Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2001, Blaðsíða 20
24
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001
I>V
Jilvera
Fyrirlestur um trúarhætti
íslenskra sjómanna:
Hafdjúpin eru í
hendi þinni
♦ Séra Jóhanna Ingibjörg Sigmars-
dóttir, sóknarprestur í Eiðapresta-
kalli, heldur fyrirlestur fimmtudaginn
1. febrúar í boði Rannsóknarseturs í
sjávarútvegssögu og Sjóminjasafns ís-
lands, sem nefnist Hafdjúpin eru í
hendi þinni. Um trúarhætti íslenskra
sjómanna. í fyrirlestrinum verður
fjallaö um trúarhætti íslenskra sjó-
manna, ýmsa þætti sem tengjast trú-
arlegu atferli þeirra, siðum og venj-
um. Meðal annars verður hugað að
því á hvem hátt menn iðkuðu trú sína
frá upphafi verferða til loka, áheit,
sjómannadaginn og á hvern hátt hann
^engist kirkjunni. Fiskimenn sem
fóru í verið reyndu eins og kostur var
að halda trúarháttum heimilanna. Oft
og tíðum var erfitt að rækja kirkju-
göngur og var þá leitast við að bæta
það upp með lestri. Eftirtektarvert er
hversu trúar- og bænalífið var rikur
þáttur í daglegu lífi sjómanna sem
annarra íslendinga á fyrri öldum. Á
tuttugustu öld hafa hins vegar orðið
örar breytingar á trúarháttum.
Fyrirlesturinn verður fluttur í Sjó-
minjasafni íslands, Vesturgötu 8 í
Hafnarfirði, og hefst kl. 20.30. Aðgang-
ur er ókeypis og allir velkomnir.
PALLHLIFAR
www.benni.is
Vagnhöfða 23 • Sími 587 0 587
Eigum fyrirliggjandi plasthlífar
i palla fyrir eftirtalda pallblla:
MMC '87-'92, GM S10 '82, GM langur '88-96,
GM langur '74-'87, GM Stepside '96 ->,
Dodge langur 74-"93, Dodge stuttur '74-'93,
Ford F150 '97->, Ford langur '80-'96,
Ford stuttur '80-'96, Ford Ranger '82-'92,
Jeep Commanche '86, Isusu D/C '88-'96,
Mazda ’86-'93.
VERÐ TILBOÐ KR. 4.900,-
Takmarkað magn!
Gúmmívinnustofan ehf.
Réttarhálsi 2, sími: 587 5588
Skipholti 35. sími: 553 1055
Þjónustuaðilar um land allt.
Málþing Náttúrulækningafélags íslands um skammdegisþunglyndi:
Birta og hreyfing gegn
skammdegisþunglyndi
DV-MYNDIR HARI
Milli 40 og 50 hurfu frá
Húsfyllir varð á mátþingi NLFÍ um skammdegisþunglyndi á þriöjudagskvöld.
Húsfyllir varð á málþingi Nátt-
úrulækningafélags íslands um
skammdegisþunglyndi á þriðjudags-
kvöld. Milli 120 og 130 manns gátu
troðið sér í bíósal Hótel Loftleiða en
á fimmta tug áhugasamra urðu frá
að hverfa.
Fyrirlesarar á málþinginu voru
fjórir: Þórkatla Aðalsteinsdóttir sál-
fræðingur, Tómas Zoéga, yfirlæknir
á geðdeild Landspítalans, Jóhann
Axelsson, prófessor i lífeölisfræði,
og Leifur Þorsteinsson, fulltrúi
Ferðafélags íslands.
Hugarfar mikilvægt
Þórkatla Aðalsteinsdóttir lagði í
erindi sínu áherslu á hvað það er
sem stýrir því hvemig fólki líður.
Hún hvatti fólk til að reyna að velja
fremur jákvætt hugarfar en nei-
kvætt. Hægt væri að spyrja sig
spurninga á borð við: Er veðrið vont
eða hressandi? Er myrkrið niður-
drepandi eða má nota það í róman-
tískum tilgangi? Þórkatla mælti
einnig með að fólk reyndi að setja inn
ánægjulega atburði í hverri viku, þó
innan þeirra marka að þeir gerðu
ekki lífið of flókið.
Loks hvatti Þórkatla fólk til að
leyfa sér að hlakka til einhvers þótt
ekki væri nema næsta sumars. Þenn-
an eiginleika sagði hún fullorðna
þurfa að rækta með sér vegna þess að
hann eltist því miður af fólki á ung-
lingsárum.
í hnotskurn sagði Þórkatla að hægt
væri að velja jákvæðu leiðina og nei-
kvæðu leiðina. Þeir sem veldu þá nei-
kvæðu yrðu fómarlömb og fórnar-
lömb skemmtu sér aldrei.
