Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2001, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2001, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 19 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf. Plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblaö 280 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Fíflholtin eru víða Frægt varð á liðnu sumri þegar fréttist af meðferð á flokkuðu sorpi á Akranesi. Bæjarbúar höfðu flokkað pappa og blöð og sett í þar til gerða gáma og treystu því að pappírinn yrði endurunninn. Flokkunin var hins veg- ar til lítils því það fréttist að bæjaryfirvöld töldu sig spara peninga með þvi að aka með hinn flokkaða pappa beint til urðunar á urðunarstað Vestlendinga í Fíflholti á Mýrum. Bæjarbúi sem DV ræddi við taldi réttilega að þeir bæjar- búar sem flokkuðu sorp með þessum hætti væru hafðir að flflum og skilja mátti á honum að urðunarstaðurinn bæri nafn með rentu. En það er víðar pottur brotinn í flokkun og endur- vinnslu sorps en á Akranesi. Fram kom í blaðinu í gær að þótt endurvinnsla og endurnýting sorps hafi aukist taka enn sem komið er fáir þátt í flokkun þess. Hið algenga er að fólk hendir heimilissorpi óflokkuðu í tunnurnar. Sam- kvæmt upplýsingum frá Sorpu fara aðeins um 11 prósent af heildarmagni bylgjupappa til endurvinnslu. Þessi teg- und sorps verður æ algengari enda bylgjupappi mikið not- aður í alls konar umbúðir. Fólki sem vill flokka sorp og koma með því í veg fyrir gegndarlausa sóun nútímasamfélagsins er fráleitt auð- veldað það starf. Svo er að sjá sem stjórnendur ýmissa sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu líti á þegnana sem bjána. Þannig eru fjölmargir gámar sérstaklega gerðir fyr- ir dagblaðapappír annars vegar og femur hins vegar. Samviskusamir sorpflokkendur fara með pappirinn í gámana. Þar skal stinga dagblöðunum í sérstakt gat og fernunum í annað. Líti menn hins vegar inn í gámana sést að þar er eitt gímald og hið flokkaða sorp fer í einn graut. íslendingar hafa skuldbundið sig með alþjóðasamning- um til að snúa af braut sóunar á verðmætum og draga úr sorpurðun en auka þess i stað endurvinnslu. Til þess að svo megi verða þarf hugarfarsbreytingu almennings. Æ fleiri átta sig á þörf endurnýtingarinnar en um leið verð- ur að gera þá kröfu til sveitarstjórna að þær fari fyrir og auðveldi fólki nýja hegðan í stað þess að standa í vegi fyr- ir nauðsynlegri þróun. Reikna má með því að í framtíðinni þurfi neytendur að greiða fyrir hvert kíló sorps sem fer í tunnuna. Flokkun og endurnýting heimilisúrgangs verður því fjárhagslega hagkvæm. Sveitarfélög eru misjafnlega langt á veg komin með sín sorphirðumál. Það hlýtur að vera keppikefli þeirra að marka sér stefnu í þeim málum og kynna hana" borgurunum um leið og þeim er gert kleift að flokka sorp til endurnýtingar. Reykjavík virðist vera komin einna lengst á veg með stefnumörkun og ætti að geta orðið smærri sveitarfélög- um fyrirmynd. Fram kom í grein Hrannars B. Arnarsson- ar borgarfulltrúa og Hjalta J. Guðmundssonar landfræð- ings í DV í nóvember sl. að fyrstu drög svokallaðrar Stað- ardagskrár 21 fyrir Reykjavík væru tilbúin. Þar er um að ræða umhverfisstefnu og framkvæmdaáætlun um um- hverfismál á nýrri öld sem byggist á sjálfbærri þróun sam- félagsins