Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Page 13
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001
29
''
dv_____________________________________________________________________________Sport
í frétt i DV-Sport síðastlið-
inn mánudag um hestamannafé-
lagið Sleipni á Selfossi og ná-
grenni tókst umsjónarmanni
hestasiðunnar að koma inn
villu. Slóð á heimasiðu Sleipnis-
manna er Sleipnismenn.is, ekki
Sleipnir.is.
í framhaldi af þvi má nefna
að Sleipnismenn ætla að ræða
við forsvarsmenn Smára á
Skeiðum og í Hreppum um mál-
efni Murneyi'a. Mót á Murneyr-
um hafa í flest skipti á undan-
förnum árum verið rekin rétt-
um megin við núllið, en það
þarf að gera endurbætur á vell-
inum, leggja nýjan veg að móts-
svæðinu og girða það upp á
nýtt.
íslenski reiöskólinn mun
standa fyrir mörgum námskeið-
um í vetur og vor. Reynir Aðal-
steinsson, skólastjóri íslenska
reiðskólans, og reiðkennarar
við skólann ásamt gestakennur-
um munu kenna við námskeið-
in. Reynir verður með leiðrétt-
inganámskeið, en einnig má
nefna. orlofsnámskeiö, töltnám-
skeið, járninganámskeið, sýn-
inganámskeið, frumtamningu
og endurhæfingarnámskeið og
námskeið um hrossarækt á ís-
landi, svo nokkur séu nefnd.
Sörlamenn í Hafnarfirði
halda opið Grímutöltmót að
Sörlastöðum um næstu helgi.
Aðstaða Sörlamann hefur gjör-
breyst á síðustu árum. Þeir eru
komnir með glæsilega reiðhöll
og nýtt vallarsvæði. íslandsmót
barna- og unglinga verður hald-
ið þar í sumar.
Jón A. Sigurbjörnsson, for-
maður Landssambands hesta-
mannafélaga (LH), og Siguróur
Sœmundsson, fráfarandi lands-
liðseinvaldur í hestaíþróttum,
sátu sportfund FEIF nýlega.
FEIF er félag eigenda og vina ís-
lenska hestsins og stendur að
heimsmeistaramótum í hestaí-
þróttum.
Þar var samþykkt tillaga ís-
lensku sendinefndarinnar um
að heimsmeistarar í hestaíþrótt-
um megi skipta um hest er þeir
verja heimsmeistaratitla sína.
Austurríkismenn komu með til-
lögu sem gekk lengra og var
hún einnig samþykkt. Hún gekk
út á að heimsmeistarar megi
verja heimsmeistaratila sína á
nýjum hesti í öllum greinum í
fjórgangi eða fimmgangi eftir
því hvar titill þeirra lá.
„Þaó er skilningur á stöðu
okkar íslendinga. Við verðum
að selja hestana okkar, skilja þá
eftir og eigum erfitt með að
nálgast þá á ný,“ segir Jón.
„Bandaríkjamenn og Kanda-
menn eru í sömu stöðu.“ Sam-
þykktin tekur gildi á HM í Dan-
mörku árið 2003. En dyrst þarf
stjórn FEIF að samþykkja hana
Hestamannafélögin Snæfell-
ingur í Snæfells- og Hnappadals-
sýslu, Glaður í Dalasýslu og
Kinnskær í Barðastrandarsýslu
standa saman að fjórðungsmóti
á Kaldármelum 5.-8. júlí. Út-
koma á íjórðungsmótinu 1997
var ekki góð og önnur félög á
Vesturlandi uggandi um sam-
starf.
Jón Bjarni Þorvarðarson á
Bergi í Eyrarsveit hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri móts-
ins. „Við ætlum að reyna að
halda i þessi fjórðungsmót því
við hverfum í fjöldann á stór-
mótum,“ segir Ólafur Tryggva-
son í Grundarfirði.
-EJ
Stóðhestar hafa verið taldir stall-
djásn á íslandi til þessa. Mörg
dæmi eru um að stóðhestaeigendur
íslendingasagnanna hafi hlotið af
eigninni sóma mikinn og enn í dag
eimir eftir af þessum hugsunar-
hætti.
Kostnaður við stóðhesta er ekki
einungis í aurum talinn heldur
þurfa þeir athygli nánast allan sól-
arhringinn, ekki síður þegar þeir
eru í girðingum hjá hryssum á
sumrin. Það er mikið umstang sem
fylgir þeim, húsanotkun á vorin,
flutningar milli landshluta og alls
konar þvælingur. Á móti kemur að
ef þeir slá í gegn gefa þeir vel af
sér.
Vignir Jónasson tamningamað-
ur hefur tamið og sýnt marga stóð-
hesta undanfarin ár. Hann verður
með átta til tíu stóðhesta á húsi í
vetur, þar af fimm sýnda stóð-
hesta: Keili frá Miðsitju, Randver
frá Nýjabæ, Tígul frá Bjamanesi;
Prins frá Úlfljótsvatni og Hegra frá
Glæsibæ.
„Það eru gerðar meiri kröfur til
umönnunar stóðhesta en annarra
hrossa,“ segir Vignir. „Stóðhest-
Ekki hefur enn verið ráðinn
landsliðseinvaldur. Lands-
liðsnefndina skipa: Þröstur
Karlsson formaöur, Pjetur N.
Pjetursson, Vilhjálmur Skúla-
son, Sigurður Sæmundsson
og Sigurbjörn Bárðarson.
