Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001
Fréttir
DV
Þotueldsneyti flutt í stórum stíl um mesta þéttbýlissvæði landsins:
Um 133 þúsund
tonn af olíu á ári
- í stöðugum flutningum tankbíla um Reykjavík, Hafnarfjörð og Reykjanesbraut
Kristinn
Björnsson.
Þúsundir tonna af fljótandi elds-
neyti er ár hvert flutt um helstu um-
ferðaræðar höfuðborgarinnar með
stórum tankbilum og um Reykjanes-
braut til Suðurnesja. Þar er aðallega
um flutninga á þotueldsneyti að ræða
til nota á farþegaþotur sem afgreidd-
ar eru á Keflavíkurflugvelli.
Mikill fjöldi al-
varlegra um-
ferðarslysa og um-
ræða um breikk-
un Reykjanes-
brautar hlýtur því
að vekja upp
spurningar um
hvers vegna svo
miklu álagi sem
olíuflutningarnir
eru á brautinni sé
ekki létt af og þeir færðir yflr á skip.
Þá vakna ekki síður spurningar um
þá áhættu sem tekin er með að aka
stórum tankbílum með allt að 40 tonn
af bráðeldfimu flugvélaeldsneyti inn-
anborðs um mestu umferðaræðar og
mesta þéttbýlissvæði landsins, allt
árið um kring.
Á árinu 1999 voru flutt til landsins
132.587 tonn af þotueldsneyti til lands-
ins samkvæmt upplýsingum Þjóð-
hagsstofnunar. Þar af fara um 45 þús-
und tonn árlega um Hafnarfjarðar-
höfn þar sem Olíufélagið Esso og Olís
hafa aðstöðu. Um 97.600 tonn fóru ’99
því væntanlega í gegnum birgðastöð í
Reykjavík, þar sem Skeljungur hefur
aðstöðu, en það félag sér m.a. um að
fóðra allar flugvélar Flugleiða og
Flugfélags íslands af eldsneyti.
Þannig flutti Skeljungur um 100 þús-
und tonn frá Örfirisey til Keflavíkur-
flugvallar á síðasta ári auk eldsneytis
sem flutt er út á Reykjavíkurflugvöll.
Allt þetta þotueldsneyti, eða steinolía
eins og hét í eina tíð, er flutt með bíl-
um í gegnum mesta þéttbýlissvæði
landsins.
Kristinn Björnsson, forstjóri Skelj-
ungs, gagnrýndi Pétur Jóhannsson,
hafnarstjóra hjá Hafnarsamlagi Suð-
urnesja (HASS), fyrir ummæli hans
um að rekja mætti slaka stöðu sam-
lagsins til þess að
olíufélögin nýttu
ekki aðstöðu sem
boðið hafi verið
upp á í Helguvík.
Taldi Kristinn í
samtali við DV
fyrir áramótin að
Pétur væri þannig
að koma sök á erf-
iðri fjárhagsstöðu
HASS á einhverja
aðra en rekstraraðila hafnanna.
í frétt DV á Þorláksmessu sagði
Pétur Jóhannsson m.a.: „Á sama tíma
og tilbúin höfn er í Helguvík og búið
er að bjóða olíufélögum afnot af olíu-
tönkum varnarliðsins þar, þá er öllu
flugvélaeldsneyti ekið á tankbílum
frá Örflrisey i gegnum höfuðborgar-
svæðið um Reykjanesbraut til Kefla-
vikurflugvallar."
Kristinn Björnsson benti hins veg-
ar á að Benedikt
Ásgeirsson,
skrifstofu-
Pétur
Jóhannsson.
stjóri Varnarmálaskrifstofu utanrík-
isráðuneytisins, hafi ekki svarað er-
indi Skeljungs, þrátt fyrir að Varna-
málaskrifstofa hafl að fyrra bragði
ritað olíufélögunum bréf og boðið
fram aðstöðu í olíubirgðastöðinni í
Helguvík til borgaralegra afnota.
Olíufélagið hf. Esso og Olís
eru með sameiginlegt dreifi-
kerfi og flutninga á flugvéla-
eldsneyti með Olíudreiflngu
hf. Skeljungur hf. (Shell) er
síðan með annað dreifing-
arkerfi fyrir sínar olíu-
vörur.