og virkri þátttöku íbúa sveitarfélagsins. Með slíkri umhverfisstefnu leggur sveitarfélagið línurn- ar í öllu því sem snýr að umhverfi íbúanna og náttúru- vernd í sinni viðustu merkingu og ekki síst í því sem varðar endumýtingu og vinnslu úrgangs. Mikilvægt er að íbúarnir komi að þeim verkum með jákvæðu hugarfari. Fíflalegir flokkunargámar ýta ekki undir þá hugarfars- breytingu sem nauðsynleg er. Jónas Haraldsson DV Skoðun* Horft fram á öldina Hraði breytinganna verð- ur meiri á öldinni 2001 en menn hafa nokkru sinni orð- ið vitni að. Allir eru sam- mála um að tölvur munu verða miklu fullkomnari en þær eru nú. Tækninni mun fleygja fram og vélmenni munu í vaxandi mæli taka við störfum manna. Ein- hvem veginn finnst mér að munurinn milli manna og vélmenna muni minnka. Það kemur sjálfsagt engum á óvart. Tölvunum fer stöðugt fram. Hugarflug og frumkvæði Aldrei hefur verið varið jafnmikl- um fjármunum tO rannsókna á mannsheilanum og nú um stundir. Ekki aðeins til þess að rannsaka manninn, bæta hann og ná tökum á sjúkdómum og leyndardómum manns- heilans. Staðan er nefnilega sú að menn komast ekki lengra með þróun tölva og vélmenna án þess að rann- saka mannsheilann frekar. Vilji menn gæða tölvumar greind, hugarflugi, ímyndunarafli og frumkvæði verða menn að leita leyndardómsins í heila mannsins. Þannig er það arðvonin, öfl Gu&mundur G. Þórarinsson verkfræbingur markaðarins sem hraða rannsóknum á mannsheilan- um. Á komandi öld munum við þvi sjá vélmenni sem fara sífellt nær hæfileikum mannsins tO hugarflugs og framkvæðis, tO þess að læra af reynslunni. En á sama tíma og vélmennið mun verða sífeOt mennskara mun maðurirm sífeOt verða vél- rænni. Á þessari öld munu menn sjá fleiri og fleiri vél- hluti setta inn í mannslikamann. Gervihjarta, gervinýru, gervilungu, hvers konar liðamót, jafnvel gervi- blóð. Takmörkin virðast liggja viö heilann sjálfann. Nái samspO læknis- fræði, verkfræði, eðlisfræði og tölvu- fræði að færa líkama mannsins þannig nær líkama vélmennisins mun þróunin á sama tima færa okkur vél- menni með heila sem sífeOt nálgast mannsheOann að hæfni. Þróun? Stærstu heilar mannkynsins hafa spurt sig hvað hafi í raun gerst á 3 miOjón ára tíma lífs á jörðinni. í mjög einfólduðu svari má segja að þróun líf- „Nái samspil lceknisfrœði, verkfrœði, eðlisfrœði og tölvu- frœði að fœra likama mannsins þannig nær likama vél- mennisins mun þróunin á sama tíma færa okkur vélmenni með heila sem sífellt nálgast mannsheilann að hæfni. “ Mjöl eða hunang? Sú var tíð, að Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, var talinn heimsmaður. Skrifaði hann þá leiðsögurit um er- lendar stórborgir og talaði eins og sá, sem valdið hafði. Hann hefði ver- ið aOs staðar og séð aOt. Ein bókin kom út árið 1985 og var um París. Þar segir á einum stað, að í borginni sé mikiO fjöldi sérverslana. Ein þeirra sé Maison du Miel á 24 Rue Vignon. Þar fáist rúmlega þrjátíu tegundir hveitimjöls, sem aOar séu tO sýnis yfir búðarborðið. Nokkrar aðrar sérverslanir með mjöl séu í París, en þessi sé hin merkasta. Hunangi breytt í mjöl Jónas talar í þessari bók eins og hann hafi skoðaö staðinn aOan í krók og kima. En „miel“ á frönsku merkir ekki mjöl, heldur him- ang. Auðvitað hafði Jónas aldrei komið í Hunangshúsið á 24 Rue Vignon, heldur