Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2001, Side 3
—
MÁNUDAGUR 5. MARS 2001
19
I>V
Sport
Haukah-Sporfíiig Lissaboii
DV-myndir E.ÓI
Óskar Ármannsson er hér í átökum
viö Luis Gomez, leikmann Sporting.
Engu líkt
„Ég hef aldrei lent í öðru eins,
svona dramatik í lokin og það að
komast í undanúrslit i Evrópu-
keppni er alveg ótrúlegt," sagði
Halldór Ingólfsson, fyrirliði Hauka,
þegar DV-Sport dró hann út úr
stuðningsmannahrúgunni á Ásvöll-
um eftir leikinn.
„Það varð stórbreyting á leik
okkar og vörninni frá því í siðasta
leik. Við vorum ákveðnari í upp-
hafi og hefðum átt að stinga af en
vorum kannski óheppnir með nýt-
ingu á færum, hleyptum þeim inn í
leikinn og þeir fengu meira sjálfs-
traust. Þeir komu kraftmiklir og
ákveðnir i síðari hálfleikinn sem
sló okkur kannski aðeins út af lag-
inu. Við vorum kannski svolítið
stressaðir og sofandi en það er að-
alatriðið að við náðum að innbyrða
þetta. Það eru skemmtileg lið eftir í
keppninni og það væri frábært að
lenda á móti liðum eins og Magde-
burg eða Bidasoa. Við höfum verið
að spila eintóma úrslitaleiki und-
anfarið og erum bjartsýnir á fram-
haldið," sagði Halldór að lokum.
-ÓK
Maöur leiksins:
Einar Örn Jónsson, Haukum
Þýskaland, með
viðkomu á Spáni
Það var mikil gleði meðal
Haukamanna eftir leikinn og menn
strax farnir að huga að næsta leik í
keppninni. Þegar einn stuðnings-
manna var spurður hvort drauma-
mótherjamir væru ekki þýska liðið
Magdeburg var svarið það að
auðvitað ætluðu menn sér til
Þýskalands. Þá bætti annar við að
Haukar ætluðu sér að koma fyrst
við á Spáni. Það er ekki hægt að
segja annað en að Haukar séu kok-
hraustir enda ærin ástæða til. -ÓK
Það var allt á suðupunkti í troð-
fullu húsi á Ásvöllum á laugardag
þegar Haukar og Sporting Lissabon
léku seinni leik sinn í 8-liða úrslitum
EHF-keppninnar í handknattleik.
Sporting var komið með nokkuð væn-
lega stöðu eftir að Haukar höfðu haft
undirtökin framan af en Sporting
tókst að jafna leikinn, 32-32, þegar 20
sekúndur vóru eftir. Þessi úrslit
hefðu þýtt að Portúgalarnir hefðu far-
ið áfram í undanúrslit og fognuðu
þeir því mjög. Á sama tima voru
margir áhangendur Hauka búnir að
sætta sig við að nú væri Evrópuævin-
týrinu lokið. En leikmennirnir voru
aldeilis ekki á sama máli. Þeir brun-
uðu upp og Einar Öm Jónsson fór
inn úr horninu og tryggði Haukum
sigur, 33-32, og þar með var sæti i
undanúrslitum tryggt. Frábær árang-
ur hjá Haukum og ekki síst fyrir ís-
lenskan handknattleik í heild.
Haukamenn byrjuðu vel og skor-
uðu tvö fyrstu mörk leiksins. Þeir
fengu síðan vítakast sem Rúnar lét
verja frá sér og þegar Ricardo Andor-
inho hafði svo minnkað muninn í 2-1
úr vítakasti misnotuðu Haukarnir
aftur víti, að þessu sinni Óskar Ár-
mannsson. í kjölfarið komust Sport-
ing-menn í 2-3 og Andorinho hafði þá
gert öll mörkin. En Haukar náðu svo
aftur frumkvæðinu og voru mestall-
an hálfleikinn 2-3 mörkum yfir. Lið
Sporting spilaði alls ekki vel í fyrri
hálfleik og ef ekki hefði komið til
stórleikur Andorinhos, sem gerði alls
átta mörk í fyrri hálfleik, er hætt við
að leikurinn hefði verið nánast búinn
í leikhléi. Þó má nefna að vörn
Hauka var gríðarsterk og Bjarni
Frostason varði þokkalega bak við
hana í fyrri hálfleik. Fljótlega kom þó
í ljós að skorið í leiknum yrði tölu-
vert hærra en í fyrri leiknum sem
þýddi að Haukunum nægði ekki jafh-
tefli til að komast áfram.
