Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2001, Blaðsíða 6
Þúsundir íslendinga fylgdust með er Vala Flosa sýndi heiminum hvað í henni býr og hirtí bronsið á ÓL
2000 í landi krókódíla og snáka. Vilji svo ólíklega til að einhverjir íslendingar hafi týnst í eyðimörk Ástralíu
á meðan á leikunum stóð er Fókus með nokkrar útileguábendingar.
Hvernig
Vala Flosa er hetja - þaö er engin spurning. íslendingar hafa líklega aldrei
verið jafn hamlngjusamlr og þegar Vala litla þaut eins og eldibrandur yfir
prikiö sem fyrir hana hafðl verið sett. Eftir því sem Fókus kemst næst fylgdu
nokkrir íslendingar „stelpunni okkar“ í Ástralíu og hafa ekki enn skilað sér.
Eftir gaumgæfilegar rannsóknir ákvaö blaðiö að setja saman nokkrar skot-
heldar leiöir fyrir þessar sálir til þess að lifa af krókódílaárásir í óbyggöum
fanganýlendunnar gömlu.
A.
Ef þaö er ráðist á þig á landi
skaltu reyna að klifra á bak
króksa og setja þrýsting á háls
hans. Þannig þrýstir þú höfði
hans og kjálkum niðuj€
/
w
c/
Ef króksi æðir hratt að þér
skaltu reyna mótárás á nef eða
augu hans. Reyndu að skaða
augu hans eða nef með einhverju
vopni - ef þú'ért'vopnlaus skaltu
' notn hnefana.
Ef króksi nær að læsa tönn-
unum í pig verður þú að réyna
að koma í veg fyrir að hann nái
að velta sér eða hrista þig og
skekja - þessar eðlislægu hreyf-
ingar króksa munu valda alvar-
legum vefjaskemmdum. Reyndu
að halda kjafti króska klemmd-
um saman svo að hann byrji
ekki aö hrista sig.
fc,
B. »
Reyndu að hylja augu
króksa. Venjulega mun
þetta róa vininn örlítið.
Ef króksi hefur læst kjálk-
unum um eitthvað sem þér er
annt um (til dæmis útlim),
skaltu reyna að banká á
snoppuna á honum. Krókódil-
ar eiga það til að opna kjaftinn
þegar bankað er laust á snopp-
una. Til eru dæmi þess að þeir
hafi hreinlega sleppt þvi sem
þeir hafa náð taki á og horfið
frá.
arlaust - jafnvel þótt þú haf-
ir aðeins skorist eða marist
lítillega. Það er nauðsynlegt
að koma í veg fyrir sýkingu
í sárum eftir krókódíla, en
munnar króksa eru fullir af
sýklum sem geta valdið
heiftarlegum sýkingum.
ast
Vilji svo ólíklega til að landar okk-
ar í Ástralíu hafi ekki þegar verið
étnir af krókódílum skulu þeir hafa
þessar ábendingar í huga:
“1MB
Það borgar sig ekki að láta
fætur eða hendur hanga út úr bát-
um. Ekki er heldur ráðlegt að
henda fyrir borð ónotaðari beitu.
Ekki synda eða vaðá í ám eða
vötnum sem þekkt eru fyrir við-
veru krókódíla.
í flestum tilvikum hafa
krókódílar sem ráðast á fólk
verið aldir af mönnum - fæði
menn krókódUa virðast þeir
hætta að vera hræddir við
menn og verða árásargjamari.
Forðist að áreita,
fanga krókódUa.
snerta eða
g-
Ekki gefa krókódUum að éta.
Látið krókódílaunga og egg í
friði. Fullvaxnir krókódílar
verða rosalega svekktir þegar
verið er að hnusa eitthvað í
kringum afkvæmi þeirra.
Vilji svo ólíklega tU að
þú hafir betur í barátt-
unni' við króksa ber að
hafa, tvennt í huga:
Krókódílastígvél munu
aftur komast í tísku og
krókódUakjöt er aUs ekki
ósvipað kjúklingi á bragð-
ið. Verði ykkur að góðu.
mikaels torfasonar
trópíkal æland
Ég hitti eina millann sem ég þekki um daginn.
