Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Qupperneq 12
28 MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001 Sport Viö fréttum af ödrum sem býr á Höfn í Hornafirði, sem þótti nú rétt að ná sér 1 veiðistöng fyrir fáum dögum og renndi neðst i ósinn á Laxánni. Eitthvað var nú lítið um fisk en þetta tók mesta hrollinn úr veiðimanninum. Hann ætlaði aftur nokkrum dögum seinna. Er þetta ekki hámarkið á veiðidellunni? Er hægt að vera með meiri veiðidellu? Ég held varla. Árshátíð Stangaveiðifélagsins: Forsætisráðherra verður veislustjóri „Fyrsta opna hús aldarinnar var á fóstudag- inn og það var að sjálfsögðu með þorraívafi, enda þorrinn núna,“ sagöi Bergur Steingríms- son, framkvæmdastjóri Stangveiðifélags Reykja- víkur, í samtali við DV-Sport, en mikið er i gangi hjá félaginu næstu vikumar. „Ásgeir Heiðar sagði frá ferð sem hann fór ásamt hóp íslendinga til Kanada síðastliðið sumar til að veiða í ánni Restigouche og Þröstur Elliðason talaði um Rangárnar." „Undirbúningur fyrir árshátíðina er á loka- stigi og óhætt er að fullyröa að þessi árshátið verður með þeim glæsilegri sem haldnar hafa verið á vegum félagsins. Veislustjóri verður Davíð Oddsson forsætisráðherra og er mikil vinna lögð í það að finna söngfólk og skemmti- krafta. Stórtenórinn Jóhann Friðgeir Valdimars- son og ókrýndur konungur dægurlaganna Stefán Hilmarsson ásamt Jóhönnu Vigdísi Amardóttur munu syngja fyrir veislugesti. Svo verður hinn kraftmikli Stefán Karl Stefánsson leikari með spaug og sprell, svo það verður ýmislegt í boði,“ sagði Bergur enn fremur. Miðinn á árshátíðina kostar 9900. Þrátt fyrir að vetur eigi að heita núna er mik- ill kraftur í veiðifélögunum víða um land og ým- islegt í gangi, íluguhnýtingar og fluguköst, enda styttist í næsta veiðisumar. -G.Bender Það er ýmisiegt í gangi hjá stangaveiðifélögunum og stjórn Stangaveiðifélags Reykjavikur fundaði í veiðihúsinu Lundi viö Hítará á Mýrum fyrir fáum dögum og var margt rætt þar um komandi veiöisumar. Á myndinni eru María Anna Clausen, Árni Eyjólfsson, Jóhann Steinsson, Þorstein Ólafs, Gylfi Gautur Pétursson og Bjarni Júlíusson, en Bjarni Ómar Ragnarsson formaöur tók myndina. Veididellan er með eindæmum hjá sumum veiðimönnum sem aldrei hafa hætt að kíkja eftir í allan vetur og kíkja ennþá mikið eftir. Þegar tíðarfarið er svona gott er miklu betra að sjá hvort fiskurinn er í ánni. Til er einn og einn maður sem er að enn. Við fréttum af einum sem enn þá veiðir og hann veiðir mikið. Hann semur við bændur að fá að renna í veiðiánum og veiðin er víst bara ágæt, þó heldur sé kalt stundum við veiöiskapinn. <5jú —• ■ Lu ^ - -"C' Kajakveiöi á miklum vinsældum að fagna og oft er hægt að gera góða veiðitúra. DV-mynd RS - - •; f- -v Rafn Hafnfjörd, ljósmyndari og veiðimaðurinn snjalli, hefur opnað vef þar sem hægt að að sjá myndir sem hann hefur tekið í gegnum árin. En hann hefur farið viða um landið og tekið þúsundir af myndum, sem margar hverjar eru teknar i og við laxveiðiárnar. Myndir Rafns þykja augnakonfekt af bestu gerð. Þaö er meira og