Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2000, Blaðsíða 12
Það eru aldeilis breytingar á li
•■•■<'—■3 því topplag hlji
r í fjórða saetið og ný lög
irjú efstu sætin. Robbie Williams
gue hertaka þriðja sætið með laginu Kids,
strákamir i Westlife hötða til stelpnanna með lag-
inu My love í öðru sæti en það er dónarapparinn
Eminem sem stelur senunni og hirðir toppsætið
með laginu Stan. Eminem er samur við sig og
gefur skít í aðdáendurna, aðra tónlistarmenn og
auðvitað mömmu sína.
Topp 20
(pV) Stan Eminem
(02) MyLove Westlife |
03 Kids Robbie Williams& Kylie Minogue
(Ö4) Trouble Coldplay
05 Overload Sugarbabes
06 Independent Women Destiny’s Child )
07 With arms wide open Creed
(08 Shape of my heart Backstreet Boys
09 My Generation Limp Bizkit
(70) Again Lenny Kravitz
(jj) Ekki nema von Sálin hans Jóns míns
(72) Body II Body Samantha Mumba
(73) She Bangs Ricky Martin
(74) Cruisin’ Gwyneth Palthrow & Huey Lewis
(75) Aldrei Buttercup
(75 Stronger Britney Spears 1
(77) Sigurjón Digri Land & Synir og Stefán Karl
(75) Don’t mess with my man Lucy Pearl
19) Original Prankster Offspring
(25) Spanish guitar (remix) Toni Braxto
4
4 1
51
5!
2
4
51
8
8
6
4
6 |
3 I
2
9
7 1
3
6
(5 topplag vikunnar
4
X
histökkvari
vikunnar
nýtt á listanum
stenduristaö
/K hækkarsigtri
‘ síöustu viku
4,
í
lækkar sig frá
siðustu viku
fall vikunnar
Sætin 21 til 40
Every little thing Selma t 2
Get along with you Kelis 4 8
Æði Skítamórall j X 1
Why does my heart... Moby 4 7
Not that kind Anastacia x 1!
On a night iike this Kyiie Minogue 4, 9
Give me just one... 98 Degrees Þ 9
Pollýana Bubbi Mortheins t 2
Body Groove Architecs feat. Nana j 4 7
Yellow Coldplay 414
When I dream... Marc Anthony X 3 !
Come on over Cristina Aquilera 4115
Með þér Skítamórall 416)
La Fiesta Club Fiesta 4 8 í
Let the music play Barry White feat 4 9)
Beautiful Day U2 412)
Hollar Spice Girls 410
Who let the dogs out Baha men X 1 ■ I
Music Madonna 415)
You’re God Vertical Horizon 410)
fókus
íslenski listinn er
samstarfsverkefni DV og
FM 957 og birtist vikulega í
Fókus. Listinn er fluttur á
FM í umsjá Einars Ágústs
Víðissonar.
Hin Ijúfa og seið-
andi Sade var að
senda frá sér nýja
plötu, þá fyrstu í
átta ár. Eins og
hinar fyrri virðist
„Lovers Rock“ ætla
að gera það gott.
Trausti Júlíusson
kynnti sér þessa
sérstöku listakonu.
Sade var ein af vinsælustu tón-
listarmönnum níunda áratugarins.
Plötur eins og Diamond Life og
Promise seldust í bílfórmum úti
um allan heim og lög á borð við
„Your Love Is King“, „Smooth
Operator" og „The Sweetest
Taboo“ hljómuðu endalaust úr við-
tækjum bæði austan hafs og vest-
an. Eftir fjórðu plötuna, „Love
Deluxe", sem kom út árið 1992 og
tónleikaferðalagið sem á eftir
fylgdi, dró hún sig í hlé og það er
ekki fyrr en nú að viö fáum nýtt
efni með henni.
Lovers Rock sver sig tónlistar-
lega mjög í ætt við hinar plöturnar.
Sade: söngkonan með silkimjúku röddina.
Lifir ekki eins og
rík manneskja
Það er þetta silkimjúka og seiðandi
sambland af soul, djassi og poppi
með smá reggí-víbrum hér og þar.
Lovers Rock hefur líka farið mjög
vel af stað í sölu, fór m.a. beint í
þriðja sæti bandaríska listans sem
verður að teljast gott þegar bresk-
ur listamaður, sem hefur nánast
farið huldu höfði í nær áratug, á í
hlut.
