Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2000, Síða 13
Hljómsveitin Godspeed You Black
Emperor! hóf feril sinn sem þriggja
manna eining er samanstóð af tveimur
gítarleikurum og bassaleikara. Það var
árið 1994 og síðan hefur hún vaxið
svo að nú eru að lágmarki níu hljóðfæra-
leikarar á sviði er þau koma fram.
Kristján Már Ólafsson skoðaði sveitina.
plötudómar
Nýja plata Godspeed You Black Emperorl, „Lift yr. sklnny flsts like antennas to
heaven", er rökrétt þróun í tónsmíöum og þykir víkka enn frekar þann sjón-
deildarhring sem þau hafa nánast skapað á eigin spýtur.
Guð, hraðj
og sorta
Ræturnar liggja til Montreal í
Kanada og það voru þeir Dave,
Efrim og Moya sem hnoðuðu
litla snjóboltann er varð að þess-
um ógurlega snjómanni sem
hljómsveitin er í dag. Hún hefur
á sínum snærum þrjá gítarleik-
ara, tvo bassaleikara, franskt
horn, víólu, selló og ásláttarleik-
ara. Einnig er starfrækt marg-
miðlunardeild
innan sveitar-
innar, svona til
að gefa áheyr-
endum kost á
að horfa á eitt-
hvað annað á
tónleikum en
hljómsveitina,
eins og einn
meðlima orð-
aði það.
Dáleiðsla
Tónlistin er
eingöngu leik-
in þó notast sé
við talaða kafla og fyrstu við-
brögð manna voru að kalla þetta
dáleiðslurokk þar sem notast var
við „fundin hljóð“ að sögn með-
lima og þau látin endurtaka sig í
sífellu. Fyrstu kynni manna af
list sveitarinnar voru í formi af-
skaplega takmarkaðrar útgáfu af
snældu sem kallaðist All lights
fucked on the hairy amp drool-
ing og var gefín út í einum 33
eintökum. Sú kom út sama ár og
sveitin fæddist og var gerð og
dreift á eigin spýtur. Þrátt fyrir
hið takmarkaða upplag komst
hún í hendur sem ákváðu að
koma að næstu útgáfu.
Það var útgáfan Constellation
sem gaf út F#A#(Infinity) breið-
skifuna í heilum 550 eintökum,
meðalskammti á íslenska vísu en
ansi hreint naumum á kanadísk-
an mælikvarða. Sú reyndist þó
skref fram á við, enda kom
Kranky-útgáfan í kjölfarið til
skjalanna og smellti stykkinu á
geisla og dreifði víðar.
Nafnleyndar óskað
Það kann að koma spánskt fyrir
sjónir en hljómsveitin hafði fullan
hug á að láta lítið fyrir sér fara. Það
varð þó ljóst eftir útkomu EP-plöt-
unnar Slow riot for new zero
kanada að þau áform væru við það
að fara í vaskinn. Áhugi fór vaxandi
á meðal fólks er leitaði nýrra hluta í
tónlist og The Wire tímaritið tók
sveitina svo að segja upp á sína
arma. Þegar bandið svo fór í tón-
leikaferð yfir til Evrópu holaði út-
varpsgæðingurinn John Peel því
inn í stúdíó hjá BBC í eitt af sínum
víðfrægu „sessjonum" svo slett sé í
þágu listarinnar. Hvarvetna sem þau
komu var þeim tekið með kostum og
kynjum.
Hvert skal haldið?
Nýja platan, „Lift yr. skinny fists
like antennas to heaven“, er rök-
rétt þróun í tónsmíðum og þykir
víkka enn frekar þann sjóndeildar-
hring sem þau hafa nánast skapað á
eigin spýtur. En forvitnilegt er að
velta fyrir sér hvað rekur tríó til að
hlaða svo utan á sig að um tíma voru
meðlimir orðnir 13 talsins. Stofnend-
umir segjast í raun ekki geta svarað
því á einfaldan hátt, en vilja þó
meina að í fyrstu hafi verið um að
ræða uppreisn gegn vers - viðlag -
vers forminu sem ræður að mestu
ríkjum í nútíma tónlist - sú uppreisn
hafi orðið vegna þess hve pirraðir
þeir hafi verið orðnir á norminu.
Hins vegar geta þeir ómögulega dreg-
ið línu frá upphafspunktinum og að
þeim stað sem þeir eru á í dag, í
fyrstu hafi þeir einfaldlega sankað að
sér fólki sem var til í að spila með
þeim og dáðst að því hvernig þetta
lafði allt saman. Tónlistarbakgrunn-
ur meðlima er mismunandi, jass,
þjóðlagatónlist og klassík til að
mynda, í bland við pönkrætur þeirra
sem lögðu af stað i upphafi.
