Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2000, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2000, Blaðsíða 3
e f n i Margrét Lóa Jónsdóttir er ritstjórí hins glæslega 10. heftis menningartímaritsins Andblæs sem nýlega kom út. Ólíkt mörgum öðrum íslenskum menningartímaritum er áherslan ekki öll á hið skrifaða orð heldur einnig á hið sjónræna, myndlistina. Þolinm00ði ©r sksilduvwi „Að þessu sinni er það Guilni pens- illinn, felagsskapur nokkurra listmál- ara, sem sýnir í Galleríi Andblæs," segir Margrét Lóa, ritstjóri 10. heftis Andblæs. Hún segir gríðarlegan tíma hafa farið i ritið, sem er afar metnað- arfullt, en segist jafnframt aldrei nenna að standa í þessu á öðrum for- sendum. Galleríið er litprentað og kemur mjög vel út. „Eftir að tímaritið Teningur hætti er áhersla okkar á myndlist vonandi kærkomin. Á ís- landi hefur ekki verið til myndlistar- rit árum saman, en enginn hefur sagt neitt við því. Upp á síðkastið hef ég fundið fyrir stigvaxandi áhuga á tímaritinu, og þá held ég reyndar að það sé ekki síst út af myndlistargaller- íinu.“ Dularfullar kvöldvökur Tímaritið Andblær spratt upp úr dularfullum kvöldvökum sem farið var að halda reglulega árið 1994 í húsi á Hverfisgötunni. „Þar kom fólk sam- an og borðaði popp, kökur og kaffi og hlustaði á upplestur þess sem sat í svokölluðum húsbóndastól. Timi upp- lesarans var ótakmarkaður og að lestri loknum gafst tími fyrir spurn- ingar,“ segir Margrét Lóa sem sjálfri var eitt sinn boðið að sitja í stólnum góða. Margrét Lóa tók við Andblæ í fyrra og hefur nú ritstýrt tveimur heftum. Hún segir Andblæ hafa kom- ið út oftar á ári til að byrja með, en hún hafi frekar viljað hafa ritið efnis- meira og leggja jafnframt sérstaka áherslu á myndlistarumfjöllun í tíma- ritinu. Skáld frá Samalandi En ekki er bara fjallað um myndlist í Andblæ, þar skipa einnig ljóðin stór- an sess. í nýjasta heftinu er að flnna mikið af ljóðum eftir ung og eldri ljóð- skáld, íslensk sem erlend. Margrét segist hafa haft mjög gaman af því að finna og velja ljóð í heftið, enda sjáif ljóðskáld. Þrátt fyrir að hún hafl fund- ið fyrir minnkandi áhuga á ljóðum síðastliðin ár segir hún ekki hafa ver- ið erfitt að safna saman efninu í nýja heftið. „Ég finn að það er heilmargt að gerast í ljóðlistinni í dag, bæði hjá ungu sem eldri skáldunum. Tímaritið Andblær var upphaflega hugsað sem vettvangur fyrir ungt fólk til að koma sér á framfæri og við reynum að halda í þá stefnu. í heftinu núna eru líka þýðingar frá Samalandi, arabalöndum, Ítalíu og viðar. Skáldið Einar Bragi þýðir meðal annars ljóð eftir Stinu Ingu, skáldkonu frá Sama- landi sem er fædd árið 1974, svo eitt- hvað sé nefnt. Okkur er síðan heiður að kynna Nicolaj Stochholm, sem er frábært danskt ljóöskáld, en í heftinu eru átta þýdd ljóð úr heildarsafhi verka hans sem kom út á þessu ári. Stochholm kom hingað og las upp á útgáfuhátíð Andblæs og vakti mikla hrifningu, las til dæmis upp blaðlaust og með lokuð augun." Þolinmæði Bunkers í haust gafst Margéti Lóu, ásamt Óttarri Proppé, tækifæri til að tala við rithöfundinn og fyrrverandi glæpamanninn Edward Bunker þegar hann kom hingað á bók- menntahátið. „Mér fannst fróðlegt að tala við hann og hressileg áminning um það hversu nauðsyn- leg þolinmæði er skáldum. Bunker skrifaði jú flmm skáldsögur áður en hann fékk útgefna bók og gafst aldrei upp, þó svo hann dveldi í 17 ár innan fangelsismúra við mjög svo misjafnar aðstæður. Hann sagðist hafa skynjað þetta sem ör- lög. - En hvað getur mögulega ver- ið betur til þess fallið að drífa höf- und áfram?