Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Page 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2001
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2001
31
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun hf.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aóstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plötugerð: isafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Allt mun breytast
Þeir, sem nú fæðast inn í nýja öld og nýtt árþúsund,
munu sennilega flestir lifa svo lengi, að þeir nái að deyja
frá allt öðruvísi heimi en við þekkjum núna. Breytingarn-
ar verða enn meiri en þær hafa orðið á æviskeiði þeirra,
sem fæddust fyrir einni öld og urðu langlífir.
Stórmál 20. aldar munu vikja fyrir öðrum stórmálum á
21. öld. Kotbúskapur strjálbýlis hefur þegar vikið fyrir há-
skólagreinum þéttbýlis, svo að byggðastefna mun síður
flækjast fyrir okkur í framtíðinni. Veiðimennska sjávarút-
vegs mun fljótt breytast í skipulegt fiskeldi.
Með farsælli skipan lífeyrismála mun barátta kynslóð-
anna ekki verða hörð á öldinni. Þegar hver safnar sjálfur
sínum lífeyri, mun breytt aldursskipting ekki leiða til
pólitískra illdeilna um tekjuskiptingu. Stéttabarátta 20.
aldar er þar á ofan nánast horfin um þessi aldamót.
Baráttan um auðlindimar var hörð undir lok aldarinn-
ar, en mun ekki einkenna nýja öld vegna ört minnkandi
vægis sjávarútvegs. Baráttan um réttlætið var hörð undir
lok aldarinnar, en mun ekki einkenna nýja öld vegna auk-
innar auðsældar og betri trygginga.
Við sjáum nú þegar, að gömul flokkaskipting á grunni
baráttu milli byggða, atvinnuvega, aldurshópa, kynja og
stétta, hefur leitt til miðjumoðs, sem þýðir í raun, að
gömlu ágreiningsefnin eru að deyja. Til sögunnar koma
ný ágreiningsefni, sem flokkakerfið á eftir að höndla.
Þátttaka okkar í fjölþjóðlegu samfélagi auðveldar okkur
aðlögun að nýjum tíma. Stóru þjóðfélögin á Vesturlöndum
taka yfirleitt miklu fyrr en við á vandamálum og búa til
margvíslega ramma, sem íslendingar verða að hlíta og
vilja hlíta til þess að geta áfram skipt við útlönd.
Umhverfi mannkyns verður eitt af allra stærstu málum
21. aldar. í auknum mæli verða þjóðir heims að taka sam-
an höndum til að hindra varanleg umhverfisslys. Fyrstu
skrefin hafa verið stigin, svo að ekki er ástæða til að efast
um, að þjóðum heims muni takast þetta.
Lok síðustu aldar einkenndust af hatrömmum ágrein-
ingi íslendinga í umhverfismálum. Allra fyrstu loturnar
hafa þegar verið háðar í baráttu, sem mun i auknum mæli
kljúfa þjóðina í ósættanlegar fylkingar, sem munu berjast
um pólitísk völd í landinu á næstu áratugum.
Ný stéttaskipting mun leysa eldri skiptingar af hólmi.
Þjóðfélagið mun i auknum mæli skiptast í fjölmennari
hóp hinna afskiptalausu og fámennari hóp hinna virku.
Hinir afskiptalausu munu deyja lifandi inn í sjónvarps-
skjáinn og sólarströndina og einkalífið yfirleitt.
Hinir virku munu hafa aðgang að mun betri þekkingu
á nýhafinni öld en forverar þeirra höfðu á hinni síðustu.
Þeir verða vel í stakk búnir til að stjórna vestrænu nú-
tímasamfélagi á skynsaman hátt í umboði hinna, sem sitja
fyrir framan skjáinn og hafast ekki að.
Fólk er þegar að öðlast færi á lífsstíl, sem felur í sér
bætt mataræði, góða hreyfingu, aukin afskipti af samfé-
laginu og annað það, sem gefur lífinu fyllingu og tilgang.
Það verða ekki lengur fáir útvaldir, heldur fjöldi manns,
sem lifir lengi og lifir vel fram í háa elli.
Lífsstíll hinna aðgerðalausu mun hins vegar verða
margfalt dýrari vandi á nýrri öld. Sífellt dýrari aðgerðum
og dýrari lyfjum verður beitt til að hjálpa þeim, sem missa
heilsuna framan við sjónvarpið og eru ófærir um að taka
ábyrgð á eigin lífi, eigin heilsu og eigin afskiptaleysi.
