Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Síða 5
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001
DV
5
Fréttir
UmsHSHBl________
Reynir Traustason
netfang: sandkorn@ff.is
Rétt hjá Davíð
Hin heföbundna
Kryddsíld Stöðvar 2
var að vanda á dag-
skrá á gamlársdag
þar sem glaðbeittir
formenn stjórn-
málaflokkanna
fóru á kostum. Og
; eins og venjulega
mætti Davíð
Oddsson forsætisráðherra of seint.
Þegar hann þusti inn í stúdíóið í
gleðskap Karls Garðarssonar frétta-
stjóra hafði hann á orði að á leiðinni
hefði hann gert heiðarlega tilraun til
að hlusta á þáttinn á Bylgjunni -
eins og venjulega. Karl og félagar
svöruðu af bragði að hann hefði ekki
hitt á rétta stöð. Nú er komið á dag-
inn að stöðvar Norðurljósa voru ekki
í takt og Bylgjan hélt úti eigin dag-
skrá á meðan Kryddsíldin var send
út. Davíð hafði því rétt fyrir sér...
Ástsæll þulur
Fréttaannáll
Stöðvar 2 þótti slá
út Áramótaskaup
Sjónvarpsins.
Fréttamennirnir
Eggert Skúlason,
Brynhildur
Ólafsdóttir og j
Sigmundur Ern-
ir Rúnarsson
fóru á kostum í lipurri úttekt á
fréttum liðins ár. Innskot þular
Stöðvarinnar, Björgvins Halldórs-
sonar, skemmdu heldur ekki fyrir.
Björgvin, sem er með allra
skemmtilegustu mönnum, nuðaði
um það milli atriða hvort ekki ætti
að spila eitthvað með honum.
Þama var um afar djúpstæðan og
þróaðan húmor að ræða en eins og
áhorfendum Stöðvar 2 er kunnugt
var jólaþáttur með Björgvin endur-
sýndur á besta útsendingatíma á
laugardagskveldi fyrir jól. Svo
skemmtilega vill til að systurfélag
íslenska sjónvarpsfélagsins, Skífan,
var með nýja jólaplötu þularins í
flóðinu fyrir jól. Þá hefur Bylgjan
verið óspör að spila Bjögga á jóla-
vertíðinni en það er svo sem full
ástæða til þar sem hann er jú einn
ástsælasti söngvari þjóðarinnar...
Óðal Hrafns
Hrafn Gunn-
laugsson fór mik-
inn í sjónvarps-
mynd sinni þar
sem hann gagn-
rýndi molbúahátt-
inn í byggingu
| Reykjavikur. Hug-
I myndir Hrafns
voru nýstárlegar
og hann færði flugvöllinn og lagði
til að í borginni yrðu byggðir
skýjakljúfar til að skapa henni
reisn. Hugmyndir Hrafns voru út-
færðar með grafískum hætti svo
ekki færi á milli mála hvað hann
ætti við. Þannig var „flogið" með
strandlengjunni og sýndar nýjar
víddir. Eitt vakti athygli fólks en
það var að umbyltingin náði ekki á
Laugarnestána þar sem óðal
Hrafns stendur. Svo var að sjá sem
hann hefði engan sérstakan áhuga
á skýjakljúfum þar...
Moggaritstjórn
Skipulagsbreyt-
ingar þær sem boð-
aðar hafa verið á
ritstjórn Morgun-
blaðsins komu
nokkuð á óvart. í
stað Matthíasar
Johannesen rit-
stjóra kom þrir
aðstoðarritstjórar,
þeir Bjöm Vignir Sigurpálsson,
Ólafur Stephensen og Karl Blön-
dal. Allir eru þeir gamalreyndir
starfsmenn Moggans. Óstaðfestar
heimildir herma að stjórn Árvak-
urs, útgáfufélags Morgunblaðsins,
hafi ekki komið sér saman um
neinn einn arftaka Matthíasar og
þvi hafi þessir þremenningar verið
ráðnir. Því er spáð að Ólafur
Stephensen sé framtíðarmaðurinn
af þeim þremur og leið hans í rit-
stjórastól sé greið...
14 mánuðir liðnir frá því fyrrum skólastjóri Hestaskólans að Ingólfshvoli var kærður:
Dýralæknir hefur gefið
álit á framferði Hafliða
- rannsóknarlögregla segir komið að því að kalla til meintan hrossaofbeldismann
Rannsóknarlögreglan á Selfossi
segir að komið sé að því að kalla til
hinn kærða - fyrrum skólastjóra
Hestaskólans að Ingólfshvoli - í
máli þar sem hann var kærður fyr-
ir að hafa beitt hross of mikilli
hörku. Málið hefur dregist en 14
mánuðir eru liðnir frá því að það
var kært.
Þorgrímur Óli Sigurðsson lög-
reglufulltrúi segir að sérfræðingur,
dýralæknir, sem hefur hestasjúk-
dóma sem sérgrein, hafi nú skilað
áliti sínu á efni myndbands sem er-
lendir nemendur í Hestaskólanum
tóku upp.
Það voru sænskir nemendur sem
kærðu Hafliða Halldórsson á sínum
tíma fyrir slæma meðferð á hross-
um á námskeiði - um miðjan nóv-
ember 1999. Hann var þá skólastjóri
Hestaskólans. Fimm nemendur
hættu á námskeiðinu vegna fram-
ferðis Hafliða, fjórir Svíar og einn
íslendingur. Aganefnd Félags tamn-
ingamanna fór í málið, ræddi m.a.
við sænsku nemendurna, kærend-
urna, svo og aðra nemendur á nám-
skeiðinu og vísaði svo Hafliða tíma-
bundið úr samtökunum.
