Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2001, Blaðsíða 11
Islendingar eru skemmtilegur þjóðflokkur eins og við öll þekkjum. Við höfum alið af okkur fjölmarga furðulega karaktera og þjóðarsálin er afar sérstök. Það vill oft fylgja landanum að bera sig saman við erlendar þjóðir eins og við þjáumst af einhvers konar minnimáttar- kennd. Augljóst ætti þó að vera að við getum staðið á eigin fótum, við þurfum ekki á sam- anburðinum eða fyrirmyndunum erlendis frá að halda. Það er löngu kominn tími til að C við íslendingar gerum okkur grein fyrir ágæti okkar og slítum tengslin við erlendar fyrirmyndir okkar. Við erurh einfaldlega best og eigum að vera stolt af því. /W7 er þó aö enginn skilur okkur. Út- lendingar vilja kannski meina að íslenskan hljómi furðulega en okk- ar mótrök eru þau að þeir séu miklu verri, Meira að segja „Ég elska þig“ á þýsku hljómar eins og morðhótun frá Gestapoforingja... ið án Þjóðminjasafns í fjölda ára og samt er ferðamannastraumurinn V alltaf að aukast. Þótt þú hafir svikið undan skatti, rænt banka og selt dóp get- urðu samt komist til áhrifa. Þrátt fyrir fámennið og jafnræð- ið í þjóðfélaginu erum við komin með vísi að stéttaskiptingu, alla vega nóg til að maður geti fyrirlit- ið fólk sem maður hefur aldrei hitt. / Þ ú / getur / kvart- / aö yfir ' / launun- >• um þinum f allt árið en ^ skotiö upp flug- eldum fyrir hundruð þúsunda á gamlárskvöld og enginn segir neitt. Hommar geta orðið þingmenn. Við komumst upp meö að tala ís- lensku með mismunandi hreim þrátt fyrir að vera aðeins 270 þús- und. Þú getur sofið hjá frænku þinni, við erum öll skyld. Þú getur orðið ríkur á að selja fólki verðlaus hlutabréf Þú getur fengið forsetann og for- sætisráðherrann til að opna fyrir þig matsölustað. I v e i s t J allt um / nýlátinn í mann og úr hverju hann dó, bara með því að lesa Mogg- Engir aðrir en íslendingar gætu keyrt í nokkra tíma, verið í tjaldi yfir helgi og sagst hafa verið í fríi. Það er öllum sama þó þú sért blindfullur 13 ára á útihátíð, það eru hvort sem er allir fullir. Þú veist allt um ástarmál forset- ans og fjölskyldu hans. ^ Lélegar leikkonur líka. Þú getur gengið niður Laugaveg- inn og heilsað hverjum sem er og hann heilsar á móti. Ef hann þekk- ir þig ekki er hann viss um að hafa séð þig áður og heldur að hann eigi að þekkja þig. Það virðast allir geta meikað það, meira að segja Selfyssingar. Sjáið bara bræðurna Adda Fannar og Einar Bárðar. Vatnið. Við eigum besta vatn sem fyrirfinnst á jörðinni og það vita allir. Ekki nóg með að útlend- ingar hrósi okkur heldur höfum við getað flutt það út í nokkrum mæli og grætt vel, að Þórhalli Öl- ver frátöldum. Sóley á SkjáEinum, Þóra Dungal og Brynja X. Vífilsdóttir. Fyrst þær geta komist áfram ættir þú að ná langt. íslenska tungan er magnað fyrirbrigði. Ómetanlegur menn- k ingararfur sem Wk*. við getum verið fgk stolt af. Það Im. besta Ónýtt, rennandi blautt land- svæði er talið náttúruperla. Það getur hver sem er komið hvaða skoðunum sem er á fram- færi í Morgunblaðinu. Og allir lesa það. Jón Sig- urðsson. Við eigum A o k k a r frelsis- /M Ef vinur þinn kemst í áhrifa- stöðu geturðu bókað aö hann gleymir þér ekki. Við kunnum ekki að hegða okk- ur í útlöndum og erum best komin með því að halda okkur heima. Hver þekkir ekki sögur af íslend- ingum i fangelsi á Benidorm eða í Danmörku? Við erum best í næstum öllu, alla vega miðað við