20. öldin snerist um að skaífa og skipta. Hin 21. mun
hins vegar snúast um nýjan lífsstíl og nýja stéttaskiptingu
og ný viðhorf til stöðu mannkyns í náttúrunni.
Jónas Kristjánsson
Skoðun
Óslóartréð
„Heimaland forfeðra okkar minnir á tilveru sína og við fáum
sent jólatré frá Osló og á það hengjum við jólaljós. Skyldu ein-
hverjir fá heimþrá? - Löngun til þess að fá sér spássitúr eftir
Karl Johan götunni í heimabæ Óslóartrésins?“
Útþráin er enn söm við sig
og hefur minnt á sig þessa
dagana á Austurvelli þar
sem reist var jólatré á hæð
við alþingishúsið. Óslðarbú-
ar senda okkur tréð og við
getum virt það fyrir okkur í
hjarta bæjarins sem land-
námsmaðurinn Ingólfur
Arnarson lagði grunninn að.
íslensk saga hefst með
Reykjavík og því harla eðli-
legt að þar standi okkar höf-
uðstaður. Óslóartréð sómir
sér vel í öllum þessum sögulega upp-
runa, steinsnar frá Aðalstræti sem
álitið er að legið hafi upp að dyrum
frumbyggjans Ingólfs Arnarsonar.
Tvær aöskildar þjóðir
Óslóartréð minnir á skógi vaxna
heimahaga sína, en hjá okkur er ber-
angurslegt í öllu skógleysinu. En
hvort er bjarminn nú meiri yfir trénu,
frekar en innflytjendunum sem komu
hingað að óbyggðu landi, yfirgáfu
skóglendið heima fyrir, og byggðu
heimili sitt innan um runna og hrísl-
ur? Hvernig gat nokkrum vitibornum
manni dottið í hug að snúa baki við
landkostum í Noregi og setj-
ast að í svo hrjóstrugu landi?
Bjartsýnin hefur augljóslega
ráðið ferðinni en hér hafa Is-
lendingar búið kynslóð fram
af kynslóð.
í samanburði við Noreg
hefur hér aldrei verið skóg-
ur sem höggva mátti til
húsa- og skipagerðar. Þetta
hlýtur forfeðrum okkar að
hafa verið ljóst alla tíð, ekki
síst þeim sem komu hingað
beint frá vesturströnd Nor-
egs. Samt létu þeir sig hafa það í ár og
daga að búa hér á þessari eyju, svo
ljóst má vera að á íslandi og í Noregi
búa í dag tvær aðskildar þjóðir, þær
aðskilur eitt reginhaf sem við reynum
að lýsa þegar við ræðum um íslenska
og norska sögu.
Sjálfstæöismissir
Vissulega skarast þessi saga veru-
lega og ástæðulaust er að gleyma stór-
veldinu Noregi sem lét hálshöggva
Snorra Sturluson, höfund
Heimskringlu, ævisögu Noregskon-
unga, og ástæðulaust er að gleyma því
heldur að stórveldið Noregur lagði
undir sig ísland. Stórveldisdraumar
Noregskonunga urðu til þess að ísland
flæktist inn í valdatafl erlendra þjóð-
höfðingja um aldir og skortur á efna-
hagslegri fótfestu (í því sambandi má
nefna skóginn) varð til þess að ísland
tók ekki að rétta úr kútnum fyrr seint
og um síðir.
Það liggur hins vegar i samskiptum
okkar við Noreg hvemig Islendingar
misstu sjálfstæði sitt og vissulega eiga
þeir sinn þátt í þeirri raunarsögu sem
gerendur. En í þvi sambandi má
minna á að þetta varð líka hlutskipti
Norðmanna sjálfra svo sem sjá má á
því að heimaborg Óslóartrésins hét
Hlustað á sinn innri mann
„Þegar hátíð fer í hönd, búa menn
sig undir hana, hver á sína vísu. Slíkt
er hægt að gera með mörgu móti.“
Þannig hefst Aðventa Gunnars Gunn-
arssonar þar sem segir frá Benedikt
sem fór á hverri jólaföstu að leita eft-
irlegukinda sem ekki rötuðu til
byggða. Þetta voru þó engan veginn
kindurnar hans heldur annarra
manna rollur. Það skipti ekki máli.
„Það sem fyrir honum vakti, var blátt
áfram ekkert annað en það, að fmna
þær og koma þeim heilu og höldnu
undir þak, áður en hátíðin mikla
breiddi helgi sína yflr jörðina og fyllti
friði og velþóknun hugi þeirra
manna, sem gert hafa getu sína.“
Þessi umbun minnir óneitanlega á
friðinn á jörðu með þeim mönnum
„sem hann hefur velþóknun á“ en það
er önnur saga.
