Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2000, Qupperneq 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Smíðabekkir, eldhús,
þvottahús og fleira
skemmtilegt fyrir
börnin.
Sími 567 4151 & 567 4280
Heildverslun með leikföng og gjafavörur
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000
Kópavogur:
Ekið á gangandi
vegfaranda
Ekiö var a gangandi vegfaranda í
Kópavogi skömmu fyrir klukkan
fjögur í gærdag. Fullorðinn maöur
var að fara yfir Dalveg við Smára-
i>-íorg á gangbraut þegar ekið var á
hann. Hann kastaðist upp á vélar-
hlíf bílsins og skall í framrúðu
hans. Tveir sjúkrabilar voru kallað-
ir til og flutti annar þeirra manninn
á slysadeild Landspítalans í Foss-
vogi. Vegfarandinn reyndist hafa
fengið höfuðáverka og vera axlar-
brotinn. Hann fékk að fara heim af
sjúkrahúsinu í gær. Ökumaðurinn
var ómeiddur en bíll hans var flutt-
ur af slysstað með kranabifreið.
Að sögn lögreglunnar í Kópavogi
er talið að sólin, sem var mjög lágt
á lofti, hafl verið meðvirkandi þátt-
ur i því að ökumaðurinn sá mann-
inn ekki fara yfir götuna. -SMK
Villikettir þrífast
Minkaveiöimenn veiddu fimm villi-
ketti í Skagafiröi í sumar. Stór
villikattastofn getur veriö mjög
hættulegur fuglalífi á svæöinu.
Veiðistjóraembættið:
Villikettir veiðast
í Skagafirði
í tilraunaminkaveiðum sem veiði-
stjóraembættið stóð fyrir í Skagafírð-
inum í sumar veiddist ýmislegt annað
en villiminkurinn sem nam hér land í
byrjun þriðja áratugarins. Af 28 mink-
um sem veiddust voru sex eldisminkar
' og auk þess veiddust fimm villikettir.
„Villikettir eru miklu sérhæfari
fuglaveiðarar en minkurinn. Ef kom-
inn er upp mikiil og stór stofn af villi-
köttum þá er það orðið mjög alvarlegt
mál,“ sagði Áki Ármann Jónsson veið-
stjóri. Hann útskýrði að villikettimir
væru liklega afkvæmi katta sem hefðu
lagst út frá nálægum bæjum. Einnig
olli fjöldi aliminkanna sérfræðingum
talsverðum áhyggjum en fjórðungur
minkanna sem veiddust reyndist vera
úr búrum.
„Þetta kom okkur gríðarlega á
óvart, bæði fjöldinn af villiköttum og
aliminkum," sagði Áki Ármann.
Veiðamar stóðu í júlí, ágúst og sept-
ember, í nokkra daga í hveijum mán-
vjuði. -SMK
DV-MYND KK
Nemendafagnaöur
Nemendur í Menntaskólanum viö Hamrahlíð koma saman til tóniistarveisiu í gærkvöld. Óvissa ríkir um þaö hvenær þeir eiga afturkvæmt i skóia sinn eftir að kennarar
iögöu niöur störf á miðnætti. Allt eins gæti fariö svo aö þeir séu komnir íjólafrí ef miöaö er viö verkfallssögu kennara sem staöiö hafa í langvinnum verkföllum.
Framhaldsskólarnir lamaðir í kennaraverkfalli:
15 þúsund nemendur
sváfu út í morgun
- og 1300 kennarar. Ríkið býður minna en ekkert, segir formaður kennara
Verkfall framhaldsskólakennara
hófst á miðnætti. í morgun voru
því rúmlega 15 þúsund nemendur
heima auk tæplega 1300 kennara.
Fundur er í deilunni í dag en
samningsaðilar eru svartsýnir á
að lausn finnist þar. Geir Haarde
fjármálaráðherra hefur sagt kröf-
ur kennara óraunhæfar. Auk
kennaranna 1300 sem eru I verk-
falli hafa nemendur hótað að veita
þeim liðsinni með því að fara með
borð og skólabækur á fjölfarin
gatnamót og nema fræði sín þar.
„Það situr allt fast og engin þau
tilboð hafa borist að þau séu líkleg
til að leysa deiluna. Ríkið býður
minna en ekkert," sagði Elna
Katrín Jónsdóttir, formaður Fé-
lags framhaldsskólakennara, í
samtali við DV í morgun.
Geir Haarde: Elna Katrín Jóns-
- Óraunhæfar dóttlr:
kröfur. - Bjóöa minna
en ekkert.
Skilningur samninganefndar rík-
isins er sá að kennarar séu að krefj-
ast um 70 prósenta launahækkunar
á samningstimanum en kennarar
telja þvert á móti að þeir séu aðeins
að sækja á um leiðréttingar launa.