höfðatölu. hetju, \ mann- V inn sem ; s a g ð i 19 „ V é r mótmæl- um allir“. I Hann er \ kannski eng- inn Mel Gib- son í Braveheart en hann dugar okkur vel. Þú getur litið á það sem ævistarf að vera nauðgari og samt verið bara 3 mánuði á ári í fangelsi. Við eigum Norðurljósin og höf- um meira að segja reynt að selja þau. ^ Kristján Möller alþinglsmaöur. Jason Alexander lelkari, Júróvisjón. Við erum alltaf að fara að vinna keppnina og í raun vinnum við hana á hveiju ári. Annað sætið er sigur fyrir okkur. Alþingismaðurinn Kristján Möller er auðvitað ekki nándar nærri eins fyndiim og Jason Alexander sem lék George í Seinfeld. Hann er einn af þeim þingmönnum sem fæstir vita hvað heita og enn færri vita fyrir hvaö hann stendur. Það fer hins vegar enginn í grafgötur um mál Jasonar Alexanders, hann er fyndinn á að horfa og gamanleikari af guös náð. Hvort sú staðreynd að Kristján Möller kemur frá Siglufirði hefur eitthvað með þetta mál að gera skal ekki fullyrt hér en hitt er víst að hann mun aldrei ná þeim hæðum sem Jason hefur náð. Landið er umlukið hafi sem er ótvíræður kostur. Við fáum að mestu að vera í friði og enginn get- ur fleytt kerlingar eins og íslensk böm. Sjáið bara Bjama Hauk hellisbúa. Þú getur farið úr því að syngja á sveitaböllum í að boða nýja kyn- slóð í farsímum og fjarskiptalausn- um. Sjáið bara Eyþór Amalds. Það kippir sér enginn upp við bæjamöfn á borð við Saurbæ þeg- ar ferðast er um landið. Þú getur baktalað næsta mann að vild í útlöndum, það skilur þig Hrepparígur er skemmtilegt ís- lenskt fyrirbrigði. Erlendis er rif- ist um atkvæðavægi milli ríkja en hér er rifist um hver á hvaða kind i réttunum og hvort sameina eigi Það er ekkert mál að verða sér úti um munntóbak þó það sé bann- að með lögum. Meira að segja lögg- ur kaupa af dílerunum í vinnunni. Veðrið, við getum haft fjórar gerðir af veðri fyrir hádegi og eng- inn kippir sér upp við það. Venju- lega er veturinn tíu mánuðir, haustið einn og hálfur, vorið hálf- ur mánuður og sumarið þrír dag- ar. Þetta þekkir þjóðin og enginn nennir að kvarta lengur, það er bara plús ef þetta riðlast fyrir ein- Við eigum fyrirtæki eins og ís- lenska erfðagreiningu sem mim gera okkur kleift að búa til hinn fullkomna einstakling. Þú getur fengið vegabréfsárifim inn í hvaða land sem er, það er öll- um skítsama um þig. Við eigum heilagasta fána i heimi. Það má ekki einu sinni missa hann í jörðina. 41 Unga kynslóðin okkar er öfgakenndari en allt annað. Þau voru síðhærðari en Bítlamir úti í heimi, gaddaðri en pönk- ararnir úti og svartari en rappararn- ir í Banda- ríkjun- um. eru gamla handboltalandsliðið, Vala Flosa og Selma Bjöms. ~W Landbúnaðarráðherra vill hefja innflutning á erlendu kúakyni á meðan gárungarnir segja hann vilja stöðva innflutning á erlendu mannkyni. Ef þú ert í stjórnmálum máttu gera hvaða skandal sem er og þú þarft aldrei að segja af þér. 43 Við höfum unnið öll stríö sem við höfum farið í. Bretamir þykj- ast enn ekki kannast við Þorska- stríðin. Allir íslendingar sem ná árangri í einhveiju verða sjálfvirkt óska- böm þjóðarinnar. Nærtæk dæmi Okkar kúreki býr nyrst allra. ráðamaður þjóðarinnar var í símaskránni þar til fyrir skemmstu. Æðsti 43 ísland er eina landið þar sem flugstjórinn býður þig velkominn heim þegar þú lendir. Það kostar ekkert að fá sér hóru^ 10 f Ó k U S 16. mars 2001 16. mars 2001 f Ókus 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.