Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2000, Blaðsíða 14
J í f ó k u s Meistari Megas er í fókus eftir stórglæsilegt kombakk nú á dögunum. Svanasöngur á leiði heitir nýjasta afuröin, en þar fer Megas á kostum í félagi viö þá Jón Ólafsson og Egg- ert Þorieifsson, sem er víst hugmyndasmió- urinn á bak viö verkið. Megas hefur í gegnum tíöina mátt þola ýmislegt og sjaldnast verið metinn að verðleikum, að minnsta kosti ekki í augum „heiðursakademíu" okkar íslend- inga. í siðustu viku virðist þó hafa runnið Ijós upp yfir herrunum þegar Megas fékk loks uppreisn æru: Verðlaun Jónasar Hallgrims- sonar féllu honum í skaut á Degi íslenskrar tungu, nokkuð sem kappinn á fyllilega skilið. Sjálfur segist hann aldrei hafa selt mikið af plötum, nema þegar hann var látinn gera af- mælisplötu Reykjavíkurborgar, en þá hafi fólk næstum verið blekkt til að kaupa hana. Það ^ kemur hvort eð er út á eitt fyrir kappann því það er ekki eins og hann fái neitt fyrir gömlu plöturnar sínar sem gefnar hafa verið út á geisladiskum; einhverjum tókst að trygga sér tekjurnar af þvi. ú r f ó k u s Nú færumst við sífellt nær jólunum og auglýs- ingaflóðið er að byrja að skella á okkur. Reynd- ar hefur það stigmagnast að undanförnu en nú er magnið orðið slíkt að fólk fer virkilega að taka eftir því. Auglýsingar í útvarpi eiga það til að vera afskaplega takmarkaðar og fyrir vikið verður fólk almennt fyrr þreytt á þeim en öðr- um. Gott dæmi um þetta er auglýsingaherferð American Style sem dunið hefur á lands- mönnum undanfarið. Þær auglýsingar eru í fyrsta lagi alls ekki góðar en flestir geta leitt það hjá sér, allavega í einhvern tíma. En þeg- ar maður þarf að hlusta á álíka gáfulegar setn- t ingar og „Égfæ mér yfirleitt hamborgara en nú ætla ég að prófa pítu," eða „íris í Buttercup, hvað ert þú að gera hér?" og svarið: „Jah, maöur gripur nú í ýmislegt," fær maður nóg. Reyndar er þetta trúverðugt aö því leyti að maður veit að Iris getur varla lifað af Buttercup einni saman, en auglýsingin er svo sannarlega viðbjóðslega leiðinleg. Og þannig er það nú um flestar þær auglýsingaherferðir sem sak- lausir íslenskir eyðsluseggir þurfa að sitja undir. Ætli friðurinn á aðfangadag verði ekki vel þeginn? Flestir upplífa það á einhverjum tímapunkti að fá sig fullsadda af umhverfi sínu og fjölskyldu og þrá að láta sig hverfa af yfirborði jarðar, sumir eina dagstund, aðrir í tólf-þrettán ár. Besta vopnið í kjarabaráttu barna eru hótanir um strok og eftir að hafa legið í sjálfsvorkunnarhugleiðslu í kústaskápnum verður að gera alvöru úr stóru orðunum og láta sakna sín. Og sennilega hefur ekkert fyrirbæri verið auglýst betur í Hollívúdd en flóttinn að heiman með tilheyrandi ævintýrunum og gleðilegri heim- komu. Hér er rakin misjöfn saga af stroki nokkurra karla og kvenna. Þegar ég s að heiman Faldi mig bak við dýnu „Ég hef aldrei strokið, ég hef bara þóst strjúka. Ég var í sveit og vissi að ÖLLUM þætti ég leiðinleg. Ég ákvað því að gefa heiminum frí frá mér og faldi mig bak við dýnu sem stðð upp á rönd í sjónvarpsherberginu. Þaðan varð ég vitni að nokkrum samtölum, meðal annars um mig. Svo var farið að undrast um mig, ÉG var horfin! Allir fóru að leita að MÉR. Svo var komið inn við og við og talað um hvernig leitin gengi. „Ætli hún hafi strokið?" „Hvers vegna?