Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Síða 4
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2001
I>V
Fyrsta barn ársins
er Skagamaður
- kom í heiminn tvær mínútur yfir sex - nafnið enn leyndarmál
DV, AKRANESI:__________________
Fyrsta barn ársins á Islandi
var 14 merkur og 52 sentímetra
langur drengur sem fæddist á
Sjúkrahúsinu á Akranesi kl.
06.02 að morgni nýársdags.
Stuttu síðar, eða kl. 06.03, fædd-
ist annað barn ársins eða aldar-
innar ef menn vilja telja svo.
Var það einnig drengur sem
fæddist á Fæðingardeildinni í
Reykjavík og var rúmar 16
merkur og einnig 52 sentímetr-
ar.
Drengurinn á Akranesi er
fyrsta barn þeirra Láru Elinar
Guðbrandsdóttur, 26 ára félags-
fræðinema, og Gunnars Berg-
mans Steingrímssonar, 27 ára
tölvunarfræðinema. Þau búa
bæði á Akranesi, Gunnar er frá
Akureyri en hún frá Akranesi.
Fyrir á Lára annað barn, Al-
exöndru Hlíf Jóelsdóttur, 6 ára.
„Sá litli átti að fæðast þann
30. desember á síðustu öld en
það er mjög ánægjulegt að eiga
fyrsta bamið á öldinni, ekki
bara vegna þess að hann er
fyrsta barnið á öldinni heldur
að hann er bamið manns og það
er fyrir mestu að hann er heil-
DV-MYND DVO
Fyrsta barn ársins
Taliö frá vinstri: Alexandra HlífJóelsdóttir, 6 ára, Lára Elín Guöbrandsdóttir, fyrsta barn
ársins á íslandi og Gunnar Bergmann Steingrímsson, faöir barnsins.
brigður,“ segir móðirin. „Við
óskuðum þess innilega að hann
myndi koma eftir áramót svo
hann ætti afmælisdag fyrst á ár-
inu,“ sagði faðirinn.
„Ég fór að finna fyrir verkjum
seinni partinn á gamlárskvöld
og síðan vildi hann koma í
heiminn, hann byrjar að koma
út kl. 05.55 og er kominn í heim-
inn 06.02,“ segir móðirinn. „Við
erum stolt af að eiga fyrsta barn
aldarinnar. Við vitum ekki enn
hvert þetta hefur áhrif á námið,
þaö á bara eftir að koma í ljós,
ef hann er rólegur og góður eins
og hann er núna þá verður þetta
ekki mikið vandamál en nám-
inu kemur eitthvað til með að
seinka, en þetta kemur hægt og
rólega. Við erum búinn að
ákveða nafnið. Við fórum í
gegnum mannanafnaskrána á
Netinu og notuðum útilokunar-
aðferðina en við gefum það ekki
upp hvað hann á að heita,“
sögðu þau Lára Elín og Gunnar,
foreldrar fyrsta barns aldarinn-
ar. Alexandra, 6 ára systir fyrsta
barns aldarinnar, sagði að það
yrði ekkert mál fyrir sig að
passa hann. -DVÓ
ÐV-MYND PJETUR
Vala fékk enn eina orðuna
Vala Flosadóttir, hin unga fjálsíþróttakona og bronsverðlaunahafi frá Ólympíuleikunum í Sidney, varmeðal þeirra fjórtán einstaklinga sem forseti íslands heiöraöi meö riddarakrossi
fátkaoröunnar í gær. Fimm þessara hafa starfaö aö málefnum íþróttahreyfingarinnar. Þeir sem þessa heiöurs uröu aönjótandi auk Völu eru: Elín Helga Hallgrímsdóttir, gæöastjóri í
Reykjavik, fyrir störf i þágu fiskverkafólks, Elísa Wíum fyrir vinnu að vímuefnavörnum, Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, fyrir íþróttastarf, Gunnar Egilsson klarínettuleikari fyrir störf aö
listum og menningu, Höröur Ágústsson listamaöur, Jónína Guömundsdóttur, fyrir störf i þágu lamaöra og fatlaðra, Júlíus Hafstein, fyrír störf aö félagsmálum og í opinbera þágu,
Kristín Rós Hákonardóttir, fyrir afrekí sundíþróttum, Kristleifur Þorsteinsson á Húsafelli, fyrir störf aö ferðaþjónustu, Páll Pálsson, útgeröarmaður í Grindavík, fyrir störf i sjávarút-
vegi og fiskvinnslu, Siguröur Hallmarsson, fyrrverandi skólastjóri á Húsavík, fyrir störf í þágu menningar og lista, Sveinn Áki Lúðvíksson, formaöur íþróttasambands fatlaöra, fyrir
störf í þágu íþrótta fatlaöra, Unnur Jónasdóttur, fyrrverandi formaöur Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, fyrir störf aö líknarmálum. -JBP
Veöriö í kvöld
Sóiargangur og sjávarföil
REYKJAVIK AKUREYRI
ESmSHlMi.
Sólariag i kvöld
15.47
15.03
Sólarupprás á morgun 11.16 11.28
Síödeglsflóö 23.58 04.31
Árdegisflóð á morgun 12.23 04.56
Skýringar á veðurtáknum
10°«— HITI
-io;
VrosT HBÐSKÍRT
Oj
VINDSTYRKUR
5 metrum á sekúndu
IETTSKYJAÐ HALF-
SKÝJAÐ
SKYJAÐ ALSKYJAÐ
Léttskýjað sunnan og vestan til
Norðlæg átt, 5-10 m/s norðvestanlands en
15-23 um landiö suöaustanvert. Snjókoma
eða él noröanlands en léttskýjað sunnan og
suðvestan til. Frost víða 2 til 7 stig.
v,v W/
RIGNING SKÚRIR SLYDDf
^
SLYDDA SNJOKOMA
EUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- POKA
VEOUR RENNINGUR
Ailt eftir v
..
aWtóhJ
Afram frost
Landsmenn þurfa aö klæða sig vel
næstu daga því þaö veröur áfram frost
en þaö verður þó heldur minna en veriö
hefur.