Nánast allt reglu-
bundið flug til og frá Is-
landi tengist Keflavík-
urflugvelli. Á flugvellin-
um er neðanjarðar-
dreifikerfi eldsneytis
sem tengt er birgðastöð
skammt frá flugstöðinni.
Sem dæmi um hvað flugvél-
arnar taka mikið, þá fór
stærsta einstaka afgreiðsla 01-
íufélagsins Esso hf. fram þann
27. júní 1994 þegar 180.647
lítrar (nærri 181 tonn)
voru afgreiddir
inn á rúss-
neska Ant-
onov
124 flugvél. Þurfti fimm stóra tank-
bila til að fylla á tanka þessarar einu
vélar, en hver þeirra ber 40 þúsund
lítra af eldsneyti. Ekki hefur náðst í
Benedikt Ásgeirson, skrifstofustjóra
Varnamálaskrifstofu, þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir.
-HKr.
Frá Reykja
97.000 toi
SandgerSi
Frá Hafnarf.
>.000 tonn
Kellir
HeffavíkurfkigvöBu
Hafriii*
Athugið:
Reykjavík er ekki í sama
stærðarhiutfalli og Reykjanesbrautin
Flutningur á
þotueldsneyti
- samkvæmt tölum
Þjóðhagsstofnunar 1999
Kennarar í Verslunarskólanum sneru til vinnu í dag:
Grunnlaun næstum tvöfaldast
- á samningstímabilinu sem er til apríl 2004
Kennsla hófst aftur í dag í Versl-
unarskólanum eftir að kennarar
skólans samþykktu nýjan kjara-
samning i gær. Alls kenna um 60
kennarar í skólanum og er samn-
ingstímabil nýja samningsins
fram í apríl 2004.
Að sögn Elnu Katrínar Jónsdótt-
ur, formanns samninganefndar Fé-
lags framhaldsskólakennara og
verslunarskólakennara, er samn-
inganefndin ánægð með samning-
inn. „Þessi samningur þýðir næst-
um því tvöföldun grunnlauna á
samningstimabilinu,“ sagði Elna
Katrín. Samningurinn felur í sér
50% hækkun grunnlauna strax um
áramót og fara því grunnlaun sem
voru að meðaltali um 135 þúsund
krónur yfir 200 þúsund krónur.
Vegna þessa séu kennarar að
horfa fram á gjörbreytt grunnlaun
að sumri og þeir sem eru komnir
nálægt eftirlaunaaldri sjá fram á
mjög breytta launasamsetningu
sem eftirlaunaþegar. Hækkun
heildarlauna í samningnum er
mjög breytileg eftir því hvernig
vinnusamsetning kennara var
áður og er hún allt frá 20 upp í 60
prósent.
Elna Katrín sagði að fyrir utan
áfangahækkanir felist hækkunin
einnig í miklum og róttækum til-
færslum á yfirvinnu yfir í dag-
vinnu og miklar breytingar á
störfum. „Samningurinn inniheld-
Anægð með samninginn
Elna Katrín Jónsdóttir, formaöur
samninganefndar Félags framhalds-
skólakennara og verslunarskóla-
kennara, var ánægö meö samning-
inn og sagöi að í honum fælist
næstum því tvöföldun grunnlauna.
ur af ýmsu leyti mjög tímabæra
einföldun og innfærslu vinnuþátta
inn í grunnlaunin en tíminn verð-
ur að skera úr um hvernig þessar
miklu breytingar ná að festa sig i
sessi og ganga upp,“ sagði Elna
Katrín. Hún telur að Verslunar-
skólinn sýni ákveðinn kjark með
að ríða á vaðið með þessum hætti
og það sé greinileg og meðvituð
ákvörðun kennarahópsins að
hækka grunnlaunin með þessum
hætti og jafna kjörin innan hóps-
ins.
Margrét Auðunsdóttir, kennari í
Verslunarskól-
anum, átti sæti
í samninga-
nefndinni og
henni líst vel á
nýja samning-
inn. „Þetta er
mikil hækkun
grunnlauna og
miklar yfir-
færslur sem
koma inn í
þau,“ sagði
Margrét. Hún
telur að um
verulega kjara-
bætur sé að
ræða og tíma-
mótasamning
því þetta sé í
fyrsta skipti
sem samið sé
sér við ákveð-
inn skóla.