“ Hinn 14 ára Grímur Helgi Gíslason er nemandi í 9. bekk í Hagaskóla. Hann var ekki hár í loftinu þegar söngferill hans hófst en hann hefur sungið síðan hann var í vöggu. Hann hefur leikið í leikritum og komið fram í ógrynni sjónvarpsþátta. Nú er hann búinn að gefa út djassdiskinn Nýklipptur en það er fyrsta sólóplatan hans. hic^ Id í f V2IA#III ■#* I 11 „Á diskinum 5 eru venjuleg góð | I lög sem hljóm- " § sveitin djassar svo upp. LÖgin valdi ég sjálfur með hjálp pabba og Hirti Grétarssyni umboðsmanni mín- um. Ég er bara mjög ánægður með útkomuna," segir Grímur Helgi um nýja diskinn sinn. Grímur er nemandi í 9. bekk í Haga- skóla og helsta áhugamál hans fyrir utan tónlist er fótbolti. Hann segist hlusta á næstum því alla tón- list en hljómsveitin Blinkl82 er í mestu uppáhaldi eins og er. Diskurinn Nýklipptur „Þegar við vorum nýbúnir að taka diskinn upp fórum við i það að mixa hann. Hjörtur kom meö röff mix af diskinum og kallaði hann Nýklippt- an, það nafn festist svo bara einhvern veginn." Á diskinum eru 12 vinsæl lög frá ýmsum tímum, allt frá Smile eftir Chaplin til Ben sem Michael Jackson gerði frægt á sínum tíma. Það er landsliðið í djassundirleik sem spilar undir söng Gríms Helga. Grimur er enginn nýgræðingur í tónlist en hann var kornungur þegar hann byrjaði að syngja. „Ég vann söngvakeppni á þjóðhátið í Vest- mannaeyjum þegar ég var niu ára en ég hef samt sungið nánast síðan ég var í vöggu.“ Þegar hann var 11 ára lék hann í Bugsy Malone i Loftkastal- anum og fékk svo aðalhlutverk í Bróðir minn Ljónshjarta sem Þjóð- leikhúsið setti upp. Finnur ekki fyrir frægðarljómanum „Ég held ekki að ég sé frægur, að minnsta kosti hef ég ekki tekið mikið eftir þvi. Það kemur fyrir að krakkar komi upp að mér og segi að þau hafl séð mig í sjóvarpinu og svoleiðis. Það er sjaldgæft að ég finni fyrir einhverj- um leiðindum, fólk er yfirleitt mjög jákvætt í sambandi við það sem ég er að gera,“ segir söngvarinn hógværi. Hann segist ekki eiga kærustu og vill ekkert tjá sig nánar um þau mál. Framtíðin er óskrifað blað. „Ég veit ekki hvað ég ætla að verða en ég hugsa að ég vilji annaðhvort verða tónlistarmaður eða fótbolta- maður. Kannski eru þetta óraunhæf plön,“ segir hann svo hugsandi. „Nei,“ bætir hann svo við, „maður getur allt ef maður bara vill og leggur metnað i það“. Hljómsveitin Godzpeed: Kynntust í Fíladelfíu- söfnuðinum Linn Ericson: Deitmenning á íslandi Sniðugar jólagjafir: Uppástungur Fókuss Pitsustaðir í Reykjavík: Hverjir eru bestir? íslenskir karl- menn: Hvað er karl- mennska? Godspeed You Black Emperor!: Kaldrifjaðir Kanada- menn Söngkonan Sade: Semur bara skökk Andrea Unnarsdóttir: Þeir sem biðja fá ekki meira rlí f iö Fókus bvður á óvissusvninau í bíó Reverb á Gauknum Hvað verður i bíó 2001 Urban Leaends 2 frumsvnd Ifókus vH fylgir DV á llp ' föstudögum Forsíðumyndina tók Hilmar Þór af Andreu Unnarsdóttur 15. desember 2000 f ÓkUS J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.