“ „Hefur hún verið eitthvað leið?“ Ég fékk brjálæð- islega mikið út úr þessu, þetta var svona eins og þegar mann langar að deyja svo fólk sakni manns, nema ég þurfti ekki að deyja!!! Nokkrum klukkutímum seinna fannst ég bak við dýnuna,“sofandi“. Ég þóttist auð- vitað sofa til að þau kæmust ekki að því að ég heyrði allt sem var sagt um mig áður en ég „týndist" (það var eitt- hvað svona: „Ómöguleg kaupakona", „löt“, „fordekrað borgarbarn1'). Þau voru jú búin að þjást nóg mín vegna í millitíðinni." Halldóra Geirharðsdóttir leikkona Strjúktu, drengur. strjúktu „í eina skiptið sem ég man eftir að hafa strokið að heiman gerði ég það til- neyddur af húsnæðisskorti. Við þurft- um óvænt að hýsa fjölskyldumeðlim heima hjá mér einn vetur og ég fluttist inn til vinar míns í Breiðholtinu. Ég hef verið svona 22ja-23ja ára og það var mikið stuð á okkur, enda ungir popparar. íbúðin varð svona hálfgert „Bachelor hangout". Ég hafði það svo notalegt heima að ég vildi varla fara. Það voru frekar foreldrar mínir sem hvöttu mig til þess og sögðu við mig: „Strjúktu, drengur, strjúktu." Þau voru svo ljúf að ég bjó heima hjá mér til 25 ára aldurs, þá fluttist ég til út- landa. Ég var með lítið hús inni á lóð- inni út af fyrir mig og þarna æfðu öll böndin sem ég var í á þeim tíma þannig að þú getur rétt ímyndað þér umburðarlyndi foreldra minna. Á tímabili notuðum við húsnæðið sem íbúð, ég Skúli Sverris og Þorvaldur Bjarni, þannig að það voru eiginlega félagar mínir sem struku að heiman til að vera hjá foreldrum mínum. En það var gaman þennan eina vetur, ég naut frjálsræðisins og skemmti mér vel.“ Geiri Sœm, kokkur og tónlistarmaóur hverjir voru hvar Astró var eins og mauraþúfa af fallegu fólki um sfðustu helgi en meðal þeirra sem sást til voru FM957-gaurarnir Maggl Magg, Jói Jó, Halli Krist- , ins og Kalli Lú (& crew), sem var umvafinn mis- r glæsilegum meyjum. ívar Guðmunds og Gústi Héðins sem sjá um kynningar á Bylgjunni stigu léttan dans og þótti örla á samkynhneigð þar til allt Fitness-liðið, t.d. Óll I Adonis, Yasmine, Berg- lind og Anna Sigurðar á Planet Pulse, slóst I hóp- inn. Valtýr Björn var stórkallalegur og gaf Luka Kostic fátt eftir í ögrandi Balkan-mjaömasveiflu. Guðmundur Bórkur á BSR var reifur á svip og dró augaö í pung þegar yngismeyjar gengu hjá. Á sama borði sátu svo glæsileg að vanda parið Fjölnlr og Marin Manda ásamt Herjólfi Guð- bjartssyni ræðuskörungi, sem hafði yfir ógrynni lausavísna og fór með ýmis gamanmál I við- urvist Þurýar I Ónix o.fl. Hilmar Björnsson lét engan bilbug á sér finna þó kominn sé til Fram frá íslands- meisturunum og lóðs- aði allt knattspyrnulið Helsingborgar á milli gjafvaxta kvenkyns- ins. Bryndis Ás- munds söngspira skók á sér barminn ásamt vinkonum sinum og 1 fór með sigur af hólmi í dansmaraþoni. Andri Már i Heimsferöum, MC Daddi DJ, Raggi Már og Guð- jón Már OZ-arar voru til friðs, en Philippe DreamWorld skvetti í sig kampavini til að buga áfengisþorstann. Svavar Örn og Simbi tóku nettan Travolta á dansgólfinu við dynj- andi lófatak. Magnús Ver brunaöi af Leifs- stöð til að fagna af- mæli Ástu konu sinn- ar á efri hæðinni. Helga Braga og vin- konur sátu með kokk- teila í hönd og byrgðu ekkert inni. Svala Björg, ungfrú Island, og Steinl svelgur voru ró- legri en Dalai