Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2001, Blaðsíða 8
íslendingar eru sérstök þjóð. Við búum á landi sem að mörgu leyti er ósnortið af mengun og öðrum við-
bjóði. Fyrir vikið hafa nokkrir einstaklingar náð að halda sér eins í útliti í fjölda ára, eru orðnir svo stein-
runnirað segja mætti að tími væri kominn á að stoppa nokkra þeirra upp. Svo eru það aðrir sem hoppað
hafa inn í virðuleg embætti og losað sig við æskuUómann á einu augnabliki, urðu virðulegir á einni nóttu
svo að segja. Við kíktum í myndasafnið og grófum upp nokkra af þessum einstaklingum.
■">B™ I I I
Ovl I I
I _l_ ■ J_ I I ■
nKA\/tlOT
r j r f ■ \ / I i ^ i ■ mm B
M
Pétur Kr. Hafstein
Eins og svo margir lögfræð-
ingar er Pétur afskaplega þurr
maður sem stendur fastur á
sínu. Það sést líka vel á þess-
um myndum sem teknar voru
1974 og í kosningabaráttunni
1996 að Pétur er ekki maður
breytinganna. Hann flaggaði
síðu hári á yngri árum en þrátt
fyrir litgreiningu og önnur fin-
heit í kosningunum tókst hon-
um ekki að breytast mikið.
Kolbrún Halldórsdóttir
Það er ekki að sjá aö það séu 15 ár
á milli þess að myndirnar voru tekn-
ar. Á þessum tíma fór Kolbrún að
vísu frá því að vera annálaður menn-
ingarskarfur í nöldursegg á þingi.
Fólk veit þó alla vega að ekki allt of |
löngu fyrir fyrri myndatökuna hafði
Kolbrún sjálf setið fyrir í erótískri
myndatöku en í dag gerir hún fátt
annað en að kvarta yfir slæmri þróun í erótik i islensku samfélagi.
Sumt breytist bara ekki hjá kvenfólkinu, eða hvað?
Guðmundur Arni
Stefánsson
Það var ungur og ferskur blaða-
maður á Alþýðublaðinu sem sat
fyrir á eldri myndinni, árið 1976,
en á myndinni frá í fyrra sjáum
við settlegan varaforseta Alþing-
is. Ekki virðist mikið hafa tapast
frá fyrri myndinni, ef frá er skil-
inn bæjarstjórnarmeirihluti og
ráðherrastóll.
Kjartan Gunnarsson
Sem framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins um árabil hef-
ur Kjartan gengið í gegnum
ýmislegt en virðist alltaf
standa óbreyttur eftir. Það sést
líka þegar myndirnar frá 1973
og 1998 eru skoðaðar, Kjartan
gæti hafa verið færður til með
tímavél.
Valdimar Örnólfsson
Valdimar Örnólfsson er liklega
einn frægasti íþróttafrömuður
okkar Islendinga og hefur getið af
sér nokkra slíka sjálfur. Fyrri
myndin er frá 1978 þegar Valdi
var enn ungur og ferskur en á
seinni myndinni er árið 1999 og
hann er enn samur við sig, hefur
ekki haggast um þumlung.
Styrmir Gunnarsson
Þessi „valdamikli“ maður hef-
ur setið lengi sem ritstjóri Mogg-
ans án þess að mikið hafi breyst,
blaðið eða hann. Er það kannski
nema von þegar svo ábúðarfullir
og skemmtilegir menn eru við
völd? Styrmir þarf ekkert að vera
skemmtilegur, hann lítur eins út
og hann gerði fyrir 20 árum. Fólk
verður svo bara að meta kosti
þess og galla.
Bára Sigurjónsdóttir
Eftir að hafa rekið verslunina
Hjá Báru i fjölda ára er konan
þekkt andlit á íslandi og það
breytist líklegast aldrei. Hún sjálf
mun varla breytast úr þessu eftir
að hafa verið eins öll þessi ár, eða
frá 1978 til 1999 á þessum mynd-
um. Það skemmtilega er að sumir
segja að fótin í versluninni hafi
aldrei breyst enda hélt hún alltaf
viðurnefninu Bára bleika.
