Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2000, Blaðsíða 23
35
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000_________________________
DV Tilvera
Joni Mitchell 57 ára
Söngkonan og
lagahöfundurinn
Joni Mitchell verður
57 ára gömul i dag.
Joni er ekki aðeins
þekkt söngkona sem
hefur sungið allt frá
þjóðlögum upp i
djass heldur er hún
einnig ljóðskáld og listmálari. Á þrjá-
tíu ára ferli sem tónlistarmaður hefur
hún sent frá sér tuttugu plötur og er
viðurkennd sem einn helsti tónlistar-
maður sinnar kynslóðar. Mitchell kem-
ur fram á sjónarsviðið á hippatimabil-
inu og var „blómabarn" í upphafi og
bera fyrstu lög hennar þess merki.
Gildir fyrir miövikudaginn 8. nóvember
Vatnsberinn (20. ian.-38. febr.l:
, Þú skalt fara varlega í
’ fjármálum í dag og
vera viss um að þeir
sem þú semur við séu
heiðarlegir. Varastu mikla eyðslu.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsl:
Það er kominn timi til að
lleita á önnur mið og
vikka sjóndeildarhring-
inn. Taktu engar skyndi-
ákvarðanir, heldur hugsaðu þig vel
um áður en þú breytir um mnhverfi.
Hrúturinn (21. mars-19. april):
Þú mætir metnaðar-
gjömu fólki í dag og
átt í vök að verjast í
vinnunni. Leggðu þig
fram og þú munt fá það sem þér
ber.
Nautið (20. april-20. maíl:
Vinur þinn hjálpar þér
við erfitt verkefiii en
þú verður að launa
___ honum greiðann. Ekki
gera neitt sem er þér þvert um
geð, þó þú sért beðinn um það.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúníl:
V. í dag er eitthvað öðm-
fjp*' visi en það er vanalega
_ f f og þaö angrar þig og
vini þína. Það er í
þínu valdi að koma málunum í
lag.
Krabbinn 122. iúní-22. ifilír
Einhver hefur mikinn
I áhuga á því sem sem þú
ert að að gera og þú ættir
að nýta þér það. Þér gæti
i koma í framkvæmd ein-
hveiju sem þig hefur lengi dreymt um.
Liónið (23. iúií- 22. áeústl:
Þú ert innan um til-
finningasamar mann-
eskjur í dag og þarft
að haga þér í samræmi
við það. Vertu sérstaklega tillits-
samur við þína nánustu.
Mevian (23. ágúst-22. seot.):
a. Dagurinn hefst á ró-
legu nótunum, en er
'fc.líður á hann hefur þú
^ f meira að gera og þarft
á hjálp að halda til að komast yfir
allt.
Vogln (23. sept.-23. okt.i:
Þú ættir að hafa hægt um
þig innan rnn fólk sem þú
veist að er á annarri
skoðun en þú. Það gæti
bifhað illa á þér að vera að skipta þér
af málum sem koma þér ekki við.
Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l:
Fólki í kringum þig
hættir til að vera
kærulaust í dag og það
bitnar óþyrmilega á
þér. Vertu þolinmóður við þá sem
yngri eru í dag.
Bogamaður (22. nóv.-21. desá:
^^Heppnin er með þér í
dag á vissum vett-
I vangi. Efþúnýtirþér
aðstæður gæti dagur-
inn orðið einstaklega ábatasamur.
Steingeltin (22. des.-19. ian.):
Þínir nánustu eru upp-
teknir af einhveiju
öðru en þér í dag og
það gæti angrað þig að
fá ekki næga athygli. Happatölur
eru 4, 6 og 32.
DV-MYND GUNNAR KRISTJÁNSSON
Kynslóðir vínna saman
Meöal þeirra sem tóku þátt í söfnuninni í Grundarfiröi voru þessar þrjár kynslóöir:
mamman, Dagþjört Lína Kristjánsdóttir, lengst til vinstri, en síöan Hallmar Gauti Halldórsson,
Herdís Lína Halldórsdóttir, Ólöf Rut Halldórsdóttir og Ólöf Friögerður Kristjánsdóttir, amman.
Amma, mamma og
börnin fóru hús úr húsi
DV, GRUNDARFIRÐI:__________________
Landssöfnun Rauða kross Islands
- Göngum til góðs - fékk frábærar
viðtökur. Söfnun á fé til styrktar
baráttunni gegn alnæmi í Afríku
skilaði sér vel og tókst að safna
þeim 20 milljónum sem stefnt var að
í upphafi og meira til.
