Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2000, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2000, Blaðsíða 9
Asatrú Hvað er það? I Ásatrú - „Vor siður" - er heiðin þjóðleg trú sem byggist á fornri menningu landsins. Aðalguðirn- ir eru Óðinn og Þór en einnig koma við sögu aðrir æsar, auk landvætta og dísa. Forfeðurn- ir eru einnig mikils metnir. Trúin er á jafnréttis- grundvelli: guðirnir eru ekki æöri en þú. Um 600 félagar eru á islandi. Inntökuskilyrði Þú skráir þig á Hagstofunni. Engar kröfur eru gerðar aðrar en að fólki finnist það vera ásatrúar. Hverjir eru hátíðisdagarnir? Fimm aðalblót á ári. Svið og annað slátur étið á fyrsta vetr- ardegi. Gjafir og svínakjöt á jólum við sólhvörf. Þorrablót með tilheyrandi mat. Egg, hrogn, laukur, svína- og hrossa- kjöt á sumardaginn fyrsta. Þing haldið á Þingvöllum f kring- um 20. júlí. Nesti tekið með. Hvernig iðkar þú trúna? Það er einstaklingsbundið en ætlast er til að meðlimir mæti á a.m.k. þrjú blót á ári. Fólk kemur þar saman til að styrkja böndin innan félags- ins og milli guða og manna. Bilið er sagt vera minna þar á milli en f kristni og besta og nánasta sambandið þykir myndast á blótum. Hvernig er stuðið á samkomum? Þegar fámennara var f félag- inu voru blótin þekktar fyllirí- issamkomur. Nú er stemn- ingin orðin nokkuð dönnuð. Búddismi Hvað er það? Um 350 milljónir eru Búddistar, um 300 hér. Búdda var auðugur prins um 500 f.Kr. sem ofbauð þjáningar heimsins en fann innri friö með hugleiðslu. Búddisma má skipta í þrennt: Hinayana (gamli Búdda er aðal), Ma- hayana (nýir Búddar lika) og Tíbet-búddisma (Dalai Lama er guöleg vera). Inntökuskilyrði Ef þú vilt gætirðu kallað þig Búddista hér og nú og þyrftir ekki skírteini upp á það. Ekki væri samt verra að heim- sækja Búddistafélagið á Laugavegi og fá tilsögn. Búddism- inn er öðrum þræði heimspeki svo þú myndir lesa þér vel til og iðka hugleiðslu og jóga. Hverjir eru hátíðisdagarnir? Það er hellingur af hátfðisdögum en það fer eftir þvf hvar þú ert í heiminum hverjir þeir eru. Þeir tengjast árstíðum og frjósemi jarðar, ásamt gömlum goðmögnum. Hinayana er stundaður í Vfetnam og þar um kring, Mahayana í Japan og Kfna og Tíbet-búddismi í Tíbet og heima hjá Beastie Boys. Hvernig iðkar þú trúna? Búdda talaði um sannindin fjögur: Til- j veran er þjáning. Orsök þjáningarinnar er lífsgirndin eða sjáifshugðin. Lækn- ing þjáningarinnar er fólgin f því að uppræta lífsgirndina. Leiðin til lækn- ingar er meðalvegurinn, hinn göfugi [ áttfaldi vegur. Þú gengur hann. Hvernig er stuðið á samkomum? Á Vesturlöndum hittast menn til að fræðast og hugleiða f hóp. Annars staðar eru hof og klaustur þar sem Islamstrú c Hvað er það? Önnur stærstu trúarbrögð heims á eftir kristni. Um 1,2 ' milljarðar múslfma eru f heiminum, um 500 hér. íslam þýðir undirgefni við eina guðinn, Allah. Hann fór að tala til Múhameðs spámanns f Mekka um 610 e.kr. Múhameð skráði speki Allah í Kóraninn og eftir þeirri helgu bók er farið. Hver og einn tjáir sig á meðan étið er