Þetta er strákur á aldur við mig. Meikaði það
big tæm á því að selja heimsku fólki verðbréf-
in sín á uppsprengdu veröi. Hann hló svoldið
brjálæðislega þegar hann fullyrti að ef hann
væri Kani og hefði unnið hjá ameriskri fjár-
málastofnun væri hann að horfa á þetta 5-20
ár. Nú veit ég sama og ekkert um
refsirammann i Bandarikjunum annað en að
stundum drepa þeir þá sem yfirvöld vilja ekki
halda uppi í fangelsum en vinur minn átti aðal-
lega við að lögin þartæku strangara á innherja-
viðskiptum.
Nauðgunardómur?
0g löggan á líka að vera að rannsaka vin minn
og vini hans þessa dagana. Ekki það að ég
haldi að eitthvað komi út úr því nema einn og
einn nauðgunardómur. Þrir mánuðir í vellysting-
um hjá frænku minni á Kvíabryggju og svo
markaösstarf hjá einhverjum söluturni þar til
þeir hljóta uppreisn æru. En þetta minnir samt
allt allverulega á fall síöustu uppanna okkar.
Þessa sem byrjuðu að rotna upp úr '87.
Og þaö viröist margt benda til þess að góðær-
iö sé farið til fjandans. Davíð lemur aö visu
hausnum við steininn áfram en það er lika
bara af þvi aö hann og hans líkar eru ekki að
fara á hausinn. Það erum við litlu mennirnir
sem rennum nú á kúpuna. Lögfræðingarnir
trana sér fram úr skuggaveröldum sínum með
kröfur frá Ijármálafyrirtækjunum af því að við
höfum ekki efni á aö borga af lánunum sem við
tókum fyrir verðbréfunum hans Kára. En ef viö
keyptum engin bréf finna þeir bara einhverjar
gamlar kröfur á okkur, úldna yfirdráttarheimild
eða bara að litlu meðalstóru fyrirtækin hafi
verið svo hrikalega ofmetin svo að þau hafi
ekki efni á að standa undir því lengur. Við erum
öll að fara á hausinn.
Saga búttíííkk
Og ég fagnaði í fyrstu. Hugsaöi með mér að
þessu helvítis góðæri færi nú að Ijúka og það
eina sem maöur gæti gert væri að hringja i
Lögbirtingablaðiö og kaupa áskrift. Fylgist meö
æskufélögunum (og sjálfum mér) missa allt á
næstu mánuöum. Sem gæti verið skömminni
skárra en horfa á þá Ijúga að sjálfum sér að
héöan frá sé þetta upp á viö. Ég er kominn
með nóg af að hlusta á þá (og sjálfan mig)
Ijúga að sjálfum sér og er í skapi til að lesa um
að þeir (og ég) séu að fara á hausinn. Þeir
ættu þá að vera hættir að blekkja sig, getur
maður hugsað með sér og bragðað söltu tárin
sem maður fellir rétt áður en tólið er rifiö af
heimilissimanum til að hringja I lokaðan síma.
Þá skrifar maður bara bréf og stappar í þá stál-
inu.
En ég er ekki viss lengur hvort ég á að fagna.
Um leið og ég steig upp í nýju Flugleiðavélina á
leið minni í stutta heimsókn til íslands frá Dan-
mörku byrjaði ég að sakna góðærisins. Og það
var ekki flugfreyjan sem öskraöi „Saga bút-
tiííkk, Saga búttííikk, Saga búttíiikk," sem olli
því. Nei, söknuðurinn var djúpstæðari.
Trópíkal æland
I fyrsta lagi var góðærisflugvélin svo sjúklega
flott. Sjónvarpsskjáir komu niður úr loftinu, 12
útvarpsrásir á hverjum sætisarmi og þar af ein
slökunarspóla. Og ég gat ekki annað en stillt á
hana. Leiö illa yfir þessu góðærisbrölti öllu
saman. Við sátum þarna í nýju vélinni og litum
út eins og fávitar, íslendingarnir, að horfa á
áróðursmynd um ísland að hætti nasista. Ein-
hver gæi með breskum hreim sagði okkur
hversu frábært þetta land væri. Og þegar út-
lendingur segir manni aö maður sé frábær trú-
ir maður honum. En verst að mér heyrðist sami
gæinn stjórna slökunarspólunni.
