Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 11
I MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 35 Sport DV ENGLAND Danny Murphy skoraði sigurmark Liverpool gegn Manchester United. Hér sést hann fagna markinu mikilvæga ásamt félögum sínum, Króatanum Igor Biscan og Steven Gerrard. Reuters Enska knattspyrnan: Manchester United tapaði á heimavelli í fyrsta sinn í tvö ár Danny Murphy tryggði Liverpool gríðarlega mikilvægan sigur á Manchester United á Old Trafford í gær með marki beint úr auka- spyrnu á 43. mínútu. Þetta var fyrsta tap Manchester United á heimavelli í tæp tvö ár en liðið hafði leikið 36 leiki á Old Trafford án þess að bíða ósigur. Leikmenn ensku meistaranna náðu sér aldrei á strik og máttu greinilega ekki við því að liðið vantaði Teddy Shering- ham, Andy Cole og Dwight Yorke. Ginola með stórleik Frakkinn David Ginola vann hugi og hjörtu stuðningsmanna Aston Villa þegar hann skoraði eitt mark og lagði upp annað í leiknum gegn Manchester City um helgina. Ginola lagði upp mark fyrir Dion Dublin á 71. minútu og jafnaði siðan 2-2 á 86. minútu með stórglæsilegu skoti af 25 metra færi, óverjandi fyr- ir Nicky Weaver, markvörð Manchester City. John Gregory, knattspyrnustjóri Aston Villa, sem hefur gagnrýnt Ginola upp á síðkastið fyrir að vera of þungur, var ánægður með sinn mann að leik loknum. „Markið sem hann skoraði var frábært. Hann verður betri og betri með hverjum leiknum sem líð- ur,“ sagði Gregory. Di Canio ieynir á sér Paolo Di Canio stal senunni í leik Everton og West Ham. Di Canio hefði getað tryggt West Ham sigur- inn á lokasekúndum leiksins þegar hann stóð einn fyrir opnu marki Ev- erton en í ljósi þess að Paul Gerr- ard, markvörður Everton, lá óvígur við vítateiginn ákvað Di Canio að taka boltann með höndum. Einstak- lega íþróttamannsleg framkoma frá manninum sem hefur veriö þekkt- ari fyrir annað háttalag á knatt- spyrnuvellinum. Áhorfendur Ev- erton voru hæstánægðir með ítal- ann en Harry Redknapp var forviða í leikslok. „Samherjar hans eru enn að sparka í hann. Þetta var óvenju- legt. Ég hef aldrei annað eins á knattspymuvellinum. Ég hélt að hann myndi skora,“ sagði Harry Redknapp. Armstrong byrjaði vel Framherjinn Alun Armstrong, sem Ipswich keypti frá Middles- brough í siðustu viku, var ekki lengi að vinna stuðningsmenn Ipswich á sitt band. Hann kom inn á sem varamaður í hálfleik gegn Southampton og skoraði tvö mörk sem tryggðu Ipswich sigurinn og þriðja sætið í deildinni. Hermann Hreiðarsson spilaði að vanda allan leikinn í vörn Ipswich. Arnar skoraði gott mark Arnar Gunnlaugsson kom inn á sem varamaður á 67. mínútu í leik Leicester og Charlton og rak jr ENGLAND allan tímann. Stoke er í sjöunda sæti deildarinnar með 33 stig eftir 20 leiki. Stoke City vann góðan útisigur á Bristol Rovers, 3-0, í ensku 2. deildinni á laugardaginn. Marka- hrókurinn Peter Thorne skoraði öll mörk Stoke í leiknum. Brynjar Björn Gunnarsson, Bjarni Guó- jónsson og Birkir Kristinsson voru allir í byrjunarliði Stoke, Rikhardur Daöason kom inn á sem varamaður á 67. mínútu en Stefán Þórdarson sat á tréverkinu Ólafur Gottskálksson og ívar Ingimarsson voru í byrjunarliði Brentford sem tapaði fyrir Wrex- ham, 2-1. Ólafur spilaöi allan leik- inn en ívar fór út af á 58. mínútu. Bjarnólfur Lárusson spilaði allan leikinn fyrir Scunthorpe þeg- ar liðið tapaði fyrir Barnet, 4-2. Bjarki Gunn- laugsson spilaði allan leikinn fyr- ir Preston sem tapaði stórt fyrir Gillingham, 4-0. Guðni Bergs- son átti frábæran leik í vörn Bolton sem vann góðan útisigur á Wimbledon, 1-0. Heiðar Helguson sat á vara- mannabekknum hjá Watford þegar liðið gerði jafntefli við West Brom á heimavelli, 3-3. -ósk smiðshöggið á góðan sigur Leicester