Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2000, Síða 10
4
vlkuna
24.11-1.12 2000
47. vika
Lenny Kravitz heldur enn sínu striki á toppnum
þessa vikuna sem ætti að ýta enn frekar undir
söluna á Best of plötunni hans. Lucy Pearl skýst
óvænt upp í annað sætið og enn óvænna er
upphlaup Fred Durst og félaga í Limp Bizkit sem
hoppa í þriðja sætið. Lagið þeirra, My
Generation, virðist falla hlustendum FM vel í geð
og verður gaman að sjá hvort fleiri fylgja í kjöl-
farið. Á sömu hraðferð í sætum 3-4 eru svo
Gwyneth Palthrow og Sálin. Við biðum spennt
eftir framhaldinu.
Topp 20
Vikur v
á lista:
Lenny Kravitz JoJ 5
Lucy Pearl t 4
Limp Bizkit 't’ 2
04 Cruisin’ Gwyneth Palthrow & Huey Lewis 3
05) Ekki nema von Sálin hans Jóns míns 4" 5
06 Sigurjón Digri Land & Synir og Stefán Karl 6
01) Again
02 Don’t mess with my man
03) My Generation
Wu-Tang Clan var stórveldi í rappheiminum allt þar til önnur
plata hljómsveitarinnar, hin tvöfalda Wu-Tang Forever, kom út
fyrir 3 árum. Hún þótti of löng og að miklu leyti leiðinleg en nú
er komin ný plata, The W, og eins og nafnið gefur til kynna
heldur sveitin sig við aðalatriðin í þetta skiptið.
Trausti Júlíusson rifjaði upp Wu-Tang-söguna,
(07) On a night like this Kylie Minogue 6
(OÍ) Get along with you Kelis 4r 5
09) Independent Women Destiny’s Child t 2
10 Spanish guitar (remix) Toni Braxton t 3
@ Give me just one night 98 Degrees 4* 6
(12) Með þér Skítamórall 1.4, 13
( 73) La Fiesta Club Fiesta 4, 5
74 My Love Westlife t 2
(75) Why does my heart... Moby 4
75 Yellow Coldplay «4 11 “ I
(77) Come on over Christina Aquilera •4 8
(73) Let the music play Barry White feat i n e
(73; Body II Body Samantha Mumba 4, 3
20) Hollar
Q topplag vikunnar
J hástökkvari
9 vikunnar
nýtt á listanum
stenduristað
<•%
thækkar sig frá
siðustu viku
4>
T
lækkarsigfrá
siðustu viku
fall vikunnar
Spice Girls 4, 7
Sætin 21 til 40
Beautiful Day U2 4- 9
Body Groove Architecs feat. Nana f 4
Ég hef ekki augun af þér Sóldögg 4-10
Stop messing ar... Craig David t 3
You’re God Vertical Horizon 4 7
I wonder why Tony Touch feat t 4
Music Madonna -412
Trouble Coldplay X 1
Overload Sugarbabes T 2
Lady Modjo 4-11 fj
Ekkert mál Á móti sól 4 8
Kids Robbie Williams&Kilie Mino... X1
Groovejet Spiller : 411 (:
Fiesta (Houseparty) Dj Mendez 4 9
Shape of my heart Backstreet Boys X1
Hvenær Buttercup 4 7
Sky Sonique 4 8
Let’s get loud Jennifer Lopez ' 414
Could I have this... Houston/lglesias ; 414§
She Bangs Ricky Martin X 1
fókus)
íslenski listinn er
samstarfsverkefni D V og
FM 957 og birtist vikulega í
Fókus. Listinn er fluttur á
FM í umsjá Einars Ágústs
Víðissonar.
Ekki lengur
spurning um
peninga eða frægð
Wu-Tang Clan var stofnuö í New
York-úthverfinu Staten Island árið
1992. Það voru þeir frændur Robert
Diggs (RZA) og Gary Grice (GZA)
sem söfnuðu saman nokkrum vin-
um sínum og frændum til að búa til
samstilltan hóp sem gæti gert at-
lögu að plötuútgáfubransanum.
Þeir Diggs og Grice höfðu báðir
reynt fyrir sér einir með litlum ár-
angri, Diggs gaf út efni sem Prince
Rakeem hjá Tommy Boy og Grice
átti að baki plötuna Words From
The Genius sem kom út á Cold
Chillin’ útgáfunni.
Einn fyrir aila, allir fyrir
einn
Wu-Tang Clan var byggð upp
eins og bræðralag, allir meðlimirn-
ir áttu jafnan rétt á að koma efni að
og allir skiptu þeir líka með sér
kostnaðinum við upptökur og fram-
leiðslu á fyrstu lögunum. Auk RZA
og GZA voru í Wu-Tang frá byrjun
þeir Russel Jones (Ol’ Dirty Bast-
ard), Jason Hunter (Inspektah
Deck), Lamont Hawkins (U-God),
Clifford Smith (Method Man),
Corey Woods (Chef Raekwon) og
Dennis Coles (Ghostface Killer).
Skömmu seinna bættist svo níundi
félaginn við en það var Elgin
Turner, betur þekktur sem Master
Killa.