Að glíma við vanda
Ekki er þess getið að Benedikt hafl
þekkt vofuna „kulnun“ sem talað er
um en enginn getur hönd á fest. Leið-
indi eru kölluð svo til að láta líta svo
út að um eitthvað nýtt sé að ræða, en
auðvitaö eru streita og leiðindi ekk-
ert ný fremur en Grýla og Leppalúði.
Manneskjan er söm við sig hvað sem
öldin heitir. En hvað er til ráða til að
kveða niður drauginn,
hvort sem hann heitir jóla-
kvíði, jólastreita eða kuln-
un? „Það sem mestu máli
skiptir er hvemig tekist er
á við vandann" segir Kirsi
Ahola, finnskur sálfræð-
ingur í nýlegri grein. Þar
skilur á milli feigs og
ófeigs.
Sálfræðingurinn notar
reyndar orðið „coping" í
þessu sambandi en það er
þýtt sem „að ráða við“ eða
„glíma við vanda“. Ahola
mælir með því að hver og einn reyni
að flnna sína leið. Fyrsta skrefið sé að
doka aðeins við, hlusta eftir rödd
hins innra manns, meta hvernig
gangi að glíma við drauginn og
hvernig manni líði eiginlega þegar
betur er að gáð. Margir missi sam-
bandið við sjálfa sig á hlaupum milli
vinnu, dagheimila, stórmarkaða og
heimilis.
Þótt við gerum okkur ekki alltaf
grein fyrir því er innri maðurinn
alltaf að gefa okkur merki. Ef við
erum reið er líklegt að einhver hafi
reitt okkur tU reiði. Ef við erum leið
þurfum við kannski að breyta ein-
hverju svo að við finnum gleðina aft-
ur. Reynið að komast að því hvar
hundurinn liggur graflnn og bæta úr
því eftir fóngum, segir Ahola.
Einmitt um áramótin
Um áramótin kemur sá tími þegar
margir staldra við og hugsa sinn
gang. Hugsa um árið sem var að líða
og árið sem fram undan er. Allir ættu
að taka sig til og endurskoða mark-
mið sín og áætlanir öðru
hvoru. Ahola bendir á að
væntingar- og langanir breyt-
ast með tímanum. Þegar bet-
ur er að gáð er kannski verið
að strekkja eftir einhverju
sem var mikUvægt einu sinni
en er það ekki lengur. Sumir
keppa eftir því að bæta sig
stöðugt og gera getu sína, aðr-
ir vUja ná sýnUegum árangri
og frama. Hvað hentar þér?
Markmiðin ættu að vera
raunhæf og nægUega eftir-
sóknarverð. Þegar markmið-
in í vinnunni eru þokukennd og fjar-
læg, ef ekki hreint og beint ósýnUeg,
getur hjálpað að setja sér fáein
skammtímamarkmið á hverjum degi.
Það byggir upp sjálfstraustið að sjá að
kvöldi að verkefnum dagsins er lokið.
Mest um vert er að reyna að gæða
dagana innihaldi og gleði því að eng-
inn veit hvað morgundagurinn ber í
skauti sér.
Ahola telur að það sé í raun skyn-
samlegt að láta sér nægja að vinna
átta tíma á dag. Fjölskylda, vinir,
hvUd og áhugamál hjálpi tU við að
losa um streitu og álag. Lífið sé sam-
sett úr mörgum bútum sem þurfi að
vera í jafnvægi - vinnan sé aðeins
hluti af heUdarpakkanum.
Hvemig ætli þetta hafl nú verið hjá
honum Benedikt sem fór tU flaha um
hávetur í leit að nokkrum villuráf-
andi sauðum sem hann átti ekki einu
sinni? Hann hélt ótrauður sínu striki.
Hann hlustaði á sína eigin rödd.
Kannski við ættum öU að doka við og
hlusta grannt - einmitt um áramótin.
Hólmfríður Gunnarsdóttir
- íA' -.y * •*"*•'t.2..*'**.r.« »•.
\ • * . * • v'. ■ • 3*. *"t '
gfjgj
•:........r> ,••.
„Um áramótin kemur sá tími þegar margir staldra við
og hugsa sinn gang. Hugsa um árið sem var að líða og
árið sem fram undan er. Allir ættu að taka sig til og
endurskoða markmið sín og áœtlanir öðru hvoru. “
- Áramót í Reykjavík.
