Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Qupperneq 12
36 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 Sport rr** spánn Úrslit: Alaves-Deportivo............3-1 0-1 Victor Sanchez (17.), 1-1 Javi Moreno (21.), 2-1 Javi Moreno, víti (26.), 3-1 Ivan Alonso (73.). Espanyol-Real Madrid........1-2 0-1 Fernando Morientes (4.), 0-2 Luis Figo (12.), 1-2 Mauricio Pochettino (21.). Rayo Vallecano-Barcelona . . . 2-2 1-0 Elvir Bolic (5.), 1-1 Gerard Lopez (8.), 1-2 Frank de Boer (66.), 2-2 Pablo Sanz, viti (73.). R. Sociedad-ViUareal.........0-2 0-1 Unai Bergara (21.), 0-2 Jorge Lopez (89.). R. Zaragoza-Las Palmas......3-1 1-0 Jose Ingacio (65.), 1-1 Tomas Olias, viti (69.), 2-1 Juan Esnaider (74.), 3-1 Yordi Gonzalez (82.). Celta Vigo-Mallorca..........2-2 1-0 Catanha (14.), 1-1 Ariel Ibagaza (24.), 2-1 Goran Djorovic (77.), 2-2 Javier Olaizola (89.). Osasuna-Numancia ............2-0 1-0 Mariano Armentano (64.), 2-0 Sabino Sanchez (90.). Oviedo-R. Santander..........1-0 1-0 Ivan Tomic (35.). Valencia-Malaga .............2-0 1-0 John Carew (42.), 2-0 Ruben Baraja (73.). Valladolid-A. Bilbao ........0-0 Staöan: Valencia 15 9 4 2 27-9 31 R. Madrid 14 9 2 3 31-17 29 Deportivo 15 8 4 3 25-14 28 R. Vallec. 15 6 6 3 32-22 24 Alaves 15 7 3 5 23-15 24 FRAKKLAND Úrslit: Bastia-Paris St. Germain.....1-1 Guingamp-Marseille ...........1-0 Lens-Bordeaux ................2-2 Metz-Lille ...................1-1 Mónakó-Rennes.................1-2 Nantes-Toulouse . ............3-2 Sedan-Strasbourg .............1-0 St. Etienne-Auxerre...........2-0 Troyes-Lyon ..................1-0 Staða efstu liða: Sedan 21 10 6 5 31-21 36 Nantes 21 11 3 7 36-28 36 HOLLAND Úrslit: NAC Breda-Vitesse ............1-1 Willem II-Fortuna Sittard ....3-1 Ajax-Twente ..................5-1 AZ Alkmaar-PSV Eindhoven ... 0-5 Graafschap-Utrecht............0-3 Groningen-Feyenoord ......... 1-0 Nijmagen-Roda ................0-2 Waalwijk-Sparta ..............2-0 Jóhannes Karl Guójónsson skoraði fyrra mark RKC Waalwijk. Roosendaal-Heerenveen.........0-3 Staða efstu liða: Feyenoord 15 13 1 1 39-15 40 Vitesse 17 11 4 2 36-23 37 BELGÍA Úrslit: Anderlecht-Aalst...............3-0 Beveren-Harelbeke .............2-1 Siguröur Ragnar Eyjólfsson var í byrjunarliði Harelbeke en fór út af á 21. mínútu. Charleroi-Westerlo ............2-2 Antwerpen-St. Truiden .........2-0 Gent-Beerschot ................3-1 Lierse-Mechelen ...............1-1 Lokeren-Standard Liege ........2-1 Auöun Helgason, Arnar Þór Viö- arsson, Rúnar Kristinsson og Arn- ar Grétarsson voru allir í byrjunar- liði Lokeren og skoraði Arnar Grét- arsson fyrsta mark Lokeren. Rúnari Kristinssyni var skipt út af á 90. mínútu. Mouscron-La Louviere .......0-0 Genk-Club Brúgge............0-1 Staða efstu liða: Cl. Brúgge 17 16 0 1 55-10 48 Anderlecht 17 14 3 0 50-13 45 -ósk RAUÐU DJOFLARNIR (Kn.Tttspyrniistjóriiuin.ii i sögu IVkmchester Unitcd * Luis Figo skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu þegar Real Madrid vann góðan útisigur á Espanyoi. Skoska knattspyrnan: Leikandi Larsson - skoraði þrennu gegn Aberdeen Sænski sóknarmaðurinn Henrik Larsson fór á kostum gegn Aber- deen og skoraði þrennu í 6-0 sigri Celtic. Larsson hefur þar með skor- að 26 mörk í 21 leik það sem af er keppnistímabilinu. Svisslendingur- inn Ramon Vega, sem er í láni frá Tottenham, kom einnig sterkur inn í sínum fyrsta leik fyrir félagið. Vega skoraði tvö mörk í leiknum. Celtic hefur nú 54 stig á toppi deild- arinnar, sjö stigum meira en Hi- bernian sem er í öðru sæti. Hibernian heldur áfram Hibernian, sem komið hefur liða mest á óvart í skosku úrvalsdeild- inni i vetur, heldur áfram góðu gengi. Hibemian vann öruggan sig- ur á St. Johnstone, 2-0, og virðist vera eina liðið sem ætlar að veita Celtic einhverja keppni í baráttunni um meistaratitilinn. Slæmt hjá Rangers Rangers missti af dýrmætum stig- um í toppbaráttunni i skosku úr- valsdeildinni í gær þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Dundee á útivelli. Þessi úrslit þýða að Rangers er tólf stigum á eftir Glasgow Celtic sem er í efsta sæti og fimm stigum á eftir Hibernian sem er í öðru sæti. -ósk Henrik Larsson skoraöi þrennu gegn Aberdeen. DV Út er komin bókin íslensk knattspyrna 2000 eftir Viði Sigurðsson. Þetta er tuttugasta bókin í þessum bóka- flokki sem hóf göngu sína árið 1981 en