eftir hinum fornu siðum. Fólk tekur sjálft með sér áfengi, yfirleitt nokkra bjóra á mann. Hvernig er „himnaríki"? Þú uþpskerð eins og þú sáir og verður í svipuðum málum og þú varst hér. Þetta er því Iftið öðruvfsi en að flytja til Amer- fku. Vopndauðir menn eru fátfðir nú til dags en fyrr á öldum beið þeirra vist f Valhöll. Það var fínt pleis, stútfullt af búsi, 12 gellur á mann og bardagar frá morgni til kvölds. Hvað þarf maður að gera til að komast til „himnaríkis"? Ásatrúin viðurkennir ekki syndina og þvf ekki heldur fyrir- gefninguna. Þín bíða því engir dómstólar. Samkvæmt Eddu- kvæðum skiptist maðurinn f þrjá hluta: líkama, sem sam- einast jörðinni eftir dauðann; anda sem heldur sig nálægt gamla staðnum og f huga eftirlifandi; og sál sem flyst til. Hvernig er „helvíti" og hvers vegna fer maður þangað? Ef þú er fúlmenni I þessu lífi hefnist þér fýrir hegðun þfna eftir dauðann. Illmenni fara m.a. til Nástrandar, sem er leið- indastaður, fullur af gargandi lögfræðingum og barnanfðing- Kalt mat Rn trú ef þú ert sáttur við sjálfan þig og vilt t.d. halda áfram að vera strætóbílstjóri í næsta Iffi. Einnig fínt ef þú fílar gamlan íslenskan mat, lopapeysur og fornbókmenntir. Slöpp trú ef þú býst við ferskri byrj- un í næsta lífi og vilt að guð geri strángt gæðamat á þér. munkar og nunnur biðja fyrir al- múganum og I Tíbet kunna munkarnir jafnvel galdrabrögð. Svo ertu meö húsaltari heima með reykelsi, Búddastyttu og mynd af forföður. Þar biðstu fyr- ir í einrúmi. Hvernig er „himnaríki"? Búddistar trúa á að þú sért búinn til úr fimm „sköndum". Fjórir eyðast við dauðann en sá fimmti, Karmað, lifir og fær nýja skanda í næsta lífi. Karmað eru allar þínar gjörðir í fyrri lífum. Þú leitar að hinum fullkomna innri friði, hugarástand- inu nirvana; endalokum grimmdar, haturs og heimsku. Hvað þarf maður að gera til að komast til „himnaríkis"? Nirvana ná menn með þvf að fylgja hinum áttfalda vegi f hvf- vetna. Hinn áttfaldi vegur byggist á þvf að viðhafa rétta hugsun, rétta skoðun, taka réttar ákvarðanir, viðhafa rétt tal, réttar athafnir og rétta breytni, rétta hugsun og rétta íhugun. Hvernig er „helvíti" og hvers vegna fer maour þangað? Helvfti hlýtur að vera það að endurfæðast aftur og aftur án þess nokkurn tímann að ramba á að ná nirvana, að fara alltaf út af áttfalda veginum. Með öðrum orðum að vera alltaf sami bévítans asninn og ómennið; að ná aldrei valdi á Iffsgirndinni. Kalt mat Búddismi er ekki vænleg trú fyrir þann sem vill skyndilausnir. Þín bíður f mesta lagi að ná nirvana - „það að vera ekki til en vera samt til“ - og það bara ef þú ert | svakalega dygðugur. Þú verður að gera þetta allt sjálfur og ef þú misstígur þig á áttfalda veginum verðurðu að byrja allt upp á nýtt. Fúlt. Ekkert er sungið eða trallað í moskunni svo einhverjum gæti þótt stuðið þurrt. Bahá’í-trúin Hvað er það? Slagorðið hér er: „Trú sem byggir brú.