Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2001, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2001, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 11 Viðskipti Umsjón: Viðskiptablaöið A ' £ Þetta helst 1258 m.kr. 361 m.kr. 484 m.kr. 113 m.kr. 59 m.kr. 53 m.kr. 6,7 % 4,5 % 2,2 % 4,3 % 1,7 % 1,7 % 1217 stig O 0,08 % HEILDARVIÐSKIPTI ; - Hlutabréf \ - Bankavíxlar MEST VIÐSKIPTI | 0 Íslandsbanki-FBA Landsbankinn I © Nýherji MESTA HÆKKUN i o Haraldur Bdövarsson ! © Delta ! © Opin kerfi MESTA LÆKKUN j o Vinnslustöðin | © Össur © Flugleiðir ÚRVALSVÍSITALAN : - Breyting Þóröur Pálsson hjá Kaupþingi: Tekur við starfi í Danmörku Þóröur Páls- son, 33 ára deild- arstjóri greining- ardeildar Kaup- þings hf., hefur verið ráðinn yfir- maður fyrir- tækjasviðs hjá Kaupþingi í Kaupmannahöfn. Þórður mun hefja störf ytra í mars- mánuði. Ekki hefur verið ákveðið hver tek- ur við starfi Þórðar í grein- ingardeild. Þórður Pálsson er heimspekingur og viðskiptafræð- ingur að mennt. Hann bjó i Dan- mörku á sínum yngri árum. Strax Holdings aö yfirtaka Mobilestop Strax Holdings Inc. hefur gert skilyrt tilboð í öll hlutabréf tækni- fyrirtækisins Mobilestop með það að markmiði að sameina fyrirtæk- in. Samfara kaupunum munu nýir hluthafar og hlutafé koma inn í Strax og þar á meðal sænska fjár- festingarfélagið Novestra AB sem eignast 7,6% hlut en bæði Novestra og Strax voru fyrir í hópi stærstu hluthafa Mobilestop. Frá þessu er greint í Viðskiptablaðinu sem kom út í gær. Þórður Pálsson Tekur viö starfi fyrirtækjasviðs Kaupþings í Kaupmanna- höfn. EI?EE>1 01.02.2001 kl. 9.15 KAUP SALA BfeÍDollar 84,980 85,410 SsPund 125,030 125,660 | Kan. dollar 56,690 57,040 GuEÍDönskkr. 10,7410 10,8000 j ife Norsk kr 9,7400 9,7930 jtSsænsk kr. 9,0190 9,0680 :H**Hfí. mark 13,4797 13,5607 ; 1 1 Fra. franki 12,2183 12,2917 i B ii Belg. franki 1,9868 1,9987 | n Sviss. franki 52,2500 52,5400 iClHoli. gyllini 36,3689 36,5875 Þýskt mark 40,9783 41,2245 ílh. líra 0,04139 0,04164 iOQAust. sch. 5,8245 5,8595 ■ Port. escudo 0,3998 0,4022 1 Ll_[Spá. peseti 0,4817 0,4846 j| • jjap. yen 0,73080 0,73520 ll I jírskt pund 101,765 102,376 SDR 110,6500 111,3100 1 EIecu 80,1466 80,6282 Miklar breytingar á þjón ustu Flugfélags íslands Allir stærstu áfangastaðir Flugfé- lags Islands hafa nú verið færðir inn í nýtt bókunarkerfi og eru þar með miðalausir. Þá tekur Flugfélag íslands í dag í notkun nýja bókunarvél á vef- síöu félagsins en þessar umbætur á þjónustu eiga að auðvelda mjög að- gang farþega að félaginu og vonandi stytta verulega aOan biðtíma í síma og á flugveUi. Um síðustu helgi var aUt flug á miUi Akureyrar og Reykjavikur fært yfir í nýtt bókunarkerfi Flugfélagsins. Þar sem Akureyri er langstærsti áfangastaður félagsins fjölgaði bókun- um í nýja kerfinu verulega. í frétt frá Flugfélagi íslands kemur fram að færslan hafi gengið mjög vel og án mikiUa vandræða fyrir farþega félags- ins. Með þessu eru aUir stórir áfanga- staðir félagsins miðalausir og er þá lokið ferli sem staðið hefur meira og minna í 6 mánuði. Þessir nýju af- greiðsluhættir munu auðvelda mjög aðgang farþega að félaginu og vonandi stytta verulega aUan biðtíma í síma og á flugvelli. Auk þess mun verða mjög auðvelt að bóka ferðir á Netinu i gegnum nýja bókunarvél Flugfélags- ins. Ráðherra pantar far Sturla Böövarsson samgönguráöherra var fyrstur manna til aö bóka sig í flug hjá Flugfélagi íslands meö rafrænum hætti. Formleg gangsetning nýju bókunar- vélarinnar fór fram á skrifstofu sam- gönguráðherra kl. 9 5 gær og bókaði Sturla Böðvarsson ráðherra sig í flug með Flugfélagi íslands í gegnum heimasiðu félagsins www. flugfelag.is. Bókun er einföld Tekið er fram í frétt Flugfélags ís- lands að við hönnun bókunarvélar- innar hafi verið reynt að hafa að leið- arljósi að gera aðgang og vinnu í vél- inni eins einfalda og mögulegt er. Bókunarvélin byggist upp á 7 skrefum og er hvert skref skýrt út á einfaldan hátt fyrir viðskiptavininum. Bókun í gegnum þessa vél á bæði að vera ein- fóld og ekki síður fljótvirk leið fyrir viðskiptavini. Gert er ráð fyrir að fyrir aliar bók- anir sem koma í gegnum þessa