Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Blaðsíða 22
42 ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2001 Tilvera DV Áföllin hafa duniö yfir Eyjamenn á árinu 2000: Fjöldi missir lífsviðurværið DV-MYND ÓMAR GARÐARSSON Vestmannaeyjar á jólaföstu árið 2000 Fram undan viðist mikit fólksfækkun - eða uppbygging á öflugu byggðarlagi. Vestmannaeyingar hafa orðið fyrir ýmsum áfóllum á árinu sem nú er að líða en það er ekki þar með sagt að allt hafi lagst á verri veginn. Fyrst skal nefna að loðnuvertíð síðasta vet- ur var þokkaleg og sama gilti um fiskirí framan af árinu. Sumarið var einstaklega gott og í ágúst var safna- svæðið á Skansinum vígt en þar er að fmna stafkirkjuna, þjóðargjöf Norð- manna til íslendinga i tilefni 1000 ára kristnitökuafmælisins og húsið Land- lyst sem byggt var í upprunalegri mynd á árinu en það er elsta fæðing- arheimili á landinu. Sjálfur er Skans- inn virki sem byggt var eftir Tyrkjaránið á 17. öld. Allt svæðið var skipulagt sem ein heild og útkoman er einstök enda fékk Skanssvæðið verð- laun Ferðamálaráðs fyrir skömmu. íþróttir gengu vel og var uppskeran bara nokkuð góð. Og ekki má gleyma þjóðhátíðinni, sem á sér meira en hundrað ára hefð í sögu Eyjanna, en hana sóttu um 10 þúsund manns í sumar. Tvö áföll í samgöngumálum En blikur hafa verið á lofti i at- vinnumálum i Vestmannaeyjum og afturkippur hefur orðið i samgöngu- málum sem skipta eyjasamfélagið miklu máli. í samgöngumálum var það mikið áfall þegar íslandsflug hætti flugi til Eyja. Þar með sat Flug- félag Islands eitt að fluginu. Afleiðing- ar voru stórhækkun á fargjöldum og lakari þjónusta að mati þeirra sem mikið þurfa að fljúga, en varðandi hækkunina þarf að hafa í huga hækk- un á olíu og álagningu flugleiðsögu- gjalds sem lagt var á flugfarþega fyrr á árinu. Annað áfallið var þegar samgöngu- ráðherra ákvað að bjóða út rekstur ferjunnar Herjólfs sem tengir Vest- mannaeyjar við land. Samskip hrepptu hnossið og eftir sat Herjólfur hf. með sárt ennið. Þessi niðurstaða var Eyjamönnum mikið áfall, ekki síst tilfinningalega, því Herjólfur og daglegar siglingar við land eru lykil- atriði í samgöngum Vestmannaey- inga. Samskip taka við Herjólfi 1. jan- úar 2001. Enn hraðari fólksfækkun Þegar upp er staðið er það atvinna sem mestu skiptir og þar hefur hallað undan fæti svo um munar. Sú þróun, sem átt hefur sér stað í sjávarútvegi á liðnum árum og enn sér ekki fyrir endann á, er samþjöppun í rekstri og að alltaf þarf færri hendur til að koma með aflann að landi og vinna hann. Við þessu er í sjálfu sér ekkert að segja því hér á landi verða menn að fylgja þróuninni til að standa sig í samkeppninni. En þessi þróun kemur niður á sveitarfélögum sem byggja allt sitt á fiskveiðum og vinnslu sjáv- arafla. Það sem blasir við í Vest- mannaeyjum eins og flestum öðrum stöðum á landsbyggðinni er fækkun íbúa með meiri hraða síðustu ár en sést hefur frá því fólk af landsbyggð- inni byrjaði að flykkjast til Reykjavík- ur um og eftir 1940. Allt sem hér að framan er talið upp eru staðreyndir sem blasa við þeim sem vilja sjá, en því miður eru þeir allt of margir sem stinga haus í sand og neita að horfast í augu við stað- reyndir. Fækkun útgerða um og eftir 1990 var álitin liður í hagræðingu í sjávarútvegi og það sama gilti um sameiningu fyrirtækja í greininni. í þessari sameiningarbylgju urðu til tvö sjávarútvegsfyrirtæki í Eyjum í stað fjögurra þannig að í ársbyrjun 1992 stóðu eftir ísfélag og Vinnslustöð en Fiskiðjan og Hraðfrystistöðin heyrðu sögunni til. Þarna