Björn Bjarnason
Ekki alls fyrir löngu var Björn
Bjarnason sterklega orðaður við að taka
við ritstjórastarfi hjá Morgunblaðinu
þar sem hann starfaði einmitt þegar
fyrri myndin var tekin árið 1984. Ekkert
varð nú úr því en nú er hann orðaður
við borgarstjórnarpólitíkina og virðist
mörgum sem einhver vilji hann burt úr
núverandi starfi. Þó að það kunni að
virðast sem skref aftur á bak fyrir hann ef hann neyðist til að sitja í minni-
hluta i borginni getur það varla talist svo slæmt, a.m.k. bendir útlitið til
að hann gæti verið nýkominn frá Morgunblaðinu.
Þorsteinn Pálsson
Það hefur margt breyst hjá Þor-
steini Pálssyni síðan hann var rit-
stjóri Vísis árið 1975. Þá var hann
ungur og gagnrýninn en svo datt
hann í hinn heföbundna farveg
stjómmálamannsins, féll svo í for-
mannskjöri og endaði á að fá póli-
tíska skipun í sendiherrastöðu. Þor-
steinn hefur þó haldið andlitinu öll
þessi ár, ef svo má segja, svo vel að hann er næstum jafn vinsæll hjá
eftirhermum landsins og Steingrímur Hermannsson.
Eiríkur Hauksson
Gaggó vest kom Eika á kort-
ið fyrir allmörgum árum og í
kjölfarið fylgdi Júróvisjón. Svo
flutti strákurinn bara til Nor-
egs og kallaði sig Eric Hawk
með hljómsveitinni Artch en
sneri aftur til að syngja Queen
á Broadway. Það breytir því þó
ekki að Eiki er búinn að vera
nákvæmlega eins, allt frá því
hann var uppgötvaður og til
dagsins í dag. Það sýna þessar
myndir bersýnilega, syngjandi
í Hollywood árið 1986 og syngj-
andi á Broadway i fyrra.
Bogi Ágústsson
Bogi Ágústsson er líklega það
andlit á skjánum sem fólk treystir
hvað best. Það hefur þvi komið sér
vel fyrir hann að hafa getað haldist
eins öll þessi ár, eins og sést á
myndunum sem teknar voru árin
1978 og 1999. Það er líklegast ekki
furða að fréttastofa Boga skuli hafa
yfirburði yfir samkeppnisaðilann
og það verður eflaust áfram meðan
traust og óbreytt andlit hans held-
ur áfram að færa okkur fréttimar.
Ogmundur Jónasson
Andlit Ögmundar Jónassonar
hefur haldist óbreytt allt frá því
hann var fréttamaður á níunda
áratugnum og þar til hann settist á
þing með viðkomu í verkalýðs-
hreyfingunni, þar sem hann
starfar reyndar enn. Fólk veit að
þetta andlit færir því allar helstu
umkvartanirnar og gagnrýnina,
það eina sem það gæti saknað er
vörin slappa sem var svo áberandi
í sjónvarpinu.
Helgi H. Jónsson
Eins og svo margir fastráðnir
ríkisstarfsmenn hefur Helgi H.
Jónsson ekki tekið stórstígum
breytingum á undanförnum 20
árum, hvorki i starfi né i útliti.
Árið 1976, þegar fyrri myndin var
tekin, var hann einn af ungu mönn-
unum á stofnuninni en árið 1997,
eins og í dag, verður hann að teljast
einn af þeim þéttsetnari. Hvað sem
því liður virðist Helgi ekki á fórum
enda varla ástæða til þegar hann
lítur eins út og fyrir 20 árum.
Pétur Kristjánsson
Ef þetta er ekki rakið dæmi um
mann sem hefur ekki breyst eru
þau varla til. Allt frá því að Pelic-
an var upp á sitt besta hefur Pétur
verið með gardínurnar fyrir aug-
unum og virðist ekkert vera á því
að fara að klippa sig. Fyrri mynd-
in er einmitt tekin þegar Pétur lék
í Hárinu árið 1971 og sú síðari þeg-
ar Pops voru með eitt af kombökk-
unum árið 1998. Þessi maður gefst
ekkert upp, húrra fyrir Pétri og
gardínunum.
Valgerður Matthíasdóttir
Það er eins og Vala Matt hafi ver-
ið klónuð frá fyrsta degi á Stöð 2 fyr-
ir 15 árum. Þá hófst farsæll ferill
sem allir þekkja og sökum þess að
þjóðfélagið og fólkiö í kring hefur
allt breyst varð Vala að yngja upp og
skefla sér yfir á SkjáEinn til að
halda andlitinu. Hún er söm við sig,
stelpan.
f Ó k U S 23. febrúar 2001
+
§
H§
n
i
i
+