Lögreglan telur sig nú hafa rætt
við flesta sem máli skiptir vegna
kærunnar að undanskildum Hafliða
sjálfum. Auk þess hefur framan-
greindur hrossasérfræðingur gefið
álit sitt á framgöngu Hafliða gagn-
vart hrossunum á myndbandinu.
Sænsku nemendunum og fleirum
ofbauð svo framferði Hafliða við
hrossin að þeir settu frásagnir af sex
tilteknum atvikum á blað og stað-
festu með undirskrift sinni. Það
skjal var látið fylgja sjálfri kærunni.
Þar koma fram harkalegar lýsingar
á tamningaaðferðum. Hafliði sagði
m.a. efnislega í samtali við DV á síð-
asta ári að nauðsynlegt væri að vera
ákveðinn við sum hross.
Hvað varðar þann drátt sem hef-
ur orðið á afgreiöslu málsins segir
Þorgrímur Óli lögreglufulltrúi að
gagnaöflun hafi tafið málið, ýmsir
málsaðilar búi erlendis og kalla hafi
þurft á álit sérfræðinga.
- Hvenær átt þú von á að rann-
sókn þessa máls ljúki?
„Ég get ekki svarað því á annan
hátt en að það verði fljótlega. í raun
á ekkert að geta tafið málið úr
þessu. Öll gögn liggja nú fyrir og að-
eins er eftir að yfirheyra hinn
kærða.“
-Ótt
Hugsaö um hestana
Á þessum tíma ársins er ekki mikiö aö bíta fyrir blessaöa hestana og þaö er því gott þegar fólk hugsar til þeirra og
færir þeim brauöbita eins og stöllurnar á myndinni geröu nýlega.
Ráðuney tisst j óri:
Hraða ber
rannsókn
sakamála
Bjöm Friðfmns-
son, ráðuneytis-
stjóri í dómsmála-
ráðuneytinu, segir
að meginreglan sé
sú að liraða beri
rannsókn saka-
mála eins og unnt
er. í lögum kemur
skýrt fram að allir
eigi rétt á hraðri
og sanngjarnri málsmeðferð.
Bjöm kveðst ekki geta lagt á það
dóm hvort það geti talist eðlilegt að
rannsókn hafi nú staðið í tæpt ár i
svokölluðu Ánastaðamáli þar sem
jarðareigandi er kærður fyrir van-
hirðu á hrossum eða hvort 14 mánaða
rannsóknartími í máli fyrrum skóla-
stjóra Hestaskólans að Ingólfshvoli
teljist innan marka eðlilegs rannsókn-
artíma.
„Stundum teQast mál vegna gagna-
öflunar, fólk getur farið úr landi og svo
framvegis. Þetta er eðli sumra mála.
Það þýðir þá ekki að fara þannig með
málin fyrir dóm því að ekki þýðir að
fara með vanreifuð mál fyrir dóm,“
sagði Bjöm Friðfmnsson. -Ótt
Björn
Friöfinnsson
Bjartsýni á vertíðina þrátt fyrir að Hafró finni ekki stærstu loðnuna:
Óveður og stórloðna í felum
- markaðshorfur sæmilegar
„Við vonumst til þess að
stórloðnan skili sér þrátt
fyrir að hún hafi ekki
mælst í haust. Haustið
1999 fannst heldur ekki
stórloðna en hún skilaði
sér samt i veiðina," segir
Sveinn Sveinbjörnsson,
fiskifræðingur Hafrann-
sóknastofnunar, um kom-
andi loðnuvertíð. Úthlutað
var 417.500 tonnum til ís-
lenskra skipa á kvótaár-
inu sem hófst þann 1. sept-
ember. Mörg íslensku
skipanna eru langt komin
með kvóta sinn en vonast
er til þess að kvótinn
verði aukinn.
Reiknað er með að
rannsóknarleiðangur Haf-
rannsóknastofnunar hefj-
ist í næstu viku og þá
skýrast væntanlega línur
varðandi ástand loðnu-
stofnsins. Vegna óveðurs á
Austfjarðamiðum eru eng-
in loðnuskip enn farin til
veiða. í janúar í fyrra
veiddist vel í flotvörpu en
lítið var að hafa í nót
Allir klárir
Fjöldi loönuskipa bíöur þess aö komast á miöin til aö veiöa loönu. Nokkur óvissa er um vertíö-
ina en bjartsýnin er allsráðandi.
framan af. Sigurður fiski-
fræðingur vonast til að ver-
tíðin verði góð þrátt fyrir
að ýmis teikn vanti um að
stórloðnan sé til staðar.
„Við erum bjartsýnir á
að þetta verði með svipuð-
um hætti í ár,“ segir Sig-
urður.
Freysteinn Bjarnason, út-
gerðarstjóri Síldarvinnsl-
unnar í Neskaupstað, segir
sín skip bíða veðurs:
„Það er helvítis garður
austan við okkur en ég von-
ast til að það verði komið
veiðiveður á föstudag."
Síldarvinnslan gerir út
loðnuskipin Beiti, Birting
og Börk sem halda öll til
veiða þegar veður gengur
niður. Freysteinn segir að
bjartara sé yfir afurðaverði
en áður. Þar muni mestu að
kjötmjölsfárið á Evrópu-
markaði hafi opnað markað
fyrir fiskimjöl.
„Þá er þessa dagana góð-
ur markaður í Rússlandi
fyrir frysta loðnu. Horfurn-
ar eru góðar.“ -rt