Þunglyndi meðal algengustu
sjúkdoma
Tómas Zoéga gerði grein fyrir al-
gengi þunglyndis og benti á að það er
mun algengara hjá konum en körlum.
Tómas sagði að athuganir hefðu sýnt
að lyf hjálpuðu í 60-65% tilvika þegar
um alvarlegt þunglyndi væri að ræða
en ef lyf væru notuð með stuðnings-
meðferð mætti búast við 85-90% ár-
angri.
Tómas benti einnig á að þunglyndi
hefði í för meö sér íleiri tapaða vinnu-
daga en nokkur annar sjúkdómur, þó
líklega að undanskildum hjarta- og
æðasjúkdómum. Samkvæmt skýrslu
WHO er þunglyndi i 4. sæti ef skoðuð
er örorka í kjölfar sjúkdóma en búist
er við að það verði komið upp i annað
sæti árið 2020.
Hvað er skammdegisþung-
lyndi?
Tómas sagði að skilgreina mætti
skammdegisþunglyndi sem þunglyndi
sem væri bundið við ákveðinn tíma
árs. Sjúkdóminn mætti tengja við
breiddargráður, þ.e. þeim mun lengra
skammdegi þeim mun hærra hlutfall
fólks meö skammdegisþunglyndi. Auk
þess telst það til skilmerkja skamm-
degisþunglyndis að alger bati næst á
innan við tveimur mánuðum. Loks
verður sjúklingur að hafa þjáðst af
þunglyndi að minnsta kosti tvo vetur
í röð til að fá sjúkdómsgreininguna
skammdegisþunglyndur.
Um 83% þeirra sem þjást af skamm-
degisþunglyndi eru konur. Oftast
Mun algengara hjá konum en körl-
um
Tómas Zoéga, yfirlæknir á Landsþít-
alanum, ræddi um skammdegis-
þunglyndi og algengustu meðferð við
því.
byrja einkenni að koma fram á þrí-
tugsaldri. Þunglyndiseinkennin eru
væg og oft fylgja skammdegisþung-
lyndi væg einkenni örlyndis á vorin
og sumrin. Þeir sem þjást af skamm-
degisþunglyndi fá aukna matarlyst og
sækja einkum í kolvetni og þessu ein-
kenni fylgir þá þyngdaraukning. Þetta
einkenni er ólíkt einkennum sem
fylgja venjulegu þunglyndi sem er
lystarleysi. Þeir sem þjást af skamm-
degisþunglyndi hafa aukna svefnþörf
sem einnig er öfugt við dæmigerð ein-
kenni venjulegs þunglyndis. Þung-
lyndið getur valdiö fólki erfiðleikum í
vinnu og samskiptavandamálum.
Meðferð við skammdegis-
þunglyndi
Sannað þykir að hægt sé að draga
úr einkennum skammdegisþunglynd-
is með ljósameðferð og samtalsmeð-
ferö er einnig notuð. Ljósameðferðin
var mikið stunduð fyrir nokkrum
árum en Tómas segir að dregið hafi
úr henni en telur fulla ástæðu til að
nýta þessa aðferð. Stundum er lyfja-
meðferð beitt við skammdegisþung-
lyndi og Tómas segir að sumir telji að
hún sé komin úr böndunum vegna
þess að við notum þunglyndislyf
meira en aðrar þjóðir. Hins vegar seg-
ir hann að velta megi því fyrir sér
hvort við séum hreinlega komin
lengra í notkun þunglyndislyfia en
aðrar þjóðir. Loks nefnir Tómas ým-
iss konar sjálfshjálparbækur sem
margir noti með góðum árangri.
Melatónín og skammdegis-
þunglyndi
Jóhann Axelsson fjallaði um
melatónín og tengsl þess við birtu og
skammdegisþunglyndi. Jóhann sagði
skammdegisþunglyndi fylgja lífs-
klukkunni. Líkaminn hefði ákveðna
hrynjandi sem hjálpaði honum að
mæta ytri breytingum. Þessari hrynj-
andi mætti skipta i dægursveiflu og
árstíðabundna sveiflu. Jóhann benti á
að ekkert dýr væri til sem væri jafn-
hæft á nóttu sem degi.
Jóhann og samstarfsfólk hans hefur
komist að því að þeir sem þjást af
skammdegisþunglyndi framleiða mun
meira melatónín en aörir. Unnið verð-
ur áfram að þessum rannsóknum og í
sjónmáli er að boðið verði upp á
melatónínmælingar í munnvatni.
Rannsóknarhópurinn hefur einnig
komist að því að melatónínfram-
leiðsla er ættgeng og að miðað við
breiddargráðu ætti að vera um 30%
skammdegisþunglyndi hér á landi
en það sé einungis 11%.
