Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2001, Side 9
sem
Helgi Pétursson
„Veistu hvað Ljóminn er
ljómandi góður,“ söng Helgi
hér á árum áður. Þá var hann
róttækur tónlistarmaður og
blaðamaður og flestu eldra
fólki stóð stuggur af látunum í
honum. í dag er hann ekki eins
rauður lengur, nema í andlit-
inu, og nú talar hann um fækk-
un flækingskatta í stað þess að
spyrjast fyrir um hvar næsta
gigg sé. Hann er meira að segja
oröinn svo samofinn kerfinu
að hann gleymdi að mæta í
vinnu með strætó á bíllausa
deginum sem hann skipulagði
sjálfur.
Eyþór Arnalds
Það er við hæfi að minnast hér á Ey-
þór Amalds sem hefur breyst einna mest
á sem allra skemmstum tíma. Flestir
ættu að muna eftir honum sveiflandi
hárinu og mundandi sellóið á sviði með
Todmobile eins og hann hafði nýlokið
við að gera þegar þessi mynd var tekin
af honum árið 1993. Enn fleiri kannast
þó við hann eins og hann er í dag, eins
og nýsleginn túskildingur í jakkafotum og kominn með valdsmannslega
bumbu, forstjóri í hátæknigeiranum og með konu og bam. Gæti það verið
betra? Við skulum samt vona að hann gleymi því ekki hve stutt það er síð-
an hann var að rífast við nemendafélög framhaldsskólanna um greiðslur fyr-
ir böll.
Valgarður Guðjónsson
Valli fræbill er einn af þessum köpp-
um sem virðast aldrei ætla að hætta í
tónlistinni. Fyrri myndin var tekin af
honum árið 1982 þegar hann var að
syngja á fuUu auk þess að leika í
myndinni Okkar á milli. í dag spila
Fræbbblamir að minnsta kosti einu
sinni á ári og alltaf mætir Valli, jafn-
vel þó hann sé orðinn virtur tölvumað-
ur hjá Kuggi.
Rauðsokkan hefur svo sann-
arlega skipt um útlit og fas og
er ekki lengur í minnihluta.
Nú segir hún já við hópíþrótt-
um og er handviss um að leik-
skólamálin séu i góðu lagi.
Einu sinni var öldin önnur
þegar Sólrún gekk manna
fremst í kröfugöngum og heUti
sér yfir aUt og aUa. Tímarnir
breytast og mennirnir með,
Sólrún er orðin virðulegur
borgarstjóri og öU lætin í
henni hafa þagnað. Einhverjir
hljóta þó að rífa hár sitt yfir að
hafa misst gömlu góðu Sollu.
Friðrik Þór Friðriksson
Það er langur vegur síðan
Frikki gaf skit í styrkina og
gerði ruglmyndir til að skila
einhverju af sér. í dag gerir
hann alvörumyndir sjálfur
og framleiðir allar aðrar
myndir sem gerðar eru á Is-
landi. Svo hefur hann lika
skipt út lubbanum sem
hann var með þegar Skytt-
urnar voru frumsýndar og
þó mottan sé enn til staðar
er aUt annað að sjá dreng-
inn. Já, hann er fyrir löngu
vaxinn úr grasi pUturinn,
enda einn af óskabörnum
þjóðarinnar.
Jo Str0mgren
23. febrúar 2001 f Ókus
9