Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Blaðsíða 10
10
Hagsýni
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001
DV
Gaui litli kaupir inn fyrir heimiliö:
Grænmeti og
ávextir allt of dýrt
- en sukkið og svínaríð ódýrara
Guðjón Sigmundsson, eða Gaui litli
eins og hann er betur þekktur, rekur
Heilsuhom Gauja litla þar sem hann
hjálpar fólki að léttast með breyttum
lífsstíl og mataræði. Okkur fannst því
við hæfi að fá að skyggnast ofan í inn-
kaupakörfuna hjá honum á þessum
tíma ársins þegar stór hluti þjóðarinn-
ar er með hugann við aukakílóin sem
söfnuðust yflr hátíðamar.
Guðjón býr með eiginkonu sinni og
tveimur dætrum sem allar em græn-
metisætur en hann borðar kalkún,
kjúklingabringur og fisk. „Og ég slæ
ekki hendinni á móti góðri steik,“ seg-
ir hann. Gaui var grænmetisæta í 15
ár og segist hann aldrei hafa verið feit-
ari en á þeim tíma. „Það hangir ekki
alltaf saman að vera grænmetisæta og
að vera grannur," segir hann. „Þó
maður borði ekki kjöt getur verið að
maður sæki í hluti sem era ekki mjög
hollir, eins og mikið af mjólkurvörum,
sætabrauð, sætindi og þess háttar."
Gaui er duglegur við matarinn-
kaup heimilisins og segir
dætumar kreQast þess að
hann sjái um þau mál.
Ástæðuna segir hann
vera þá að hann kaupi
yfirleitt mun meira
inn en konan. „Ég hef
nokkrar meginreglur
sem ég fer eftir þeg-
ar ég þarf að
kaupa í
matinn.
Regla
númer
eitt er
að
gera
alltaf
inn-
kaupalista og kaupa eingöngu það sem
er á listanum og svo fer ég aldrei
svangur í matarbúðir því þá fellur
maður fyrir freistingum."
Ekki hrifinn af grænmeti
Þrátt fyrir að Gaui og íjölskylda
hans borði mikið af grænmeti viður-
kennir hann að hann sé ekki mjög
hrifinn af því. „Ég veit að ég þarf að
borða þennan mat og því geri ég þá
kröfú að grænmetið sé nýtt og ferskt.
Það er skárra þannig," segir hann. Þó
svo dætumar segi að hann kaupi
meira inn en mamma þeirra finnst
honum betra að fara oft og kaupa lítið
inn í einu. „Grænmeti og ávextir
geymast ekki lengi og það er ekki mik-
il hagsýni í því að kaupa mat sem end-
ar í raslinu. Við reynum að nýta mat-
inn vel, t.d. er á innkaupalistanum i
dag tvær máltíðir, annars vegar fiskur
og kartöflur og hins vegar kjúklinga-
bringur með hrísgrjónum. Við nýtum
afgangana af hrísgijónunum og kart-
öflunum sem uppistöðu í í
kjamgóða grænmetissúpu
sem er hinn finasti mat-
ur og fjölgum þannig
máltíðunum sem fást
úr þessum innkaup-
um. Afgangsgræn-
meti er líka
f'*’ hægt að
steikja og
^ nýta á
ýmsan
hátt.“
Offitufaraldur
Hann segir grænmeti
og ávexti vera allt of dýr-
an mat og segir grænmeti
jafnvel vera „dýrara en
nautainnralæri". Segir
hann það til skammar og
finnst að stjórnvöld ættu
að leggja niður aðflutn-
ingsgjöld og tolla af þess-
um vöruflokkum, sérstak-
lega í ljósi þess að sífellt er
verið að hvetja fólk til að
taka upp heilbrigðara líf-
emi. „Við eigum í dag ein
þyngstu böm í Evrópu og
offita er eitt stærsta heil-
brigðisvandamál í heimin-
um og nýleg yfirlýsing
skilgreinir offituna sem
faraldur. Þetta ástand fer
versnandi ef eitthvað er.
