Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Qupperneq 25
29 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001 PV_______________________ Tilvera ; Eftiriystur Gestur Einar Jónasson, Þórhallur Sigurðsson, Edda Björgvinsdóttir og bíllinn góði. Ný kvikmynd um Stellu í orlofi: Leita að bílnum hennar Stellu í nýju myndinni fylgj- umst við með þegar Stella reynir fyrir sér í pólitík og fer í framboð, segir Halldór Þorgeirsson kvikmyndagerðarmaður. Halldór Þorgeirsson kvikmynda- gerðarmaður ætlar ásamt fleirum að gera sjálfstætt framhald af hinni geysivinsælu mynd Stella í orlofi. Halldór segir að það séu flmmtán ár síðan fyrsta myndin um Stellu var frumsýnd. „Vegir Guðs er órannsakanlegir og nú er kominn tími til að gera nýja mynd sem fjallar um það þegar Stella fer í framboð. Guðný Hall- dórsdóttir skrifar handritið og hún ætlar líka að leikstýra myndinni. Það er búið að taia við alla sem voru í aðalhlutverkum í Stellu í or- lofi og þeir ætla að vera með í Stellu í framboði. Við stefnum að því að frumsýna myndina 18. október því þá eru nákvæmlega fimmtán ár frá því að hin myndin var frumsýnd. Við ætlum að byrja um leið og Kvik- myndasjóður gefur grænt ljós.“ Halldór Þorgeirsson kvikmynda- geröarmaður Það eina sem vantar til aö full- komna verkiö er aö finna bíiinn sem viö notuöum í fyrri myndinni. Þetta er Ford Fairmont, árgerö 1979, og þótti drusta á sínum tíma en stóö fyrir sínu í myndinni. Vantar bílinn „Það eina sem vantar til að full- komna verkið er að flnna bílinn sem við notuðum í fyrri myndinni. Ef ég finn hann ekki þá verð ég að kaupa sams konar bíl erlendis frá. Þetta er Ford Fairmont, árgerð 1979, og þótti drusla á sínum tíma en stóð fyrir sinu í myndinni. Ég var svo vitlaus að selja hann á sínum tíma og man náttúrlega ekkert hver keypti hann. Reglur tölvunefndar eru þannig að við getum ekki leitað hann uppi, ég ætla því að nota tæki- færiö og auglýsa eftir honum hér. Númerið á bilnum var R-35240 og mér er sagt að hann hafi sést á göt- unni fyrir nokkrum árum. Það er svo sem hægt að nota hvað Ford Fairmont 1979 sem er og sprauta hann í upprunalegu litunum. Sím- inn hjá mér er 892 9823. Ég verð illa svikinn ef þessi mynd verður ekki að minnsta kosti jafn- skemmtileg og hin. Við vitum ekki enn þá af hverju Stella í orlofi varð eins vinsæl og raun bar vitni en stefnum að því að skemmta öllum sem sáu hana jafn vel með því að fylgjast með þegar Stella reynir fyr- ir sér í pólitík og fer í framboð." -Kip Heimskulegasta yfirlýsing ársins. Áhorfendur breska sjónvarpsins BBC eru þeirrar skoðunar að lrnatt- spyrnukappinn David Beckham hafi látið falla heimskulegustu ummæli ársins 2000. Hann varð ótvíræður sig- urvegari með þessari yfirlýsingu: „Ég vil að Brooklyn verði skírður. Ég veit bara ekki enn til hvaða trúar.“ í heimildarþætti BBC um David Beckham kemur fram að hann telji sig heimskan. Hann lýsti yfir ótta sín- um við að geta ekki svarað spuming- um þáttagerðarmannsins. David við- urkenndi einnig að hafa ekki verið sá klárasti í sínum bekk. Greinilegt þyk- ir að eitthvað hafi skort í trúarbragða- fræðakennslunni. George Bush, verðandi forseti Bandaríkjanna, fékk 10 útnefningar fyrir heimskulegustu ummælin. Hann Otvíræöur sigurvegari David Beckham viöurkennir aö hann sé heimskur. mun meðal annars hafa sagt eftirfar- andi: „Innflutningur okkar kemur í sífellt auknum mæli að utan.“ Tryggingafélag í mál við Culkin Tryggingafélag í | ^j^nKrn Þorláksmessu 1998, í Bandaríkjunum hefur , íbúð móður leikarans höfðað mál á hendur á 19. hæö. Móðirin kvikmyndaleikaranum KjnE:-' flúði úr íbúðinni en Macaulay Culkin og KBHfc skildi hana eftir opna. foreldrum hans, meðal í jHM®1 'iWU Það varð til þess að annarra, til að endur- k* H - -y- —JU eldurinn breiddist út heimta bætur sem það H^ • um 53 hæða háhýsið, þurfti að greiða eftir |H| ^H með fyrrgreindum af- eldsvoða á heimili fjöl- Jj^H leiðingum. Macaulay skyldunnar í New \ H bjó ekki í íbúðinni York. Fjórir týndu lífi í ^^Hl þegar eldurinn kom eldinum sem kom upp á ^^Hk___þar upp. SPAR SP0RT TOPPMERKI A LAGMARKSVERÐI Nóatúni 17, sími 511 4747

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.