Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2001, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2001, Blaðsíða 5
Jörðin kólnaði fyrr en talið var Örsmá kristal- sögn, litlu breið- ari en tvö i mannshár, gæti } umturnað jarð- ; fræðilegri sögu jarðarinnar. j Kristallinn er elsta fasta efnið, 4,3-4,4 milljarða ára, sem fundist hefur á jörðinni og er það um 100 milljón árum eldra en elsta fasta efni sem fundist hafði áður. Kenningar vísindamanna miða við að jörðin hafl myndast fyrir 4,5-4,6 milljörðum ára og að yfirborð hennar hafi verið haf- sjór glóandi hrauns sem hafi tek- ið nokkur hundruð milljón ár að kólna niður í landmassa. En kristallinn bendir til þess að sú kólnun hafi tekið mun styttri tíma. Kristallinn styrkir hins vegar aðra kenningu. Rannsóknir á Tunglinu benda til að mikið loft- steinaregn hafi dunið á jörðinni 500-000 milljón árum eftir að ; hún varð til sem hafi brætt kóln- að yfirborðið aftur í hrauneðju og eytt öllu lífi sem sumir vís- ; indamenn telja að hafi þegar myndast. Frumkvööull tæknibylt- ingarinnar deyr william Hewlett, j'j'ilJJV annar stofnenda :, , -v, Hewlett-Packard ÁJ'JUiZlf tölvufyrirtækis- ..i—ins, iést þann 12. janúar síðastliðinn vegna aldurs, 87 ára að aldri. Hewlett stofnaði j Hewlett-Packard árið 1939 ásamt David Packard sem lést árið 1996. Þeir félagar voru meðal þeirra sem ýttu tæknibyltingunni úr ; vör frá bílskúrnum sem þeir ; ráku fyrst fyrirtækið sitt i í Sil- icon Vailey í Kaliforníu. Fyrsta j raftækið sem þeir seldu fór til ; Walt Disney kvikmyndafram- leiðandans og var notað til að fínpússa hljómgæði tónlistarinn- : ar í teiknimyndinni „Fantasíu." Hewlett og Packard, sem stofn- uðu fyrirtækið fyrir 538 dollara, ' þróuðu vasareiknitölvuna og enduðu með fyrirtæki sem í dag selur tölvur og prentara ásamt öðru fyrir um 50 milljarða doll- j ara á ári. EB styrkir nýja kynslóö veraldarvefs Evrópubanda- lagið hefur lagt fram 775.320.000 króna í styrk til : kjamorkurann- sóknarstofnunarinnar CERN í - Sviss til að fjárafla þróun sam- ; takanna á nýrri kynslóð verald- arvefs, DataGrid (í. upplýsinga- net). Vísindamenn CERN hönn- uðu upphaflega veraldarvefínn (e. WorldWideWeb, skammstafað www. í upphafí netfanga). CERN vinnur að þessu verk- ; efni ásamt fimm öðrum rann- ; sóknarstofnunum og er verkið j tilkomið vegna væntanlegs nýs öreindahraðals sem CERN hefur í smíðum. Hann mun geta skotið 40 milljónum róteinda saman á sekúndu og mun magn upplýs- inga úr hverju skoti gefa frá sér sama magn upplýsinga og ef all- j ir einstaklingar jarðarinn töluðu . í 20 sima hver í einu. Til að l höndla ailt þetta magn þarf um 100.000 PC tölvur eins og þær eru í dag og veraldarvefurinn i dag getur engan veginn ráðið við S þetta magn upplýsinga. Hakkarar farnir að skoða Linux-stýrikerfi: Ormur plagar Linux-stýrða netþjóna - eyðileggur ekkert en er til ama Nojarinn Torvald Linus fann upp Linux-stýrikerfísgrunninn sem allir hafa að- gang að og geta breytt eða bætt á aö vild og kallaö Linux svo lengi sem Tor- vald segir aö það sé í lagi. í siðustu viku kom tölvuorm- ur, sem er sér- stök tölvuvíru- stegund, fram í sólarljósið og var honum ein- göngu beint gegn netþjónatölvum sem keyra á Linux-stýrikerfinu. Einnig einbeitti ormurinn sér að- eins að netþjónum sem nota Redhat 6.2 og 7.0. Redhat er stýrikerfi sem byggir á Linux-grunninum. Ormurinn olli ekki miklum skaða og virðist ekki hafa verið búinn til í þeim tilgangi. Hann olli hins vegar truflunum í netþjónum á tvenna vegu. Til að byrja með skipti hann um upphafssíðu netþjónanna. í stað venjulegrar upphafssíðu birtist mynd af núðlupakka og fylgdu þessi skilaboð: „Hackers loooooooooooooove noodles" (í. Hakkarar elska núðlur). Ofan á þetta bætist síðan að ormurinn étur upp vinnsluminni á meðan hann skannar Netið í leit að næstu tölvu. Ormurinn nýtti sér vel þekkta galla í Redhat-stýrikerfinu sem aOir vissu um. Redhat-fyrirtækið var meira