„Það er ekki endanlegt að Sig-
urður Sæmundsson verði
ekki landsliðeinvaldur," segir
Jón A. Sigurbjömsson, for-
maður Landssambands hesta-
mannafélaga.
arnir eru graðir vegna þess að eig-
endur þeirra telja þá verðmætari
en geldinga og því eru kröfumar
meiri um fyrsta flokks aðbúnað.
Aöbúnaður hrossa hefur stórbatn-
að á undanfömum árum. Margir
tamningamenn hafa byggt hesthús
nýlega sem uppfylla ströngustu
kröfur fyrir hross. Stóðhestar
þurfa aö vera hver í sinni stíu, og
hún þarf að vera ömgg og hest-
held. Ég tel aö þrir stóðhestar í
eins hests stíum taki pláss fimm
hesta í hesthúsi sem sýnir strax
þann aukakostnað sem þeim fylgir.
Stóðhesta hef ég í stium innan um
önnur hross.
Mér finnst þaö ekki gott þegar
að stóðhestarnir eru einangraðir
um of frá öðrum hrossum. Það get-
ur haft slæm áhrif þegar að sýn-
ingum kemur. Stóðhestar eru við-
kvæmari gagnvart fóðrun en önn-
ur hross. Það þarf að fylgjast vel
með þeim. Þeir eru fljótari að detta
niður í vigt. Þeim má ekki verða
misdægurt. Það er sagt að ef stóð-
hestur fái hita drepist í honum
sæðisfrumumar og hann verði
ónýtur í langan tíma. Stundum get-
Velgengni kallar ekki á
breytingar
„Þegar vel gengur er ástæðu-
laust að gera miklar breytingar.
Það hefur gengið vel hjá okkur
undanfarin ár. Allir hafa lagt sig
fram og árangurinn hefur verið
eftir þvi. Það liggur ekki lífið við
að ráða einvald. Knapar eru ekki
famir að sýna hross. Yfirleitt
hafa einvaldar verið ráðnir í
febrúar til mars svo það er næg-
ur tími,“ segir Jón.
ur gredda og andleg spenna haft
þau áhrif að stóðhestar verða ým-
ist mjög órólegir eða jafnvel sljóir,
missa matarlyst og grennast
snöggt. Það er mikilvægt að stóð-
hestar séu í góðum holdum og
góðu ásigkomulagi er þeir em sett-
ir til hryssna. Ekki síður er mikil-
vægt að huga að þeim á haustin.
Það fer eftir ásigkomulagi hestsins
hvenær á að taka hann inn. Suma
hesta þarf aö taka inn í október en
aðra ekki fyrr en um áramót.
Eigi að sýna stóðhesta á lands-
mótum, sem em á tveggja ára
fresti, þarf að halda þeim í þjálfun
milli mótanna. Þaö tekur mikinn
tíma að koma þeim í góða þjálfun
og enn meiri tíma að koma þeim í
toppþjálfun. Eigi hestur að bæta
sig, en ekki bara að komast í gamla
formið, tel ég að það þurfi einnig
að þjálfa hann árin sem ekki eru
stórmót. Þetta er sama lögmálið og
með iþróttafólk. Þaö þýðir ekki að
hætta algjörlega að æfa þó langt sé
að milli móta eigi að bæta sig.
Því miður halda margir stóð-
hestseigendur þeim gröðum of
lengi. Ég tel að oftast komi í ljós á
nokkrum mánuðum hvort um stóð-
hestsefni sé að ræða og finnst það
jákvætt hve margir ala upp vel
ættaða fola ógelda og gefa þeim
tækifæri, en hins vegar má hvergi
slaka á kröfunum. Oft er gelding
erfið ákvörðun fyrir eigandann
sem hefur alið stóðhestinn upp við
gott atlæti, væntiunþykju og vænt-
ingar.
Yfirleitt borgar sig ekki að reyna
aftur ef hestur hefur fengið slæm-
an dóm þó svo að það sé alls ekki
einhlítt. Það kostar jafnvel hund-
ruð þúsunda króna að temja þá og
þeir þurfa aö gefa vel af sér til að
það borgi sig að gefa þeim annaö
tækifæri. Þess eru dæmi að tamn-
ingarkostnaður stóðhests og upp-
eldi hafi verið það hár að söluverð
hans sem geldings hafi ekki náð
kostnaðnum.
Stóðhestar eru oft harðari og
setja sig hærra en önnur hross.
Það getur verið erfitt að fá þá til að
samþykkja manninn sem leiðtoga.
Þeir líta á sig sem kónga og sam-
skipti við þá snúast um virðingar-
stiga,“ segir Vignir Jónasson.
Eiríkur Jónsson
Harðarmenn urðu
tuðrusparksmeistarar
Knapar gera sér ýmislegt ann-
að til dundurs en að sitja hross.
Háð var keppni í tuðrusparki í
Reiðhöllinni að Ingólfshvoli um
helgina. Átta lið kepptu um
Becks-bikarinn og sigruðu
Haröarmenn í Mosfellsbæ Gust-
ara í Kópavogi, 4-2, eftir fram-
lengdan leik. Latibær og Sörli
voru í 3.^4. sæti.
Ein æfing í viku
Harðarmenn æfa einu sinni í
viku en liðið skipuðu eftirfarandi
leikmenn: Sævar Haraldsson, Jó-
hann B. Magnússon, Björgvin Jóns-
son, Þorvarður Friðbjömsson, Frið-
rik Steingrímsson, Guðmundur
Steinsson, Þorvaldur Haraldsson,
Mundi Jóhannesson, Þór Jóhannes-
son, Sveinn Þ. Stefánsson, Guðlaug-
ur Pálsson og Dagur Benónýsson.
Enginn einvaldur