með fallegu marki á síðustu mínútu leiksins. Arnar fékk sendingu frá Tim Flowers, markverði Leicester, stakk vörn Charlton af og vippaði boltanum yfir markvörð Charlton, Dean Kiely. Þetta var þriðja mark Arnars fyrir Leicester í vetur. Þetta mark Arnars féll í góðan jarðveg hjá stuðningsmönnum Leicester sem kalla hann „Tortímandann". Fyrsti heimasigurinn Middlebrough vann sinn fyrsta heimasigur á tímabilinu þegar Eiður Smári Guðjohnsen og félagar hans í Chelsea komu í heimsókn. Eiður Smári átti ágætan leik í liði Chelsea og var nokkrum sinnum nálægt þvi að skora. Middlesbrough náði einnig þeim áfanga í leiknum að halda marki sínu hreinu í fyrsta sinn í vetur. Claudio Ranieri, knattspymustjóri Chelsea, var ekki sáttur við tapið. „Við sköpuðum næga möguleika til þess að skora i leiknum en nýttum þá ekki. Það gerðu aftur á móti leikmenn Middlesbrough og því fór sem fór,“ sagði Ranieri. -ósk Úrvalsdeild Aston Villa-Man. City.......2-2 0-1 Alf Inge Haaland (65.), 1-1 Dion Dublin (71.), 1-2 Paolo Wanchope (73.), 2-2 David Ginola (86.). Derby-Coventry...............1-0 1-0 Malcolm Christie (8.). Everton-West Ham ............1-1 1-0 Steve Watson (75.), 1-1 Frederick Kanoute (84.). Ipswich-Southampton .........3-1 0-1 James Beattie (3.), 1-1 James Scowcroft (48.), 2-1 Alun Armstrong (51.), 3-1 Alun Armstrong (90.). Leeds-Sunderland ............2-0 1-0 Lee Bowyer (23.), 2-0 Mark Viduka (77.). Leicester-Charlton...........3-1 0-1 Jonatan Johansson (5.), 1-1 Ade Akinbiyi (35.), 2-1 Matt Elliott (78.), 3-1 Arnar Gunnlaugsson (90.). Middlesbrough-Chelsea.......1-0 1-0 Dean Gordon (71.). Newcastle-Bradford...........2-1 1-0 Gary Speed (13.), 2-1 Kieron Dyer (70.), 2-1 Robert Molenaar (86.). Man. Utd.-Liverpool .........0-1 0-1 Danny Murphy (43.). Staðan í úrvalsdeild Man. Utd. 18 12 4 2 44-14 40 Arsenal 17 10 4 3 29-13 34 Ipswich 18 10 3 5 27-18 33 Leicester 18 9 5 4 20-14 32 Liverpool 18 9 3 6 33-24 30 Sunderland 18 8 5 5 18-18 29 Newcastle 18 8 3 7 20-22 27 WestHam 18 6 8 4 24-19 26 Aston Villa 18 6 8 4 21-16 26 Leeds 17 7 4 6 24-23 25 Tottenham 17 7 3 7 25-26 24 Chelsea 18 6 5 7 32-25 23 Charlton 18 6 4 8 25-30 22 Everton 18 6 4 8 20-29 22 Southampt. 18 5 5 8 23-31 20 Man. City 18 5 3 10 25-32 18 Derby 18 3 7 8 21-35 16 Coventry 18 4 3 11 16-33 15 Middlesbr. 18 3 5 10 20-28 14 Bradford 18 2 6 10 13-30 12 1. deild: Crewe-Crystal Palace.........1-1 Fulham-Tranmare..............3-1 Gillingham-Preston............4-0 Grimsby-Norwich...............2-0 Portsmouth-Huddersfield......1-1 QPR-Nott. Forest..............1-0 Sheff. Utd.-Sheff. Wed.......1-1 Stockport-Barnsley ...........2-0 Watford-West Brom.............3-3 Wimbledon-Bolton..............0-1 Burnley-Blackburn ............0-2 Wolves-Birmingham ............0-1 Staöan: Fulham 22 17 4 1 53-16 55 Bolton 23 13 6 4 38-22 45 Birmingh. 22 13 4 5 33-21 43 West Brorn 23 12 5 6 32-27 41 Watford 21 12 4 5 41-25 40 Blackburn 22 11 6 5 33-22 39 Nott. For. 23 12 3 8 34-26 39 Preston 22 11 5 6 28-26 38 Burnley 22 11 5 6 25-24 38 Sheff. Utd. 23 10 6 7 25-23 36 Wimbledon 23 8 7 8 32-26 31 C. Palace 23 7 6 10 32-34 27 Portsm. 23 6 9 8 25-29 27 Barnsley 23 7 5 11 26-34 26 Gillingh. 23 6 7 10 29-34 25 Wolves 23 5 8 10 22-27 23 Tranmare 23 6 5 12 27-36 23 Norwich 22 6 5 11 19-29 23 Stockport 23 5 7 11 30-41 22 Grimsby 22 6 4 12 20-32 22 Sheff. Wed. 23 6 4 13 29-43 22 Crewe 23 6 4 13 18-32 22 QPR 22 3 11 8 24-35 20 Huddersf. 23 4 6 13 22-33 18 RADÐD DJÖFLARNIR Knattspyrnustjörnurnar í sögu Manchester United Ómissandi bók fyrir aila Rauða Djöfla. Ferð þú á Old Trafford? Sjá nánar á kápu bókarinnar. BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR_

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.