Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2000, Blaðsíða 3
e f n i
Rakel Karlsdóttir, 16 ára, var sigurvegari í keppninni um Ford-stúlkuna árið 2000.
Hún er nú á leið til Puerto Rico í aðalkeppnina Supermodel of the World þar sem
hún mun keppa um þann titil, Hægt verður að fylgjast með ferðum hennar í dag-
bók sem hún mun halda á Fókusvefnum á Visi.is.
Skemmtilegast
í myndatökum
„Ég hlakka mikið til en ég er samt
ekki að fara ein út, bæði pabbi minn
og Kristín Ásta frá Eskimo koma með
mér,“ segir Rakel sem fer út 28. nóv-
ember en keppnin er haldin 5. desem-
ber. „Þetta er 8 daga ferð og líklega
verða stífar æfingar alveg fram að
keppninni."
Ferillinn hófst á
módelnámskeiði
„Ég byrjaði í þessu öllu saman fyr-
ir rúmu ári þegar ég fór á námskeið
hjá Eskimo, það kom mér inn á skrá
hjá þeim. Ég var eiginlega bara að
prófa þetta. Eftir að ég vann Ford-
keppnina hef ég fengið miklu fleiri
verkefni - þá fóru hlutirnir að gerast,"
segir Rakel aðspurð hvernig það kom
til að hún byrjaði að „módelast."
Rakel er 16 ára nemandi í tækni-
teiknun í Iðnskólanum í Reykjavík og
framtíðaráform hennar eru að verða
arkitekt eða jafnvel fyrirsæta. Hennar
helsta áhugamál er hestamennska og
hún á tvo hesta.
Getur þú hugsaö þér að leggja þetta
fyrir þig?
„Já, jafnvel. Mér finnst þetta að
minnsta kosti mjög gaman. Skemmti-
legast er hvað maður kynnist mörgu
nýju fólki og svo flnnst mér líka gam-
an í myndatökum. Ég veit samt ekki
alveg hvort ég væri tilbúin að flytja út
til að starfa við þetta, það færi alveg
eftir aðstæðum."
Ekkert djamm í London
Rakel segir að hennar líf hafi lítið
breyst eftir að hún vann Ford-keppn-
ina héma heima. „Reyndar hef ég ver-
ið stoppuð og spurð af einhverju fólki
úti á götu hvort ég sé ekki Ford-stúlk-
an. Svo hefur maður einstaka sinnum
heyrt svona út undan sér að fólk sé að
segja eitthvað miður skemmtilegt um
mann en þannig er það alltaf. Það er
bara meira tekið eftir manni núna en
áður, það skiptir máli hvemig maður
hagar sér þegar maður ber svona titil.
Ef ég færi upp á stól í miðju partíi og
myndi kalla: „Hey, takið eftir mér! Ég
er Ford-módel“ þá myndi fólk kannski
taka mér illa en ef maður gerir ekkert
mikið úr þessu sjálfur þá ætti annað
fólk ekki að gera það heldur."
Síðastliðið sumar fór Rakel út til
London að vinna sem fyrirsæta og þar
fékk hún mörg góð verkefni en einnig
var hún að safna myndum í möppuna
sína. „Mamma kom með mér út,
svona til að byrja með, og svo bjó ég
líka með öðrum íslenskum fyrirsæt-
um á mínum aldri.“ Rakel segir að
dvölin í London hafi verið rosalega
skemmtileg og hún hafi kynnst mörg-
um þar. Skemmtilegast þótti henni að
vera í myndatökum. Rakel stundaði
ekki skemmtanalífið í London en fór
stundum á kaffihús. „Það er ekki snið-
ugt að djamma mjög mikið þarna, það
er mikið af vafasömu fólki í kringum
þennan bransa." Rakel starfaði hjá
bresku fyrirsætuskrifstofunni Mod-
elsl sem hefur verið í samstarfi við
Eskimo hérna heima.
En hvaö tekur svo viö eftir keppnina
i Puerto Rico?
„Stúlkan sem vinnur keppnina fær
samning við Ford en flestum þátttak-
endum berast einhver góð tilboð eftir
keppnina. Það fer bara eftir því hvern-
ig mér gengur - það verður bara allt
að koma i ljós.“
Laugardagskvöld-
ið 16. desember
veröur líklega
lengi í minnum
haft ef svo fer
sem horfir. Pá
verður Gaukur á
Stöng lagður
undír fyrsta
Reverb-kvöldið
og verða ekki
dónaleg nöfn
sem þar koma
fram.
Þau nöfn sém koma fram þetta eru
DJ Touché úr Wiseguys, Matt
Cantor úr Freestylers og meistararnir
Kruder & Dorfmeister, ekki dónalegt
það. Aðstandendur Reverb eru þeir
Andy Sellar og Gísli Ingi og segir
Andy að markmiðiö sé að byggja upp
fyrsta klúbba-labelið í Reykjavík.
Þessir þekktu aðilar eru fengnir hing-
að í gegnum fyrirtæki í LA sem hefur
unnið fyrir Ministry of Sound, auk
þess að sjá um ýmis kvöld á Ibiza.
Markmiðið með Reverb er sem sagt að
koma upp klúbba-labeli hér á landi og
verða haldin klúbbakvöld eins og
þetta fyrsta á fjögurra mánaða fresti í
framtíðinni. Á þessum kvöldum verða
jafnan 3-4 stór erlend nöfn, auk þess
sem íslenskir plötusnúðar fá að
spreyta sig. Þá er stefnan að koma á
fót umboðsskrifstofu fyrir plötusnúða,
Reverb recordings, sem fer i gang í
janúar og á að verða sú fyrsta sinnar
tegundar, þar sem islenskir plötusnúð-
ar geta komið sér á framfæri. Segja að-
standendurnir að það sé allt of mikið
af hæfileikaríkum snúðum sem fái
ekkert að spila og sé því kominn tími
á þetta. Þá verða í tengslum við þetta
haldin Reverb-kvöld í London og verð-
ur íslenskum plötusnúðum boðið að
spila þar. Eins er stefnt að því að gefa
út geisladiska, þann fyrsta í janúar,
þar sem annars vegar frægur erlendur
plötusnúður mixar en á hinni hliðinni
fær íslenskur plötusnúður að spreyta
sig. Verðum þessum diskum bæði
dreift hér á landi og í Evrópu.
Partíið á Gauki á Stöng verður eins
konar opnunarpartí fyrir allan pakk-
ann og til að koma labelinu af stað.
Fókus mun að sjálfsögðu færa ykkur
nýjar fréttir af málinu og á næstunni
verða hér viðtöl við einhverja af þeim
sem munu spila á Gauknum. En af
hverju er þetta gert hér á landi?
DJ Touche úr Wiseguys mætir ásamt
Kruder & Dorfmeister.
Erna og Anna:
Óþolandibókin
komin út
Mikael
Torfason:
Heldur ekki
með neinum
Þorsteinn J:
Vildi loka
hringnum
og segja
takk
Trúarbrögð heimsins:
Hvað hentar þér?
Wu-Tang
Clan:
Ekki
spurning
um
peninga
Marilyn
Manson:
Furðuverk
sem fyrr
Frægir íslendingar:
Þegar þeir struku
að heiman
10 ** m 20
1 T 1 0
KSIBKZ9KS]Hm2
Charlie's Anaels frumsvnd
Stefnumótin hefiast á nv
Langþráð Óskabörn
Oraazimo á Thomsen
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók Hilmar Þór
af Þorsteini J. Vilhjálmssyni
24. nóvember 2000 f Ó k U S
3