Við eigum að spoma við
þessari þróun með for-
vömum og þá með því að
hvetja böm til að borða
meira af grænmeti og
ávöxtum. Það er öfugsnú-
ið að reyna að ýta undir
neyslu grænmetis og ávaxta þegar
þessar vörur era dýrari en annað sukk
og svínarí."
Sykur eins og fíkniefhi
Þurrkaðir ávextir skipa stóran sess
matarinnkaupum Gauja. „Þetta er
minn sykur og mitt snakk,“ segir hann
og raðar nokkrum slíkum pokum ofan
i innkaupakörfuna. „Ég skammta mér
í smá skál á kvöldin og maula þetta
yfir sjónvarpinu,“ segir hann og bætir
svo við: „Mikilvægt er fyrir fólk sem
komið er á minn aldur að hafa góðar
hægðir og því er
nauðsynlegt að
borða mikið af trefi-
um.“ Gaui segir mik-
ilvægt að borða
skynsamlega allt
árið um kring þó
nauðsynlegt
sé að leyfa
sér
Ekki grænmetisæta
Hér sést Gaui velja sér kjúkiingabringur sem
hann segist vera sérfræöingur í að elda.
smávegis, eins og t.d. smá rjóma í kaff-
ið, smakk af páskaegginu og þess hátt-
ar. „Ég verð samt að gæta mín á því að
leyfa mér ekki of mikið. Ég þekki mig
það vel að ég veit að ef ég sleppi mér of
mikið fer ailt fjandans til og ég tek
ekki sénsinn á því. Ég fengi áfall ef ég
færi allt í einu að borða mikinn sykur.
Ég hef verið svo sykurlítill undanfarið.
Sykur virkar eins og fikniefni í æð á
svona matarfíkil og offitusjúkling eins
og mig. Ég misnota mat og ég þarf að
læra að umgangast hann á réttan hátt
og ég keppist við það alla daga.“ -ÓSB
Innkaupalisti Gauja litla
Grænmeti
Kartöflur
Laukur
Tómatar
Gúrka
Salathaus
Sellerí
Paprika
Púrrulaukur
Sveppir
Ávextir
Appelsínur
Epli
Bananar
Mandarínur
Plómur
Vínber
Kiwi
Rúsínur
Döðlur
Gráfikjur
Sveskjur
DV-MYNDIR HILMAR ÞÓR
Kornvörur
Hrísgrjón
Kúskús
Rauðar linsubaunir
Haframjöl
Wheetabix
Hrökkbrauð
Grófar bruður
Miólkurvörur
Fjörmjólk
Létt-jógúrt
Skyr
Ostur
Mysingur
Viðbit
Kiötvörur
Kalkúnaskinka
Kjúklingabringur
Annað
Ólífuolía
Te
Trópí
Boröár bara ferskt Fiskur
Gauja finnst margt betra en að borða grænmeti en þar sem hann veit að þaö er hollt og gott lætur Fersk ýsuflök
hann sig hafa það. En þá verður það að vera ferskt.
Tilboð verslana
Tilboöin gilda til 7. janúar.
0 Cheerios 325 kr.
Q Appelsínur 149 kr. kg
Q Jónagold epli 99 kr.
0 Chiquita Acesafi, 11 149 kr.
0 GK brauö, 770 g 129 kr.
0 GK brauö 129 kr.
Q GKkaffi, 500 g 179 kr.
0 Ferskir kjúklingaleggir 629 kr. kg
0 Ferskar bein- og skinnlausar
Q kjúkiingabringur 1439 kr. kg
Hraðbúöir ESSO
Tilbodin gilda til 31. janúar.
0 Freska, 1/21 109 kr.
0 Malta, stórt, 45 g 49 kr.
Q Nóa Risa Tópas, venjul./xylitol 85 kr.
Q Eitt sett frá Nóa 49 kr.
0 Homeblest kex, blátt 109 kr.
Q Floridana appels/eplasafi 59 kr.