er um sömu þróun að ræða og á flestum öðrum stöðum á landinu og þvi miður hefur ekki alls staðar tekist vel til. Öflug einkaútgerð hefur frá byrjun vélbátaaldar verið undirstaða velferð- ar í Vestmannaeyjum og verður svo vonandi áfram en nú eru blikur á lofli. Á síðustu mánuðum hafa þrjár útgerðir, sem höfðu yfir að ráða sam- tals fjórum bátum, sameinast öðrum fyrirtækjum 1 bænum og kvótinn færður yfir á önnur en hin seld og bát- um hefur verið lagt í hagræðingar- skyni. Auk þess liggja flskiskip í höfn- inni vegna deilna útgerða og áhafna um kaup og kjör. Þessar deilur eru talandi dæmi um þær ógöngur sem samskipti samtaka útgerðarmanna og sjómanna eru komin í. Þá var bát lagt nýlega eftir að tekist hafði að veiða helming aflaheimilda bátsins. Þar með var útgerðarmaðurinn búinn að uppfylla skilyrði um 50% veiðiskyldu og gaf áhöfninni fri það sem eftir lifir kvótársins, eða til 1. september næst- komandi. 600 hafa misst framfæri sitt Fljótt á litið hafa allt að 100 sjó- menn í Vestmannaeyjum misst störf sín síðustu misserin og sér ekki enn fyrir endann á þessari þróun. Það er óumdeilt að fiskurinn er það afl sem gefur bæjum eins og Vestmannaeyj- um líf en þegar vægi minnkar er ekk- ert til staðar til að fylla upp í það skarð sem hann skilur eftir. Afleiðing- in í Vestmannaeyjum er sú að vægt áætlað má reikna með að hver sjó- maður gefi af sér a.m.k. tvö störf í landi og þvl hafa tapast samtals á bil- inu 200 til 300 störf í Vestmannaeyjum undanfarið og ef hverjum sjómanni fylgir þriggja manna fjölskylda hafa a.m.k. 600 manns, sem er nokkuð hátt hlutfall í 4500 manna bæjarfélagi, misst framfæri sitt. Hér hefur aðeins verið rætt um bol- flsk en niðursveifla í uppsjávarfiski hefur haft geigvænlegar afleiöingar í Vestmannaeyjiun bæði fyrir útgerð og sjómenn síldar- og loðnuskipanna. Ástæðan er augljós því Eyjaflotinn hefur yfir að ráða nálægt fjórðungi loðnukvótans og flmmtungi síldar- kvótans. Það er því eðlilegt að hrikti í og og allt kemur þetta niður á bæjar- kassanum. Eigum viö aö hypja okkur? Flestum hefðu fundist þessi áfoll næg fyrir eitt bæjarfélag en þama eru Vestmannaeyjar í sömu sporam og út- gerðarstaðir allt í kringum landið og afkomutölur sjávarútvegsfyrirtækja síðustu daga og vikur gefa ekki ástæðu til bjartsýni. En ofan á þetta hafa Vestmannaeyjar séð á eftir ein- um sinna bestu manna, Sigurði Ein- Ómar Garðarsson fréttaritari arssyni forstjóra ísfélagsins sem lést i október sl. tæplega 50 ára. Þá stóðu yflr sameiningarviðræður Isfélags og Vinnslustöðvar sem bera höfuð og herðar yflr önnur fyrirtæki í bænum. Þær runnu út í sandinn og voru menn missáttir við þá niðurstöðu en það var niðurstaða engu að síður og töldu nú Vestmannaeyingar að þar með hefðu þeir eitthvað til að festa hönd á í at- vinnumálum. Það var því mikið áfall þegar frysti- hús ísfélagsins og vinnustaður rúm- lega 100 manns varð eldinum að bráð aðfaranótt 9. desember sl. Hafi óvissa í atvinnumálum verið umtalsverð fyr- ir brunann varð hún geigvænleg þeg- ar kulnaði i glæðunum. Enn liggur ekki fyrir hvað gert verður í ísfélag- inu og hvort það rís á ný I sömu mynd. Þeirri spurningu verður ekki svarað fyrr en á nýju ári en nýleg yf- irlýsing stjórnar félagsins um aukna áherslu á vinnslu á botnfiski gefur vonir um að frystihúsið verði endur- reist. Ekki er ólíklegt að það verði í sameinuðu fyrirtæki Isfélags Vest- mannaeyja hf. og Vinnslustöðvarinn- ar hf. Vestmannaeyingar standa því á ákveðnum tímamótum um þessi áramót og þúsaldarskipti. Ekki sér fyrir endann