Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2001, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2001, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 DV 7 Fréttir Úttekt á níu félagsheimilum í Skagafirði: Fimm minnst notuðu heimilin verði seld DV. SAUDÁRKRÓKI: „Grundvallaratriöi er að selja eignir til að lækka rekstrarkostnað. Lagt er til að minnst notuðu félags- heimilin, Ketilás, Melsgil, Skagasel og Félagsheimili Ripurhrepps, verði seld sem fyrst. Um leið og starfsemi Steinsstaðaskóla verður færð í Varmahlíðarskóla verði Árgarður seldur," segir meðal annars í tillög- um sem settar eru fram í skýslu um „Úttekt á félagsheimilum í Skaga- firði“ sem starfsmenn Atvinnuþró- unarfélagsins Hrings unnu að beiðni menningar-, íþrótta- og æskulýðsnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Skýrslan er vafalaust ekki að skapi margra ibúa Skagafjarðar en þar er farið ofan í þann vanda sem fylgir rekstri níu félagsheimila í sveitarfélaginu. Lagt er til að sér- hæfa sum félagsheimilin og breyta þeim, til dæmis Bifröst, þannig að þar geti þrifíst leikhús og hægt sé að standa að metnaðarfullum rekstri kvikmyndahúss. Breytingar felast að mestu í að setja upp föst hallandi sæti þannig að aðstaðan verði sambærileg við það sem best gerist. Rekstrargrundvöllur Ljós- heima myndi um leið styrkjast mik- ið þar sem það hús yrði nýtt betur fyrir m.a. erfidrykkjur, einkasam- kvæmi, árshátíðir, þorrablót og þess háttar starfsemi. Höfðaborg verður að nýtast áfram sem skóla- húsnæði. Miðgarður og Höfðaborg verða áfram þeir staðir sem hýst geta fjölmennari samkomur. Umsjónarmönnum þarf að fækka og húsvörslu mætti sameina tals- vert. I skýrslunni segir að félags- heimilin standi mjög illa fjárhags- lega og i núverandi skipulagi sé rekstur þeirra erfiður og skuldir safnist upp. Skipulag sé óskilvirkt og eftirlit af hálfu sveitarstjórnar hafi verið mjög lélegt og sérstaklega eigi þetta við um Bifröst. Þá sé eignarhald óljóst þar sem ýmis félög hafi hætt starfsemi og önnur aldrei lagt neitt til rekstrarkostnaðar. -ÞÁ. Fossá ÞH-362 á leiöinni frá Kína: Fýrsta íslenska skipið afhent í Klna DV, AKUREYRI:_______________________ „Skipið fór frá Kína um miðjan desember og við áætlum að það komi til heimahafnar um næstu mánaða- mót,“ segir Jóhann A. Jónsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, en Fossá ÞH-362, sem smíðuð var í Kína, er nú á leiðinni til landsins og er væntanleg til heimahafnar um næstu mánaðamót. Fossá er fyrsta skipið sem afhent er íslenskum eigendum i Kína en þar í landi er reyndar verið að smíða fleiri skip fyrir útgerðir hér á landi. Fossá er 300 tonna skip, 39 metra langt og 9 metra breitt. Það er togskip en sérbúið til kúfiskveiða og fer á þær veiðar strax eftir komuna hingað til lands. Að sögn Jóhanns A. Jónssonar er nú unnið að því á Þórshöfn að gera allt klárt fyrir vinnsluna á kúfiskin- um. Þar er sérstök verksmiðja fyrir slíka vinnslu en upp komu erfiðleik- ar í vinnslunni á sínum tíma sem raktir voru til loftræstibúnaðar og hefur verið unnið að úrbótum á þeim búnaði. -gk Grafarvogur: Skemmdarverk unnin í Húsaskóla Húsaskóli í Grafarvogi - Á síöustu vikum hafa skemmdarverk ver- iö unnin á skótanum. Talsverð skemmdarverk hafa verið unnin á Húsaskóla í Grafarvogi upp á síðkastið. Að sögn lögreglunnar í Grafarvogi var á annan tug rúða brotinn í skólanum í kringum jólin, á þrettándanum kviknaði í ruslageymslu skólans og á mánudag var sprengju komið fyrir í klósetti og sprakk hún með þeim afieiðingum að kló- settið er ónýtt. Lögreglan er með málin í rannsókn. „Við erum á góðri leið með að fá botn í þetta allt saman," sagði Einar Ásbjömsson, talsmaður lögreglunn- ar í Grafarvogi. Foreldrar i hverfinu hafa reynst lögreglu ákaflega samvinnuþýðir og er það meðal annars þeim að þakka að búið er að upplýsa hverjir stóðu að baki rúðubrotunum. Enn er ver- ið að rannsaka hvort eldurinn í ruslageymslunni hafi verið af mannavöldum og að sögn Einars gengur rannsóknin á sprengingunni vel. -SMK Hann hitti loksins draumadísina. Verst að pabbi hennar er algjör martröð. BcbertDeNÍlO BenSöDer Frá leikstjóra „Austin Powers Fyndnasta mynd ársins frumsýnd á morgun. Robert De Niro og Ben Stiller fara á kostum í nýjustu gamanmyndinni frá leikstjóra Austin Powers. ^fókus 98-9 Nöfn vinningshafa birtast í DV mánudaginn 15. januar. Vinningshafar á boðssýningu í kvöld sæki miða í þjónustuver DV fyrir kl 18.00 r • ; d haskÖlabiÖ LAUGAi DMU éiiiiiiaiwMiiiwörmaí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.