Á Vesturlandi var vel tekið á
móti sjálfboðaliðum sem gengu hús
úr húsi til styrktar þessu mikilvæga
málefni. Það var áberandi að fmna
hvað fólk var vel undir þessa söfn-
un búið og á mörgum stöðum var
hreinlega beðið eftir sjálfboðaliðum
þar sem fólk beið tilbúið með fé til
að gefa í söfnuninna. Það voru glað-
ir sjálfboðaliðar sem komu með
fulla bauka til baka eftir hressandi
göngu um bæinn. Gekk deildum
upp til hópa mjög vel að safna sam-
an sjálfboðaliðum og mátti sjá heilu
fjölskyldurnar á göngu.
Alls tóku um 150 sjálfboðaliðar
þátt í þessari söfnun á Vesturlandi
og í V-Barðastrandarsýslu og söfn-
uðu þeir yfir 1, 2 milljónum króna.
Söfnunarféð frá íslandi verður not-
að til að herða verulega á fræðslu
um smitleiðir alnæmis meðal ungs
fólks í sunnanverðri Afríku, heima-
hlynningu alnæmissjúkra og um-
önnun bama sem hafa misst for-
eldra sína vegna þessa sjúkdóms.
Söfnunarsíminn 907-2020 verður op-
inn næstu tvær vikurnar. -DVÓ
DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON
Áfall
Þaö var engin sjón aö sjá Stút þegar hann loks skilaöi sér, annaö horniö,
svo myndarlegt sem þaö var, er horfiö.
Verðlaunahrút-
ur týndi horni
Hollywood vill
fá Viktoríu
Kvikmyndaframleiðandinn Jason
Schulz, sem tengist Wamer Bros. í
Hollywood, ráðgerir að gera
stórmynd í Svíþjóð. Schulz vill hafa
prinsessuna í þremur senum og
hann vill að hún leiki sjálfa sig. Fái
Schulz óskir sínar uppfylltar getur
hann haldið ráðgerðum titli
myndarinnar, Viktoria prinsessa.
Myndin er gamanmynd og fjallar
um útbrunninn bandariskan
kaupsýslumann sem ákveður að
yfirgefa heimaland sitt og freista
gæfunnar í Sviþjóð.
DV, MYRDAL:_________________________
Enginn veit hvað kom fyrir hann
Stút, fyrstu-verðlauna-hrútinn hans
Einars Guðna Þorsteinssonar á
Ytri-Sólheimum í Mýrdal. En þessi
sómahrútur kom hornbrotinn til
réttar á Sólheimum í dag. Má geta
nærri að menn vora hnuggnir með
útlitið á Stúti sem sannarlega hafði
misst sitt stóra stolt, hvemig sem
það hefur svo borið að. Hann er
besti hrúturinn á Ytri-Sólheimum
og aðeins 5 vetra gamall og gegnir
vonandi áfram skyldum sínum sem
fram undan eru, jafnvel þótt ein-
hymingur sé. -SKH
Céline Dion
með dreng
Kanadíska poppsöngkonan Céline
Dion greinir frá því á síðustu síðu
nýrrar sjálfsævisögu sinnar að
barnið sem hún gengur með undir
belti sé sveinbarn. Céline og eigin-
maður hennar, hinn 58 ára gamli
René Angelli, fengu að vita kyn
bamsins þegar í ágúst. Litli snáðinn
er væntanlegur í heiminn um miðj-
an febrúar næstkomandi.
„Ég sé fyrir mér að hann hafi
bros Renés og augu. Ég veit að ég
mun tilbiðja hann eins og guð,“ seg-
ir Céline í bókinni.
Ætluðu aldrei
að skilja
Stelpurnar í AIl Saints segja það
ekki rétt að þær hafi ætlað að fara
hver í sína áttina. ínýlegu viðtali
viðurkenna þær samt að þær hafi
oft verið ósáttar og næstum því neit-
að að ferðast í sömu langferðabif-
reið. Þær hafi rifist um alls kyns
smámuni eins og hver þeirri fái fal-
legust fotin eða hver þeirra tali fyr-
ir þeirra hönd í viðtölum. Reyndar
er gengi í kringum stúlkumar sem
fréttamenn þola ekki. Gengið, sem
skipuleggur samskiptin við fjöl-
miðla, reynir meira að segja að fá
að skrifa viðtölin við stelpurnar og
greinarnar um þær.
Stella samþykk
ráðahag pabba
Greinilegt er að Stella McCart-
ney, tískuhönnuður og dóttir Bítils-
ins Pauls McCartneys, leggur bless-
un sína yfir ástarsamband pabba
gamla og fyrirsætunnar Heather
Mills. Stella er nefnilega farin að
hanna föt á Heather þegar hún á
einhverja stund aflögu. Hermt er að
pabbi gamli hafi meira að segja ósk-
að eftir því við dóttur sína að hún
bróderaði ýmsar orðsendingar inn-
an á fótin, eins og til dæmis ástar-
játningar Pauls til Heather.