„Visjúalæs ei trópíkal æland," og svo þandi
Casiohljómborðiö sig og Bretinn hélt áfram aö
lýsa rólegheitunum í hitabeltinu. Verst aö um
leið og hann var búinn að svæfa mann á þess-
ari eyju sagöist hann ætla að vekja mann. „Ná
ópen jor æs and fil gúd.“ Svona eins og hann
væri bara að stappa í mann stálinu svo maður
gæti haldið áfram að horfa i kringum sig í flott-
ustu flugvél i heimi og kaupa tannstönglahylki
úr silfri handa tengdapabba.
Extra.is
Ég lét samt ekki blekkjast. Nei, nei. Þaö var
kannski vottur af góðæri í þessari flugvél en
maturinn slengdi mér niður í jörðina og sann-
færði mig enn frekar um að það væri að koma
kreppa. Þjóöernisbrenglunin í myndbandi Rug-
leiða var lika einhvern veginn eins og Stalín
væri að sannfæra hungurmorða þjóð um að
Sovétrikin væru útópía veraldarinnar.
Og það var þá sem ég fór aö sakna góöæris-
ins. Menn voru kannski að Ijúga verðbréfum
inn á hver annan og segja sér að komið væri
Mikael Torfason virðist hafa fengið þær frábæru fréttir að góð-
ærið sé horfið. Hann fíúði nefnilega til Danmerkur þegar það
byrjaði og fíytur ekki heim aftur fyrr en það er komin kreppa.
Er þetta búiö, Davíö? Ég þakka auövitaö samveruna en í guöanna bænum ríföu
þetta upp. Ef Kolbrún Halldórsdóttir verður menntamálaráðherra get ég rétt
elns hengt mig svo nú ríöur á aö þú farir aö sýna okkur einhvern hroka af viti.
nýtt líf. Ég gaf einmitt frænku minni nýja bílinn
minn með öllum lánunum í fyrra ogvar með þvi
að búa mig undir að allt þetta gamla fái upp-
reisn æru. Ætli Radius verði ekki fyndnir aftur,
Vegas viki á ný fyrir Tveim vinum og Svavar
Gestsson kemur örugglega heim úr góðærisút-
lægðinni og tekur til máls.
nýtt hagkerfi sem gæfi okkur, almúganum,
séns á að verða rik eins og Kolkrabbinn. En
fólk virtist hamingjusamt. Eyþór Arnalds brosti
meira að segja út að eyrum framan á eina tölu-
blaði Extra.is og Davíö át hamborgara í upphafi
þess en hefur verið i árangurslausri megrun
síðan.
Sólskinsbörnin
Við vorum öll hamingjusöm í góöærinu. Sól-
skinsbörnin, íslendingar. Það voru við. Og svo
miklir mongólitar vorum við að við lásum
Extra.is, fannst 24/7 intelektúal, skyr.is gott,
ungfrúisland.is sæt á Benz en auðvitað Ijót á
nööru, Andrea Róberts ekki bara sæt og nokk-
uð kúl hjá Einari Ágústi að mæta í pilsi á Júró-
visjon. Þaö var gaman í góðærinu og við höfum
margs að sakna.
En nú sjáum við fram á að gömlu bilarnir fá
www.godaeri.is
Og þá er maður ekki viss lengur. Var þetta ekki
bara fint? Má góðærið ekki vera aðeins leng-
ur? Allavega nógu lengi til að opna nýju Kringl-
una I Smáranum og til að þetta yndislega fyrir-
tæki, Rugleiöir, þurfi ekki að selja nýju flugvél-
arnar sínar og aö viö æskufélagarnir missum
ekki allt sem við eigum?
Ekki fara, góðæri. Úti í bæ er örugglega ein-
hver maður sem á www.godaeri.is og hvers á
hann að gjalda. Niður með kreppuna!
6
f Ó k U S 16. mars 2001