Hans Her-
bertsson, kenn-
ari í Verslunar-
skólanum telur
aö í samningn-
um felist nokkr-
ar kjarabætur
og hann var
ánægður með geta farið að kenna
aftur. „Verkfallið er búið að vera
allt of langt," sagði Hans.
Þrátt fyrir að samningurinn
geri ráð fyrir breytingum á starfs-
DV-MYNDIR INGÓ
Greiddu atkvæöi
Kennarar greiddu atkvæöi í gær um nýjan kjarasamning
eftir að hann var kynntur þeim á fundi í skóianum.
skyldum kennara eru störf þeirra í
grundvallaratriðum óbreytt og í
samræmi við gildandi lög og reglu-
gerðir um skólastarf í framhalds-
skólum. -MA
Sautján milljóna sendiráð
Utanríkisráðu-
neytið hefur ákveð-
ið að opna sendiráð
í höfuðborg Mósam-
bík, Maputo, og
verður Bjöm Dag-
bjartsson, forstöðu-
maður Þróunar-
samvinnustofnunar
íslands (ÞSSÍ), fyrsti sendiherrann
þar. Dagur greindi frá.
Norðurál fyrst?
Margt bendir til þess að stækkun
álvers Norðuráls í Hvalftrði upp í
290 þúsund tonn verði látin hafa for-
gang fram yfir virkjana- og álvers-
framkvæmdir á Austurlandi. Dagur
greinir frá.
Brot á sjúkraflugssamningi
Heilbrigðisráðuneytið hefur hafið
rannsókn á sjúkraflugsmálinu svo-
kallaða á Vestfjörðum á nýársnótt -
telur ráðuneytið að brot hafi verið
framið á samningum. Flugfélagið
Mýflug sér um þjónustuna en gat
ekki sinnt fluginu og var kölluð til
þyrla þegar 8 ára drengur brenndist
i andliti eftir flugeldasprengingu á
Patreksfirði.
Nýtt fyrirtæki í heilsuvernd
Guðmundur
Björnsson, endur-
hæfingarlæknir og
fyrrum yfirlæknir á
Heilsustofnun NLFÍ
í Hveragerði, hefur
stofnað nýtt fyrir-
tæki sem hlotið hef-
ur nafnið SAGA
SPA - heilsuvernd og endurhæfing.
Feður og fæðingarorlof
Um 180 feður hafa sótt um
greiðslu í fæðingarorlofi til Trygg-
ingastofnunar ríkisins samkvæmt
nýjum lögum um fæðingarorlof er
tóku gildi um áramótin. RÚV
gréindi frá.
Orð Kristins vekja ólgu
Aðeins einn
starfsmaður á nú-
verandi aðalskrif-
stofu Byggðastofm
unar í Reykjavík
ætlar að flytja með
stofnuninni til Sauð-
árkróks á þessu ári,
aðrir hætta störfum.
Gerður hefur verið starfslokasamn-
ingur við suma en flestum var ein-
faldlega sagt upp störfum. Kristinn H.
Gunnarsson segir að starfsfólk stofn-
unarinnar hafi afþakkað boð um störf
hjá annarri ríkisstofnun. Dagur
greinir frá.
Stórfækkun vinnuslysa
Helmingi færri dauðaslys urðu
vegna vinnu íslendinga í fyrra en
árið á undan. Þrír létust við störf
sín í fyrra og er byggingariðnaður-
inn hættulegastur. Veruleg fækkun
varð á vinnuslysum milli ára í
Norðurlandskjördæmi eystra.
Skemmdarvargar á ferð
Póstkassar voru sprengdir upp
með einhvers konar heimatilbúinni
sprengju í stigagangi við Gyðufell í
gærkvöld. Dyrasími var einnig
sprengdur upp í nærliggjandi stiga-
gangi.
Haldið til haga
Rangt var farið með nafn konu
sem hlaut riddarakross hinnar ís-
lensku fálkaorðu um áramótin. Það
var Elina Helga Hallgrímsdóttir
sem heiðurinn hlaut en hún var
nefnd Elín að íslenskum sið i frétt
blaðsins. -HKr.