Með og á móti
Var áramótaskaupið gott?
Stórfínt
Menn setjast nið-
ur og horfa á ára-
mótaskaupið með
miklar væntingar
hverju sinni,
kannski of miklar. Of miklar
væntingar geta leitt tU von-
brigða. En skaupið að þessu
sinni fannst mér alveg prýði-
legt um flest, það var létt
stemning yfir þessu og góður
húmor. Mér finnst þessi stund
órjúfanlegur hluti af hefðinni. Það er
alveg bráðnauðsynlegt að kveðja hvert
ár með svolitlu glensi og rifla um leið
upp fréttnæma atburði ársins sem er
að líða.
Þama var mætt til leiks landsliðið í
spaugsemi, gömlu Spaugstofustrákarn-
ir bera af, Siggi Sigurjóns, Randver,
Pálmi og Öm. Þessir strákar'
þurfa varla annað en að láta
sjá sig fyrir framan myndavél-
ina og menn veltast um af
hlátri. Pálmi í gervum ýmissa
mjög ólíkra íslendinga, eins og
Steingríms Hermannssonar og
Ólafs Ragnars Grímssonar, er
óborganlegur. Og það er Örn
líka í gervi Davíðs Oddssonar.
Ég tók eftir því aö mönnum
þóttu atriðin misjafnlega
skemmtileg. Enginn hefur eins kímni-
gáfu. Mér þótti þessi bílalyklaatriði
bara ekkert sniðug en það þótti mínum
betri helmingi hins vegar meinfyndið.
Svona er smekkurinn fyrir gríni mis-
jafn. En ég mæli með þessu ára-
mótaskaupi sjónvarpsins, það hefur
verið betra, en var alveg prýðilegt.
Aumingjalegt
Miðað við hvað
árið var fullt af
pappalöggum, gull-
klósettum, ein-
kennilegum uppá-
komum og skandölum al-
mennt í þjóðfélaginu var ára-
mótaskaupið einkennilega bit-
laust og ófyndið.
Handritshöfundar, sem við
vitum ekki hverjir eru,
reyndu að gera grín að
annarri sjónvarpsstöð og
beindu spjótum sinum að Skjá einum.
Slíkt er ekkert annað en aumingja-
skapur af Ríkissjónvarpinu. Ég hélt að
það yrði auðvelt að gera skaupið í ár
en svo reyndist ekki vera.
Maður beið eftir ákveðnum atriðum
sem aldrei komu. Og hvaða hvatir
lágu að baki þvi að gera lítið
úr Björk eins og þarna var
gert?
Handritið var vont, enda
enginn skrifaður fyrir því. Ég
var í stórboði með yfír 20
manns þar sem voru bæði
unglingar og eldri borgarar og
enginn hló - ekki eitt bros.
Ég hélt að tilgangurinn með
skaupinu ætti að vera að sýna
okkur atburði liðins árs í spé-
spegli.
Ef Ríkissjónvarpið getur ekki gert
betur en þetta ætti það bara að hætta
þessu eða þá að fela einhverjum öðr-
um verkið. Kannski verða ára-
mótaskaup framtíðarinnar á Skjá ein-
um. Þar eru menn ekki svona hug-
myndasnauðir.
Sigurður
Þórðarson
kaupmaöur
Sif
Gunnarsdóttir
menningar-
fræöingur
Þjóðin safnaðist saman fyrir framan sjónvarpið á gamlárskvöld til að horfa enn einu sinni á áramótaskaupið. Skoðanir eru skiptar um ágæti skaupsins.
fram til ársins 1925 Kristjanía I höfuð-
ið á Kristjáni IV Danakonungi.
Skyldu einhverjir fá heimþrá?
En Norðmenn létu sér ekki nægja
að eigna sér Island og sölsa þannig
undir sig afkomendur eigin þjóðar
heldur snéru þeir líka baki við ís-
lenskri menningu. Um aldir afbökuðu
þeir svo eigið mál að það er einungis
skylt þeirri norrænu sem hér er enn
töluð. Hvernig gat nokkrum manni
dottið í hug að afbaka islenskuna
svona eins og nútíma norska hljómar?
Þótt Norðmenn hafi reynt að taka sér
Islendinga til fyrirmyndar á seinni
tímum er árangurinn umdeilanlegur.
Varla telst það vera þjóðarstolt Islend-
inga að tala tungumál sem á sér sama
bakgrunn og þetta barnamál sem
norsk tunga óneitanlega er?
