Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Qupperneq 2
26 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 Sport unglinga____________________________________________________________pv Handbolti drengja: - 20 efnilegustu handknattleiksstrákar landsins, að mati Heimis Rikharðssonar — Hér sést Asgeír Hallgrtmsson í leik meö Unglingasíöan heldur áfram aö birta lista yfir efnilegasta íþrótta- fólk landsins og í dag birtum við lista yfir 20 efnilegustu drengi í handknattleik. Unglingasiðan fékk tii liös við sig Heimi Ríkharðsson, þjáifara unglingalandsliðsins. „Það eru bjartir tímar fram undan í handboltanum. Þeir árgangar sem eru í 2. flokki núna eru sterkir en síðan virðist vera örlítil eyða. Umsjón Benedikt Guðmundsson Betri þjálfun Það er eðlilegt en á heildina litið er nóg af leikmönnum að koma upp. Það er greinilegt að það er unnið betur í þjálfuninni hjá félögunum og það skilar sér í góðum leikmönnum. Það sem kannski vantar eru fleiri iðkendur i hvern flokk. Unglingar í dag hafa miklu meira framboð af afþreyingu en áður fyrr og verða félögin að bregðast við því. Það verður einfaldlega að ná í þessa krakka og rífa þau frá tölvunum. Við verðum að fá fleiri iðkendur í hvern flokk. Félögin aö skila góöri vinnu Annars eru félögin að skila góðri vinnu og það sýnir best árangur þeirra erlendis. Einnig hafa yngri landsliðin verið að gera það gott á erlendri grundu þrátt fyrir að við höfum ekki fjöldann sem aðrar þjóðir hafa. Þetta undirstrikar þá góðu vinnu sem er unnin. Lykillinn er góð þjálfun og hún er góð á flestum stöðum og mjög fjölbreytt. Ég yrði ekki hissa ef einhverjir af þessum lista færu út í atvinnumennska því þeir hafa þann metnað sem þarf, fyrir utan hæfileikana. Öflugt starf hjá HSÍ HSÍ hefur reynt að halda úti öflugu starfi fyrir unglinga- landsliðin og hefur t.d. ‘82-liðið farið í gegnum 4 ára ferli. Við byrjum alltaf þegar krakkarnir eru 13-14 ára og þá komum við þeim saman í handboltaskóla HSÍ. Það er fyrr en flest önnur sérsambönd. Síðan eru búin til verkefni fyrir þessi lið og reynt að hafa alltaf eitthvað í gangi, segir Heimir. Hér til hliðar má sjá 10 efnilegustu drengi landsins sem eru fæddir 1981 og síðar, að mati Heimis. Listinn er eftir stafrófsröð og síðan koma næstu tíu þar á eftir. -BG Einar Hólmgeirsson hefur leikiö vel meö ÍR í vetur þrátt fyrir aö vera einungis 18 ára gamall. Topp tíu listi Heimis Arnór Atlason (1984) vinstri skytta úr KA Arnór er mjög metnaðarfullur leikmaður sem ávallt leggur sig fram í leikjum. Góður varnarmaður og sterkur í gegnumbrotum. Hefur veriö að leika með þremur flokkum og hefur karl faðir hans, Atli Hilmarsson, þjálfari meistaraflokks KA, verið óhræddur við að nota strákinn í meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur. Ásgeir Hallgrímsson (1984) hægri skytta úr Haukum Góður í sókn og er fjölhæfur leikmaður sem getur leikið í stöðu hægri skyttu sem og hægra horn. Hefur yfir að ráða geysilegum stökkkrafti og hefur einnig fjölhæf skot. Eins og Arnór hefur Ásgeir verið að leika með þremur flokkum, 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki. Einar Hólmgeirsson (1982) hægri skytta úr ÍR Einar er mjög efnilegur og er griðarlega fylginn sér. Hefur verið að leika með meistaraflokki ÍR í vetur og staðið sig vel. Einar spilaði með landsliði drengja sem eru tveimur árum eldri en hann en þrátt fyrir þaö lék hann stórt hlutverk í liðinu. Þetta lið varð Norðurlandameistari. Hjalti Pálmason (1981) vinstri skytta úr Víkingi Hjalti er öflug skytta og voru miklar væntingar gerðar til hans þar til hann lenti í slæmum meiðslum. Hann virðist vera á góðri leiö með aö vinna sig út úr þeim. Er líkamlega sterkur ieikmaður og er fastur fyrir í vöm. Ingólfur Axelsson (1983) miöjumaður úr Fram Ingólfur er einstaklega mikill keppnismaður og ákveðinn að ná langt i handknattleiksíþróttinni. Ber ekki virðingu fyrir neinum andstæöingi. Mjög íjölhæfur leikmaöur og getur nánast spilað allar útleikmannastöður á vellinum. Hefur yfir að ráða fjölbreyttum skotstíl og er auk þess sterkur í gegnumbrotum. Markús Mikaelsson (1981) vinstri skytta úr Val Markús hefur sýnt undanfarin ár að þar fer eitt mesta efni á íslandi í dag. Metnaðarfullur leikmaður og var valinn efnilegasti leikmaöur Nissandeildarinnar 1999-2000. Hefur yfir að ráöa miklum skotkrafti og góðum skotum. Níels Benediktsson (1981) vinstri skytta úr Fram Níels hefur átt í meiðslum undanfarið ár en var farinn að banka á ? meistaraflokksdymar áður en hann meiddist. Virðist vera að vinna I sig út úr meiðslunum og verður öflugri með hverjum leiknum. Er mjög skotfastur og hefur gríðarlega góða fótavinnu. Leikur einnig vel Ólafur Víöir Ólafsson (1983) miöjumaöur úr HK Samviskusamur leikmaður og góður leikstjórnandi. Hefur njög gott auga fyrir spili og leikur samherja sína vel uppi. Er með góð skot og fjölbreytt gegnumbrot. Hefur verið að leika með meistaraflokki HK þrátt fyrir að vera enn þá i 3. flokki. Snorri Steinn Guöjónsson (1981) miðjumaöur úr Val Snorri er sonur íþróttafréttamannsins kunna Guðjóns Guðmundssonar og greinilegt að strákur hefúr fylgst vel með er hann fylgdi fóður sínum á landsliðsæfingar á fyrri árum. Er góð skytta og em undirhandaskotin stórhættuleg. Snorri er mikill leikstjómandi og hefur þrátt fyrir ungan aldur verið að leika sem aðaileikstjómandi meistaraflokks Vals. Vilhjálmur Halldórsson (1983) vinstri skytta úr Stjörnunni Vilhjálmur er mjög hávaxinn leikmaður og mikil skytta auk þess að vera sterkur vamarmaður. Er mjög samviskusamur og vill ná langt í íþróttinni. Er góður karakter sem þjálfari veit að leggur sig ávallt 100% fram. Nœstir inn á listann: Jón Þorbjöm Jóhannsson (1982) línumaður úr Fram, Lárus Jónsson (1982) miðjumaöur/vinstri skytta úr Fram, Elías Már Halldórsson (1982) hægri homamaður úr Aftureldingu, Kristján Andrésson (1981) miðjumaöur úr GUIF, Sigurður Eggertsson (1982) vinstri homamaður úr Val, Ólafur H. Gíslason (1981) markvörður úr Aftureldingu, Baldvin Þorsteinsson (1982) vinstri hornamaður úr KA, Fannar Þorbjömsson (1981) línumaður úr Val, Jón Björgvin Pétursson (1982) hægri hornamaður úr Fram, Kári Garðarsson (1981) markvörður úr KA, -BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.