Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2001, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2001, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 Fréttir j>v Niðurstaða héraðsdóms sem dæmir Ingrid Juhala 200 þúsund krónur í bætur: Lögreglan hélt fatafellu of lengi í varðhaldi - gæsluvarðhaldsúrræðið talið ofnotað - ríkið greiðir líka 300 þúsund í málskostnað DV-MYND INGÓ Ríkið greiði fatafeliunni fyrrverandi 200 þúsund krónur Hjörtur 0. Aðalsteinsson héraösdómari til hægri og Gísli Gíslason, lögmaður Ingridar Juhala, við dómsuppkvaðningu í gær. Hún komst ekki til Reykjavíkur í gær vegna anna við fiskeldisstörf í Tálknafirði. Eistneska fatafellan Ingrid Juhala, 20 ára, sat of lengi í gæsluvarðhaldi í svokölluöu Þórscafémáli árið 1999 að mati Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi henni 200 þúsund krónur í bæt- ur í gær. Dómurinn telur að lögreglan hafi haldið stúlkunni lengur en nauð- syn bar til á meðan verið var að rann- saka málið i heild. Héraðsdómur hafn- ar hins vegar kröfu Ingridar um bætur fyrir missi af tekjum sem hún varð fyr- ir á meðan hún sat í haldi 12 daga á Litla-Hrauni. Fatafellan fyrrverandi, sem nú segist starfa við fiskeldi í Tálknafirði, lagði ekki fram þau gögn sem nægðu til að sanna tekjutap henn- þúsund krónur á mánuði meðan hún starfaði fyrir Þórscafé sumarið ‘99, að sögn fyrrum framkvæmdastjóra hins erótíska skemmtistaðar sem bar vitni í málinu. Hann var, eins og Ingrid, sýkn- aður af ákæru um að hafa staðiö að innflutningi á 969 e-töflum. Hollensk stúlka, sú eina sem bar sakir á Ingrid, var dæmd í þriggja og hálfs árs fang- elsi. Sú hollenska hélt því fram að Ingrid hefði vitað hvað var i pakka sem hún tók við í Breiðholti með ætluðum e-töflum og hefði ætlað að taka við greiðslu fyrir en það þótti ekki sannað, hvorki í sakamálinu né í einkamálinu sem Ingrid höfðaði gegn rikinu. Hér- aösdómur dæmir rikissjóð einnig til að greiöa 300 þúsund krónur í málskostn- að. Farbannið í lagi Ingrid var handtekin 8. júlí 1999. Dómurinn tekur skýrt fram að ástæða hefði veriö hjá lögreglu til að fá Ingrid hneppta í gæsluvarðhald vegna rann- sóknar málsins. Hún var yfirheyrð um málsatvik 9. júlí og aftur 14. júlí en síð- an aldrei aftur áður en henni var sleppt lausri 20. júli þegar héraðsdómur hafði hafnað því að halda henni lengur. Stúlkan hélt ávallt fram sakleysi sínu - að hún hefði ekki vitað hvað í pakkan- um var. Héraðsdómur úrskurðaði Ingrid í farbann fram á fyrri hluta árs 2000, þ.e. á meðan verið var að ljúka sakamálinu fyrir dómi en á meðan á því stóð gat fatafellan ekki aflað sér tekna löglega. Hún fór þvf fram á sam- tals rúmlega 8 milljóna króna skaða- og miskabótakröfu vegna tekjumissis og miska. Dómurinn í gær féllst hins veg- ar ekki á að dæma stúlkunni bætur að neinu leyti vegna farbannsins sem hann taldi löglega úrskurðað. Löglegt en of langt „Sá sem krafist hefur gæsluvarð- halds skal láta sakborning lausan þeg- ar ástæður til gæslu eru ekki lengur fyrir hendi. Það er áliti dómsins að réttarstaða stefnanda hafi mjög snemma orðið ljós og ólíklegt að hún breyttist," segir í niðurstöðu héraðs- dóms um gæsluvarðhald Ingridar sum- arið 1999. „Enda þótt því verði ekki slegið föstu hvenær það tímamark kom að láta bæri stefnanda lausa, sat hún að mati dómsins lengur í gæsluvarð- haldi en nauðsyn bar til,“ segir siðan í dóminum og er vísað tO laga um að þar með eigi hún rétt á bótum frá ríkinu af þehn sökum. -Ótt ar. Ingrid vann sér inn a.m.k. 400--500 DV-MYND JAK Ingrid Juhala við „útistörf“ á íslandi sumarið 1999. Loðnuvertíðin tekur nýja stefnu: Geysilegt magn út af Vestfjörðum - milcið veltur á að loðnan gangi sem fyrst suður í átt að Snæfellsjökli Kemur á óvart Loðnan er kynjafiskur og kemur mönnum sífellt á óvart. Ganga eins og nú hefur komiö úr vestri hefur ekki komiö hér að landi í meira en tvo áratugi. „Við vitum í sjálfu sér ekkert hvað þetta boðar. Það er hins vegar alveg ljóst að við viljum fá þessa loðnu í suðurátt, að hún komi að Jöklinum, því þar er úrvals veiðisvæði og allt annað aö eiga við loðnuna þar en þar sem hún er núna þar sem alltaf er allra veðra von,“ sagði Viðar Karls- son, skipstjóri á Víkingi frá Akranesi, í gær, en Víkingur var þá á landleið