eins og áður eru raktir allir innlendir viðburð- ir í knattspymunni á árinu sem senn lýk- ur. Bókinni er skipt niður i kafla þar sem fjallað er um keppni í hverri deild íslands- mótsins fyrir sig, bæði í karla- og kvenna- flokki, um keppni yngri flokka, bikar- keppni KSÍ, landsleiki íslands, Evrópuleiki félagsliða og um atvinnumenn íslands á er- lendri grundu. Að auki eru í bókinni marg- víslegar upplýsingar um félög og leikmenn og fjölmargt annað sem viðkemur knatt- spyrnunni á Islandi. Þá eru í bókinni við- töl við Þormóð Egilsson, fyrirliða íslands- meistara KR, Margréti Ólafsdóttur, leikja- hæstu landsliöskonu íslands, Bjarna Jó- hannsson, þjálfara Fylkis, og Ríkharð Daðason, landsliðsmann og leikmann Stoke City, og við leilonenn úr öllum liðum í úrvalsdedd karla. í bókinni eru um 230 myndir af liðum og leikmönnum, margar þeirra í lit. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 176 bls., prentuð í prentsmiðjunni Jana Seta í Lettlandi. Leiðbeinandi verð: 4.480 krónur. Út er komin bókin Raudu djöflarnir - knattspyrnustjörnurnar i sögu Manchester United eftir Agnar Frey Helgason og Guðjón Inga Eiríksson. í bókinni eru helstu stjörnur Manchester United í gegnum tíðina kynntar. og má þar nefna David Beck- ham, Ryan Giggs, Bobby Charlton og Er- ic Cantona. í hverri bók er happdrættis- númer og fær einn heppinn eigandi bók- arinnar ferð fyrir tvo á Old Trafford. Bókin er 170 bls. og prentuð í prentsmiðjunni Hólum á Akureyri. Leiðbeinandi verð: 3.680 krónur. Út er komin bókin Stoke City - i máli og myndum eftir Guðjón Inga Eiríksson. íslendingaliðið Stoke City hefur verið mikiö í sviðsljósinu að undanförnu. Ástæðan er augljós. íslendingar eiga meirihluta í liðinu, auk þess sem knatt- spyrnustjórinn er íslenskur og fjölmarg- ir leikmanna liðsins einnig. í bókinni er saga félagsins rakin með sérstakri áherslu á „íslenska tímabilið". Bókin er 70 bls. og prentuð í prentsmiðjunni Hól- um á Akureyri. Leiðbeinandi verð: 2.680 krónur. Spænska knattspyrnan: Upprisa - Real Madrid vann um helgina eftir niðurlægjandi tap i vikunni Real Madrid rétti úr kútnum eftir niðurlægjandi tap í spænsku bikarkeppninni fyrir 3. deildar liðinu Toledo í síðustu viku. Evr- ópumeistararnir unnu góðan úti- sigur á Espanyol, 2-1, og hafa tap- að fæstum stigum allra liða i deildinni. Fernando Morientes skoraði fyrsta markið eftir góðan undirbúning Steve McManaman og Luis Figo bætti við öðru marki með glæsilegri aukaspyrnu. Valencia á toppinn Valencia komst á topp spænsku 1. deildarinnar með öruggum sigri á Malaga, 2-0. Norðmaðurinn John Carew skoraði fyrra mark Valencia en spænski landsliðs- maðurinn Ruben Baraja gull- tryggði sigurinn með marki á 73. mínútu. Valencia, undir stjórn Argentínumannsins Hector Cuper, hefur gengið allt í haginn á þessu keppnistímabili og virðist liðið ætla berjast um titla á öllum vígstöðvum. Fjórir án taps Barcelona virðist vera að rétta úr kútnum eftir heldur skrykkjótt gengi í upphafi tímabils. Liðið hef- ur nú leikið fjóra leiki í röð án taps og um helgina gerði liðið 2-2 jafntefli gegn spútnikliðinu Rayo Vallecano á útivelli. Barcelona var án Brasilíumannsins Rivaldo en hefði samt sem áður átt að sigra í leiknum ef mið er tekið af færum liðanna. Moreno skorar enn Deportivo La Coruna tapaði sín- um fyrsta leik eftir fimm leikja sigurgöngu þegar liðið sótti Ala- ves heim. Það kom þó fæstum á óvart því Deportivo La Coruna hefur aldrei unnið leik á heima- velli Alaves. Framherji Alaves, Javi Moreno, heldur áfram að raða inn mörkum. Hann skoraði tvö mörk og hefur þar með skorað 12 mörk það sem af er keppnis- tímabilinu og er markahæstur i deildinni. Alaves gengur flest í haginn þessa dagana. Ekki er langt síðan liðið sló norska liðið Rosenborg út úr Evrópukeppni fé- lagsliða og gengi liðsins í spænsku deildarkepnninni hefur heldur ekki verið slæmt. Liðið er í toppbaráttunni og þetta litla lið virðist vera að festa sig í sessi sem eitt af betri liðum Spánar. Enn tap hjá Las Palmas Las Palmas, lið Þórðar Guðjóns- sonar, tapaði sínum þriðja leik í röð þegar sótti Real Zaragoza heim. Argentínumaðurinn Juan Esnaider, sem Zaragoza keypti frá Juventus í síðustu viku, skoraði eitt af mörkum heimamanna. Þórður Guðjónsson var ekki í byrjunarliði Las Palmas en kom inn á sem varamaður á 77. mín- útu. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.