“ Bahá’u’lláh er höfundur trúarinnar og sætti ofsóknum og útlegð vegna kenninga sinna um miðja 19. öld. Samkvæmt honum er mann- kynið allt aðeins ein þjóð f einu ættlandi og öll trúarbrögö komin frá einum guði. Meðlimir eru um 6 milljónir, 350 á Is- landi. Inntökuskilyrði Þú fyllir út eyðublað hjá Hagstofunni og skilar þvf inn á skrif- stofu Bahá’fista. Um leið og skráning þín f félagið hefur ver- ið samþykkt af þjóðarráði Bahá’fista ertu oröinn Bahá'íi. Ráðið samþykkir nánast alla svo þú ættir að fljúga inn. Hverjir eru hátíðisdagarnir? Þeir eru nfu talsins. Nýársdagur samkvæmt Bahá'f-trú er 21. mars. Fyrsti dagur 19 daga Ridván-hátíðarinnar er 12. apríl en einnig er 29. aprfl og lokadagurinn 2. maí hátfðis- dagar. 23. maf er yfirlýsingadagurinn. 29. maf, 9. júlf, 20. október og 12. nóvember eru einnig hátfðisdagar. Hvernig iðkar þú trúna? Þú ferð eftir lögum og kenningum Bahá’fa. Þeir fylgja boð- m o>öunum 10, auk þess m.a. að “ banna prhættusþil, víndrykkju, misnotkun eiturlyfja, slúður og baktal. Þú mætir á samkomur og átt að fasta f 19 daga f lok Bahá'íársins. Hvernig er stuðið á samkomum? Bahá'u'lláh lagði áherslu á það hve mikilvægt væri að hittast á nftján daga fresti, „til aö sam- tengja hjörtu yðar“. Þegar trúar- Hindúasiður l|i Hvað er það? ^»4^ Þriðja stærsta og elsta trúarregla f heimi. Hindúar eru um 900 milljónir—örfáir hér. Reglurnar birtast I 1 | f ótal ritum, fyrst í Veda-bókunum frá þvf um 1500 V I / f.Kr. Guð er Aum, en birtist á a.m.k. 200.000 vegu, t.d. í mannslíki (t.d. Brahma eða Krishna), sem pláneta eða dýr. Kamdhenu er t.d. móðir allra belja. Inntökuskilyrði Hindúar bera ekki út trú sína, eins og t.d. kristnir menn, svo þú yrðir að fara til Indlands og vfgjast vildir þú gerast Hindúi. Hindúar fæðast inn f eina af fimm stéttum og geta ekki hækkað I tign. Þú velur þér þinn uppáhaldsguð sem þú til- biður. Flest hof eru tileinkuð Brahma eða Vishnu. Hverjir eru hátíðisdagarnir? Þeir eru fjölmargir og fara eftir þvf hvar þú býrð og hvaða guð er þinn. Hindúar spá mikið f stjörnufræði og stöðu himin- tunglanna. Þeir halda því m.a. upp á nýtt tungl (Amavasya) og fullt tungl (Purnima). Með 200.000 guði í liði má eflaust gleðjast oft og það gera Hindúar. Hvernig iðkar þú trúna? Hindúar líta á pílagrímsferðir sem mikilvægan þátt trúar sinnar. Þeir líta á þessar ferðir sem þjónustu við guöina og þátt í að eiga _ góð samskipti við þá. Hindúismi er einnig lífsstil sem byggist á mikilli jóga- iökun. Það er leið til þess að ná valdi yfir líkama og sál svo að andinn verði frjáls. Hvernig er stuðið á samkomum? Hinn eini sanni sannleikur sýnir sig á svo óteljandi vegu að mannshugurinn mun aldrei skilja hann til fullnustu. leg iðkun fer fram eru lesnir upphátt kaflar úr ritum meist- arans. Á eftir eru almennar umræður þar sem allir geta tekið til máls. Hátfðin endar á félagslegri samverustund. Hvernig er „himnaríki"? Bahá’far trúa á sálina og líf eftir dauðann. Þeir viðurkenna þó að vita ekki nákvæmlega hvernig eftirlífið sé. Bahá'u'lláh líkti dauðanum við fæðingu til nýs lífs: „Heimurinn að hand- an er jafn frábrugðinn þessum heimi eins og heimur okkar er