Háspenna, lífshætta
Síðari hálfleikurinn byrjaði ágæt-
lega. Bæði lið léku skynsamlega í
sókninni og virtust ekki eiga í vand-
ræðum með að fmna glufur á vömun-
um. En í stöðunni 23-20 kom afleitur
þriggja mínútna kafli hjá Haukum
þar sem Portúgalamir skomðu þrjú
mörk í röð þrátt fyrir að Haukar
væru manni fleiri hluta þess tíma.
Eftir þetta var jafnt á flestum tölum
og spennan var algerlega i hámarki.
Þegar flmm mínútur voru eftir var
staðan 30-30 og ýmislegt gekk á síð-
ustu fimm mínútumar. Fyrst var
dæmdur ruðningur á Einar Örn og
Milan Stohr svaraði með marki. Stað-
Opið í báða enda
„Þetta var gífúrleg barátta eins og við bjuggumst við,“ sagði
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, eftir leikinn. „Þeir gáfu ekkert
eftir, þeir spiluðu með höfðinu og vom okkur erfiðir. Við lékum
ekki vel í vörninni, vorum að fá ódýr mörk á okkur og
markvarslan var ekki eins góð og í fyrri leiknum.
Það var mikið skorað í leiknum og liðin spiluðu
skemmtilegan handbolta og leikurinn var opinn í báða enda.
Spennan var mikil og fjörið og þetta er stórkostlegur dagur í alla
staði. Það var eitt og annað sem gekk ekki upp hjá okkur.
Sóknarlega spiluðum við miklu betur en í fyrri leiknum, við
héldum þeim vakandi allan tímann klikkuðum í vörninni,
Bjami fékk á sig ódýr mörk úr homum og þvi fór sem fór.
Við þurfum að koma mönnum á tæmar aftur, við spilum þrjá
leiki i næstu viku og eigum þá jafnvel möguleika á að klára
deildakeppnina. Menn geta slappað af í kvöld en síðan tekur
alvaran við. Það tilheyrir góðum liðum að það er álag á þeim og
menn verða bara að taka því.
Það sem er verið að gera hér hjá Haukunum er í heimsklassa
og þeir eru að vinna eins og atvinnumenn. Öll umgjörðin i
kringum nýja húsið og stuðningsmannahópinn er stórkostleg og
eins og það gerist best í Þýskalandi,“ sagði Viggó. -ÓK
an var orðin 30-31 og útlitið ekki gott.
En áfram var barist. Einar Örn jafn-
aði 31-31 með marki úr horninu og
síðan kviknaði von hjá Haukum þeg-
ar Kravlic skaut í þverslána og niður
á gólf þar sem boltinn endaði svo í
fangi Magnúsar markvarðar. Þar
skall hurð nærri hælum en Shamkuts
skoraði svo af línunni þegar ein mín-
úta var eftir. Síðustu mínútunni hef-
ur þegar verið lýst hér í upphafi og
það var dramatík eins og hún gerist
best. Enda fögnuðu Haukarnir ákaft í
leikslok á meðan Portúgalamir voru
vonsviknir enda voru þeir aðeins
hársbreidd frá því að komast í undan-
úrslitin.
Vígreifir og stoltir
Haukarnir geta svo sannarlega ver-
ið stoltir af frammistöðu sinni á Ás-
völlum og þeir voru þar að auki
dyggilega studdir af frábærum áhorf-
endum á Ásvöllum. Allt Haukaliðið á
hrós skilið fyrir frammistöðuna þó að
gagnrýna megi markvörsluna, sér-
staklega í seirrni hálfleik. En nefna
verður frammistöðu tveggja manna
sérstaklega. Einar Örn Jónsson nýtti
færi sín frábærlega og var síðan eins
og klettur í vöminni þar sem hann
náði annan leikinn í röð að halda
stórskyttunni Kravlic að mestu niðri.
Og Aliaksandr Shamkuts var geysi-
lega öflugur á línunni og var einnig
sterkur í vöminni. En aOir eiga hrós
skilið og nú er lag fyrir Hauka að
hafa gaman af því sem eftir er af Evr-
ópukeppninni því allt sem gerist hér
eftir er plús fyrir þá.
Lið Sporting lék ekki vel í fyrri
hálfleik, að frátöldum Andorinho, en
leikur liðsins varð svo allur annar í
siðari hálfleik og þá sýndi það á
tímabili hvað í því býr. Miklu mun-
aði þó fyrir þá að markvöröurinn
Carlos Ferreira náði sér ekki nærri
þvi eins vel á strik og í fyrri leiknum.
Andorinho (nr. 6) hélt liðinu inni í
leiknum langtímum saman í fyrri
hálfleik og þá átti homamaðurinn
Nunes (nr. 74) stórleik í síðari hálf-
leik. Gomez (nr. 14) og Graca (nr. 19)
áttu einnig góða spretti. -HI
Þorvarður Tjörvi Olafsson skorar hér annaö af
tveimur mörkum sínum f leiknum í gær.
Beinar
útsendingar
í uikunni
mán: Sunderland - flston Uilta
Enskl boltinn
pri: flrsenal - Sp. Illoskua
Meistarakeppnin
mið: Gatatasaray - HC milan
Panatftlnaikos - man. Utd
Meistarakeppnin
i-deildin
'rfubolti
lau: Shane mosley -
Shannan Taylor
Hnefaleikar
ftalski boltinn
sun: Tranmere - Liuerpool
Enski bikarinn
Ulest Ham - Tottenham
Enski bikarinn
neui Vork Knicks
- miarnl Heat
NBA
áskrift á netinu
www.syn.is
- þegar Haukar tryggðu sér sæti í undanúrslitum EHF-keppn-
innar eftir ævintýralegan lokasprett gegn Sporting Lissabon
Háukar tiöföu ærna ástæöu
JUö faqna eftir sigurinn á
2-0, 2-2, 4-4, 8-5, 10-8, 13-8, 14-11, 15-13
(17-14), 17-15, 21-18, 24-23, 25-26, 27-27,
30-31, 33-32.
Haukar
Mörk/viti (skot/viti): Aliaksandr
Shamkuts 8 (8), Einar Örn Jónsson 7 (7),
Rúnar Sigtryggsson 5 (11/1), Jón Karl
Bjömsson 4/3 (5/3), Halldór Ingólfsson 3
(4), Óskar Ármannsson 3 (6/1), Þorvarð-
ur Tjörvi Ólafsson 2 (4), Petr Baumruk 1
(2), Einar Gunnarsson (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 6 (Einar
Örn 2, Halldór, Shamkuts, Baumruk,
Rúnar).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 5.
Varin skot/viti (skot á sig): Bjarni
Frostason 15 (36/3, 42%), Magnús Sig-
mundsson 3/1 (14/3, 21%).
Brottvisanir: 8 mínútur
Snorlins Lissabon
Mörk/viti (skot/viti): Ricardo Andorin-
ho 11/5 (16/6), Fernando Nunes 6 (10),
Armando Pires 3 (4), Luis Gomes 3 (6),
Daviod Graca 3 (6), Vojislav Kracjic 3 (8),
Paulo Araujo 2 (5), Milan Stohr 1 (1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 7 (Andor-
inho 4, Nunes 2, Gomes).
Vitanýting: Skorað úr 5 af 6.
Varin skot/viti (skot á sig): Carlos Fer-
reira 12/2 (44/5, 27%).
Brottvisanir: 10 mínútur.
Dómarar (1-10): Carligeanu og
Bejinariu frá Rúmeníu (4).
Gϗi leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 1574.