Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001 Skoðun DV Spurning dagsins Áttu erfitt með að vakna á morgnana? Birgir Asgeirsson verkstjóri: Nei, ég vakna alltaf 6.40 á morgnana. Árni Andersen prentsmiður: Nei, frekar auövelt. Vakna alltaf kl. 6.30 og gef hestunum. Guðlaug Asbjörnsdóttir bókbindari: Nei, alls ekki. Ég vakna alltaf um 6.45. ■ ■%.;,- .m ■ w pHSXNkí ■■ i Sigurbjörg Sigurðardóttir aðstoðarbókbindari: Nei, ég vakna alltaf kl. 6.45. Sara T. Rúnarsdóttir aðstoðarbókbindari: Nei, alls ekki. Ég vakna kl. 1. Soffía Rut Jónsdóttir prentsmiður: Nei, en þaö er erfiöara aö vekja börnin mín. Dagfari Áramótaávörpin - hófsöm varnaðarorð á róstutímum Magnús Sigurðsson skrifar: Flestir munu skynja að hér á landi hafa um nokkurt skeið ríkt hálfgerðar róstur í efnahagslífi svo og skóla- málum. Skólarnir hafa ver- ið lokaðir og þúsundum nemenda stefnt á götumar samhiiða þrotlausu þrefi kennara um kauphækkanir sem þjóðfélaginu er um megn að reiða fram, án þess að vinnumarkaðurinn allur sporðreisist endanlega. Fjármálakerfið hefur nán- ast sundrast með ótímabær- um og óhugsuðum vænting- um almennings um skjót- fenginn gróða með kaupum verðbréfa af ýmsum toga sem margir hafa svo selt jafnharðan vegna þess að þeir hafa ekki getað beðið eftir gróðanum og því orðið fyrir óbætanlegu tjóni. Við þessar aðstæður er ráða- mönnum vandi á höndum er þeir flytja áramótaávörp sín. - Segja má að bæði forsætisráðherra og forseti íslands hafi, hvor með sínum hætti, lagt sín lóð á vogarskálamar með hófsömum varnaðarorðum til þjóð- arinnar. Þeir sneiddu t.d. báðir hjá eldfimum tilraunum forsprakka ör- yrkja til að slíta sundur friðinn milli dóms- og framkvæmdavalds með því að krefjast tafarlausra bóta- greiðslna eftir nýgenginn dóm Hæstaréttar um tekjutengdar bætur öryrkja í sambúð. Ekki fyndist mér ólíklegt að þess- ir tveir æðstu embættismenn þjóð- arinnar hefðu sammælst um að láta þetta hitamál liggja í þagnargOdi í áramótaávörpunum. Hitt hefði líka einungis verið að hella olíu á eld- inn, en einnig ósmekklegt að gera Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, og Davíð Oddsson forsætisráðherra Hafa lagt drög aö þjóöarsátt og óskaö eftir undirtektum. „Staðreyndin er nefnilega sú að auðnist okkur íslend- ingum ekki að ná sam- komulagi um enn eina þjóðarsátt í launamálum verður sundur slitinn frið- urinn á vinnumarkaði og um leið er úti um aðrar sáttatilraunir sem senn verður þörf á að vinna að. “ fámennu óróaliði það til geðs að fjalla um eitt deilumál innan þjóðar- heildarinnar, umfram önnur. Líklega fer eitthvað af nýbyrjuðu ári í það að ganga til hófsamrar samningagerðar um launahækkanir og endurtaka þar með eins konar þjóðarsátt um svipaða skiptingu þjóðarkökunnar og þegar lauk hér verðbólgubálinu mesta og upphófst það góðæristímabil sem enn stend- ur. - Það var því að vonum að for- seti Islands léti orö falla sérstaklega um það mál. Staðreyndin er nefnilega sú að auðnist okkur íslendingum ekki að ná samkomulagi um enn eina þjóð- arsátt í launamálum verður sundur slitinn friðurinn á vinnumarkaði og um leið er úti um aðrar sáttatil- raunir sem senn verður þörf á að vinna að. Nefnilega í auðlindamál- um þjóðarinnar, bæði til lands og sjávar. - Tveir fremstu embættis- menn þjóðarinnar hafa nú um ára- mótin lagt drög að slíkri sátt og ósk- að eftir undirtektum þjóðarinnar við þau. Launhelgi lyganna - bókin í ár H. Gunnarsdóttir s krifar: Jólin eru að baki og flestir búnir að lesa jólabækurnar sínar. Og þegar ekkert er eftir til að lesa er farið á bókasafnið til að fá lánaðar