Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Side 14
Sport
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000
r>v
1
r
Karen Björk Björgvinsdóttir og Adam Reeve.
Atvinnudansparið Karen Björk Björgvinsdóttir og Adam Reeve:
pumeistarar
í tíu dönsum
- orðin eitt besta danspar heims
Það var ekki bara í
sundinu sem íslendingar
eignuðust Evrópumeist-
ara þvi atvinnudansparið
Karen Björk Björgvins-
dóttir og Adam Reeve
urðu Evrópumeistarar i
tíu dönsum á laugardag-
inn.
Evrópumeistaramótið i
10 dönsum í flokki at-
vinnumanna var haldið í
Bonn í Þýskalandi og
tóku þau Karen og Adam
þátt yrir íslands hönd.
5. sæti á HM
Um síðustu helgi
kepptu þau á heimsmeist-
aramótinu í 10 dönsum
sem fram fór í París sl.
laugardag og þá gerðu
þau sér lítið fyrir og end-
uðu i 5. sæti. Á einni viku
hafa þau því náð frábær-
um árangri á tveimur
stærstu mótunum og
sannað sig sem eitt besta
danspar heimsins sem
stendur.
Það var því mikil
spenna fyrir Evrópu-
mótið hjá þeim, ekki síst
þar sem þau náðu svo
góðum árangri á heims-
meistaramótinu. Þetta
var mjög sterk keppni,
sterkustu danspör Evr-
ópu mætt til leiks. Karen
og Adam dönsuðu alveg
einstaklega vel og náðu
þeim frábæra árangri að
vinna mótið og eru því
Evrópumeistarar í 10
dönsum i flokki
atvinnumanna árið 2000.
Óvæntur sigur
Að sögn Karenar var
sigurinn mjög óvæntur.
„Við ætluðum okkur að
vera inni í úrslitum og
helst ná betri árangri en
um síðustu helgi en þorð-
um ekki að vona að við
myndum sigra.“
Þekkt par í ööru
sæti
„í öðru sæti var geysi-
sterkt þýskt par sem er
mjög þekkt í heiminum.
Við erum nýtt par og ekki
eins þekkt og þau og átt-
um því síður von á þvi að
sigra á mótinu í Þýska-
landi. Við erum ákaflega
glöð og ánægð með sigur-
inn.“ Aldrei hafa íslend-
ingar náð svona góðum
árangri í samkvæmis-
dönsum áður, hvorki í
flokki atvinnumEmna né
áhugamanna.
-ÓÓJ
Guðmundur Harðarson sundfræðingur um framgöngu Arnar á Evrópumótinu um helgina:
Enginn meö tærnar
- þar sem Örn Arnarson hefur hælana í íslenskri sundsögu
Guðmundur Harðarson sundsér-
fræðingur gladdist eins og allir ís-
lendingar yfir hinum frábæra ár-
angri Arnar Arnarsonar um helg-
ina.
„Enginn íslenskur sundmaður
hefur náð með tæmar þar sem Örn
er með hælana. Eðvarð Þór Eðvalds-
son varð sjötti á Evrópumóti á löngu
brautinni og þriðji í Evrópubikar-
keppni á sama árinu og það var það
besta áður en Örn kemur svo sterk-
ur inn og Örn á núna ekkert annað
en framtíðina fyrir sér til að gera
betur.“
Er það taktlk hjá Emi að vinna
bara úrslitasundin en vera í
næstu sætum á eftir í undanúr-
slitum og milliriðlum?
„Undanrásimar eru eins og póker
hjá þessum bestu og þeir sem eiga
að vera ömggir í hópi þeirra 16
bestu reyna að sleppa sem auðveld-
ast í gegnum undanrásimar. Síðan
reyna menn líka að sýna keppinaut-
unum sem minnst. í milliriðlunum
reyna menn mun meira en eiga samt
alltaf eitthvað auka inni í úrslita-
sundinu. Þaö er tvimælalaust einn
af kostum Arnar hversu vel hann út-
færir sín sund.“
Öm kemur einnig sterkur inn
þegar liður á sundin:
„Öm er alltaf sterkur á seinni
hlutunum og síðasta fjórðungi vega-
lengdanna. Hann nær bæði forust-
unni í 100 og 200 metrunum í snún-
ingnum og kafsundstakinu fyrir síð-
asta fjórðung sundsins."