á fólksfækkun og mik- ilvægi sjávarútvegs fer minnkandi. Þetta á við um allt land og sá tími að sjávarútvegur standi undir landsbyggðinni er liðinn. Ætli menn að spyrna við fótum í byggða- málum er það stærra verkefni en sveitarfélög og fyrirtæki á lands- byggðinni ráða við. Boltinn er þvl hjá stjórnvöldum en ef ætlunin er að láta heilu byggðarlögin deyja drottni sínum er það lágmarkskurt- eisi að láta íbúana vita svo þeir geti hypjað sig sem allra fyrst. Velgengni á Vesturlandi árið 2000: Fegurstu stúlkurnar Fótfráir Skagamenn hafa þótt meðal fótfráustu manna landsins um langan aldur. Þeir urðu bikarmeistarar í ár, en undir lok ársins hótuöu þeir verkfalli. Þegar litið er yfir atburði ársins á Vesturlandi má segja að bjart hafi verið yfir Vestlendingum á þessu ári. íbúum heldur áfram að fjölga og at- vinnulíf með miklum blóma. Fjölgun er mest á Akranesi og i Borgarbyggð. Allar leiguibúðir sveitarfélaganna eru í útleigu og mikil vöntun á húsnæði. Á Akranesi seldust allar lóðir eins og heitar lummur og nú er verið að skipuleggja nýtt hverfi sem verður væntanlega tilbúið með vorinu. Þá er búið að skipuleggja ný hverfi í Stykk- ishólmi, Grundarfirði og Borgarbyggð en þar hafa menn ekki haft undan að anna eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði. Fjármál sveitarfélaganna voru í brennidepli á árinu. Þau fengu í lok ársins umbun með hækkun á útsvari. Byijað var á einsetningu grunnskól- anna á Akranesi og hafist verður handa við stækkun grunnskólans í Borgarnesi á næsta ári, allt kostar þetta sitt og hefur áhrif á þröngan fjárhag sveitarfélaganna. Löggæslan skorin niöur Guðmundur Runólfsson hf. í Grundarfirði hafði skrifað undir samning við Kínverja um smíði á nýju skipi en Kínverjamir settu fram auknar kröfur og Grundfirðingar hættu við. Menn biðu í ofvæni eftir nýju nóta- og togveiðskipi Haraldar Böðvarsson hf. á Akranesi, Ingunni, sem átti að koma í byrjun ársins. Því seinkaði, lengja varð skipið og átti það að fara af stað heim í byrjun des- ember. Ekkert varð úr þvi og verður það afhent í byrjun ársins. Þjóðarskúta íslendinga, Kútter Sig- urfari, komst í sviðsljósið. Hann er mikið farinn að láta á sjá, en fengist hafa fjármunir til viðhalds. Menn eru hins vegar ekki á eitt sáttir um hvem- ig staðið skuli að varðveislu kútters- ins. Löggæslumál voru í sviðsljósinu á árinu. Nýtt stjómsýsluhús var vígt í Stykkishólmi. Það leysti vanda Grundfiröinga sem fengu gömlu lög- reglustöðina sem Óli Þ. Guðbjartsson, þáverandi dómsmálaráðherra, hafði sent Hólmurum. Sýslumaðurinn í Borgamesi var óá- nægður með skerðingu á framlögum til embættisins þrátt fyrir aukna um- ferð. Hann sagði að kannski væri best að fá pappalöggur. Á sama tíma fékk sýslumaðurinn á Akranesi auknar fjárheimildir til að vega upp halla undanfarinna ára. Vegagerðin réð smala til reynslu í nokkrar vikur vegna fjölda búíjárslysa. Eftir reynslu- tímann settust menn niður, funduðu og skomðu á Vegagerðina og sam- gönguráðherra að girða i þau göt sem eru víðs vegar á Vesturlandi. I byrjun desember var sérsveit rík- islögreglustjóra kölluð til Akraness til að handtaka mann sem hafði brotist inn í Harðarbakarí. Fegursta konan Nokkur stórmenni heimsóttu Vest- lendinga á árinu. Hæst ber þó heim- sókn forseta íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, og heitkonu hans, Dorrit Moussaieff, til Snæfellsnes þar sem þau vöktu mikla hrifningu og fór vel á með þeim þótt ástin hafi blossað heitar síðar í Indlandi. Ung sveitastúlka úr Leirár- og Melasveit, Elín Málmfríður