Lama á efri hæðinni. Sömu sögu er að segja af Halldóri Bachmann og félaga. Play- boy-módelin gömlu, Arna og Díanna Dúa, mættu klæðalitlar og glæsilegar, en ein er píkan annarri lík, eins og Laxness ritaði. Einnig sást til ívans Burkna stílista og Siggi Kaldal var svalari en tá- neglurnar á ísbirni þar sem hann sat kæruleysis- legur í félagsskap Júlla Kemp kvikmyndamógúls. Valdi í Valhöll tjillaði hárfint með Nonna í Quest, sem hafði hendur í hári Andreu Róberts í Sjáðu. Maggl listakokkur á Borginni og Raul Rodriqes einkaþjálfari voru líklegast að metast um þrí- höfðastærð ásamt Þór Jósefs, sem þyrfti að lúta i gras fyrir vöövafjallinu Raul. Gummi Gonzales og Ásgeir Kolbeins hafa ekki nennt að hanga á Kjall- aranum og drógu Guðjón Bergmann með sér í feitan fíling og með þeim herskari kvenfólks, meöal annarra Lau Lau (Sigurlaug) flugfreyju- kennari hjá Atlanta og vinkonur. Villi Vill og Sig- urður Kári létu fara vel um sig. Berta María mód- el, Jón Jón, Grétar á Óöali og Maggi Ármann mættu „fasjónablí leit“ og Eyþór Paintball og Kata lýsismódel með þeim. Klaustrið var fokking fokhelt um helgina og þar létu Ijós sitt skina Aggi LeMacks Thomsenstjóri ásamt Roland og Ad- amski Wall of Sound- mönnum sem hituðu sig upp fyrir morgun- inn. DJ Sóley (Skjár einn), Maja og Helga Ó. hjá extra.is voru sætari en glassúr og með þeim var Róbert hinn króniski. Kor- mákur „the Kid“ og Skjöldur skerfari héldu friðinn yfir köld- um ðl í kjallaranum ásamt Bimi Th. vini sínum. Jakob Frímann var og er í stuði og mætti til leiks með lærisveini sínum, Villa VIII, sem lét verkin tala og vatt sér að hinni íðilfögru Yasmine með kynþokkafullum dansi. Hermann Hauks ákvað að snerta ekki við brennivininu og var i vatninu. Fritz (soco) og Geiri Rokk mættu með hóp af Svium frá Ericsson og Elva Björk feguröargrýla lét Hann- es ekki komast upp með neitt múður. Mætingin var góö á Café Gróf á laugardaginn. Meöal þeirra sem þar sáust voru Boggi, Gunni, og Karl Frá Pollox, Guðrún E, Fjóla og Anna Dóra, sem fögnuöu 25 ára afmæli Jóhönnu G. Ingi- björg, Garðar, Kiddi, Jonni og Hákon Kíktu. Begga J, Karla og Nina voru mættar aö venju og skemmtu sér konunglega með Adda, Palla og Bergþóru. Það er alltaf gaman að líta inn á 22 þegar aðrir staðir loka. Þar sást Heiða söngkona trylla um dansgólfiö, Sævar Örn frá Miru var meö ballett- snúninginn á hreinu og Laufey plötusnúður skók sig getnaðarlega á milli laga, en á efri hæðinni stuðlaði kollegi hennar Jörundur Joð meistari joð að almennri gleði borgarbúa. Mummi Frið hjá Garra saup mjöðinn og með honum sáust Tryggvi uppsetjari og Indriðl G. í sófanum á efstu hæö bitboxaði Árni langi rappari LB og Ingvar Arnar- son sló á létta strengi, umvafinn fallegum fyrir- sætum sem struku á honum belginn og báðu hann trúlofast sér. Á Vegamótum var mikil biðröð en Ófeigur frá Lind slapp inn á klíkunni. Dóri Bus, formaður FC Kidda, lét sig ekki vanta og strákarnir í Inn tölvu- fyrirtækinu mættu. Ragnhildur hárgreiðslumeist- ari kom þar og fagnaði flutningi í nýtt húsnæði með staffi sinu og Ingi pitsukóngur dansaði eins og andsetinn væri af smápúkum og héldu sumir aö þar færi lúsugur maöur, illa haldinn njálgi. RCWELLS Tíska* Gæði» Betra verö 14 f Ó k U S 24. nóvember 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.