Mátti búast við að Örn bætti sig
svona á mótinu?
„Það er oft með þessa ungu sund-
menn aö þeir bæta sig á hverju móti
og eftir jœssar framfarir hjá Erni í
löngu brautinni í sumar gat maður
alveg búist við að hann gæti bætt sig
um hálfa til eina sekúndu, sem hann
og gerði.“
Hver stendur Örn í heiminum?
„Það má reikna með að allir þeir
þrír sem voru á undan Erni á
Ólympíuleikunum verði með á
heimsmeistaramótinu í 50 metra
laug næsta sumar. Örn er vissulega
meðal fimm bestu baksundsmanna í
heiminum en sú röð getur breyst
hvenær sem er. í Sydney var Öm
besti Evrópubúinn í 200 metra
baksundi og sannar það á þessu
móti að enginn annar Evrópubúi
sem situr heima á þessu móti getur
unnið hann, það er alveg klárt. Það
vantar þannig fullt af góðu sundfólki
á þetta Evrópumót en samt hefði
enginn sundmaður í 100 og 200
metra baksundi getað komið og unn-
ið örn núna.“
Nú er mikið álag á Emi og
hann er búinn að vera að í 10
mánuði. Er þetta ekki of mikið?
„Öm keppir ekki mikið en þetta
er bara það sem allt þetta sundfólk
gerir. Það æfir í 11 mánuði á ári og
flestir keppa miklu meira en hann.
Margir þeirra bestu slepptu mótinu
nú til að taka sér frí og eru síöan
byrjaðir að æfa núna til að undirbúa
mótið í sumar. Það er þeirra val en
þetta er bara það sem þeir bestu
verða að geta, annars eru þeir ekki
bestir. Keppni á Evrópumóti snýst
bara um það hver er bestur i hverri
grein á hverjum tíma og Öm er besti
baksundsmaðurinn á þessu móti,“
sagði Guðmundur að lokum. -ÓÓJ
Örn Ólafsson, faðir Arnar:
50 m sundiö
* - ásamt Evrópumetinu kom mest á óvart
öm Ólafsson, faðir Evrópumeist-
arans og -methafans Arnar Arnar-
sonar, hefur staðið þétt að baki son-
ar síns allan hans feril enda mikill
sundmaður sjálfur. Hann var auð-
vitað kampakátur með árangur
stráksins þegar DV náði tali af hon-
um.
- Kemur þessi árangur Arnar ykk-
ur í Firöinum á óvart?
„Það að hann fór svona vel undir
Evrópumetið og náði einnig eins
v góðum árangri í 50 m sundinu og
raun bar vitni er kannski það sem
mest kom á óvart. Ég átti von á því
að hann yrði sterkur í 100 og 200 m
greinunum."
- Hann viróist vera í mjög góðu
formi, hvaö hefur hann œft mikið
síöan Ólympíuleikunum lauk?
„Hann vinnur þetta i svokölluð-
um æfingahringjum. Hann náði
einmitt einum hring í undirbún-
ingnum fyrir mótið, mjög góðum
sem var laus við öll meiðsl og ann-
að slíkt. Það er skiptir sköpum.
Hann hefur æft mjög vel, það hefur
ekki verið betra síðan í mars.“
- Þannig aö nœst á dagskrá er
langþráö jólafrí?
„Já, hann hefur ekki átt fri síðan
í febrúar og því verður jólafríið ef-
laust kærkomið. En svo hefst undir-
búningurinn fyrir heimsmeistara-
mótið i sumar strax í janúar. Hann
fer reyndar aftur í skóla eftir ára-
mót - það er ef verkfallið leysist -
eftir að hafa tekið sér ársfrí."
- Nú er Örn einungis 19 ára.
Hvernig séröu nánustu framtíö hjá
honum?
„Maður veit auðvitað ekkert, ætli
það fari ekki allt eftir hugarfari og
árangri hverju sinni. Þetta er auð-
vitað kostnaðarsamt allt saman og
því að mörgu að huga.“ -esá
/ / $Æ$jup % Á;W
• . yJ
Foreldrar Arnar Arnarsonar, Örn Ólafsson og Kristín Jensdóttir, fögnuðu vel frábærum árangri sonarins.