með 1200 tonn sem fengust í 5 köstum í Víkurál. Víkingur varð þvi fyrsta skipið til að veiða loðnu úr „vestan- göngunni" svokölluðu sem fannst fyr- ir nokkrum dögum. Það er þekkt fyrirbæri að loðnu- göngur komi að vestan en að sögn Hjálmars Vilhjálmssonar fiskifræðings mun þurfa að fara allt aftur til ársins 1979 til að finna göngur sem hafa verið eins öflugar og þessi virðist vera sem nú er þar á ferð. „Við hreyfðum okkur mjög lítið meðan við vorum að veiða þetta og togaramenn voru að hringja í okkur og tilkynna okkur um miklar lóðningar. Loðnan virtist því vera þama um allt, á 45 mílna belti a.m.k., og þama er því greinilega mjög mikil loðna á ferðinni. Við verðum bara að treysta því að hún gangi suður og bendir allt til þess að svo verði,“ sagði Viðar. Menn hafa velt fyrir sér hvað það geti þýtt að gangan komi úr vestur- átt og fari síðan í suður með Vest- urlandi á hrygningarstöðvarnar við Snæfellsnes, í stað þess að ganga austur með Norðurlandi, með Aust- urlandi og Suðurlandi og þaðan að Snæfellsnesi. Menn eru aðallega að velta fyrir sér hvort verið geti að loðnan hrygni fyrr vegna þessa göngumynsturs nú en Viðar Karls- son segir varasamt að fullyrða um það. Loðnan sé nú í 6 gráða heitum sjó sem þýði að kynþroska fari mjög hratt fram, en fari hún t.d. að Jöklinum þá komi hún í 4 gráða heitan sjó og þá hægi á. Annars seg- ir Viðar að fyrir fram sé ekki hægt að fullyrða neitt um hvað muni ger- ast, hegðunarmynstrið sé öðruvísi nú en undanfarin ár og menn verði bara að sjá hverju fram vindi. í gær nam janúaraflinn 96 þús- und tonnum sem er besti janúarafli í langan tíma. Heildaraflinn var þá orðinn 222 þúsund tonn og eftir- stöðvar loðnukvóta 195 þúsund tonn. Hæstu löndunarstaðir voru Neskaupstaður með 23.353 tonn, Eskifjöröur 19.595 tonn og Seyðis- flörður með 14.334 tonn. -gk Veðríö í kvöld -6\ •-£2' tfif 4 -v, *W 6* 5) 6° V.v Vaxandi suðaustanátt Vaxandi suöaustanátt sunnan- og vestanlands í kvöld, 13 til 20m/s og rigning í nótt. Hiti 3 til 8 stig. Sólargangur og sjávarföl! REYKJAVIK AKUREYRI Sólariag í kvöld 17.16 16.49 Sólarupprás á morgun 10.04 10.06 Síódeglsflóö 24.06 04.39 Árdeglsflóð á morgun 00.06 04.39 Skýringar á veöurtáknum Veðrið á morgun ^VINDÁTT 10V-HITI -10“ ^WINDSTYRKUR Vconcr í metrum á sekúndu rnuö i HBDSKÍRT 43 43 o l£TTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ AISKÝJAO O © © RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA % P ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR Þ0KA Í..Afi.. . AC. , ■ m. 1b) \ Is, 'ÍS, 18) 44 Færðin á landinu Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni eru hálkublettir og hálka á Vestfjörðum, Noröurlandi, Norðaustur- landi og Austurlandi. Að ööru leyti er góö færö á vegum. CZJ SNJÓR wm ÞUNGFÆRT ■■ÓFÆRT EBjrá'iitiignaia Skúrir vestanlands Suðaustan 10 til 18 m/s á morgun, rigning suðaustan- og austanlands, skúrir vestanlands en úrkomulítið noröanlands. Hiti 3 til 8 stig. Laugardaj Vindun 5-10 m/s ' Hiti 0° til 3° SA-læg átt, yfirleitt 5 tll 10 m/s. Slydda noröaustanlands en rignlng suóaustanlands. Annars úrkomulíöló og kólnar í veörl. Siirimulagui '.-VÖHi M.immiLij Vindur:''-^1 ''s 3—8 JtV'» / Vlndur: /-r' 5-15 m/‘ ww Hiti O” tii -5” Vo Hiti 0° til -6” ‘ASfoé Fremur austlægar áttir. Él í Allhvöss noröaustanátt. Éljagangur noröanlands en snjókoma eöa slydda flestum landshlutum. Frost austanlands og meö 0 tll 5 stlg. suöurströndinnl. rmmm. AKUREYRI alskýjað 5 BERGSSTAÐIR alskýjað 5 BOLUNGARVÍK alskýjað 4 EGILSSTAÐIR 7 KIRKJUBÆJARKL. rigning 6 KEFLAVÍK þokumóða 4 RAUFARHÖFN alskýjað 4 REYKJAVÍK alskýjað 3 STÓRHÖFÐI þokumóöa 5 BERGEN heiöskírt -4 HELSINKI snjókoma -5 KAUPMANNAHÖFN alskýjað 1 ÓSLÓ skýjað -7 STOKKHÓLMUR snjókoma -5 ÞÓRSHÖFN rigning 6 ÞRÁNDHEIMUR heiðsktrt -13 ALGARVE heiðskírt 10 AMSTERDAM hrímþoka 0 BARCELONA heiöskírt 0 BERLÍN þokumóöa 0 CHICAGO hálfskýjaö -3 DUBLIN alskýjaö 7 HALIFAX snjókoma -9 FRANKRJRT skýjaö 0 HAMBORG rigning 0 JAN MAYEN skýjaö 1 LONDON hrtmþoka -1 LÚXEMBORG MALLORCA skýjað 6 MONTREAL alskýjað -9 NARSSARSSUAQ snjókoma -3 NEWYORK léttskýjaö 5 ORLANDO þokumóða 18 PARÍS heiðskírt -1 VÍN snjókoma -1 WASHINGTON léttskýjaö 0 WINNIPEG heiðsktrt -22 mtm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.