bækur sem ekki voru í jólapakkanum, eða þær sem ættingjar og vinir hafa mælt með. Einni bók mæli ég sérstaklega með, Launhelgi lyganna, og skrifuð undir dulnefninu Baugalin. Þessi bók sem er 400 bls. er sönn saga rúm- lega fertugrar konu sem varð fyrir kynferðislegri misnotkum af stjúp- föður sínum er hún var bam. Hún lýsir því hvemig henni líður meðan atburðurinn á sér stað, hvernig „Bókin hafði svo mikil áhrif á mig að ég varð að lesa hana í skömmtum, og svo óhugnanleg á köflum. Aldrei hvarflaði þó að mér að hœtta við hana ...“ skömmin og sektarkenndin fylgir henni alla æskuna, hvemig fjöl- skyldan og fullorðna fólkið bregst við og svo hvemig staðan í þessum málum er í dag. Þessi bók á fullt erindi til allra for- eldra, systkina, afa og ömmu og þeirra sem starfa að málefnum barna, kennara, sálfræðinga, geð- lækna og blaðamanna. Einnig þeirra sem starfa í dómskerfmu, ekki hvað sist þeirra sem semja lögin, því eitt- hvað meira en lítið er athugavert við löggjöflna í þessum málum eins og hún er í dag. Bókin hafði svo mikO áhrif á mig að ég varð að lesa hana í skömmtum, og svo óhugnarleg á köflum. Aldrei hvarflaði þó að mér að hætta við hana, og hafi ég einhvem tímann efast um sannleiksgildi svona mála, þá geri ég það ekki lengur. Svona ljótar sögur eru einfaldlega ekki hugsaðar upp, til þess þyrfti sjúkan huga. - Til ham- ingju með bókina, Baugalín, það þarf mikinn kjark tO að skrifa svona bók. Ellefu fyrir einn Þau tíðindi hafa nú gerst að Matthías Jo- hannessen ritstjóri er farinn af ritstjórastól Morgunblaðsins. Matthias er ástsælt skáld sem verið hefur í heiðurslaunaflokki rithöf- unda frá blautu bamsbeini. Hann er ham- hleypa til verka og því var einsýnt að átta tímar á dag í þjónustu þjóðar við að yrkja sálma, sögur og ljóð nægðu honum ekki tO eðlOegrar útrásar. Hann tók þvi að sér að ritstýra Morgunblaðinu, þar sem hann hef- ur með innblæstri sínum göfgað hjörtu ann- arra starfsmanna ritstjórnar, að íslensku þjóðinni ónefndri. Um hartnær hálfrar ald- ar skeið hefur heiðursskáldið góða stjórnað Mogganum i gegnum brotsjói jafnt sem um lygnan sæ. Skáldið gekk ótrautt fram með sannleikann einan að vopni; gegn almenn- ingsálitinu ef því var að skipta. Með handafli hélt hann íslandi í Atlantshafsbanda- laginu og ljáði ekki máls á því að kommúnistar fengju sinu fram með rövli um ísland úr NATÓ. Aðeins einu sinni skriplaði skáldið á skötunni, en það var þegar hann tók upp á þeirri ósvinnu að berjast gegn kvótakerfinu með oddi og egg. Enda mætti hann mótstöðu inn- an eigin ritstjómar þar sem einhverjir framsýnir menn áttuðu sig á því sem komið er á daginn, að Aðeins einu sinni skriplaði skáldið á skötunni, en það var þegar hann tók upp á þeirri ósvinnu að berjast gegn kvótakerfinu með oddi og egg. kerfið byggðist á skynsemi og góðvilja fram- sýnna stjómmálamanna sem vOdu þjóðinni að- eins það besta. En aOt á sér sitt skapadægur og nú er runninn upp sá tími sem svo margir kviðu og Matthías hefur stigið upp af ritstjóra- stólnum. Hann getur litið stoltur um öxl, því kommúnistarnir eru komnir upp í rúm hjá auðvaldinu og ísland er svo sannarlega í Atlantshafsbandalaginu. Þá hefur Morgun- blaðið rofið tengslin við stjórnmálaflokka og er engum háð. Hafi einhver velkst í vafa um mikilvægi Matthíasar ætti þeirri óvissu að vera eytt nú þegar þrír fóstursynir hans hafa tekið við veldissprotanum. Að auki hafa átta aðrir fengið stöðuhækkanir. Minna dugði ekki tO svo skarðið yrði fyOt. Umbyltingin á Mogganum minnir um margt á alkunna jólavísu þar sem segir að allir fái þá eitthvað faOegt. I