En okkur er rétt fram sáttarhönd
um jólin. Heimaland forfeðra okkar
minnir á tilveru sína og við fáum sent
jólatré frá Ósló og á það hengjum við
jólaljós. Skyldu einhverjir fá heimþrá?
Löngun til þess að fá sér spássitúr eft-
ir Karl jQhan götunni í heimabæ
Óslóartrésins?
Trausti Einarsson
Ummæii
Ríkið og eignir þjóðarinnar
„Það er ekki hlut-
verk ríkisvaldsins fyr-
ir hönd þjóðarinnar
að leggja undir sig
eignir hennar, heldur
að setja almennar
reglur um innbyrðis
viðskipti og samskipti
landsmanna sem skapa þessi verð-
mæti. Það er hlutverk ríkisvaldsins að
úthluta alls kyns verðmætum, réttind-
um, flármunum, eignum og auðlind-
um ... En grundvallarsjónarmiðið ætti
að vera það að ríkisvaldið afsetji þessi
verðmæti aðeins einu sinni í upphafi
en láti landsmenn um að höndla með
þessi gæði sín á milli eftir að þeim
hefur verið skipt upp í upphafl."
Jóhann J. Ólafsson, stórkaupmaöur og
lýðveidissinni, í Mbl. 29. desember.
Mannlíf sskipulegg j endur
„Fjölmiðlamenn segjast hafa skyld-
um að gegna við „almenning“. Almenn-
ingur eigi „rétt“ á upplýsingum um
allt milli himins og jarðar. Heilbrigðis-
og vandamálaiðnaðurinn krefst að-
gangs að upp-
lýsingum um
þig i nafni vísindanna. Ef þú streitist á
móti verður ekki hægt að komast að
rót vandans eða lækna sjúkdóma ...
Allt sem þú færð frá ríkinu er háð því
að þú gefir ítarlegar upplýsingar um
hagi þína. Að lokum bætast við hinar
ljúfu skyldur þinar til að afhenda yflr-
völdum nákvæma útlistun á hverjum
eyri sem þér hefur áskotnast. Ef þú
hefur verið svo vitlaus að leggja fyrir
með einhverjum hætti skaltu gera ná-
kvæma grein fyrir því svo skattleggja
megi það sérstaklega."
Úr Vef-Þjóðviljanum 29. desember.
Að þörfum ráðuneytis
„Ekki kemur á
óvart, að alræmd
reglugerðin um tekju-
tryggingu standist
ekki lög, enda koma
reglugerðir aldrei til
kasta löggjafarvalds-
ins. Hver reglugerðin
á fætur annarri er samin í ráðuneyt-
um og sniðin að þörfum ráðuneytanna
eða í besta falli þörfum ráðherrans, ef
hann hefur bein í neflnu til að stand-
ast ráðuneytisfólkinu snúning ... í dag
er ekkert löggjafarvald til á íslandi
heldur bara framkvæmdavald ... Að
vísu stendur Alþingi illa að vígi að
þurfa allt í einu að takast á við laga-
gerð því þingmenn hafa aldrei gert
ráð fyrir þeim óþægindum sem fylgja
því að semja lögin sjálfir. Alþingis-
menn eru fæstir af líkama og sál sem
þarf til lagagerðar, og þeir buðu sig
fram til þingsetu á öðrum forsendum
en lögsögu."
Ásgeir Hannes Eiríksson verslunar-
maður í Degi 29. desember.
^Þióðviliinn
Mikið, meira,
Gamlar myndir frá síð-
ustu aldamótum sýna prúð-
búið fólk að spóka sig í al-
menningsgörðum stórborga.
Karlmenn gefa ungum kon-
um auga og sýna viðeigandi
„honnör“. Fólk fylgist náið
með umhverfinu og klæðn-
aði, en umræðuefni snýst
um allt sem fyrir augu ber;
myndirnar framkalla nú for-
tíðarþrá þótt þá væri
skammt í tvær heimsstyrj-
aldir. Hefur eitthvað mikil-
vægt farið forgörðum eða er fólk nú
haldið tálsýnum?
Ef gengið er um Central Park í
New York eða Hyde Park í London,
sér maður algjört afskiptaleysi; augu
eru falin bak við spegilgler og leggja-
berar ungmeyjar með kaskeiti bruna
um á línuskautum og sjá ekkert
nema þústir sem víkja verður hjá.
Karlmenn í skokkfatnaði hlaupa
másandi og skilja eftir sig svitafnyk.
