Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001 DV Utlönd 9 ítalir áhyggjufullir eftir dauða hermanna: Krefjast rann- sóknar NATO ítölsk stjórnvöld greindu frá því í gær að þau hefðu hvatt Atlantshafs- bandalagið (NATO) til að rannsaka fullyrðingar um að sex ítalskir her- menn, sem létust eftir að hafa þjón- að á Balkanskaga, hefðu dáið eftir að hafa komist í snertingu við eytt úran úr vopnum sem NATO beitti. ítölsku hermennimir létust úr hvít- blæði. Giuliano Amato, forsætisráð- herra Ítalíu, sagði í viðtali viö ítalska blaöið La Repubblica að ótti manna við svokallað Balkan-heil- kenni væri „meira en réttlætanleg- ur“ og að málið væri ekki jafnein- falt og áður hefði verið talið. Heimildarmenn Reuters-frétta- stofunnar hjá NATO sögðu í gær að Norður-Atlantshafsráðið myndi flalla um málið á næsta fundi sínum sem verður 10. janúar. Giuliano Amato Forsætisráöherra Ítalíu hefur áhyggj- ur af dauða hermanna sem gegndu herþjónustu á Balkanskaga. Sex ítalskir hermenn hafa látist af völdum hvítblæöis síöustu misseri. Utanríkisráðherrar Portúgals og Belgíu sögðu í Lissabon í gær að komast yrði að hinu sanna. Her- menn frá hvoru tveggja landinu hafa látist eftir að hafa gegnt her- þjónustu á Balkanskaga. Sergio Mattarella, varnarmála- ráðherra Ítalíu, sagði í gær að ráða- menn NATO hefðu ekki sagt stjóm- völdum í Róm fyrr en í síðasta mán- uði að brennt úran hefði verið not- að i bæði Bosníu og Kosovo. Læknar hafa sagt að ekki séu nægar sannanir til að tengja dauða hermannanna við úrankúlumar sem notaðar eru gegn brynvörðum farartækjum. Hersveitir NATO skutu rúmlega þrjátíu þúsund slík- um kúlum gegn skriðdrekum og brynvörðum bilum Serba í stríðinu í Kosovo, að því er ítölsk blöð höfðu eftir sérfræðingi SÞ. Smiöshöggið rekiö á klakahöllina Verkamenn voru í óöaönn í gær aö leggja síöustu hönd á smíöi Montmorency klakahótelsins nærri Québecborg í Kanada. Hóteliö er hiö fyrsta sinnar tegundar í Norður-Ameríku. Smiöirnir, ef svo má aö oröi komast, notuöu 4.500 tonn af snjó og 250 tonn af klaka viö byggingu hótelsins. í því veröa sex gestaíbúöir, risastórt anddyri og tveir listsýningarsalir þar sem til sýnis veröa höggmyndir úr klaka. Hætt er viö aö vistin veröi þar ansi köld. Bill á fremsta bekk þegar Hillary sór eiðinn Allra augu beindust að forsetafrú Bandaríkjanna, Hillary Rodham Clinton, í gær þegar nýkjömir þing- menn Bandaríkjaþings sóru emb- ættiseið sinn í Washington. Bill Clinton forseti sat á fremsta bekk í salnum í þinghúsinu þar sem at- höfnin fór fram. Hann hélt í hönd dóttur þeirra Hillary, Chelsea, þeg- ar forsetafrúin sór embættiseiðinn. Móðir Hillary, Dorothy, var einnig viðstödd auk sex ára gamals frænda Clintons, Tylers Clintons. Vinir forsetahjónanna eru ánægð- ir með að þau skuli verða áfram í Washington þegar Bill lætur af emb- ætti. Vegna starfa Hillary í öldunga- deild Bandaríkjaþings fyrir New York næstu sex árin hafa forseta- hjónin ekki bara keypt sér hús í New York heldur einnig í Was- hington. Húsið í Washington Forsetafrúin orðin þingmaður Hillary ásamt Al Gore varaforseta sem er forseti öldungadeildarinnar. keyptu þau í síðustu viku. Það er frá 1951 með sex svefnherbergjum og sjö baðherbergjum. Aðalheimili Clintonhjónanna verður í húsinu í Westchester í New York. Hillary hyggst búa í húsi þeirra í Was- hington þegar þingið er starfandi. Hún mun einnig hafa aðsetur þar við ritun æviminninga sinna. Forsetinn hefur einnig lýst því yf- ir að hann muni skrifa ævisögu sína. Þó Clintonhjónin séu stór- skuldug nú vegna húsakaupa og lög- fræðikostnaðar vegna ýmissa mála þykir því vera útlit fyrir að þau verði þokkalega efnuð á endanum. Fyrrverandi forsetar eru vinsælir fyrirlesarar. Sérfræðingar telja að Bill Clinton geti fengiö allt að 90 milljónir króna fyrir hvern fyrirlestur sem hann heldur. Tilboð Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 520 6666 • Bréfasími 520 6665 • sala@rv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.