frábrugðinn heimi barns í móðurkviði." Hvað þarf maður að aera til að komast í „himnaríki'v Sálin deyr ekki; hún lifir eilfflega. Þegar líkami mannsins deyr frelsast sálin úr viðjum líkamans og hefur feril sinn gegnum andlegan heim. Bahá'far trúa því að hinn andlegi heimur sé ekki einhver efnislegur staður í aðskildum fjarska^ heldur framhald af okkar veröld og óháður tíma og stað. Hvernig er „helvíti" og hvers vegna fer maour þangað? Helvfti er ástand, ástand fjarlægðarfrá Guði (“Himnarfki" er ástand nærveru. við Guð). Hvort tveggja er eðlileg afleiðing viðleitni hvers einstaklings, eða skorts á henni, til þess að þroskast andlega. Kalt mat Það er slöpp ferðaskrifstofa sem hefur ekki hugmynd um hvert hún er að fara og lofar engu sérstöku. Þú ferð bara þangað sem þú hefur j þroska til andlega, segir ferðaskrifstofan og lætur þig fasta dögum saman í ofanálag. Bölvað vesen j Ifka að vera að rugla | svona f tfmatalinu. Samt hittast Hindúar og gúrú hofsins leiöir menn áfram f hugleiöslu, jóga og pælingum I fræðunum. Svo er sungið, kyrjað og beðið. Hvernig er „himna- ríki"? Lfkt og búddatrúarmenn trúa Hindúar j á Lífshjólið, einnig nefnt Hjól kenning- j arinnar. Það er hin samfellda ] hringrás fæðinga og endurfæðinga J (Samsara) sem fólk fjötrast f nái það ! ekki Moksha, en það er toppurinn; lausn undan því oki að vera mannlegur einstaklingur. *■ Hvað þarf maður að gera til að komast til „himnaríkis"? Ég og þú erum blekking og skynvilla þvf við og allt sem til er í heiminum er aðeins brot guðlegrar einingar. Þegar við höf- um fundið okkur sjálf og guð í okkur sjálfum hverfur sjálfið aftur inn f Brahman, sem er hin algera verund, óbreytanleg, óvirk og handan góðs og ills. Hvernig er helvíti og hvers vegna fer maður þangað? Ef þú skilur ekki bofs í hindúismanum ertu haldin/n van- visku og sjálfsblekkingu. Þangað til þú nærö þessu endur- fæðistu aftur og aftur. Ef þú hefur verið vondur endurfæö- istu jafnvel sem eitthvert dýr, kannski sem ógeðslegt skor- dýr ef þú varst alveg hræðilegur. Kalt mat Þetta eru rosalega flókin trúarbrögð. Strangar reglur gilda um hvernig fólk af mismunandi stéttum á að umgangast hvað annað og hverjir mega giftast. Ef þú fílar ekki jóga ertu f klípu. En guðirn- ir eru flottir, margir með margar hendur og filshöfuð og ekki ósvipaðir súperhetj- '£$$ um teiknimyndablaðanna. Inntökuskilyrði Þú samþykkir allt f Kóraninum og ákveður að gerast múslími. í fslam eru engir milliliöir. Þú ræktar bara samband þitt við Allah á eigin spýtur. Svo skráirðu þig sem múslfmi f Hagstofunni. Múslfmar á íslandi eiga enga mosku eins og er en hittast í heimahúsum. Hverjir eru hátíðisdagarnir? Ramadan stendur yfir f mánuð og færist aftur um 10 daga ár hvert. Þá er bannað aö borða, drekka eða reykja í dagsbirtu. i ár byrjar Ramadan í desember, en þetta verður erfitt þegar Ramadan hittir á sumarmánuð- ina hér. Beint á eftir kemur hátíð föstuslita. Þá heimsækja menn ættingja og gefa gjaflr. Hvernig iðkar þú trúna? Biður tii Allah fimm sinnum á dag og snýrð f áttina að Mekka. Hjálpar fá- tækum og viðheldur bænastöðum. Drekkur ekki áfengi og borðar ekki svínakjöt. Fastar meðan á Ramadan stendur. Ferð a.m.k. einu sinni á ævinni f pílagrímsferð til Mekka. Þú verður að vera skuldlaus f þeirri ferð. Hvernig er stuðið á samkomum? Föstudagar eru frfdagar. Þá skulu menn mæta í mosku. Þar fer fram stutt athöfn, um 40 mínútur, sem samanstendur af u.