Fyrsta smáskífan þeirra, Protect
Ya Neck, var upphaflega seld af
þeim sjálfum á götum New York
þar sem þeir notfærðu sér sölu- og
dreifmgartæknina sem þeir höfðu
komist í kynni við í gegnum
dópsölu, sem eins og kunnugt er
var (og er?) helsta fjáröflunarleið
fátækra borgarbúa New York. Prot-
ect Ya Neck náði fljótlega mikilli
spilun á hip-hop útvarpsstöðvunum
og útsendarar stóru plötufyrirtækj-
anna voru orðnir áhugasamir. Þeir
RZA og GZA pössuðu samt mjög vel
upp á að taka ekki hvaða samnings-
tilboði sem er og það fór svo að lok-
um að þeir völdu nýtt fyrirtæki,
Loud Records, sem Steve Rifkin
var að koma af stað.
Wu-Tang Clan: Heldur sig við efnið á
nýju plötunni.
Eitt af meistaraverkum
hip-hop sögunnar
Samningurinn sem Rifkin gerði við
þá markaði tímamót, því hann gerði
hverjum meðlimi hljómsveitarinnar
kleift að semja við hvaða fyrirtæki
sem er um útgáfu á sólóefni. Rifkin tók
áhættu, en hann átti ekki eftir að sjá
eftir því. Fyrsta Wu-Tang platan, Ent-
er The Wu-Tang (36 Chambers), kom
út árið 1993 og var samstundis hampað
sem meistaraverki. Hún er enn þann
dag í dag talin ein af bestu hip-hop
plötunum frá upphafi. RZA, sem er
heilinn á bakvið tónlist Wu-Tang, forð-
aðist það meðvitað að búa til tónlist
eins og þá sem var 1 tísku á fyrstu
árum tíunda áratugarins. Hann leitaði
í hip hop áranna 87-88, sem var hrárra
og ferskara, og inn í það blandaði
hann svo hljóðbrotum úr Kung Fu-
myndum, sem gáfu sérstaka stemmn-
ingu og uröu fljótlega aðalsmerki
hljómsveitarinnar. Þegar við bættist
sú fjölbreytni og sá kraftur sem 9 vel
færir rapparar gefa varð útkoman
ómótstæðiieg.
12 milljón plötum seinna
Síðan Enter the Wu-Tang kom út er
hljómsveitin búin að selja 12 milljón
plötur, flestir meðlimanna hafa gefið
út sólóplötur og plötur í samstarfi við
aðra, hljómsveitin kom á fót Wu Wear
fatamerkinu sem gengur mjög vel og
reisti Wu-setrið, sem er risastórt heim-
ili/klúbbur/stúdíó í New Jersey.
Wu-Tang Forever þótti, eins og áður
segir, frekar langdregin og sólóplöt-
urnar hafa gengið misvel í aðdáendur,
gagnrýnendur og plötukaupendur. Það
hefur líka gengið á ýmsu hjá þeim prí-
vat, sumir þeirra hafa komist i kast
við lögin, t.d. 01’ Dirty Bastard, sem
enn er á flótta, eftirlýstur eftir að hann
strauk af meðferðarstofnun sem hann
var á samkvæmt skilorðsbundnum
dóm sem hann hlaut i sumar.
„Hungrið er vaknað“
Það er skemmst frá því að segja að
The W er þrusuplata. Hún er tekin upp
í Los Angeles, en þangað fóru þeir til
að fá frið frá hversdagsamstrinu í New
York. Þeir dvöldu allir undir sama
þaki og deildu svefnherbergjum rétt
eins og i árdaga þegar þeir voru að
byrja. „Við vOjum sýna með þessari
plötu að Wu er enn málið,“ segir RZA
og bætir við: „Hungrið er vaknað hjá
okkur. Þetta er ekki spuming um pen-
inga eða frægð lengur, heldur bara
þetta óstöðvandi samúræja hungur.” Á
meðal flottra laga á plötunni em fyrsta
smáskífan, Gravel Pit, sem er þegar
orðin popp-rapp klassík, Careful
(Click, Click) sem er þungt og hægt lag
með miklum bassa og ljúfum
flauhileik sem hljómar í bakgrunni,
næstum eins og í fjarska, Hollow Bo-
nes, sem er byggt utan um mjög flott
og grúví soul sampl og I Can’t Go To
Sleep lagið sem gamla soul stjarnan
Isaac Hayes syngur í, en í það lag em
notaðir bitar úr útgáfu Hayes af Burt
Bacharach-laginu Walk On By. Auk
innkomu Hayes rappar Busta
Rhymes í The Monument, Nas í Let
My Niggas Live, Snoop Dogg í
Conditioner og Junior Reid fyrmm
söngvari reggíhljómsveitarinnar
Black Uhuru undirstrikar hip-
hop/reggí bræðralagið með innkomu í
tvemur lögum, One Blood Under W,
sem er ný útgáfa af hans eigin lagi,
One Blood, og laginu Jah World. The
W hefur alls staðar fengið frábæra
dóma og Wu-Tang Clan virðist á góðri
leið með að ná fyrri styrk sem leiðandi
afl í rappheiminum. Með frábæran
pródúser (RZA) og níu flotta rappara
er það kannski ekki skrýtið, en það
hjálpar líka til að tvö helstu stórveldi
rappsins undanfarin ár, Death Row og
Bad Boy, em nánast horfin af sjónar-
sviðinu.
f Ó k U S 24. nóvember 2000
10