að segja búið að gefa út bæt- ur fyrir gallana en þar sem tölvur með stýrikerfi byggð á Linux-grunn- inum hafa hingað tO verið nokkuð óhultar gáðu eigendur netþjónanna ekki að sér. Sérfræðingar segja að notendur Linux-kerfa megi fara að búast við frekari árásum þar sem vinsældir Linux-stýrikerfa séu sí- feOt að aukast. Einnig má búast við að ekki verði bara skrifaðir saklaus- ir ormar heldur fari alvöruvírusar að gera vart við sig með meðfylgj- andi leiðindum. Sérfræðingar segja að notendur Unux-kerfa megi fara að búast við frekari árásum þar sem vinsældir Linux- stýrikerfa séu sífellt að aukast Einnig má bú- ast við að ekkí verði bara skrifaðir sakiausir ormar heldur fari al- vöruvírusar að gera vart við sig með með- fylgjandi leiðindum. Tal hf. opnar nýja þjónustumiðstöð: Hóptal fýrir fyrirtæki og stofnanir Siðastliðinn fimmtudag opn- aði Tal hf. form- lega nýja fyrir- tækjaþjónustu, Hóptal, í hús- næði sínu við Síðumúla 28. í fréttatilkynningu seg- ir að þrátt fyrir að markaðsstarf Tals hf. hafi verið mest áberandi á sviði einstaklingsþjónustu hafi fyrirtæki og stofnanir aOtaf verið í hópi við- skiptavina fyrirtækisins. Þjónusta við þessa aðila hefur farið sívaxandi og var umfang hennar orðið það mik- ið að ákveðið var að taka í notkun sérstaka þjónustumiðstöð fyrir þá. Á meðal þess sem þjónustan sér um er sala á GPRS-símum sem enn eru ekki komnir á markað fyrir einstak- linga sökum skorts á símtækjum. í tOefni opnunar þjónustumið- stöövarinnar færði Guðjón Karl Reynisson, framkvæmdastjóri fyrir- tækjaþjónustustöðvar Tals, Vestur- hlíöarskóla, sem er skóli fyrir heym- arskerta, að gjöf tvo GPRS-síma og tvær lófatölvur. Nemendur og kenn- arar Vesturhlíðar- skóla geta því verið nýtt sér þráðlausa sítengingu við Net- ið og skilaboðum tafarlaust á milli hverra annara. Einnig færði Tal formanni starfs- mannafélags Baugs eitt GPRS símtæki og lófatölvu sem á að nýtast i þágu fé- lagsins. Þórólfur Arnason, forstjóri Tals, afhendir hér Berglindi Stefánsdóttur, skólastjóra Vesturhlíðarskóla, góöar gjafir. Pessi ofurnútíma hægindastóll er afkvæmi samvinnu Microsoft-tölvurisans og hágæöa hægindastólaframleiöand- ans La-Z-Boy. Hér er ekki um neinn eölilegan hægindastól að ræöa. Innbyggt í hann eru innstungur fyrir símalínur og sjónvarp, netsjónvarpsmóttakari frá Microsoft auk heföbundinna hólfa til aö geyma fjarstýringar og sjónvarps- dagskrár. An þess aö hreyfa sig úr stólnum verður því hægt að brimbrettast um Netiö þvert og endilangt og horfa á gagnvirkt sjónvarp (ekki enn komiö í gagniö hér á landi). Fólk getur ráöiö hvort þaö setur í stólinn fartölvu eöa netsjónvarp. Hugmyndin á bak viö stólinn er aö fólk geti nú þvælst um Netiö eöa tölvast á annan hátt á sem þægi- legastan hátt. Stólarnir eru ekki komnir til landsins en úti í Bandaríkjunum kosta þeir um 88.000 krónur meö venju- legu áklæöi og um 110.000 krónur með leður- eöa vinýláklæði. George Lucas, stofnandi Lucasfilm. THX-kerfi á heimilistölvur Fyrirtækið Lucasfilm, sem fann upp THX-kerfiö sem breytti lífi biógesta fyrir nokkrum árum, setti nýlega á markað í samvinnu við Dell tölvuframleiðandann THX-hug- búnaðarstaðal fyrir heimilis- tölvur. Með þessu segjast forsvars- menn fyrirtækjanna vera að mæta þörfum tölvunotenda sem í síauknum mæli hlusta á geisladiska, horfa á DVD-mynd- ir eða spila sífellt háþróaðari tölvuleiki í tölvunum sínum. Hópurinn frá Lucasfilm kom einnig upp með nýtt skjákort þar sem bíómyndir á DVD hafa oft ekki nógu mikil myndgæði á tölvuskjám. Kortiö gagnast einnig tölvuleikjaunnendum. Nú þegar eru nokkrir tölvu- leikjaframleiðendur byrjaðir að vinna með THX-staðalinn og er fyrirtækið Origin Systems í Texas eitt þeirra. Origin Sy- stems gaf meðal annars út upp- haflega Wing Commander-leik- inn sem byggður er á Star Wars-myndunum góðu sem Ge- orge Lucas, stofnandi Lucas- film, leikstýrði einmitt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.