þ.b. 10 mfnútna bæn og svo eru fluttar ræður um andleg og félagsleg mál múslíma. Hvernig er „himnaríki"? Þegar Allah ákveður kemur ] dómsdagur, heimurinn ferst | og hinir dauðu rísa. Sá dag- ur er byrjunin á lífi sem mun aldrei enda. Allah mun dæma menn eftir gjörðum þeirra f jarðlífinu. Eilff sæla er tryggð hinum sanntrúuðu. Allah mun sérstaklega baða þá sinni náð sem þjáðust fyrir hann. Hvað þarf maður að gera til að komast til „himnaríkis"? Vera góður múslími og bíða svo rólegur f draumkenndu ástandi f gröfinni þangað til Allah ákveður að skella á dómsdegi. í gröfinni dreymir hina góðu um garð paradísar (Jannat) en hinirvondu verða sem f holu úr holu helvítis og fá endalausar martraðir. Hvernig er „helvíti" og hvers vegna fer maðurþangað? Þú ert í skítamálum ef þú varst þræll eigin girnda og ástríðna og trúðir ekki á Allah. Sérstakar píningar bfða þeirra sem gera grfn að þeim trú- uðu. Á dómsdegi flnnur Allah upp þunga refsingu fýrir svona skrfl, send- ir til heljar og steikir, brennir og kvelur á margvfslegan hátt. Kalt mat Það er ekki beysin ferðaskrifstofa sem lofar töf á flugi og lætur viðskiptavinina bfða dreymandi í gröfmni. En ferðin verður eflaust ánægjuleg ef þú borgaðir nógu mikið inn á. Ekki trú fýrir þá blautu eða skinkuunnendur og varla góð trú fyrir konur ef þær fæddust inn f stangtrúað samfélag. Sérðu ekkert sem þú vilt kaupa? Ekki örvænta, þetta er bara lítið brot af trúarbragöaflórunni. Hér eru ekki talin með ýmis trúarfélög/hópar sem byggja á Biblí- unni en túlka hana á mismunandi vegu; viðurkenna Krist sem frelsara eða ekki, eða draga eitthvað út úr Biblíunni og gera að aö- alatriði. í þessum litskrúðuga hópi eru t.d. mennónítar, Fríkirkjan, Kirkja Krists hinna síðari daga heilögu (mormónar), Óháði söfn- uðurinn, Krossinn, Betel, Amish, Ungt fólk með hlutverk, Boðun- arkirkjan, Aðventistar, Sjónarhæðarsöfnuður, Kletturinn, ís- lenska kristskirkjan, Baptistar, Fjölskylda ástarinnar, Moon-söfn- uðurinn, kvekarar, meþódistar, gyðingar, rétttrúnaðarkirkjurnar rússnesku og grísku, satanistar, vísindakirkjan og Hjálpræðisher- inn. Ef þú kaupir ekki guð Biblíunnar eru fjölmörg önnur trúar- brögð á boðstólum. Þau boða ýmiss konar lífsstíl og lofa mismiklu um framhaldslífið. Hér má nefna Nýalisma, Voodoo-isma, Ananda Marga, Hare Krishna, Bön, Sikhisma, Gnostikisma, Shintó, Kon- fúsíontrúarbrögð Kínverja, Ifa, Farmtrú og Vedisma. Ef þú „trúir“ ekki á trú eða trúarbrögð, en vilt samt kaupa eitthvað, geturðu skráð þig í Samfélag trúlausra eða Siðmennt. :iili 24. nóyemb.er .2Q00 f ó k u s 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.