aðeins reynt með þessum hörmulega árangri að stauta sig fram úr frönskum ferðabækling- um. En Jónas hefur víðar í lífi sínu breytt hunangi í mjöl. DV hefúr aOa burði tO að vera fjörlegt og skemmtOegt blað, hispurslaust og hægri sinnað, Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræói SLIntrtmurJ. Slítu.ion Vinsælustu og óvinsælustu stjórnmálamennirnir samkvæmt skoöanakönnun DV 12. janúar 2001 - málgagn neytenda, sparifjár- eigenda og skattgreiðenda, blað, sem þorir, á meðan aðr- ir þegja. Þess í stað er það orðið eins og gamaO mjölpoki í höndum geðvondra vinstri manna. Umdeildasti stjórnmálamaöurinn Gott dæmi um þetta var laugardagsblaðið 20. janúar siðastliðinn, sem helgað var Davíð Oddssyni forsætisráð- herra. Þar var flennistór og afar vond mynd af Davíð á forsíðu, en letrað yfir hana með stríðsfyrirsagnaletri, að hann væri óvinsælasti stjómmálamaö- ur landsins. Þetta var mjög vOlandi fyrirsögn af þeirri einfóldu ástæðu, að Davið hefur jafn- an mælst í senn vinsælasti og óvinsælasti stjómmála- maður landsins. Heiðarleg- ur blaðamaður hefði ólíkt Jónasi auðvitað valið fyrir- sögnina: UmdeOdasti stjóm- málamaður landsins. I ».'XI Bomar eru lanun vtiv »*ldlr og óvmsjpldir tfu umdelldustu stjörnmlU- skoAaiukonDun DV. Granu súlurnxr sýn« nl&urstoðu slðustu skoðanakðnnunar sem var btrt I oktðber ZOOO. „Davíð hefur jafnan mælst í senn vinsælasti og óvinsœlasti stjómmálamaður landsins. “ - „Birtur var langur listi yfir mál, sem Davíð hefur sagt hispurslaust skoðun sína á, og síðan óspart á þvi hneykslast. “ Með og á móti Ekkert forvitnilegt í svonefndri fréttaskýr- ingu inni í blaðinu var tækifærið ekki notað til að lýsa hinum forvitnOega og sögulega stjómmálaferli Davíðs Oddssonar. Má þó margt um hann segja frá ýmsum hliðum. Öðru nær. Birtur var langur listi yfir mál, sem Davíð hefur sagt hispurs- laust skoðun sína á, og síðan óspart á því hneykslast. Var það þó flest heldur meinlaust, svo sem að al- ræmd ummæli biskups um það, að eins gróði væri aOtaf annars tap, væru klisjukennd. Sjáifur hefði ég raunar kallaö þau ummæli fávísleg og búist við, að DV áteldi biskup fyrir þau, ekki forsætisráðherrann fýrir hófsamleg viðbrögð við þeim. Stjórnmálamaður aldarinnar Ekki var í blaðinu leitað neinna skýringa á þvi, hvers vegna Davíð Oddsson er eftir tíu ára setu í for- sætisráðherrastól talinn í vandaðri, nýlegri skoðanakönnun á vegum GaUup-stofnunarinnar stjómmála- maður aldarinnar. Skýringarnar blasa þó við. Auk þess sem Davíð hefur mikla mann- þekkingu og gott tímaskyn, næma tilflnningu fyrir því, sem mögulegt er í stjórnmálum, hefur hann haft forystu um stórkostlegar endurbæt- ur, tæmt hjá sér biðstofuna með því að leggja niður fjölda opinberra sjóða, selt ríkisfyrirtæki, breytt með aðstoð manna sinna tekjuhalla í tekjuafgang, komið verðbólgu niður fyrir það, sem er í grannrikjunum, sett lög til tryggingar réttindum ein- staklinga gagnvart ríkinu, - í stuttu máli opnað landið. Þess vegna er ís- land nú fimmta ríkasta land í heimi. Á meðan Davíð býður fram hunang, reynir Jónas Kristjánsson að fleygja f fólk gömlu mjöli. Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson ótaþœtti í lánakeifinu? Hverfur með evrunni t „Því miður verð- ur að svara þessari K spurningu játandi mm eins og ástatt er með krónuna okk- ar í dag. Lánskjaravísitalan er að hluta hækja tU að halda uppi veiku krómmni okkar en dugar samt skammt. Svo er vísitalan aftur á móti ófreskja fyrir lántakendur. Mikið má leggja á sig tU að losna við hana. Við erum enn þá með verðbóta- þáttinn aðeins af iUri nauðsyn. Til þess að losna út úr þessum vandræðum verðum við að taka upp alvöru gjaldmiðU sem okkar króna er ekki. Þar stendur okkur evran tU boða með því að bæta henni inn í EES- samning okkar við ESB. Við eigum Verðbótaþátturinn barn síns tíma Lú&vík Gizurarson hrl. því að taka upp evruna og ganga í það verk án tafar. Losna með því við lánskjara- vísitöluna. Háir vextir sýna vantrú. Seðlabankinn ákveður vexti krónunnar okkar. Nú eru þeir taldir með þeim hæstu í heimi. Svona er Seðlabankinn. Því miður yelja Uestar ríkis- stjórnir léttu leiðina ljúfu í fjármálum. Ekki er tekið á neinum vandamálum og menn kaUa mikinn viðskiptahaUa „góöæri". Þess vegna myndi evran hjálpa okkur. Þar með losnum við frá yerðbótaþættinum sem er ófreskja fyrir lántakendur en er ekki á evrunni. Svo eru vextir á henni helmingi lægt'i en á krónunni okkar til viðbótar. - Lengi lifi evran. Ég tel að tíma- I bært sé að huga að /$7 Þv' að afnema r verðbótaþáttinn. Fyrir því eru þessi rök einkum: 1. Verðbólga hef- ur verið lág á Islandi undan- farin ár og við sjáum fram á stöðugleika. 2. Visitölutenging lána er mjög óalgeng í okkar viðskiptalöndum. Fátt er erfið- ara en að reyna að útskýra fyr- ir útlendingum íslensk verðbólgu- reikningsskil. 3. Tíminn sem heimUt er að verðtryggja skuldbindingar hef- ur verið að lengjast. Öll styttri lán, t.d. flest bUalán, eru nú óverðtryggð. 4. Of mikUl munur er á vöxtum á miUi óverðtryggðra og verðtryggðra útlána banka og sparisjóöa. Jafet S. Ófafsson viöskiptafræöingur Verðbótaþáttnrinn er barn sins tíma þegar hér var mjög mikU verðbólga og möguleikar fjárfesta, hvort sem það voru einstaklingar, fyrirtæki eða líf- eyrissjóðir, voru takmarkaðir að verja raunvirði eigna sinna. Staðan er aUt önnur og betri í dag. Fjárfestingar erlendis fara vaxandi og þar er mjög sjald- gæft að rætt sé um vísitölu- tengingu. Margur einstakling- urinn á erfitt með að skUja þennan verðbótaþátt þegar greitt er af lánum. Það er aUtaf slæmt að hafa hluti sem stór hluti fólks í landinu skilur ekki tU fullnustu. Ég tel að það sé gott skref í byrjun að lengja tímann á þeim fjárskuldbindingum sem heimilt er að verðtryggja í 10 ár. Enn er deilt um lána- og vaxtapólitíkina og þykir sýnt að vextir séu ekki á niöurleiö. Minna hefur veriö rætt um veröbótaþáttinn í iandi sem sýnir sífellt minni verðbólgu. veranna liggi að mestu í þróun tauga- kerfisins. í þróuninni hafl ævinlega lífveran sem tók við af lífverunni á undan helst haft það fram yfir hana að hafa þróaðra taugakerfi. Hvað þýð- ir það? Getur verið að það segi okkur eitthvað um tUgang lífsins á jörðinni? Er þróað taugakerfi skUyrði þess að skynja æðstu gUdi mannlífsins? Bygg- ist þá þróunin á því að sífeUt komu fram lífverur sem betur voru búnar tU þess að skynja hin æðri gUdi? Hvert leiða þessi svör okkur? En maðurinn hefur sjálfur nú tekið þróunina í sínar hendur. Getur verið að maðurinn muni sjálfur nálgast vélmennið í líkams- byggingu og gUdismati á sama tíma og hann þróar vélmennið til þess