Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2001, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2001, Síða 4
20 MÁNUDAGUR 5. MARS 2001 Sport DV Jón Arnór Stefánsson var KR- ingum aö vanda mikilvægur í leikjum helgarinnar. DV-mynd Hilmar Pór Bætti metið Kristinn Ingi Halldórsson, frjálsiþróttamaður úr Aftureld- ingu, setti í gær Islandsmet í 60 m hlaupi i strákaflokki, 11-12 ára, þegar hann hljóp vegalengd- ina á 8,67 sekúndum á Stórmóti ÍR. Hann bætti ársgamalt met Jóns V. Sigvaldasonar úr UMSB um tvo hundraðshluta úr sek- úndu. Stórmótið fór fram án stóru nafnanna sem þar hafa keppt undanfarin ár. „Ánægður með mína menn“ - sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR KR hrósaði sigri gegn Grindvíking- um í Epson-deildinni í körfuknattleik í vesturbænum í gærkvöld með 80 stig- um gegn 76. Með sigrinum eygir KR góða von um annað sæti deildarinnar og ekki er öll nótt úti varðandi það efsta og óhætt að fullyrða að lokaumferð deildarinnar verður ekki fyrir hjartveika. Annars voru það Grindvíkingar sem hófu leik- inn mun betur og einhver flensa virt- ist i KR-liðinu. Barátta Grindvíkinga og það að þeir hirtu flestöll fráköst færði þeim tíu stiga forystu þegar fyrsti fjórðungur var allur. Meira jafti- vægi komst á i öðrum leikhluta og náðu KR-ingar að halda í horfinu og í raun að halda Grindvikingum niðri því þeir voru til alls líklegir eftir fyrsta fiórðung. Undir lok annars leikhluta komst KR-vélin loksins almennilega í gang og náðu þeir á skömmum tima að minnka muninn í fiögur stig en mest náðu Grindvíkingar þrettán stiga for- ystu. Staðan í hálfleik var 32-36, gest- unum í vil. KR-ingar mættu tví-, ef ekki þriefldir til leiks í þriðja fiórðungi og skoruðu níu fyrstu stigin í honum og allt leit út fyrir að þeir myndu kaf- færa Grindvíkinga. Á þessum tíma var vöm KR geysi- lega sterk og þá voru þeir famir að taka fráköstin eins og menn. Mest náðu þeir sjö stiga forystu en þá sögðu Grindvíkingar, með Billy Keys í farar- broddi, hingað og ekki lengra og svo fór að þeir náðu forystunni áður en fiórðungurinn var allur. Fjórði fiórð- ungur var brokkgengur framan af og var lítið skorað. Það var ekki fyrr en um miðbik fiórðungsins að KR-ingar náðu endanlega frumkvæðinu en þó tókst þeim aldrei að hrista Grindvík- inga almennilega af sér enda var leik- urinn nokkuð spennandi fram á loka- sekúndur. Þegar rétt rúmar þijár mínútur vom eftir af leiknum, í stöðunni 69-62, gerðist Einar Einarsson, þjálfari Grindvíkinga, sekur um mikið dóm- greindarleysi er hann fékk réttilega dæmda á sig tæknivillu fyrir að búka kjaft. Einar var að mótmæla því að dómarar leiksins stöðvuðu leikinn sök- um þess að 24 sekúndna leikklukkan rann út hjá KR en Grindvíkingar vom varla lagðir af stað í sóknina þegar það gerðist og því var hér um algjöran óþarfa að ræða hjá Einari enda kom það honum og liðinu í koll. Reyndar eygðu Grindvíkingar smávon um að jafna í lokin sökum stórleiks Billys Keys en góð vítanýting KR-inga gerði út um þær litlu vonir. „Það var sterkt hjá okkur að koma til baka eftir afleita byrjun þar sem við vomm algjörlega á hælunum. Lið okkar er flensuhrjáð og í heildina nokkuð lemstrað en við náð- um að hrista það af okkur og ég er virkilega ánægður með mína menn,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR-inga í leikslok. -SMS Spenna á toppnum KR-ingar settu heldur betur spennu í toppbaráttuna þegar þeir gerðu góða ferð til Njarðvíkur og lögðu heima- menn, 93-103. KR hefur gengið vel með Njarðvíkurliðið að undanfórnu og var þetta fimmti sigur liðsins í röð gegn Njarðvík og hafa þrír af þessum fimm sigrum verið i ljóna- gryfiunni í Njarðvík. Það gerði útslagið að þessu sinni að KR-ingar gerðu 13 stig í röð í byrjun seinni hálfleiks og lögðu þar með þeir grunninn að sigrinum. Hermann Hauksson átti stórleik í liði KR gegn fyrmm félögum sínum og hitti mjög vel úr skotum sínum. Hann var sjóðandi heitur í fyrsta leikhluta þar sem hann gerði 14 af 26 stigum sinum í leiknum. Einnig átti Jón Arnór Stefánsson góðan leik en hann meiddist snemma í öðrum leikhluta og varð að fara út af en kom síðan aftur inn á í seinni hálfleik. Hann og Hermann vom fremstir í flokki þegar KR var að stinga Njarðvík af í upphafi seinni hálf- leiks. Ólafur Ormsson og Keith Vassell áttu einnig ágæt- is leik en Vassell gat ekki beitt sér að fullu þar sem hann á við meiðsl að stríða. Arnar Kárason átti finan leik og stýrði leik liðsins ágætlega. Hjá Njarðvík var Brenton yfirburðamaður. Hann skor- aði grimmt ásamt því að taka fráköst og eiga góðar send- ingar á samherja sína. Logi Gunnarsson var fárveikur og var ekki sjálfum sér líkur. Hann reyndi þó í smátíma en fór fljótlega út af aftur. Daninn Jes Hansen var góður og greinilegt er að hann nýtur sín miklu betur eftir að Frið- rik Stefánsson kom til liðs við Njarðvík. -BG KR-Grindavík 80-76 0-2, 4-8, 9-15, 11-18, 13-24 (16-26). 16-28, 19-32, 24-34, 25-36, 30-36 (32-36). 34-36, 41-38, 47-40, 51-46, 53-50, (53-54). 56-54, 57-57, 64-59, 71-65, 76-71, 80-76. Stig KR: Ólafur J. Ormsson 23, Jón A. Stefánsson 13, Keith Vassel 12, Arnar S. Kárason 10, Jonathan J. Bow 9, Hermann Hauksson 6, Magni Hafsteinsson 4, Tómas Her- mannsson 3. Stig Grindavik: Billy Keys 33, Páll Axel Vilbergsson 11, Dagur Þórisson 9, Pétur Guðmundsson 8, Bergur Hinriksson 8, Guðlaugur Eyjólfsson 7. Frúköst: KR 37, (Ólafur 11) Grindavík 31 (Pétur 8) Stoðsendingar: KR 22 (Arnar, Hermann 5), Grindavík 2 (Keys 2) Stolnir boltar: KR 3, Grindavík 6 (Páll Axel 2.) Tapaðir boltar: KR 11, Grinda- vík 2. Varin skot: KR 2, Grindavík 1. 3ja stiga: KR 9/21, Grindavík 7/29. Víti: KR 18/23, Grindavik 6/8. Dómarar (1-10): Kristinn Albertsson og Eggert Þór Aðalsteinsson. (7) Gteði leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 250. Maöur leiksins Billy Keys, Grindavík. Njarðvík-KR 93-103 6-6, 14-11, 22-18, 24-25 (24-33), 24-38, 33-42, 40-42, 46-47 (46-50), 48-50, 48-63, 56-65 (61-73), 66-80, 81-89, 92-98, 93-103, Stig Njarðvíkur: Brenton Birming- ham 39, Jes Hansen 20, Teitur Ör- lygsson '14, Friðrik Stefánsson 9, Halldór Karlsson 6, Logi Gunnars- son 5. Stig KR: Hermann Hauksson 26, Jón Arnór Stefánsson 20, Ólafur Ormsson 18, Keith Vassell 15, Arnar Kárason 13, Jónatan Bow 6, Magni Hafsteinsson 5. Fráköst: Njarðvík 34,11 í sókn og 23 í vörn (Brenton 10), KR 37, 9 í sókn og 27 í vörn (Ólafur 8, Bow 8). Stoðsendingar: Njarðvík 17 (Frið- rik R, Brenton 7), KR 15 (Arnar 7). Stolnir boltar: Njarðvík 17 (Hansen 5), KR 11 (Vassell 4). Tapaðir boltar: Njarðvík 14, KR 17. Varin skot: Njarövík 3 (Teitur, Han- sen, Logi), KR 1 (Hermann). 3ja stiga: Njarðvík 10/21, KR 10/28 Víti: Njarðvík 26/37, KR 24/36. Dómarar (1-10): Einar Einarsson og Rögnvaldur Hreiðarsson (5). Gœói leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 350. Maður leiksins: Hermann Hauksson, KR. Dregiö til undanúrslita á morgun: Hef Bidasoa á tilfinningunni - segir Viggó Sigurðsson um hugsanlega mótherja Á morgun verður dregið til undanúrslita í EHF-keppninni í handknattleik í höfuðstöðvum Evrópusambandsíns í Vínar- borg. Fjögur lið eru i hattinum þegar dregið verður: Haukar, þýska liðið Magdeburg, Bidasoa frá Spáni og RK Metkovic Jambo frá Króatíu. Árangur Haukanna undir stjórn Viggó Sigurðssonar er mjög athyglisverður en tveim- ur íslenskum félagsliðum hefur tekist það áður að komast í und- anúrslit á Evrópumótunum, Vík- ingi og Þrótti. Valsmenn hafa náð lengst en þeir mættu þýska liðinu Grosswaldstadt í úrslitum Evrópukeppni meistaraliða og töpuðu stórt. „Það er óskyggja leikmann- anna sjálfra að fá Magdeburg strax i undanúrslitum. Það yrði mjög spennandi að fá Magdeburg hingað til lands og þá ekki síst peningalega séð. Þetta eru allt erfið lið í undanúrslitunum en ég tippa á það að við fáum Bida- soa í næstu umferð. Ég hef það bara svo sterkt á tilfinningunni. Þetta á hins vegar allt eftir að koma í ljós á morgun í drættin- um,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, í samtali við DV í gærkvöld. Magdeburg sterkasta liöiö í hópnum Viggó sagði að Magdeburg væri tvímælaust sterkasta liðið af þessum fiórum liðum sem eft- ir væru í keppninni. Umgjöröin í kringum liðið er frábær „Það er eintómir snillingar í hverri stöðu hjá Magdeburg. Lið þeirra gæti stillt upp í byrjunar- liði eingöngu heims- og Ólymp- íumeisturum í hverja stöðu sem segir talsvert um styrk liðsins. Það er mikil spenna í Firðinum vegna dráttarins á morgun og frábært að vinna með lið sem náð hefur eins langt og raun ber vitni. Umgjörðin í kringum liðið hefur verið í einu orði sagt frábær og áhangendur hafa stutt einstaklega vel við bakið á lið- inu,“ sagði Viggó Sigurðsson. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.