Q Arinkubbar, Pyrobloc 195 kr.
Q Pokémon Plkahu heftarl 495 kr.
Q Pokémon bublasaur yddari 495 kr.
Q) Pokémon lítiö ritfangasett 495 kr.
Tilboöin gilda til 4. janúar.
0 Létt AB-mjólk, 11 118 kr.
Q Létt og laggott, 400 g 130 kr.
0 Egils Kristall, 2 1 134 kr.
0 Freschetta pitsa, 4 teg. 298 kr.
0 Ágætis-hrásalat, fituminna 129 kr.
Q
Q
Q
Q
©
Fiaröarkaup
Tilboöin gilda til 6. janúar. |
0 Grísakótilettur 645 kr. kg
0 Grisabógur 389 kr. kg
Q Reyktur grisabógur 398 kr. kg
0 Gul epli 115 kr. kg
0 Græn epli 115 kr. kg
Q
Q
Q
Q
1©
Þurrkaöir ávextir
„Þetta er minn sykur og mitt
snakk, “ segir Guðjón Sigmundsson
eða Gaui litli.
FRJÁLS ^m'ÍJARSKIPTI
Halló - Frjáls fjarskipti:
Sakað um
að hnupla
viðskipta-
vinum
- ekki rétt, segir sölustjóri
í haust var nokkuð um það að fólk
kvartaði um að vera skráð í viðskipti
við fyrirtækið Halló - Frjáls fiarskipti
ehf. án þess að hafa beðið um það en
fýrirtækið býður upp á ódýr miili-
landasímtöl. Síminn lagði fram
kvörtun til Póst- og fiarskiptastofnun-
ar sem gerði athugasemdir við skrán-
ingu nýrra viðskiptavina Halló -
Frjálsra fiarskipta. Fyrirtækið lofaði
bót og betrun en
svo virðist
sem ekki
hafi verið
staðið við
það og að
þeir séu enn
að skrá við-
skiptavini að
þeim forspurðum.
Lesandi DV hafði
samband fyrir skömmu
og sagði frá þvi að hon-
um hafi fyrir nokkra verið
boðnar upplýsingar um
millilandatengingu Halló og þáði hann
það. Síðan hafa hans miHilandasímtöl
farið í gegnum Halló. Hann gerði at-
hugasemd við fyrirtækið í desember
og var honum sagt að um mistök hafi
verið að ræða, þau yrðu leiðrétt og
fengi hann bréf þess efnis miili jóla og
nýárs. Þegar hann svo hafði samband
við Landssímann milli jóla og nýárs
fékk hann að vita að engin leiðrétting
hefði verið gerð og ekki barst honum
bréfið.
Guðlaugur Magnússon hjá Halló
segir að fyrirtækið sé ekki að tengja
viðskiptavini sem ekki hafi beðið um
það. Það séu ekki góðir viðskiptahætt-
ir og engu fýrirtæki til framdráttar að
stunda slík vinnubrögð. Hann segir
jafnframt að í flestum þeim tiifellum
sem viðskiptamenn vora skráðir hjá
þeim án þess að vita af því hafi ein-
hver annar á heimilinu samþykkt
skráninguna. „Til að fyrirbyggja slík-
an misskilning höfum við haft þann
háttinn á að þeir sem samþykkja að
taka upp þjónustuna fá bréf þar sem
þeir era boðnir velkomnir sem við-
skiptavinir Halló. En tengingin sjálf
fer ekki fram fyrr en ca 10 dögum síð-
ar þannig að góður tími gefst fýrir við-
skiptavini til að koma með athuga-
semdir. Slikar athugarsemdir fá sér-
staka meðhöndlun og era mjög fáar
segir Guðlaugur. „Við erum með þessu
að tryggja að fólk sé ekki tengt án þess
að vita af þvi, því við getum auðvitað
ekki talað við alla á heimilinu". Guð-
laugur segir einnig að ekki sé neitt
mál að færa tengingu. -ÓSB