Útivist bætir lífi við árin
Leifur Þorsteinsson frá Ferðafé-
laginu lagði áherslu á útivist sem
fyrirbyggjandi aðgerð gegn þung-
lyndi og raunar Qöldamörgum öðr-
um sjúkdómum. Hann sagði að með
útivist fengist ekki bara holl og góð
hreyfing heldur líka félagsskapur
sem einnig væri mikilvægur.
Leifur lagði áherslu á reglu-
bundna útivist og benti á að þeir
sem vendu sig til dæmis á að ganga
reglulega gætu hreinlega ekki verið
án þess.
Hann benti á að heilbrigði væri
afar veigamikill þáttur lifsgæða og
hver og einn réði miklu um eigin
heilsu. Skoðun Leifs er sú að þótt
ekki sé hægt að fullyrða að útivist
bæti árum við lífið þá sé örugglega
hægt að halda því fram að útivist og
þokkalegt heilsufar bæti lifi við árin.
Hreyfing afar mikilvæg
Að loknum fyrirlestrum og hléi,
þar sem boðið var upp á vatn og
ferska ávexti, svöruðu fyrirlesarar og
fleiri spurningum í pallborði.
Meðal þeirra sem bættust við í pall-
borðsumræðunni var Hulda Hákonar-
dóttir sjúkraþjálfari sem sagðist í
raun undrandi á því að hreyfing væri
ekki notuð á markvissari hátt í með-
ferð við þunglyndi. Áhrif hreyfingar á
boðefni væru með svipuðum hætti og
áhrif ýmissa lyfja sem notuð væru
gegn þunglyndi. Hulda benti á að
komið heíði í ljós að þeir sem hreyfa
sig reglulega eru þrisvar sinnum ólík-
legri til að þjást af þunglyndi en þeir
sem ekki hreyfa sig og mun líklegri til
að læknast ef þeir veikjast.
Það sem mest var spurt um og rætt
í pallborðsumræðunum voru rann-
sóknir á melatónínframleiðslu. Meðal
þess sem fram kom í umræðunum var
að þunglyndissjúklingum er stundum
gefið melatónín við svefnleysi. í fram-
haldi af því sagði Tómas Zoéga það
mögulegt að um tvö mjög ólík afbrigði
þunglyndis væri að ræða, annars veg-
ar skammdegisþunglyndi og hins veg-
ar annað þunglyndi.
Áður en fundarstjóri, Geir Jón Þór-
isson, varaforseti NLFÍ, sleit fundi
þakkaði hann fyrirlesurum og áheyr-
endum og benti á að brýnt væri að
reyna að takast á við sjúkdóminn
þunglyndi. Þegar hann væri kominn í
sína alvarlegustu mynd leiddi hann til
sjálfsvíga en hér á landi eru skráð tæp
tvö útköO á dag vegna sjálfsvígstil-
rauna.
Fyrirlestrar málþingsins, fyrir-
spurnir og svör munu birtast á heima-
síðu NLFÍ www.heilsuvernd.is.
-ss
Vinnustaðahópar skrá sig saman til leiks
Leiö til betra lífs, árlegu heilsuá-
tak DV, var ytt úr vör 11. janúar. í
átakinu er fólk hvatt til að leggja
grunn að góðri heilsu með því að
stunda hreyfingu og ástunda heil-
brigt lifemi.
LEIÐ TIL BETRA LÍFS
Stimpilkorti hefur verið dreift í
sundlaugar landsins og helstu lík-
amsræktarstöðvar og hægt er
einnig að nálgast kortið i Skauta-
höllinni, verslun Útilífs og af-
greiðslu DV í Þverholti.
Stimpilkortið er hægt að nota á
sundstöðum, helstu líkamsræktar-
stöðvum, Skautahöllinni og verslun
Útilífs. í hvert skipti sem það er not-
að fær viðkomandi stimpil á kortið
og nái menn að fylla það með fimmt-
án stimplum fyrir 11. febrúar og
skila því inn til DV lenda þeir í
glæsilegum heilsupotti með glæsi-
legum vinningum. Það er því ekki
orðið of seint að byrja.
Áður en átakinu lýkur mun DV
bjóða landsmönnum frítt í sund-
laugar í einn dag og einnig verður
fullorðnum í fylgd með börnum boð-
ið á skauta í Skautahöllinni eina
helgi í febrúar.
Undirtektir hafa verið miklar og
hafa margir náð sér í stimpilkort.
Heilu hópar starfsmanna á vinnu-
stöðum hafa tekiö sig saman um að
taka þátt í Leið til betra lífs og var
sagt frá dæmi um það á Reiknistofu
bankanna í gær. DV hvetur aðra til
að fara að fordæmi vaskra starfs-
manna RB.