Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Qupperneq 11
11
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001
DV
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 3540 m.kr.
- Hlutabréf 2143 m.kr.
- Sparisktrteini 585 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
■Q Islandsbanki-FBA 607 m.kr.
■ Q ??? 433 m.kr.
Ö ??? 318 m.kr.
MESTA HÆKKUN
í o Grandi 2,2 %
o Samheiji 1,7 %
O Marel 1,4 %
MESTA LÆKKUN
O Kögun 13,4 %
: O íslenska Járnblendifélagiö 12 %
O Búnaöarbankinn 10,5 %
ÚRVALSVÍSITALAN 1275 stig
- Breyting O 2,36 %
Framleiðslutöl-
ur auka líkur á
vaxtalækkun
Bandarísk framleiðslufyrirtæki
héldu áfram að draga úr starfsemi á
síðustu mánuðum ársins 2000, en
vísitala sem mælir framleiðslu
bandarískra fyrirtækja lækkaði úr
47,7 í nðvember sl. niður í 43,7 í des-
ember. Þetta er mesta lækkun vísi-
tölunnar milli mánaða frá því í mai
1995 og lægsta gildi hennar frá því í
april 1991.
Lækkun vísitölunnar er talin
vera enn ein vísbendingin um að
verulega sé að draga úr þrótti
bandarísks efnahagslífs. Lækkun
vísitölunnar er einnig talin auka
verulega líkurnar á að bandaríski
seðlabankinn lækki vexti siðar í
janúar.
Microsoft sak-
að um óeðli-
lega mismunun
Sjö núverandi og fyrrum starfs-
menn Microsoft ætla að kæra fyrir-
tækið fyrir mismunun gagnvart
blökkumönnum, en starfsmennirnir
segja að þeim sé mismunað við
frammistöðumat, stöðuhækkanir
o.fl. Farið er fram á fimm milljarða
dollara í skaðabætur.
Ákæran verður lögð fyrir banda-
riska dómstóla síðar í dag, og er
henni bæði beint að fyrirtækinu
sjálfu og að stjórnarformanni þess,
Bill Gates. Lögmenn ákærendanna
benda m.a. á að árið 1999 hafl aðeins
2,6% af 21.400 starfsmönnum
Microsoft verið blökkumenn, og að
hlutfall blökkumanna meðal 5.200
yflrmanna hefði þá aðeins numið
1,6%.
04.01.2000 kl. 9.15
KAUP SALA
m Dollar 84,050 84,480
Örl Pund 126,140 126,790
Kan. dollar 56,180 56,530
£5 ÍDönskkr. 10,6450 10,7040
iU§?jNoiskkr 9,5870 9,6400
EjS Sænsk kr. 8,9140 8,9640
HH Fi. mark 13,3474 13,4276
B B Fra. franki 12,0984 12,1711
11 fcl Bolg. franki 1,9673 1,9791
; Q Sviss. franki 52,2100 52,5000
£2 Holl. gyllini 36,0121 36,2285
P®! Þýskt mark 40,5763 40,8201
i M t i ít. líra 0,04099 0,04123
QCj Aust. sch. 5,7673 5,8020
j Port. escudo 0,3958 0,3982
í; JSpá. peseti 0,4770 0,4798
i * IJap. yen 0,73300 0,73740
j 11 f 1 irskt pund 100,766 101,372
SDR 110,0100 110,6700
^ECU 79,3602 79,8371
Viðskipti
Umsjön: Víöskiptablaðið
Netis og Span
sameinast
Tæknifyrirtækin Netis hf. og Span
hf. hafa ákveðið að sameinast en
bæði fyrirtækin hafa að undanfórnu
unnið að uppbygginu á rafrænum
viðskiptavettvangi fyrir íslensk fyr-
irtæki og stofnanir.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá félögnum að þau hafi bæði unnið
ötullega að þessum málum undanfar-
in misseri og forráðamenn þeirra
telja að saman geti þau boðið traust-
ar lausnir sem standi undir þeim
væntingum sem gerðar eru til hag-
kvæmni og öryggis í rafrænum fyrir-
tækjaviðskiptum.
í hluthafahópi hins nýja félags eru
mörg af öflugustu hátæknifyrirtækj-
um landsins, auk stórra rekstrar-
vörukaupenda.