vél verði greitt með greiðslukorti. Vélin er tengd við bestu öryggiskerfi sem völ er á þannig að kortaviðskipti eru eins örugg og mögulegt er. Mjög mikiU hluti viðskiptavina fé- lagsins ferðast mjög oft og er reiknað með að stór hluti þeirra muni velja að bóka ferðir með félaginu með þessum hætti. Það má segja að með þessu sé bókunarþjónusta félagsins opin 24 tíma á sólarhring og unnt er að bóka sig á flug með aðeins klukkustundar fyrirvara. Basisbank gerir sjalf um sér erfitt fyrir Basisbank í Dan- mörku, sem íslands- banki-FBA á stóran hlut í, hefur farið mik- inn í viðskiptaheimin- um í Danmörku. Nú er ljóst að bankinn verð- ur að hægja á umfangi rekstrarins eftir _rif- andi góða byrjun. í uppgjöri íslands- banka-FBA voru færðar niður 393 miUjónir króna í danska netbankan- um Basisbank A/S, eða 60%. Basisbank hefur á undanfórnum fimm mánuðum eytt miklum pening- um í markaðsstarf og aflað svo margra viðskiptavina að víst þykir að ekki verði hægt að sinna þeim viðskipta- vinum sem fyrir eru ef bankinn held- ur áfram á sömu braut. Samtímis hef- ur Íslandsbanki-FBA hert tak sitt á bankanum en hann á nú um 40% hlutafjár í Basisbank. Offjölgun viðskiptavina og hlutafjárauking Þetta er bein afleiðing þess að tölu- vert hefur gengið á eigið fé bankans og hafa fjárfest^r þurft að auka hlutafé frekar, um 51 milljón danskra króna, en þar byrjar fórnfýsin líka að flara út. Svanbjörn Thoroddsen, fram- kvæmdastjóri þróun- arsviðs íslandsbanka- FBA, hefur þetta um málið að segja i við- tali við danska fjöl- miðla: „Síðasta aukn- ing hlutafjár í Basis- bank hjá okkur byggðist á því að hún dygði og það eru ekki áform um frek- ari hlutafjáraukningu af okkar hendi.“ Jan Thorsen, bankastjóri Basis- bank, segir að aðrir hluthafar í bank- anum hafi ekki farið fram á aukningu íjármagns að fyrra bragði. „En loforð sem lýtur að þessu er ekki nauðsyn- legt. Sú hlutafjárauking sem er nýaf- staðin gefur okkur frið til þess að huga að öörum hlutum," segir Thor- sen. Þessir „aðrir hlutir“ eru fyrst og fremst aukin áhersla á eftirlit með áhættu því bankinn hefur ekki tök á að þjóna svo mörgum nýjum við- skiptavinum eins vel og hann vildi. Basisbank hefur nú þegar aflað sér 25.000 nýrra viðskiptavina og hefur þar að auki hætt við öll áform um starfsemi í Noregi vegna þessa. Ekki náðist i Svanbjöm Thoroddsen vegna málsins. Amazon segir upp 1300 starfsmönnum Amazon hyggst segja upp 1300 starfs- mönnum eða 15% heildarstarfsmanna- fjölda fyrirtækisins. Þessar óvæntu uppsagnir komu í kjölfar þess að reikn- að er meö að sölutölur verði 10% minni en vænst var i upphafi. Fyrirtækið sannfærði þó fjárfesta um að fyrirtækið væri ekki að verða uppiskroppa með fjármagn. Jeff Bezos, forstjóri fyrirtækisins, sagði að eigið fé fyrirtækisins hefði verið 1,1 milljarður dollara í árslok 2000. Áætlanir fyrir- tækisins gera ráð fyrir að þessi tala verði 0,9 milijarðar í lok þessa árs. „Á meðan fyrirtækið kýs ekki að afla meira hlutafjár til að styrkja efna- hagsreikninginn eða til þess að auka sveigjanleika fyrirtækisins hefur það enga ástæðu til að gera það,“ sagði að- alfjármálastjóri fyrirtækisins, Warren Jenson. Sérfræðingar sýndu tölum um sölu- aukningu áhuga. Fyrirtækið gerir ráð fyrir að salan muni aukast minna á þessu ári, niður í 20-30% en söluaukn- ingin árið á undan var 44%. le±uci Eldavél með fjölkerfa I blástursofni, undir-/ yfirhita og grilli ásamt grillmótor. 4 hellur þ.m.t. hraösuðuhella. HxBxD: 85x59,5x60 cm. > Verð áður kr. 55.900 Tphfl Eldavél með undir-z/ I yfirhita, og grilli. 4 hellur, þar af 1 hraðsuðuhella. HxBxD: 85x49,5x60 cm. > Verö áður kr. 34.600 /p h o i Ofn og keramik [ helluborð. Fjöikerfa blástursofn, undir-/yfirhiti, grill og grillmótor. > Verö áöur kr. 67.300 Eldavél meö keramik ZANUSSI helluborði og fjölkerfa blástursofni með undir-/yfirhita + grill. HxBxD: 85x59,5x60 cm. > Verð áður kr. 73.600 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT Suöurlandsbraut 16 • 108 Rvk • Sími 5880500 Verðlækkun á notuðum bílum - gott úrval $ SUZUKI Suzuki bílar hf., Skeifunni 17, sími 568 5100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.