Magnús- dóttir, var kjörin Ungfrú Vesturland og síðar Ungfrú ísland og er það ann- að árið í röð sem stúlka af Vestur- landi er kjörin Ungfrú ísland. Þar með var það sannað að vestlenskar konur em með afbrigðum fallegar og vel vaxnar auk þess að þær em gáfað- ar. Brunamál í ólestri Brunamál vora nokkuð í sviðsljós- inu á árinu. Slökkviliðsstjórinn í Gmndarfirði kom einn á bmnastað þegar kviknaði í versluninni Tanga, Grundfirðingar settust niður, ræddu vandamálin og lögðu fram hugmyndir sem verið er að vinna úr. Þá valt gamli slökkvibíllinn í Grundarfriði í útkalli en á næsta ári fá Grundfirðing- ar nýjan og öflugan slökkvibíl eins og Skagamenn. Síðar kom í ljós að slökkvistöðin á Akranesi er ekki brunavarin. Ferjan Baldur steytti á skeri á Breiðarfirði, engin slys urðu á fólki en ferjan var á aðra viku frá meðan verið var að gera við hana. Um ára- mótin taka svo Sæferðir við rekstri hennar. Það skiptust á skin og skúrir í verslun eins og gengur og gerist, verslanir vom lagðar niður, aðrar sameinaðar og nokkrir stórir komu inn á markaðinn. Fjórða matvöru- verslunin á Akranesi tók til starfa í sumar þegar Nettó var opnað og versl- unarmiðstöðin Hymutorg var opnuð í lok nóvember í Borgarnesi með níu verslunum og þjónustuaöilum og fékk KB stærsta plássið. Það hitnaði víða hjá Vestlendingum á árinu. Hitaveita Stykkishólms tók til starfa og í Búðardal voru fyrstu húsin tengd hitaveitu. Þá urðu skipu- lagsbreytingar hjá Akranesveitu sem urðu til þess að Magnús Oddsson veitustjóri sagði upp störfum eftir að hafa sýnt mikinn dugnað og elju við fyrirtækið. Ólafsvíkingar fengu nýtt íþróttahús í lok ársins og elsti Hólmarinn, Svava Oddsdóttir, varð 100 ára þann 6. des- ember. Þá urðu umskipti í starfi stúkustarfs á Akranesi. Stúkan Akur- blóm varð lögð niður vegna lítillar endumýjunar og eldri stúkufélagar vildu leggja niður stúkuna með reisn og gáfu stórgjafir við starfslok til ým- issa félaga og stofnana. Þá var Leifs- hátíð haldin dagana 11.-13. ágúst til Daniel V. Ólafsson fréttaritari að minnast 1000 ára afmælis Vín- landssiglinga Leifs Eiríkssonar. Þá sagði Stefán Jónsson upp starfi sínu sem sveitarstjóri Dalabyggðar og við tók Einar Mathiesen í febrúar. Stækkun og stækkun Vel hefur gengið hjá Norðuráli á Grundartanga. Þar eru framkvæmdir í fullum gangi við stækkun úr 60.000 tonna ársframleiðslu í 90.000 tonn og við það bætast 50 ný störf á vormán- uðum. Fyrirtækið hefur farið fram á stækkun úr 90 þúsund tonnum í 300 þúsund og er framkvæmdin í um- hverfismati. Rekstur íslenska járn- blendifélagsins gekk ekki vel á árinu, meðal annars vegna lágs verðs á kísil- jámi. Bjarni Bjarnason forstjóri sagði upp og ráðinn var nýr forstjóri, Frank Björklund, 43 ára vélaverkfræðingur frá 'Noregi. og tólf starfsmönnum var sagt upp. Blikur era á lofti í rekstri fé- lagsins. íþróttamenn á Vesturlandi voru iðnir við kolann á árinu. Skagamenn urðu bikarmeistarar í knattspymu en urðu að láta 5. sætið duga í íslands- móti. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, sundkona á Akranesi, tók þátt í Ólympíuleikunum í Sydney og Einar Trausti Sveinsson úr Borgarnesi náði ágætisárangri á Ólympíuleikum fatl- aðra á sama stað. Þá var i sumar tek- inn í notkun nýr, glæsilegur 18 holu golfvöllur á Akranesi og verða stór- mót á honum á næstu árum. Undirritaður óskar Vestlendingum gleðilegs nýs árs með þökkum fyrir samstarfið á liðnum ámm og vonar að á næsta ári verði jafn bjart yfir Vest- urlandi og á þessu ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.