Allir virðast reknir áfram aí ein-
hverju markmiði, en aðrir geta ein-
göngu getið sér til um það ef þeir
nenna því yfirleitt. Einn vill megra
sig, annar ætlar að halda formi og sá
þriðji er haldinn skokkflkn eða er
bara að drepa tímann.
Villuráfandi í allsnægtum
Upplýsingaþjóðfélagið býður upp á
vitneskju um allt og ekkert; sumum
finnst sem fólk viti nú stöðugt meira
um lítið eða ekki neitt. Öðrum geng-
ur illa að átta sig á því hvað skiptir
máli og hvað það er sem rekur sumt
fólk áfram. í allri ofgnóttinni er til
fólk sem veit nánast ekk-
ert út fyrir sínar þröngu
þarfir. Oft er vitnað í
Bandaríkin í þessu efni en
óvíða eru andstæðurnar
meiri. í verslunarmiðstöð
kemur tröllslegur og síl-
spikaður maður út úr ís-
búð og er að borða risa-
skammt af ís. Hann veit
ekki einu sinni hvað hon-
um sjálfum er fyrir bestu
og þú spyrð hann um
stefnu forsetaframbjóðend-
anna; hann hefur enga skoðun, enda
er honum alveg sama.
Allsnægtimar gera fólk afskipta-
og áhugalaust, en samt kýs það
valdamesta mann heimsins. Svelt-
andi fólk i þróunarlöndum fær ekki
einu sinni að kjósa sér yfirvöld sem
fengju engu breytt hvort sem er.
Hvaða þekking er
nauðsynleg?
Framtíðin er eitthvað sem komast
verður í gegn um. Hvaða þekkingu
þarf fólk að hafa til að geta horfst i
augu við framtíðina eða bara hrein-
lega lifað hana af? Verða menn að
þekkja Goethe og Shakespeare til
þess að skynja sjálfan sig og tilver-
una á upplýsingaöld? Er kannski nóg
að hafa vald á tímabundinni tækni,
sem gagnast í dag en ekki á morgun?
Það eina sem virðist unnt að segja
er, að fólk verður að vera viðbúið
því að taka hverju sem er og vera
sveigjanlegt, láta ekki snöggar breyt-
ingar í viðhorfum eða umhverfi slá
sig út af laginu og vera tilbúið að
minnst
taka þátt í nánast hverju sem er;
þetta þýðir í raun að andleg virkni
og stöðug árvekni eru ákjósanleg-
ustu eiginleikarnir.
Eru félög óþörf?
Aðeins tíundi hluti mannkyns hef-
ur að lífeyri eða öðru framfærsluör-'1*'
yggi að ganga að loknum venjuleg-
um starfsdegi. Meira er rætt um
vandamál þessa fólks en hins sem
ekkert hefur. Margir velta fyrir sér
hvernig fólk er sem best búið undir
líf að loknum venjulegum starfsdegi.
Eitt sinn var haft eftir M. Thatcher,
forsætisráðherra Breta, að það þyrfti
ekkert þjóðfélag, aðeins samsafn ein-
staklinga.
Þessi öfgahlið markaðshyggjunnar
hefur slitið tengsl milli fólks og gert
það einangrað og einmana. Þótt þú
getir haft samband við þúsund
manns í tölvunni átt þú i erfiðleik-
um með að ná sambandi við ná-
grannann. Eftir því sem fólk eldist
slævist geta þess til að halda tengsl^
um við aðra. Það þarf ákveðið lág-
mark af samstöðu og samsemd eða
hefðum til þess að fólk samsinni öðr-
um og finni til félagslegs öryggis.
Hefðir og þjóðareinkenni eru á
hröðu undanhaldi fyrir alþjóða sam-
sópi af öllu tagi. Það er alveg aug-
ljóst að finna verður nýjar leiðir til
að bæta markaðsbúskap án þess að
fórna helstu ávöxtum hans. Til þess
að svo geti orðið verður fyrst að við-
urkenna, að hann ráði ekki við öll
vandamál svo unnt verði að siðbæta
félagsleg samskipti fólk.
Jónas Bjarnason
V*** V 1
1\ ’ \ 1 lr\ 'vT'- \ 1 ýtwí f~ *
„Þótt þú getir haft samband við þúsund manns í tölvunni átt þú í erfiðleikum með 1
að ná sambandi við nágrannann. Eftir því sem fólk eldist slœvist geta þess til að 9
halda tengslum við aðra. “