að geta hugsað eins og maður? AUt mun þetta gerast jafnóðum og maðurinn nær betri tökum á leyndarmálum erfð- anna, breytir genasamsetningu litn- inganna. Þannig mætti lengi velta vöngum og aUa vega munum við sjá öld þar sem einkafyrirtæki munu í vaxandi mæli taka að sér hefðbundna þjónustu samfélagsins, ríkisins. - Auðvitað undir ströngu aðhaldi og eft- irliti ríkisvaldsins. Guðmundur G. Þórarinsson Ummæli Flugráð upp á borðið „Ef Flugráð hef- ur gert ítarlegan samanburð á flug- vaUarkostunum fimm með tiUiti tU ílugöryggissjónar- miða þá væri mik- Ul fengur að því að fá þann efnivið upp á borðið svo almenningur og aðr- ir sérfræðingar á sviðinu geti lagt mat á hann. Markmiðið er að umræð- an um aUa kostina verði málefnaleg og upplýsandi.“ Stefán Ólafsson prófessorí Mbl.-grein um Reykavíkurflugvöll 31. janúar. Óvissa í efnahagsmálum „Veiking krónunnar þrátt fyrir inn- grip Seðlabankans á gjaldeyrismarkað siðustu daga hefur aukið á óvissuna um framvindu eínahagsmála ... Það eykur svo enn á óvissuna, að vextir eru orðnir of háir og íslensk fýrir- tæki þurfa á því að halda að vextir taki að lækka sem fyrst. Að öðrum kosti er hætta á að um of hægi á hjól- um efnahagslífsins." Úr forystugreinum Viöskiptablaösins 31. janúar. Sala Landssímans „Sala fyrirtækis- ins er skynsamleg, en ég held að mUdu skynsam- legra hefði verið ef við heíðum gengið í söluna fyrir ein- hverju síðan. Ekki er óliklegt að við höfum á hikinu tapað einhvers staðar á bilinu 20 til 40 milljörðum, miðað við það verðmat sem var á símafyrir- tækjum fyrir um ári síðan.“ Lúövík Bergvinsson alþm. I Degi 31. janúar. Trúverðugleiki í pen- ingamálaaðgerðum „Ef til vill er dá- lítil gengisleiðrétt- ing æskileg, en mikið gengisfall á stuttum tíma getur ekki talist eftir- sóknarvert. Þess vegna gæti það t.d. verið nauðsynlegt að hækka vexti um leið og vikmörkin eru afnumin til þess að sýna fram á að stöðugleiki sé enn tekinn alvarlega og þannig forða frá mögulegu gengis- falli. Einnig vill svo til að lög um Seðlabanka íslands eru nú í endur- skoðun og skiptir miklu að vandað sé til verka. En traust og trúverðugleiki ræður miklu um árangur peninga- málaaðgerða. Ásgeir Jónsson hagfræðingur í Viöskiptablaöinu 31. janúar. I w==^F=?r——jí ’ 1«=L.' ‘ II mv hfith? HONDM: HINN F0LLW5MNI HÆSTR- FÉTtHRPÓMRRTJ 2.—of Umhyggja nýs forseta George W. Bush, sem dæmdur var til að vera forseti Bandarikjanna, hélt ræðu þegar hann tók við embætti. Hunang draup af hans vörum, hann bað landa sína að efla réttlæti, sýna af sér umhyggju og sætta sig ekki við að hluti þjóðarinnar byggi við mikla og langvarandi fátækt. Ekki nema von að ýmsir menn leggi við eyrun og spyiji: er þessi harðjaxl frá Texas endurfæddur til kristilegs sósíal- isma? Eða er þetta barasta meining- arlaus fagurgali á hátíðlegri stundu? Hvað meinar maðurinn? Því miður verður sá sem hugsar sig um að halla sér að síðarnefndum möguleika. Bush forseti hefur alveg rétt fyrir sér í því að mikil fátækt er stórmál sem alla varðar. En hann hefur engin svör í þeim málum önn- ur en að hver beri ábyrgð á sjálfum sér, auk þess sem menn skuli ekki gleyma að senda góðgerðarfélögum ávísun. Umfram allt eiga menn „að treysta ekki á hið opinbera". Með öðrum orðum: forsetinn gefur til kynna að hinir fátæku eigi ekki von á