Norðlæg átt víða um land
Norölæg átt, víöa 8-13 m/s en 13-18 á annesjum austanlands. Él eða
snjókoma um landiö norðan- og austanvert en yfirleitt léttskýjaö
suövestanlands. Talsvert frost í fyrstu en fer síðan minnkandi.
Miðvikuda
■Jiw
Vindur: ( viy
8-18 m/s \ S
Hiti -2“ «1-7° '
Norólæg átt. Él eóa
snjókoma um landló
noróan- og austanvert en
yflrleitt léttskýjaö
suövestanlands.
Fimmtudagu
Vindur:
8—18 irv'»
't
o
Hiti -2° til -7” ®Vo®
Norölæg átt. Él eöa
snjókoma um landiö
noröan- og austanvert,
léttskýjaö suövestan-
lands.Talsvert frost í fyrstu
en fer síöan mlnnkandl.
Vindur: f
8-18 m/* y
Hiti -2” til -7°
Norölæg átt, víöa 8-13
m/s en 13-18 á annesjum
austanlands. Él eöa
snjókoma um landlö
noröan- og austanvert en
léttskýjaö suövestanlands.
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Frá framkvæmdum viö nýja 40 hektara at-
hafnasvæöiö í Bjargslandl.
Framsæknar hugmyndir:
Egill Skallagríms-
son I Borgarnes
á nýjan leik
DV, BQRGARBYGGD:____________
I Borgarnesi eru uppi framsækn-
ar hugmyndir bæði um að efla at-
vinnustarfsemi sem fyrir er og hefja
nýja. Senn hefjast framkvæmdir við
byggingu nálægt 40 íbúða á lóðum
sem úthlutað hefur verið.
Deiliskipulag fyrir tvær nýjar götur
fyrir um 60 ibúða byggð er auk þess
í kynningu. Unnið hefur verið
rammaskipulag fyrir 40 hektara at-
hafnasvæði ofan við Borgarnes sem
þarf að vera til reiðu fyrir uppbygg-
ingu atvinnulifs í Borgarnesi á
næstu árum.
Þar er meðal annars gert ráð fyrir
að Byggingarvörudeild KB verði með
starfsemi sína og Ölgerð Egils Skall-
grimssonar með átöppunarverk-
smiðju fyrir vín. Er það við hæfi að
landnámsmaðurinn hverfi aftur til
sinnar heimabyggðar. -DVÓ
Rannsókn
morðmáls á
lokastigi
Að sögn lögreglunnar i Kópavogi má
búast við því að rannsókn á morðinu á
Einari Erni Birgissyni, 27 ára gömlum
Kópavogsbúa, ljúki í næsta mánuði.
“Vonir standa til þess að þá vérði
hægt að senda málið til ríkissaksókn-
ara,“ sagði Grétar Sæmundsson, yfir-
maður rannsóknardeildar lögreglunnar
í Kópavogi.
Atli Helgason, 33 ára gamall við-
skiptafélagi Einars Amar, hefúr viður-
kennt að hafa orðið meðeiganda sínum
að bana í byrjun nóvember en þeir voru
nýbúnir að opna saman tiskuvöruversl-
un. Að ódæðisverkinu loknu faldi Atli
lík Einars Amar en viku síðar benti
hann lögreglu á felustaðinn. Ath hefur
verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til
15. mars næstkomandi. Morðvopnið hef-
ur ekki fundist. Grétar sagði margar
sögusagnir hafa verið í gangi varðandi
þetta mál en flestar úr lausu lofti gripn-
ar. Ekki er talið að Atli hafi átt sér vit-
orðsmann að ódæðisverkinu.
Niðurstöður úr DNA-rannsóknum
hafa borist frá Noregi en enn bíður lög-
reglan annarra tæknirannsókna og á
lögreglan von á þeim í janúar. -SMK
I Veðrið kl. 6 VÍMj -' '
AKUREYRI snjókoma -3
BERGSSTAÐIR skafrenningur -4
BOLUNGARVÍK snjókoma -4
EGILSSTAÐIR -2
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -2
KEFLAVÍK léttskýjaö -3
RAUFARHÖFN frostrigning -1
REYKJAVÍK léttskýjaö -3
STÓRHÖFÐI léttskýjaö -3
BERGEN snjókoma 1
HELSINKI slydda 1
KAUPMANNAHOFN slýdda 2
OSLO
' STOKKHÓLMUR þokumóða -2
ÞÓRSHÖFN rigning 3
ÞRÁNDHEIMUR snjókoma 1
ALGARVE súld 16
AMSTERDAM þokumóöa 4
BARCELONA léttskýjað 16
BERLÍN skýjað -1
CHICAGO skýjaö -11
DUBUN skúrir 10
HALIFAX snjóél 1
FRANKFURT rigning 2
HAMBORG frostrigning -1
JAN MAYEN hálfskýjaö -6
LONDON skýjaö 11
LÚXEMBORG frostrigning 0
MALLORCA skýjað 15
MONTREAL -10
NARSSARSSUAQ léttskýjaö -13
NEW YORK léttskýjaö -4
ORLANDO skýjað 0
PARÍS rigning 7
VÍN léttskýjaö 2
WASHINGTON heiðskfrt -8
WINNIPEG heiðskírt -25
BYGGT A UPPLYSINGUM FRA VEOURSTOFU ISLANDS