í dag má segja að sveitin sé að búa
til tónlist viö ímyndaðar bíómyndir
eða jafnvel lágfitls sinfóníur, hvað
verður á morgun er ómögulegt að
segja, og þar liggur líka undrið.
Túra
heiminn
&
Hin hundgamla rokksveit Gims n’
Roses mun gefa út __
fyrstu plötuna
sína með nýju I
efni siðan 1991 í J
júní á næsta ári.
Nýjustu fregnir
af sveitinni
herma að stefn-
an sé nú tekin á
að fylgja henni
eftir með tón-
leikaferð um all-
an heiminn. Þegar hefur verið
ákveðið að hljómsveitin spili á tón-
leikum á gamlárskvöld í Las Vegas
en svo taka við tónleikar á Rock in
Rio tónleikahátíðinni 14. janúar. Um
nýju plötuna segir forsprakkinn, Axl
Rose: „Við erum með frekar þung lög
þarna, sum mjög aggressíf, en það
eru mjög mismunandi stílar í gangi.
Þetta er í raun algert kraðak en upp-
haflega langaði mig til að gera hefð-
bundna plötu eða snúa að sömu hlut-
um og á Appetite vegna þess að það
hefði verið mjög auðvelt fyrir mig.“
Endurkoman
söltuð
Dr. Dre hef-
ur nú saltað
áform um fyr-
irhugaða end-
urkomu NWA
og segir að
fyrstu tilraun-
ir meðlimanna
hafi verið lé-
legar og þeir
séu of upp-
teknir við að vinna að eigin verkefn-
um. Upprunalegu meðlimirnir Dr.
Dre, Ice Cube og MC Ren ætluðu að
koma saman aftur með Snoop Dogg
sem staðgengil Eazy-E sem lést fyrir
nokkru. Ice Cube hafði lýst því yfir að
endurkoman væri yfirvofandi en Dre
sló á þær yfirlýsingar í nýlegu viðtali
og sagði alls óvíst hvenær plata væri
væntanleg. „Ég veit ekkert hvenær
platan kemur, ef hún kemur þá
nokkum tímann," sagði hann. NWA
var stofnuð árið 1986 og gaf út hina
stórgóðu plötu Straight Outta
Compton árið 1988. Ice Cube hætti
1989 og hóf sólóferil sinn en hljóm-
sveitin hætti árið 1992 þegar Dre sneri
sér að upptökum á fyrstu sólóplötu
sinni, The Chronic, sem markaði
einnig upphafið að ferli Snoop Dogg.
hvaöf fyrir hvernf’
★★★★ Fiytjandi: Rage Anainst the Machine piatan: Renegades Útgefandl: Sony/Skífan Lengd: 51:25 mín. Bandariska hljómsveitin Rage Against the Machine gerir hér sína útgáfu af ýmsum þekktum lögum bæði úr rokk og hip hopgeirunum. Platan inniheldur m.a. hennar útgáfur á lögum með Roll- ing Stones, Stooges, Afrika Bambaataa, Cypress Hill, Eric B & Rakim og Bruce Springsteen. Allt frá því Rage Agalnst the Machine gerði allt vitlaust í Kaplakrika hér um árið þá hafa þeir félagar notið mikilla vinsælda á íslandi: Þessi plata ætti ekki að valda aðdáendunum vonbrigö- um en þar aö auki gætu áhangendur Stones, Springsteen og Bob Dylan haft gaman aö því að heyra hvernig þeir fara með lög þessara listamanna.
★★ Fiytjandi: Marilyn Manson piatan: Holy Wood (in the shadow of the valley of death) Útgefandi: Interscope/Skífan Lengd: 68:17 mín. Það var einu sinni lítill strákur sem hét Brian Warner og hann ummyndaðist einhver staðar á leiðinni í veru sem kallar sig Marilyn Manson. Sem slík hefur hann gefið út nokkrar plötur, stungiö hendinni upp í rassgatiö á sér á sviöi og rifist við heilu fylkin í einu. Ekki slæmt fyrir aula frá Ohio. Það birtist klárlega mynd af dæmi- geröum aðdáanda í höföi mér þegar þessari spurningu er velt upp. En eng- in tónlist skyldi merkt þeim stimpli að hún höfði einungis til ákveðinna mann- gerða. Þetta er einfaldlega rokk f einni af sínum flölmörgu myndum, það er ekki flóknara.