neinni sérstakri liðveislu af hans hálfu og hans ráðherra. Enda vita menn að höfuðáhugamál hins nýja forseta er að lækka skatta um 1600 milljarða dollara. Og rétt áður en Bush tók við emb- ætti hafði hann í tvígang hitt full- trúa ýmissa helstu stórfyrirtækja Bandaríkjanna að máli og rætt við þá og var mikill einhugur á fundun- um - enda voru þama mættir full- trúar þess ríka fólks sem mest mun græða á skattalækkun. Um leið eru þetta þeir menn sem höfðu látið fyrirtæki sín gefa um 300 miljónir dollara í kosn- ingasjóð svo Bush gæti keypt sér tíma í sjónvarpi og lýst því sem einlægast að hann væri í senn umhyggj- an og íhaldssemin holdi klædd. Minni skattar þýða að sjálfsögðu að „hið opin- bera“ mun að sinu leyti gera enn minna en áður fyr- ir þá fátæku, þá sem lifa „án vonar“. í sömu átt geng- ””“ ur það að Bush ætlar að setja mikið fé - líklega 80 milljarða í fyrstu at- rennu - í það að koma upp sérstöku kerfi eldflaugavama fyrir Bandarík- in. Og lætur sér þá í léttu rúmi liggja þótt þar með sé rift fyrri samningum um afvopnun við Rússa og fleiri, þótt bandamenn í Nató séu lítt hrifnir - og þótt mjög ólíklegt sé að eldflauga- varnakerfið komi að minnsta haldi. Hitt er vist að Bush ætlar að selja löndum sínum þá notalegu hugmynd að brátt verði þeir ósæranlegir - um leið og mörg stórfyrirtæki sem hafa greitt götu hans með framlögum fá arðvænlegar pantanir frá „því opin- bera“. Frá því ríki sem er frægara fyrir refsigleði en umhyggju. Á tíð Clintons tókst aö koma fjölda þeirra sem sitja í fangelsum yfir tvær milljónir, enda var það þá leitt í lög að fávísir strákar gátu hlotið 20 ára fangelsi fyrir að stela pitsu eða gallabuxum ef þeir höfðu tvisvar áður lent í lögreglunni. Og Bush, sem er duglegasti fylgismaður Arni Bergmann rithöfundur dauðarefsinga sem nú er uppi, mun að sjálfsögðu hvergi draga úr refsigleð- inni - með fjárframlögum til fangelsa sem hýsa ótrú- lega hátt hlutfall ungra manna úr fátækrahverfum stórborga, ekki síst svartra og „spænskra". I Með gafli á sjóinn Bush forseti er heldur ekki líklegur til að sýna umhverfi mannsins mikla ™“ umhyggju. Því er spáð að hans tíð verði gullöld olíufyrirtækja sem fá nú að haga sér eins þau lyst- ir í Alaska og að slakað verði á kröf- um um mengunarvarnir. Og að því er varðar viðleitni til aö komast að alþjóðlegu samkomulagi um gróður- húsalofttegundir þá verða Amerík- anar alls ekki með í því dæmi, enda kveðst Bush ekki trúa á óþægilegt raus manna um að andrúmsloftið sé að hitna ískyggilega hratt. Við vitum að Bush svaf vel fyrstu nóttina í Hvíta húsinu og er búinn að hengja upp fjölskyldumyndir og við vitum að fyrir löngu ók hann bíl fullur. En „umhyggja" hans er skráð með gafli á upplýsingasjóinn. And- spænis henni stöndum við á gati. Rétt eins og til dæmis Vestmannaey- ingar í sínum vanda, en þeir eru nú slegnir þeirri furðu að besta fisk- veiðistjórnunarkerfi í heimi (eins og kvótakerfið er látið heita) veldur þeim meira tjóni en eldgos í miðri byggð. Ámi Bergmann „Bush forseti er heldur ekki liklegur til að sýna umhverfi mannsins mikla um- hyggju. Því er spáð að hans tíð verði gullöld olíufyrirtœkja sem fá nú að haga sér eins þau lystir í Alaska og að slakað verði á kröfum um mengunarvarnir. “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.