meira lagt upp úr því að gefa út blöð til að kynna hvað veiðifélögin hafa upp á að bjóða fyrir veiðimenn. Fyrst gaf Stangaveiðifélag Reykjavíkur út sína verðskrá og svo kom Lax-á með sína. En í fyrradag gaf svo Veiðiþjónustan Strengir úr sína verðskrá og það er sagt hvað veiðileyfi kosta í Breiðdalsá, Hvolsá og Staðar- hólsá, Minnivallalæk. Hróars- læk og Ytri-Rangá. Það greinilega mikið gert til að veiða til sín veiðimenn þessar síðustu vikur enda gengur vel að selja veiðileyfi fyrir sumarið. Tiöarfariö þessa siöustu dagana er með ólíkindum og ekki er mikill snjór á landinu. Veiðimenn sem voru á ferð á Vestfjörðum fyrir fáum dögum og komu að vatni sem yfirleitt sem frosið á þessum tima árs. En annað var upp á teningnum núna, enda voru vakir á við og dreif og ekki þurfti að nota borinn. Veiðin var ekki mikil. -G. Bender Kaiakveiði - stofnfundur kajakveiöimanna og Róbert Schmidt kosinn formaður Stofnfundur Félags íslenskra kajakveiðimanna (FÍK) var haldinn á laugardaginn og mættu 20 á fundinn. Rætt var um öryggisþætti og veiðitækni ásamt gildandi skotvopnalögum, sem verður eitt helsta markmið félagsins. Mikiil áhugi er meðal skotveiðimanna á kajakveiðiskapnum og telja má víst að áhugamenn hérlendis séu vel á annað hundrað í dag. Skráðir félagar eru um 50 talsins í FÍK. Fimm manna stjóm var kosin: Róbert Schmidt formaður, Svanur Guðmundsson gjaldkeri, Kristján Guðmundsson ritari, Þorsteinn Gunnarsson meðstjómandi, Unnsteinn Guðmundsson meðstjórnandi. Pétur Þór Sigurðsson, kajakkennari og kajakáhugamaður til margra ára, flutti stutt erindi um fyrirhuguð námskeið í björgun úr sjó, sem er grunnur allra kajakræðara, sem verður i boði ásamt róðrartækni og veltukennslu. Mikil áhersla verður lögð á öryggisþáttinn hjá FÍK enda ekki um hættulaust sport að ræða. Fjölmargir fundarmenn tóku til máls og lýstu ánægju sinni yfir þessu framtaki að nú skuli búið að stofa félagsskap fyrir áhugamenn um kajakveiðiskap á fslandi. Fyrirhugað er að halda t.d. veiðiferðir, fræðslufundi, myndakvöld, kajaknámskeið og sumarróðra. Ræddu menn um ýmis mál, m.a. hvar má skjóta við strendur landsins og hvernig á að bera sig að við skotveiði af kajak. „Ég er ánægður að þetta félag er nú orðið að veruleika,“ segir Róbert Schmidt, formaður FÍK, í samtali við DV-Sport. „Áhugi minn vaknaði fyrir átján árum og síðustu ár hef ég verið að koma mönnum inn í þennan veiðiskap sem þykir allsérstakur. Áhuginn er gifurlegur og mér fannst ég bera talsverða ábyrgð, úr því sem komið er, á þessum áhuga manna og ákvað að smala mönnum saman til að stofna þetta ágæta og þarfa félag. Það verður hamrað á öryggisþáttum, fræðslu og kennslu til félagsmanna þannig að allir læri það sem læra þarf svo hægt sé að stunda þennan veiðiskap af kunnáttu og öryggi. Allir áhugamenn um kajakveiðiskap eru velkomnir í FÍK. Þeir þurfa að hafa skotvopnaleyfi en ekki endilega að eiga bát. Það kemur seinna og þeir geta lært ýmislegt af okkur og haft gaman af,“ segir Róbert Schmidt í lokin. -G. Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.