisráðuneytinu 1969-76.
Pétur átti farsælan feril í utanríkis-
ráðuneytinu enda traustur embættis-
maður, afar vel látinn og ætið tilbúinn
að leysa hvers manns vanda. Hann var
í forsetaframboði 1980, ásamt Albert
Guðmundssyni, Guðlaugi Þorvalds-
syni og Vigdísi Finnbogadóttur.
Pétur kvæntist Oddnýju Elísabetu
Stefánsson, BBA í viðskiptafræði og hús-
móður og eignuðust þau þrjá syni, Pétur
Gunnar, Björgólf og Eirík.
Pétur lést 12. apríl 1995.
Unnur Siguröardóttir frá Bolungarvík,
Hagamel 31, Reykjavík, veröur
jarösungin frá Neskirkju þriðjud. 7.11.
kl. 10.30.
Pétur Guöni Einarsson, Holtastíg 13,
Bolungarvlk, verður jarösunginn frá
Hólskirkju I Bolungarvlk, þriöjud. 7.11.
kl. 14.
Björg Sæmundsdóttir, Kambi 4,
Patreksfiröi, veröur jarðsungin frá
Patreksfjaröarkirkju miövikud. 8.11. kl.
14.
glýsingarnar ná athygii
550 5000