Rafræn viðskipti hafa í fór með
sér verulegan sparnað og hagræð-
ingu í innkaupum á vöru og þjón-
ustu fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Viðskiptin eru skráð sjálfkrafa og
samstundis í bókhald kaupenda og
birgja, sem þýðir að umsýslukostn-
aður minnkar, aðhald að fjárhagsá-
ætlunum verður virkara og samn-
ingsgerð auðveldari.
„Þessi tegund viðskipta er þegar
hafin hér á landi með samstarfi og
tengingu Flugleiða við Pennann,
Odda og Rydenskaffi," segir Rúnar
Már Sverrisson, framkvæmdastjóri
Netis. „Flugleiðir eru þannig fyrsta
íslenska fyrirtækið til að stunda raf-
ræn innkaup á rekstrarvörum, þar
sem allt ferlið, frá beiðni til bókunar
reiknings frá birgja, gerist rafrænt
og sjálfvirkt. Svipað verkefni á veg-
um Spans er einnig i burðarliðnum á
vefsvæðinu torg.is, þar sem Lands-
siminn, Orkuveita Reykjavíkur og
Olíufélagið taka þátt í uppbyggingu
rafrænnar viðskiptamiðstöðvar.
Þannig hafa bæði fyrirtækin verið að
vinna að kappi að undirbúningi og
uppsetningu rafrænna viðskipta hér
á landi og sameinuð munu þau bjóða
fram heildstæða lausn á þessum mál-
um fyrir fyrirtæki og stofnanir."
Hið nýja fyrirtæki gerir ráð fyr-
ir að taka þátt í útboði Fjármála-
ráðuneytisins og Ríkiskaupa, en
þessar stofnanir hafa ákveðið að
leita eftir samstarfsaðila um þró-
un og rekstur á rafrænu markaðs-
torgi fyrir rikisstofnanir.
Að hinu sameinaða félagi
standa mörg af stærstu fyrirtækj-
um landsins, þar á meðal íslands-
banki-FBA, Búnaðarbankinn,
Landssíminn, Burðarás, Flugleið-
ir, Orkuveita Reykjavíkur, Kögun,
Teymi, Opin kerfi, Olís, Penninn
og BYKO. Heildarhlutafé hins
nýja fyrirtækis er 250 milljónir
króna.
Olíuverslun íslands
kaupir hlut í Skaganum
Olíuverzlun íslands hf. hefur
keypt hlutafé í Skaganum hf, sem
er þróunar- og framleiðslufyrirtæki
á Akranesi og hefur sérhæft sig í
þjónustu við sjávarútveginn. Kaup-
verðið er greitt með þvi að íshreinn
ehf. gengur inn í Skagann og sam-
einast þessi tvö félög og auk þess
leggur Olís fram viðbótarhlutafé til
Skagans hf. Hlutur Olís í Skagan-
um hf. eftir þetta verður um 18%.
Helstu framleiðsluvörur Skagans
eru vinnslu- og pökkunarkerfi fyrir
fiskiðnað og fiskiskip, snyrtilínur,
færibönd, brettastöflunarkerfi,
lausfrystar o.fL
íshreinn ehf. er þróunar- og
framleiðslufyrirtæki í eigu Olís
sem framleiðir þvottakerfi fyrir
fiskiskip, fiskiðnað og önnur mat-
vælafyrirtæki. Þá hefur verið unn-
ið að þróun karaþvottavélar hjá ís-
hreini.
I frétt frá Olís vegna kaupanna
segir að það sé álit stjórnenda Olís
að hér sé um að ræða mjög áhuga-
verðan kost tengdan stefnumótun
félagsins í þá veru að auka þáttöku
félagsins i þjónustu og viðskiptum
Smáauglýsingar
byssur, ferðalög, ferðaþjónusta,
fyrir ferðamenn, fyrir veiðimenn,
gisting, golfvörur, heilsa, hesta-
mennska, Ijósmyndun, líkamsrækt,
safnarinn, sport, vetrarvörur,
útilegubúnaður... tómstundir
L
DV
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍf.ÍS 550 5000
FAXAMARKAÐUR HF.
Hluthafafundur í Faxamarkaðnum hf.
verður haldinn á Gauki á Stöng
fimmtudaginn 11. janúar kl. 17.
Dagskrá:
1. Ákvörðun um sameiningu Faxamarkaðar
og Fiskmarkaðar Breiðafjarðar hf.
2. Önnur mál.