Fædd í Nígeríu, uppaiin
í Essex
Helen Folasade Adu er fædd í
Ibadan í Nígeríu árið 1959, en flutti
fjögurra ára með móður sinni til
Essex í Englandi þegar hún skildi
við föðurinn. Hún reyndi fyrir sér
sem tískuhönnuður og fyrirsæta
áður en hún fór út í tónlistina,
fyrst sem bakraddasöngkona i latin
fönk sveitinni Pride. Hún byrjaði
að semja lög í Pride og svo leiddi
eitt af öðru þar til hún sló í gegn á
einni nóttu með laginu „Your Love
Is King“ árið 1994
Sade hefur alltaf reynt að halda
einkalífinu fyrir utan fjölmiðlana
og er ekki mikið gefm fyrir veislur
með fina og fræga fólkinu. Hún býr
nú ein í gömlu húsi frá Viktoríu-
tímanum sem hún hefur verið að
gera upp með bróður sínum i Hig-
hbury í
Norð-
ur-London og segir að ef það væri
brotist inn hjá henni fyndu
þjófamir örugglega svipaða hluti
og þá sem voru í íbúðinni þar sem
hún ólst upp, í einni af ófinni
blokkunum í Colchester í Essex.
„Ég lít ekki út eða lifi eins og rík
manneskja, maður verður að
versla til þess að lifa eins og
stjama og ég þoli ekki að versla,"
segir hún. Hún hefur reyndar vak-
ið athygli í Highbury fyrir að leyfa
heimilislausum að halla sér í skýli
sem er fast við húsið hennar.
Ekki mikið gefin fyrir að
auglýsa sig
Þegar Sade gerði plötusamning á
níunda áratugnum féllst hún á litla
fyrirframgreiðslu gegn hárri pró-
sentu af hverri seldri plötu. Hún
fær heil 15%, sem er óvenju mikið,
og þar sem hún hefur selt yfir 40
milljón plötur á ferlinum er auð-
velt að sjá að hún er ágætlega
stöndug. Sade er lítið gefin fyrir að
koma fram í fjölmiðlum, það eru
sárafá viðtöl til við hana og hún
neitar iðulega að koma fram til að
kynna plötumar sínar, t.d. í sjón-
varpi. Sade hefur alltaf selst vel í
Bandaríkjunum, en það er lika allt
á hennar eigin forsendum: „Þegar
við vorum að byrja að koma okkur
áfram í Bandaríkjunum neitaði ég
að gera alls konar hluti og plötufyr-
irtækið sagði að við myndum tapa
milljónasölu en ég vissi að það
skipti ekki máli,“ segir hún.
var þess vegna stefht fyrir
eiturlyfjasmygl. Hún
mætti hins vegar ekki fyr-
ir dóminn og þá var gefin
út handtökuskipun á hana.
Henni tókst að fiýja land
og getur þess vegna ekki
farið til Jamaica aftur fyrr
en árið 2002. Ila dóttir
hennar dvelur samt reglulega þar
hjá fjölskyldu fóðurins.
En það er önnur ástæða fyrir
fjarveru hennar af tónlistarsen-
unni. Sade segir í nýlegu viðtali
við Sunday Times Magazine að
hún reyki gras þegar hún er að
vinna að tónlistinni en þar sem
hún hafi ekki viljað reykja meðan
á meðgöngunni stóð þá hafi hún
hætt að búa til tónlist fyrir fimm
árum þegar hún varö ólétt.
Hljómsveitin Sade
Sade er reyndar ekki bara söng-
kona, heldur líka hljómsveit.
Hljómsveitin Sade er auk Sade
sjálfrar skipuð Paul Spencer Den-
man bassaleikara, sem er gamall
pönkari, Andrew Hale hljóm-
borðsleikara, sem er mikill mynd-
listar-áhugamaður og hefur m.a.
samið tónlist fyrir tískusýningar
hjá Cerutti, Paul Smith og Prada,
og Stewart Matthewman, gitar-
leikari og saxófónleikari, sem sem-
ur flest laganna með Sade og sem
m.a. notaði átta ára fjarveru Sade-
sveitarinnar til þess að semja og
spila inn á fyrstu tvær Maxwell-
plötumar. Það er á hreinu að þess-
ir tónlistarmenn eiga sinn þátt í
velgengni
Sade.
Handtakan á Jamaica
Það eru átta ár síðan Love
Deluxe platan kom út. Þetta
hefur verið frekar strembinn
tími fyrir hana. Hún skildi við
eiginmanninn, spænska kvik-
myndaleikstjórann Carlos
Scola, hún eignaðist stelpuna
Ila með næsta kærasta, rasta-
manninum og upptökustjóranum
Bobby, og það voru veikindi í fjöl-
skyldunni, svo eitthvað sé nefnt.
Og svo var það handtakan á Jama-
ica árið 1997 sem Sade lýsir i dag
sem algjörum farsa.
Hún var þá tekin meö smávegis
af grasi (á Jamaica af öllum
stöðum!) og lögreglumaður-
inn sem fann efnið hjá
henni vildi fá mútu-
greiðslu fyrir að sleppa
henni. Hún vildi engan
veginn ljá máls á slíku og
f Ó k U S 15. desember 2000