★★★★ Fiytjandi: DJ Margeir Platan: DÍSkÓkvold Margeirs Útgefandi: Japis Lengd: 73:47 mín. DJ Margeir, einn dáðasti plötusnúður landsins, mixar saman 18 diskólög frá árunum 1976-1986. Platan heitir eft- ir margrómuðum diskókvöldum hans sem haldin hafa veriö reglulega und- anfarin ár. Á meðal flytjenda á plötunni eru Raw Silk, Indeep, D-train, Steph- anie Mills og The Supremes. Platan ætti að höfða til allra unnenda gleðitónlistarinnar eilífu. Það ættu margir aö kannast við eitthvað af þessum lögum en þetta er samt ekki enn ein endurútgáfan á sömu Anita Ward/Glorya Gaynor/Donna Summer- slögurunum. Rnt efni til þess að hita upp áramótapartíiö.
★ ★ Fiytjamdi: The Animal- house piatan: Ready to receive Útgefandi: BMG/Japis Lengd: 58:20 Þótt hljómsveitin Ride sé ekki nálægt því eins þekkt og Stone Roses hér uppi á islandi þá þekkja hana flestir sem eitthvaö vita. Tveir meðlima hennar, Mark Gardner og Laurence „Loz" Colbert. villtust inn í þennan dýragarð sem inniheldur líka Sam nokkurn Williams, hjálparhellu Supergrass til langs tíma. Þetta er fyrsta platan. Ja, allavega ekkl vitleysínga eins og mig sem stökk til vímaður af nostalgíu og taldi að loksins hefði snillingurinn í Ride snúið aftur. Það er hugsanlegt að þeir sem nálgast þessa plötúán sögu- legs samhengis geti metið hana að veröleikum. Ég setti hreinlega lág- markskröfur og hún stóð ekki undir þeim.
skemmtileqar
staöreyn cfi r
Rage Against the Machine hafa löng-
um verið þekktir fyrir harða pólitík. I
plötubæklingnum sem fylgir Renega-
des eru kaupendur disksins hvattir til
þess aö skrifa pólitísk skilaboð á pen-
ingaseöla. „Pappírsblöð sem enginn
hendir og sem berast til allra þjóðfé-
lagshópa." Ekki galið.
Holy Wood segir Manson lokakafla
þrenningar sem spannar einnig plöt-
urnar Antichrist Superstar og Mechan-
ical Animals. Heilmikil þemavinna er
umhverfis stykkið: Jesús Kristur sjálf-
ur greindur sem fyrsta rokkstjarnan,
moröiö á JFK notað í myndband og
hugsanlega samofin bók á leiðinni.
Það segir sitt aö diskóiö, sem varð til
í homma- og svertingjaklúbbum New
York í upphafi áttunda áratugarins og
sem á sínum tíma var hataö af meiri
ástríðu en flest önnur tónlist í sög-
unni, sé enn í fullu fjöri og sennilega
vinsælla en nokkru sinni fyrr. Gleöin
verður ekki stöðvuð. Stuöiö er eilift.
Framleiðendur kvikmyndaseriunnar
National Lampoon voru ekki par hrifn-
ir af þvi þegar bandið tók upp á því
síöla árs 1997 að kalla sig Animalhou-
se. Sá vandi var leystur meö því að
skella ákveðnum greini framan við og
kalla sig The Animalhouse.
niöurstaöa
Á heildina litiö er þetta fín plata. Það
er enn kraftur í bandinu. Mörg laganna
fá nýtt líf við meðferð þeirra félaga.
Hún sýnir líka rætur þeirra, rokk, pönk
og rapp. Flest laganna eru góð, en
einna skemmtilegast er samt að heyra
meðferðina á Stones og Dylan.
„Street Rghting Man" hefur aldrei ver-
ið kraftmelra.
traustl júlíusson
Hér fer 16 laga bræðingur Reznor-iðn-
aöarfilingsins sem einkenndi A.S. og
glamstemningarinnar á M.A. Hittarinn
Disposable Teens er þvengstolin af-
bökun lagsins Beautiful People og á
heildina litið virkar þetta hreinlega úr-
elt. Maður hefði haldið aö skrattinn
gæti skaffað honum ferskari riff.
kristján már ólafsson
Þetta er hörkumix. Þaö er hægt aö
treysta Margeiri til þess byggja þetta
upp og blanda þannig aö það sýður á
og pústar. Þetta er ekta diskógleöi
með greddulegum slap bassa, sól-
heimabíti, rífandi syntum og korní
strengjasándi. Mixiö nær hámarki
með laginu Can't Live Without Your
Love meö Tamiko jones. Þvílík orgía.
trausti júlíusson
Þetta er undarlegur kokkteill rafrænu
og skynörvunar með gleðipoppsyfir-
bragði. Cast á sveppum væri ekki
fjarri lagi, eins sorglega og það hljóm-
ar. Enda er þetta sorglegt og ég, sem
hélt að Bell væri asninn og Gardner
snillingurinn, verð að kyngja því að The
Animalhouse er alvegjafn slæmt band
og Hurricane #1.
kristján már ólafsson
4
v
15. desember 2000 f Ó k U S
13
v