Kennarar taka þó undir sjónarmið
rikisins um að tekið verði upp nýtt
launakerfi en lítið sem ekkert hefur
miðað í því máli. Elna Katrín segir
að talsverð harka sé í málum á
fyrsta verkfallsdegi og hún er ekki
bjartsýn á að samningafundur sem
boðaður hefur verið í dag skili nein-
um árangri.
„Það er hér um bil ekki neitt í
boði. Okkur er ekki einu boðið það
sama og samið var um á almenn-
um vinnumarkaði. Þar er ég að
tala um lyftingu lægstu launa. Til-
lögur ríkisins til lausnar deilunni
snúast því nánast um ekki neitt og
það er allt fast,“ segir hún.
Hún vildi engu spá um það
hvort stefndi í langt verkfall.
„Það er ómögulegt að segja en ég
er ekkert sérstaklega bjartsýn,"
sagði Elna Katrín. -rt
Týndi læknissonurinn í Texas kominn í byggingarvinnu:
Bjó um skeið erlendis
- segir hann vinnufélögum sínum
Halldór Heimir ísleifsson, læknis-
sonurinn sem var týndur í Texas í
tólf ár, er búinn að ráða sig í bygg-
ingarvinnu í vesturbæ Reykjavíkur
og er vel látinn af vinnufélögum sín-
um:
„Þetta er dugnaðarstrákur og seg-
ist hafa búið um skeið erlendis,"
sögðu vinnufélagar hans í gær en þá
hafði Halldór verið sendur í steypu-
vinnu austur í bæ. „Hann byijaði
héma á fimmtudaginn og okkur
skilst að hann ætli að vera áfram.
Eiginlega höfum við ekki haft kjark i
okkur til að spyrja hann í þaula hvað
hann hafi verið að gera þau tólf ár
sem hann var týndur í Ameríku en
það hlýtur að koma þegar viö kynn-
Á vinnustað
Halldór Heimir er vel látinn í bygging-
arvinnunni vestur i bæ.
umst betur,“ sögðu vinnufélagamir.
Byggingarvinna Halldórs Heimis
vestur í bæ er fyrsta skrefið sem
hann tekur til aö aðlagast Islensku
þjóðfélagi á nýjan leik eftir að hafa
verið skráður látinn i tólf ár. En
hvers vegna fór hagfræðistúdentinn
fyrrverandi í byggingarvinnu?
„Okkur er sagt að eiginkona
verktakans hér sé skyld fiölskyldu
Halldórs og því sé hann hér. En
þetta er fmn náungi og býður af sér
góðan þokka,“ sögðu vinnufélagam-
ir sem iða í skinninu eftir að heyra
alla söguna um ferðir Halldórs
Heimis í Ameríku á meðan hann
var skráður látinn hér á landi.
-EIR
Brunabótafélag íslands:
Eignarhlutur
færist ekki til
dánarbús
Hæstiréttur hefúr hafhað kröfú dán-
arbús Sveinbjöms Guðmundssonar
um að eignarhluti sem hann átti í
Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Is-
lands skyldi færast yfir til dánarbúsins
við andlát eigandans. Þar með var hér-
aðsdómur i málinu staðfestur um ann-
að en málskostnað, sem rétt þótti að
láta falla niður.
Með hliðsjón af lögum um Bruna-
bótafélag íslands og félagsaðild var
álitið að ekki væri unnt að framselja
eignaraðild og þar með erfðist hún
ekki. Réttindin vora takmörkuð við þá
eina sem höfðu viðskipti við félagið á
hveijum tíma.
í ljósi nýrra viðhorfa kaus löggjaf-
inn að breyta Brunabótafélaginu í
eignarhaldsfélag og ákvað jafnframt að
það hætti beinni vátryggingastarfsemi.
Lög um þetta tóku gildi 1994. Hæsti-
réttur telur að löggjafanum hafi verið
þessi breyting heimil á sínum tíma,
enda hafi tilhögun á eignarráðum sam-
eigenda í eignarhaldsfélaginu verið í
aðalatriðum hin sama og áður gilti hjá
Brunabótafélaginu. Ekki var talið að í
lögunum frá 1994 fælist skerðing á rétt-
indum sameigenda. Á þessari forsendu
komst Hæstiréttur að þeirri niður-
stöðu á sama hátt og héraðsdómur að
hafna bæri kröfú dánarbúsins um að
umræddur eignarhlutur færðist yftr til
þess við andlát fyrrum eiganda. -Ótt
brother P-touch 9200PC I
Prentaðu merkimiða beint úr tðlvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport