Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2001, Side 15
MÁNUDAGUR 5. MARS 2001
31
DV
Sport
Islensk hross á Grænlandi:
Hestamolar
Aöstandendur Meistaradeildar í hesta-
íþróttum hafa samið viö Netheim ehf
og hesta847 (www.hestar847.is) um að
þeir verði aðalkostunaraöilar Meist-
aradeildar keppnistímabilið 2001.
Deildin mun verða kennd viö 847 og
heitir keppnistimabilið 2001 - Meist-
aradeild 847 í hestaíþróttum.
Keppnin byggist á mótaröð, þar sem
keppendur safna stigum til meistara-
tignar. Keppnin spannar þrjá til fjóra
mánuði og etja sömu keppendur kappi
alla mótaröðina. Hluti keppenda fellur
úr meistaradeild milli ára eða þarf að
keppa um sæti sitt við nýja áskorend-
ur. Hvert mót er tiltölulega stutt eða
um það bil tvær klukkustundir. Ár-
angur sex móta gilda til stigasöfnunar.
Auglýst verðlaunafé er 500.000 krónur.
Keppni verður háð annan hvem mið-
vikudag og var fyrsta mótið haldið á
miðvikudaginn í ÖlfushöU. Keppt var
i fjórgangi en næst verður keppt í
tölti. Hinrik Bragason sigraöi á Roða
frá Akureyri og hlaut 10 stig.
Grænlendingar hafa eflt feröaþjónustu sína mjög á undanförnum árum. DV-mynd Eiríkur Jónssor
- enginn bilbugur á þeim íslenska við heimskautsbaug
Lengi vel voru íslensk hross ein-
ungis á suðurströnd Grænlands en
áriö 1998 kom dönsk kona, Anita
Höegh, til íslands, keypti tíu hross
og fór með þau til Kangerlussuaq,
sem nefnist Syðri-Straumsfjörður
á íslensku. Kangerlussuaq er á
vesturströndinni um 60 kílómetra
norður af heimskautsbaug. Þar eru
hrossin notuð í ferðamannaþjón-
ustu.
„Ég kom til íslands í október
1998 til að kaupa góð hross fyrir
ferðamannaþjónustu hér í Kan-
gerlussuaq á Grænlandi," segir
Anita Höegh. „Á tíu dögum tókst
mér að heimsækja um tuttugu
bóndabæi, kannaði um 300 hross,
fór á bak 100 hrossum og keypti tíu
stykki. Þetta var mjög gaman og ég
kynntist fjölda hestamanna á ís-
landi.
í nóvember leigði ég flutninga-
vél frá Icelandair og fór með hross-
in til Grænlands. Gunnar Arnar-
son fylgdi hrossunum. Allt fór
samkvæmt áætlun og hrossin voru
róleg er þau komu til Grænlands.
Þau virtust hafa ánægju af nýrri
tegund af snjó og nýjum aðstæðum
hér í Kangerlussuaq.
íslensk hross hafa verið á Græn-
landi allt frá tímum víkinganna en
einungis á suðurhluta Grænlands.
Nú eru þau notuð af sauðfjáreig-
endum til að smala fé. Ég held að
þau séu um 200 nú. Ég fæddist á
Suður-Grænlandi og þegar ég var
orðin 10 ára var ég komin með
töluverða reynslu af íslenskum
hrossum. Við stefnum að því aö
kaupa 10 hross á þessu ári til að
bæta í hópinn.
Heimasíða okkar er www.green-
land-guide.gl/info/kangerlussuaq
og þar er hægt að fá upplýsingar
um feröir okkar á Grænlandi," seg-
ir Anita Höegh.
Þessi hross voru keypt á íslandi:
92.1.35-726 Mósi frá Múlakoti
89.1.84- 485 Sandg.-Bleikur frá Krossi
91.1.84- 277 Sigga-Bleikur frá Hólmi
89.1.84- 643 Áll frá Hemlu
89.2.87-691 Blesa frá Skálmholti
90.1.85- 054 Jói frá Fossi
87.1.86- 005 Glói frá Stóra-Hofi
89.1.87- 342 Stjarni frá Læk
89.1.86-766 Svarti-Pétur frá Skardi
Óbeisluð náttúra
Hestaferðir við Kangerlussuaq á
Grænlandi nálgast mjög óspillta
náttúru því boðið er upp á ferðir
þar sem sjást sauðnaut, hreindýr,
refir og margar tegundir fugla.
Ferðirnar eru mjög mismunandi,
allt frá klukkustundarferðum upp í
þriggja daga ferðir þar sem riðiö er
í fógru landslagi á graslendi og farið
upp að Grænlandsjökli. Eins er boð-
ið upp á hestvagnaferðir við Kan-
gerlussuaq. Veður er mjög gott á
þessum slóðum á sumrin, allt að 30
stiga hiti. -Eiríkur Jónsson
Sigurbjöm Báröarson var annar á
Hauki frá Akurgerði með 8 stig, Sig-
urður Sæmundsson var þriðji á Esjari
frá Holtsmúla með 6 stig, Sigurður
Sigurðarson fjórði á Óliver frá Austur-
koti meö 4 stig, Tómas Ragnarsson
fimmti á Jódísi frá Reykjavík með 3
stig, Vignir Jónasson sjötti á Hegra
frá Glæsibæ með 2 stig og Adolf Snæ-
björnsson sjöundi á Glóa frá Hóli með
1 stig.
Haldió var hestamót á Lögmanns-
hlíðarvelli við Akureyri síðastliðinn
laugardag. Ætlunin var að halda mót-
ið á ís á Pollinum en ísinn var ekki
nógu traustur fyrir hágenga hesta
norðanmanna. Auk tölts og skeiðs
með fljótandi stari voru sýndar 25
hryssur og 12 stóðhestar. Áhorfendur
voru fjöimargir og fóru af keppnisvell;
inum á árshátfð Léttis um kvöldið. í
tölti fullorðinna sigraði Baldvin Ari
Guölaugsson á Golufrá Yzta-Geröi
og Úlfhildur Siguróardóttir var önn-
ur á Skuggafrá Tumabrekku. í tölti
ungknapa sigraði Dagný B. Gunnars-
dóttir á Fannari frá Hólshúsum og
Gréta Jónsteinsdóttir var önnur á
Gretti frá Skriðu. Þorbjörn H.
Matthiasson sigraði í skeiði með
fljótandi starti á Bleikju frá Akur-
eyri á 8,4 sek. Sama tíma fengu Bald-
vin Ari Gudlaugsson og Vaskurfrá
Vöglum, en Þorbjöm sigraði í auka-
spretti.
íshestar hyggjast færa út kvíamar
og bjóöa íslendingum og öllum öðrum
sem vilja, að fara á hestbak í Kanada
og Þýskalandi. Fyrir íslendinga verða
hestaferðimar ævintýri þar sem riðið
verður í nýju umhverfi, svo sem skóg-
um. íshestar eru með feröir á íslandi
en einnig standa þeir að fyrirtækinu
Berghestum í Þórshöfn í Færeyjum.
-EJ
Hestamolar
Baldvin Ari Gudlaugsson á Akureyri
er kominn með framtíðarkeppnishest, 1.
verðlauna-klárhryssuna Golufrá Yzta-
Gerði. Gola hlaut fjórar níur fyrir gang-
tegundir síðastliðið sumar. Baldvin Ari
tekur þátt í úrtöku fyrir heimsmeistara-
mótið í Austurríki með hryssuna.
Á Sörlastöðum i Hafnarfirði var
Virkon S-OPEN töltmótið haldið siðast-
liöinn laugardag. Keppt var í fjórum
Qokkum. í barnaflokki sigraöi Sandra
Lif Þórðardóttir (Sörla) á Díönu frá
Enni og Margrét Freyja Siguröardótt-
ir (Sörla) var önnur á Skildi frá
Hrólfsstöðum. 1 unglingaBokki sigraði
Halldór Fannar Ólafsson (Andvara) á
Rómi frá Hala og Harpa Þorsteins-
dóttir (Andvara) var önnur á Söru frá
Húsey. í UngmennaQokki sigraði
Bylgja Gauksdóttir (Andvara) á Kol-
grími frá Ketilsstöðum og Daniel I.
Smárason (Sörla) var annar á Vest-
fjörð frá Hvestu. í opnum Qokki sigr-
aði Adolf Snœbjörnsson (Sörla) á Eld-
ingufrá Hóli og B irgitta Kristinsdótt-
ir (Gusti) var önnur á Nótt frá
íf/emmfskeiöi. Ef mig minnir rétt eru
hryssurnar báðar með 1. verölaun.
Um nœstu helgi verður mikið um að
vera hjá hestamönnum. Fimikeppni
Gusts í Kópavogi og Morgunblaðsins
verður haldin á laugardaginn. Keppt
verður í þremur Qokkum: meistara-
Qokki, Qokki keppnisfólks og frístunda-
Qokki. Allir keppendur munu keppa
undir dynjandi tónlist. Sörli og Andvari
halda árshátíðarmót á Sörlastööum, Á
Gauksmýri verður opið töltmót, Hjá
Heröi í Mosfellsbæ Áslákarvetrarleikar
og vetrarleikar Andvara, Glaðs og Gusts
auk Reiðhallartöltmóts Fáks. Öll þessi
mót eru skráð í mótaskrá LH.
Mikill áhugi er á töltmóti Töltheima i
Skautahöllinni í Laugardal 31. mars.
Um það bil 100 Þjóðverjar og Danir hafa
boöað komu sína og nokkrir Banda-
ríkjamenn hafa pantað miöa. Aö sögn
Bjarna Þ. Sigurðssonar munu færri
en 30 hross hefja keppni og hefur verið
ákveðið að breyta lokakeppninni svo að
hrossin komi ekki eins ofl fram og áöur.
Það er gert til að minnka álag á hross-
_ in. Keppnisform verður opið, ekki bund-
* ið í klafa reglugerða. Hinn kunni hesta-
maður og handboltakappi, Erling Sig-
urðsson, hefur veg og vanda af vali á
knöpum og hestum og fara nöfn þeirra
að heyrast bráðlega.
Keppt verður i nýrri hraðagrein í
meistaradeildinni í hestaíþróttum,
grein sem verður hönnuð af Sigurði
Sœmundssytii og Reyni Aðalsteins-
syni. Það er ekki oft sem hestamenn fá
að hanna keppnisgreinar og verður at-
hyglisvert að sjá hvað þeir kumpánar
tína úr pússi sínu. Byggist greinin upp
á hraða, mýkt og hve þjálir hestamir
eru og þarf að vera samþykkt af kepp-
endum. Keppt verður i þessari grein í
Ölfushöll 11. apríl. -EJ
Atkvæðagreiðsla í Reykjavík um
framtíð Vatnsmýrar og staðsetningu
Reykjavíkurflugvallar 17. mars nk.
Kjörskrá
Kjörskrá vegna atkvæðagreiðslu 17. mars nk. liggur
frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur
frá 7. mars nk. fram á kjördag. Vakin er athygli á að
kjörskrána er einnig að finna á heimasíðu
Reykjavíkurborgar: www.flugvollur.is
Kjósendur eru hvattir til þess að staðfesta að nöfn
þeirra séu á kjörskránni. Athugasemdum við kjörskrá
skal beina til borgarráðs.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna atkvæða-
greiðslu 17. mars nk. fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur,
mánud. til föstud., frá kl. 8.20 til kl. 16.15.
Hefst hún 8. mars nk. og stendur fram að kjördegi.
Kjósendur sem ekki verða heima á kjördag, svo og
þeir sem af einhverjum ástæðum óska síður eftir að
taka þátt í raffænni atkvæðagreiðslu, eru hvattir til að
nýta þennan möguleika til þátttöku.
Reykjavík
Borgarstjórinn í Reykjavík