það minnsta...nýjan titO. Nú heita fréttastjórarnir aðstoðarfrétta- ritstjórar og sá eini þeirra sem ekki fær aðstoð- arfréttaritstjóratOtO er hér eftir fréttastjóri með Alþingi íslendinga með sérgrein. Þar sem gamli ritstjórinn kveður gengur hann í gegnum heið- ursröð þar sem hönd er borin snöggt upp að hverri silkihúfunni af annarri. Já, dýr er Matthías aOur, eða með öðrum orðum, hvemig var þetta hægt, Matthías? Frá Vestmannaeyjum - á ríkiö að taka yfir atvinnureksturinn? Á tímamótum Garöar Guðmundsson hringdi: Búsetan í dreifbýlinu er sífeOt um- ræðuefni. En það þarf ekki hið eigin- lega dreifbýli tO. Fólk í þorpum og bæjum landsins þar sem atvinna hef- ur snarlega minnkað er orðið áhyggjufuOt. Oft er lítið annað tO bjargar en að sækja í þéttbýlið. Þannig standa nú t.d. Vestmannaey- ingar á tímamótum og horfa upp á fólksfækkun með minnkandi vægi sjávarútvegs þar í bæ. Sumir segja boltann vera hjá stjómvöldum í þess- um efnurn. HvíOk firra! Auðvitað er það fólksins sjálfs að sjá sér farborða, hvort heldur með stofnun atvinnu- rekstrar eða sækja vinnu t.d. í þéttbýl- ið við Faxaflóann. Stjórnvöldum er ekki skylt að tilkynna íbúum byggðar- laga sérstaklega hvort lagðir verða peningar í endurreisn byggðanna, og eiga heldur ekki að gera það. Skuttogari og löndun Sigvaldi Ólafsson skrifar: Vegna ummæla framkvæmdastjóra LÍÚ í sjónvarpi um launakostnað út- gerðarinnar langar mig að benda á eftirfarandi dæmi: Skuttogari á ísfisk- veiðum landar afla fyrir 1.000.000 kr. Þá er skiptaverð 700.000. Útgerðar- maðurinn tekur fyrst 300.000 tfl sín, síðan fá sjómennimir 28,5% sem þá er eftir, sem er 199.500 kr. að viðbættum aukahlut, samtals 242.060 kr. Þá orlof og lífeyrissjóður, afls 282.677 kr. Þá bendi ég á það að verðið á fiskmörk- uðunum er miklu hærra en í föstum viðskiptum. Það gæti hjálpað. Karfa- verð í Þýskalandi var yfir 100 kr. 1993, en er um 40 kr. í fóstum viðskiptum í dag. Hér ætti að taka upp norsku að- ferðina tfl að skflja á miOi veiða og vinnslu, þá yrði ekki feluleikur með fiskverð. - Ég hvet sjómenn til að tjá sig um þessi mál. Heiöurinn misskilinn Guðjón Ólafsson skrifar: Mér finnst hama- gangurinn vegna dóms Hæstaréttar, um tekjutengingu öryrkja sem er i sambúð með fufl- vinnandi aðfla, vera að taka afar ranga stefnu. Auð- vitað þarf hér að setja ný lög tO að styðjast við leiðrétt- Fer nýheiöraöur ingu. Og þar tek ég offari? undir með Guðrúnu Helgadóttur rithöf- undi sem tjáði sig um málið í DV ný- lega. Bægslagangur formanns Ör- yrkjabandalagsins og hótanir hans í ýmsar áttir innan stjómsýslunnar lýsa grunnhyggni. Hann hefur nú ver- ið kosinn „maður ársins“ hjá Rás 2 (af öflum stöðvmn!). En heiðurinn er eitt- hvað misskilinn hjá honum haldi hann áfram að efna tfl ófriðar í þjóð- félaginu. Hann veit fuflvel að sú stofn- un fær enga peninga í kassann án undangenginnar ráðstafana Alþingis. Starfsmannavæn jól Friðþjófur hringdi: Alveg er það út í hött hjá fram- kvæmdastjóra Póstsins að nefna það upphátt, að lokun hans hafi tengst því að veita starfsfólkinu „starfsmannavæn jól“. Svona maður á ekki að vera í for- svari fyrir opinberri stofnun af neinni tegund. Enginn stjórnandi í einka- rekstri fengi að komast upp með svona skýringu. En hið opinbera er samt við sig. Þar er enginn látinn víkja. Enda em stofnanir þess eins og þær era. Garöar Sverrisson, form. Öryrkja- bandalagsins Aft Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangið: gra@ff.is Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11,105 ReyKjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.